Alþýðublaðið - 23.04.1921, Qupperneq 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
ur var báturinn sokkinn ásamt
Jóni og fundust báðir daginn eftir.
Jón var ungur og dugnaðarmaður
með afbrigðum.
Siglingar. Island kom í gær
tii Akureyrar og Gullfoss kom til
Fáskrúðsfjarðar sama dag.
Tiskiskipin. í gær komu:
Skailagrímur með iio föt lifrar,
Leifur heppni með 106 föt, Skúii
fógeti með 96 föt og Walpole
með 90 föt.
Hjálparstðð Hjúkrunarféiagsins
Lfkn er opin sem hér segir:
Mánudaga. . . . kl. 11—12 f. h.
Þriðjudaga . . . — 5 — 6 e. h.
Miðvikudaga . . — 3 — 4 e. h.
Föstudaga.... — 5 — 6 e. h.
Laugardaga ... — 3 — 4 e. h.
Lánsfé til byggingar Alþýðu-
hússlns er veitt móttaka i Al-
þýðubrauðgerðinnl á Laugaveg 61,
á afgreiðslu Alþýðublaðsins, i
brauðasölunni á Vesturgötu 29
ag á skrifstofu samningsvlnnu
Dagsbrúnar á Hafnarbakkanum.
Styrklð fyrirtskiðl
frímerkin nýjn.
Út af breytingum á alþjóða-
póstburðargjaldi mun nú á næst-
unni þurfa að, gefa út ný frímerki.
Frá stjórnarárum Kristjáns 9.
hefir sá siður haldist, að nota
konungsmyndir til að skreyta frí-
merkin roeð. Þessi konghollusta
hefir jafnvel gengið svo úr hófi,
að eitt sinn voru tveir konungs-
hausar settir á sömu frímerkjaút-
gáfuna.
Frímerki eru mjög vel fallin til
þess, að útbreiða þekkingu á landi
voru, meðal annara þjóða, en það
að útlendingar þekki sem allra
mest til náttúru landsins og hafi
á þann hátt heyrt þess getið að
einhverju leyti, mun oft leiða til
þess, að léttara mun að ná við-
sldftasamböndum við þá en ella
hefði orðið. Einkum eru frímerkin
með alþjóðalitunum, sem frá nýj-
ári verða 40 au. dökkblá, 25 au.
rauð og 10 græn, heppileg til
að útbreiða þekldngn á Iaadi okk-
ar, af þvf þau aru mest notuð
og mundu þvf fara víðast um
heiminn. Auðvitað er það minst
fyrirhöfn fyrir póststjórnina, að
taka eingöngu konungsmynd á
frfmerkin, og e. t. v. minstur
kostnaður, en af því kongsmyndin
ekki getur orðið Iandinu að neinu
liði i þvf efni, að útbreiða þekk
ingu á þvf, þá á hún að hverfa
af frímerkjunum sem fyrst. Við
megum ekki við því, að halda
áfram að láta frímerkiu vera gagns
laus á þennan hátt. af því þau
geta verið og eiga að vera menn
ingartæki, eins og áður er sagt.
Treysti póststjórnin sér, ekki til
að finna eitthvað nytsamara en
Kristjáo X á frímerkin, t. d Geysi
eða Gullfoss, ætti Listvinafélagið
að útnefna nefnd manna til að
annast framkvæmd þessarar tillögu.
Hefði þetta einhvern aukakostn
að í för með sér, myndi sá kostn
aður auðveldlega vinnast upp á
því, að meira yrði keypt af þann
ig gerðum frímerkjum, en af gömlu
útgafunum, væru þau smekkleg
og vel vandað til þeirra, vegna
þess, að flestir frfmerkjasafnendur
myndu leggja meiri áherzlu á að
ná f frímerki sem sæmilega væru
útlits, heldur en frfmerki sem ekk-
ert hefðu til sýnis annað en eitt
konungshöfuð, eða þó jafnvel tvö
væru. Ö.
Dögrun.
Morgunstjarna í austurátt.
ein á meðal skýja,
stíg þú upp á himin hátt,
himin tímans nýja.
Láttu glæða gróður hans
geislann Ijómaríka,
vonarstjarna vorhugans.
vfgahnöttur líka.
Sendu eld í hug og heim,
hreinsnnareldinn sanna.
svo rísa megi á rústum þeim
riki hugsjónanna.
Þar muntu yfir vfgavöli
varpá geislum friðar
og sldna yfir hárri höll,
hofi ’ins nýja siðar.
SvÁfim.
Góðir
Grammofonar
í sterkum eikarkössum verða seld-
ir f dag fyrir 85 krónup.
Varahlutir, nalar, plötur, hljóð-
dósir, album, plötubustar.
Hljóðfærahús Reykjavfkur,
Laugaveg 18.
Sjómenn.
Nokkra vana og góða fiskimenn
vantar nú þegar. Upplýsingar á
Laugaveg 8.
A Njálsgötu 8 B er
saumaður léreftafátnaður og verka-
mannaföt. Ódýr saumalaun.
Stólka óskast í vist uni
skemmri eða Iengri tíma. Uppi. á
Laugav. 45, uppí.
Gfummi
á barnavagna fæst í
Fálkanum.
er blað jafnaðarmanna, gefinn út
á Akureyri. Kemur út vikulega
f nokkru stærra broti en „Vfsir”.
Ritstjóri er Halldór Friðjónssœ.
V erkamaduriun
\
er bezt ritaður allra norðlenzkra
blaða, og er ágætt fréttablað.
AHir Norðlendingar,
víðsvegar um landið, kaupa hann.
Verkamenn kaupið ykkar blððl
Gerist áskrifendur frá nýjári á
ýlfgreiðsln ýUþýðnbl.
Alþýðubla ðið
er ödýrasta, Ijölbreyttasta og
bezta dagblað landsins. Kanp-
ið það og lesið, þá getlð
þið aldrei án þess rerið-
AlfUal. koetar I kr. á mAnoðl.