Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 22.12.1948, Síða 13

Verkamaðurinn - 22.12.1948, Síða 13
RÓSBERG G. SNÆDAL: Hugleiðing á tíu ára afmæli Tíu ár eru nú liðin síðan hinn rót- tæki armur íslenzkrar alþýðu stofnaði sinn sameinaða stjórnmálaflokk — Sameiningarflokk alþýðu — Sósíalista- flokkinn. Þótt ekki séu fleiri ár að baki, ber margt fyrir, þegar maður rennir augum yfir gengna starfsbraut flokksins nú á 10 ára afmælinu og það hygg eg, að hver sósíalisti geri, enda nauðsynlegt að vera minnugur þeirr- ar reynslu, sem fengin er í unnu starfi. Saga Sósíalistaflokksins heíur óaflát- anlega mótast af tvennu: harðri bar- áttu og stórum verkefnum. Æfi iians hefur verið biðlaus tími í flestum skilningi. Heimurinn hefur logað í ófriði og boðaföll af hans völdum hafa gjálpað við strendur þessa lands, með þeim afleiðingum, að miklar viðsjár hafa ríkt í þjóðlífi okkar og ríkja enn. Þetta ástand varð til þess, að gera hlutverk Sósíalistaflokksins stærra og viðfangsefnin fjölþættari og yfirgrips- meiri en verið hefði á „normal“- tímum. Sameiningarflokkur alþýðu og forusta hans hlaut eldskírn sína í viðureign við innlent auðvald á fyrra helmingi heimsstyrjaldarirmar, þegar það, í skjóli tveggja stórveldaherja og með beinni hjálp þeirra, hugðist afmá flokk alþýðunnar með valdbeitingu og fólskuverkum og slá þar með hina rót- tæku verkalýðshreyfingu niður í eitt skipti fyrir öll. En það átti nú svo að fara, að þessi heiftúðuga flóðbylgja, sem auðstéttin íslenzka beindi að alþýðustéttinni og flokki hennar, brotnaði og féll inn í sjálfa sig vegna forustuhæfni og skipu- lagsstyikleika hins unga sameiningar- flokks. Þannig hefur það og verið í hvert sinn, sem auðvaldið hefur vegið í þann knérunn, þó með mismunandi vopnaburði væri. Sósíalistaflokkurinn hefur þess vegna margra og stórra sigra að minn- ast, sigra, sem unnust fyrir atbeina félags- og stéttarþroska meðlima lians og fylgjenda, sigra, sem marka djúp spor í sögu verkalýðshreyfingarinnar, sigra, sem sanna okkur að allt það mikla og fé)rnfúsa starf, sem baráttan krafðist, hefur ekki verið unnið fyrir gýg, heldur fært okkur hröðum skref- um nær markinu. Sósíalistaflokkurinn hefur á þessurn fáu árum vaxið úr hóp áhugamanna, upp í það að vera öflugur fjöldaflokk- ur, sem hann nú er, leiðandi flokk- ur alþýðustéttarinnar, forustuafl í verkalýðshreyf ingunni. Þótt andstöðuflokkunum sameinuð- um takist enn að halda um stjórnar- taumana í ríkisstjórn og á Alþingi og reyni með meira og minna fasistískum aðferðum að hindra vöxt og viðgang Séjsíalistaflokksins og áhrif hans með þjóðinni, hefur þeim samt ekki tekist að brjóta skörð í brjóstfylkingu hans, eða hefta þróun hans og einingu. Sósí- alistaflokkurinn er í dag fjölmennari, traustari og samvirkari, en nokkru sinni fyrr. Að ætla sér að gera slíkan flokk atkvæðalausan, er jafn fráleitt og ætla að banna heilbrigðum manni að hugsa. Að þessi staðhæfing mín er stað- reynd, sannast líka bezt á baráttuað- ferðum og áróðri hinna þrfeinu auð- valdsflokka gegn Sósíalistaflokknum. Svo að segja öllu réimi allra hinna mörgu málgagna sinna verja þeir dag eftir dag og árið éit til að sverta og sví- virða Sósíalistaflokkinn og forustu- menn hans. Alla sína stjórnvizku og alla sína hugkvæmni nota þeir til hins ítrasta í baráttunni gegn áhrifum sósí- alismans. En allt kemur l'yrir ekki. Þeim getur að vísu tekist um stund að tefja þr(iunina. Þeir geta notfært sér stundlega aðstöðu til að níðast á al- þýðunni og samtökum hennar, þeir geta samið ný og ný launaránslög á Al- þingi og þeir geta þar haldið áfram að fella hvert einasta umbóta- og fram- faramál Sósíalistaflokksins og þeir geta gert fleiri vináttu- og varnarsamninga við vini sína í Wall Street. En þróun- inni fá þeir ekki snúið við. íslenzk al- þýða veit hvað hún vill, og það er hém — hún ein, sem hefur gert Sósíalista- flokkinn að því þjóðfélagsafli, sem hann er og hann mun enn halda áfrarn að vaxa að styrkleika og hæfni. • Séisíal istaflokkurinn hefur hingað til átt því höfuðláni að fagna, að vera allt- af heill og óskiptur innbyrðis, a. m. k. í öllum stærri málum. Starfsgeta hans og orka hefur því ekki lamast í reip- drætti milli forustumannanna um metorð, völd eða bitlinga eins og títt er í herbúðum auðvaldsflokkanna. — Nei, Sósíalistaflokkurinn hefur getað staríað lieill að lausn hvers verkefnis og staðið saman sem einn maður um stefnu sína og áhugamál. í því liggur fólgin gifta hans og styrkur. Flokkurinn hefur verið sérstaklega heppinn um val sinna forustumanna, undantekningarlaust og um leið og við sé)síalistar óskum honurn til ham- ingju með afmælið, þökkum við for- manni hans, miðstjórn og öðrum for- ystumönnum fyrir starf þeirra og von- umst til að flokknum rnegi auðnast að njóta starfskrafta þeirra og leiðsagnar, sem lengst. Sósíalistar! Starf er að baki og enn meira starf er framundan. Sósíalista- flokkurinn hefur stóru og erfiðu hlut- verki að gegna. En verum minnug þess, að stór verkefni eru undirstaða stórra sigra. Rósberg G. Snœdal. 13

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.