Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 22.12.1948, Page 20

Verkamaðurinn - 22.12.1948, Page 20
ef „Verkamannsins" hefði ckki notið við til að skapa það almenningsálit og vekja þann baráttudug, sem nauðsyn- legur var til þess að sigur ynnist. Af afskiptum „Verkamannsins“ af verkalýðsmálum hin síðari ár, er bar- átta hans fyrir sameiningu verka- manna á Akureyri í eitt félag með þeim merkari. Blaðið átti þá sinn mikla þátt í sigri akureyrskra verka- manna, er þeim tókst að ráða niður- lögum á klofningsstarfi afturhaldsins og sameinuðust allir í Verkamarina- félagi Akureyrarkaupstaðar. Þárinig mætti telja mörg dæmi um þátt blaðsins í baráttu verkalýðssam- takanna, og er þó ótalið það veiga- mesta, en það eru þau áhrif, sem blað- ið hefur haft í þá átt, að vekja alþýð- una til skilnings á þjóðiélagslegu hlutverki sínu, boðun sósíalismans. Eins og nærri má geta um eitt skeleggasta málgagn íslenzks verka- lýðs, hefur „Verkamaðurinn" sætt hatri og ofsóknum afturhaldsins, frá fyrstu tíð. En allar tilraunir þess til að knésetja blaðið og hefta útgáfu þess, hafa strandað á skilningi verkamann- anna, hér í bænum, á nauðsyn þess, að eiga sinn eigin málsvara á opinberum vettvangi. Stx nauðsyn fer ekki minnkandi. Aldrei hefur öskurkór afturhaldsblað- anna kyrjað hærra níð sitt um verka- lýðssamtökin, né barizt af meiri heift gegn hagsmunum hins vinnandi manns, en einmitt nú. Aldrei hefur meiru fé né blaðakosti verið varið til þess að brjála heilbrigða hugsun og rugla dómgreind almennmgs. En Jón Benediktsson við aðra aðaiprentvélina í Prentverki Odds Bjömssonar. völd, misl>eiting valdsins, misskipting arðsins, hinir ríku verði ríkari, hinir fátæku fátækari. Undurfagrar hug- sjónir!!! Öll þessi þrílita hjörð á þó eitt sam- eiginlegt áhugamál, það að rógbera og afflytja á hinn lúalegasta hátt flokk al- þýðunnar, Sósíalistaflokkinn. Ekkert vopn þætti þeim svo biturt, ekkert vél- ræði svo lreiskt, að þeir myndu ekki nota það ti'l atlögu við flokkinn, hvort heldur um væri að ræða að leggja hon- um í bak eður brjóst, ef þeir með því gætu komið honum fyrir kattarnef. Einræði, landráðalýður, Moskvamenn, járntjald o. s. frv. hrópa þessir fulltrú- ar hrörnunarinnar í örvæntingu sinni. Slík eru vopnin sem vegið er að Sósí- alistaflokknum nteð. Enginn ærlegur blóðdropi eða nýt taug á að vera í þeirra líkama. En hversvegna allt þetta? Einungis vegna þess, að afturhalds- hjörðin veit að Sósíalistaflokkurinn hefur á stefnuskrá sinni göfgandi og mannbætandi hugsjónir, hugsjónir, sem liann berst djarflega fyrir og er fullkomlega trúr, en það er meira en þessir herrar geta sagt um sjálfa sig, þessvegna óttast þeir Sósíalistaflokkinn og hata meira en sinn óhugnanlega eigin skugga. En þeir vita, að þeim muni reynast ofurefli að sporna fótum við hinni eðlilegu þróun, sem er og verður Sósíalisminn. Guðm. Snorrason verkamennirnir treysta því, að þótt blöð þeirra séu lítil og verði það sénni- lega enn um skeið í samanburði við málgögn auðstéttarinnar, þá reynist öruggur og æðrulaus málfiutningur þeirra fyrir verkalýðsstétíina, sigur- sælli en hróp forheimskunarkórsins. Þeir vit;t að án „Verkam.“ og ann- arra málgagna verkalýðshreyfingar- innar væru samtök þeirra ekki þar á vegi stödd, sem þau nú eru. Án þeirra væru þau ekki voldugt og vaxandi afl í þjóðfélaginu. Björn Jónsson. Hvers er að minnast? (Framhald af bls. 12) Sjálfstæðisflokknum (réttara væri: íhaldsflokknum) þarf ekki lengi að lýsa. Áhugamál þeirra herra eru pen- ingar, meiri peningar, peningar og Frá Nóvudeil- unui. Eftir ó- sigur hvítlið- anna. 20

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.