Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 22.12.1948, Page 16

Verkamaðurinn - 22.12.1948, Page 16
ÞORSTEINN JÓNATANSSON: Unga fólkið og blöðin í þrjá tugi ára liefur „Verkamaður- inn“ liáð lífsbaráttu sína, vaxið og; o þrosktist. Hann hefur haldið lí'fi þrátt fyrir hatrammar árásir öflugra and- stæðinga og sífelldan fjárskort. F.n vilji og áhugi þeirra, sem að útgáfu „Verkamannsins“ standa, hefur verið ódrepandi og jafnan, þegar horfur hafa verið á að útgá'fa hans stöðvaðist sökum fjárskorts, hefur verið leitað aðstoðar hjá alþýðunni, þeim snauð- ustu og verst settu í þjóðfélaginu. Og sú aðstoð hefur aldrei brugðist. Hún hefur jafnan verið fúslega veitt. Þó að getan hafi oft verið lítil, hefur vilj- inn verið þeim mun sterkari. Alþýða Akureyrar hefur gert sér það Ijóst, að „Verkamaðurinn“ er og hefur verið sterkasta vopnið, sem hún hefur haft yfir að ráða í baráttunni við óvini hennar, kapítalistana á Islandi, sem aldrei hafa skilið eða viljað skilja, að alþýða landsins á jafnan rétt til lí'fsins og þeir, jafnan rétt til að njóta allra þeirra gæða, sem landið getur veitt börnum sínum, jafna kröfu til þeirra réttinda, sem þjóðfélagið getur veitt einstaklingnum. Og „Verkamaðurinn" hefur ekki brugðist alþýðunni. Hann hefur aldrei reynzt neitt svikavopn. í höndum þeirra skeleggu baráttumanna, sem rit- stjórn hans hafa annast, hefur hann átt mikinn þátt í þeim sigrum, sem unnizt hafa í réttindabaráttu fólksins, og framförum í atvinnu- og menn- ingarmálum síðastliðin þrjátíu ár. „Verkamaðurinn" er elztur þeina blaða, sem nú eru gefin út af íslenzk- um sósíalistum, en enda þótt hann hæfi göngu sína 20 árum áður en Só- síalistaflokkurinn var stofnaður og 12 árum áður en Kommúnistaflokkurinn var stofnaður, hefur hann alla tíð verið boðberi hugsjóna sósíalismans og sannleikans. Aðstandendur blaðsins hafa sýnt þann drengskap og þor að reynast jafnan trúir hugsjónum sínum og hagsmunum verkalýðsins, en aldrei skelfzt, þó að svo virtist, sem viðóvígan her væri að etja, þar sem er margfaldur blaðakostur afturhaldsins. En það er líka munur að hafa sannleikann að bakhjarli og heilsteypta fræðikenningu sósíalismans. Sú mikla hjálp, sem blöð sósíal- ista hafa verði í sókn verkalýðsins á undanförnum árum verður aldrei metin til fulls, þeirra þáttur verður aldrei fullþakkaður. En betur má, ef duga skal. Enn er eftir að vinna stærstu sigrana. Það er enn eftir að ná fullu jafnrétti allra stétta þjóðfélagsins. Blaðakostur andstæðinganna er margfaldur á við blaðakost okkar sósí- alista, og enn sem komið er, getur aft- urhaldshersingin státað af því að eiga útbreiddasta blað landsins, en það ef eiturplantan „Moggi“. (Þjóðviljinn er nr. 2). Við sósíalistar megum ekki unna okkur hvíldar fyrr en blaðakost- ur okkar er orðinn a. m. k. jafn og andstæðinganna að síðutali ogeintaka- fjölda, og dagblað okkar Þjóðviljinn er orðinn útbreiddasta blað landsins. Þessu marki verðum við að ná, og við getum það, ef við bara liggjum ekki á liði okkar. Og það er einmitt æsku- lýður landsins, sem ætti að vinna ötul- legast að því að þetta mark náist sem fyrst. Þannig gæti hann bezt þakkað þeim mönnum, sem ha'fa lyft blöðum Sósíalistaflokksins yfir erfiðustu hjall- ana, byrjunarörðugleikana. En það er einmitt unga kynslóðin, sem fyrst og fremst nýtur góðs af verkum þeirra, {>ess vegna ber okkur, unga fólk, að sýna það í verki, að við séum menn, sem til einhvers sé treystandi. Eflum og útbreiðum Verkamanninn! Eflum og útbreiðum Þjóðviljann! Fyrir 29 árum Útlendar fréttir „Sthalberg prófessor hefur verið kosinn forseti Finnlands með 143 atkv. Mannerlieim fékk 50 atkvæði.*) Prentaraverkfall stendur yfir i Svíþjóð. Bretar draga her sinn brott úr Rússlandi." Grein þessi birtist 31. júlí 1919 í „Verka- manninum", sem þá var undir stjóm Hall- dórs Friðjónssonar. — 24 árum síðar var Mannerheim ekki sem verstur, að dómi Hall- dórs. Það breytist margt á skemmri tíma en aldarfjórðungi. *) Mannerheim var foringi „hvítu her- deildanna", sem beittu hinni örgustu grimmd við alþýðu Finnlands, þegar þær náðu yfir- hönd. — Ritstj. Verkatnaðurinn 13. júní 1947. — Svarað lögbrotum og ofbeldi Þorst. M. Jónssonar. — ^tUíisemjari Þorsteiiin M. Jónsson uprirsio brruii lflMl<lisv(Tkuinvió**i>rótr*áSi«r|nrirÓi: ; *mr tilraun lil {>cs< að laka tiildin af >t|V.rn lV-lagsins kjjúl.i það úl lir UTklt ksa.iiliikiiriiirn !*>"* %"■ ,lrl'r Ijinil »i» »i„ SjMirij .............'i"V,',h *ktí.M'.ari,,,.,/,rir ,u„„ a kum þ„fJ>Uur j.’r.r.r sl: •w >■„ rri,„la?r„W tn,U .viinA, á Si?|„.i ■ \ v j'.'V,- ) fin', lm,„. vm U,„„ tj, lln,|W: ' j. „ ^jórnar IrúnaAarmannaráfts sam. • þkkl mcá m alkvæðum ](,<> ....... *■...... ‘ M' J««*« fuil-l, S>» rv'«m. jómson, Ivmþnújmw m<Sín ** ? " r‘,k; m"m* fÞaiú ÚJ riitr* R ***: ‘w^»hA«i«MftkUr,)in P* tie, 4 b»,| Svn » j» '•'*m ‘arað . K'" * ýlkam 'íitlVt,,";;,,,— ..... 16 P

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.