Verkamaðurinn - 22.12.1950, Síða 3
VEBK AM AÐURINN 22. des. 1950
3
ræskti sig, gekk varlega út úr skápn-
um og slapp óséður út á götu.
„Eg verð að komast heim eins
fljótt og eg get!“ stamaði hann.
„Guð veit hvað konan lætur sér
detta í hug! Og hvað segir yfirmað-
urinn! Gista heila nótt á lögreglu-
stöðinni, — þvílík smán! Hæ, öku-
maður, akið mér til Tretja Mesjan-
skaja!“
„Það kostar tvær rúblur.“
„Hvað er að þér, maður? Þú hlýt-
ur að vera viti þínu ijær! Tuttugu
og fimm kópekar."
„Sjálfur getur þú verið galinn.
Og svona karlar þykjast ætla að
aka!“
„Þvílíkt svín! Og svo hrokafullur
í þokkabót! Langar þig að koma á
lögreglustöðina?“
„Ógnarðu niér með lögreglunni,
ef mér leyfis að spyrja?“
„Ófétið þitt. Skárri er það nú
talsmátinn við embættismann. Þú
leyfir þér að vera ósvífinn! Bíðið
augnablik, ökumaður, ég verð að
skrifa niður númer þitt. Lög-
regla!!!“
„Heyrðu væni minn,“ sagði öku-
maðurinn af mikilli lotningu.
„Hvernig geta menn orðið svona
útleiknir, og það á sunnudegi? Eg
er allsgáður. Hér er ekki um minna
en tvær flöskur að gera! Ætli hann
geti gengið uppréttur? Og svo hróp-
ar hann: Lögregla!"
Maðurinn frá -1905 skrifaði núm-
er ökumannsins nákvæmlega og
hélt síðan áfram fótgangandi.
„Afsakið, félagi. Hvaða leið á að
fara héðan til Dimitrofka?" spurði
ungur maður, sem hann mætti.
,,Hvað?“ hrópaði eintakið.
„Hvern álítið þér mig vera? Þér
haldið augsýnilega, að eg sé einn af
byltingarsinnunum! Eg er ekki
félagi!“
„Nú, jæja þá, borgari. Eg bið af-
sökunar.“
„Eg er ekki borgari."
„Hvað eruð þér þá?“
„Eg er embættismaður af tólftu
gráðu. Riddari af orðu hinnar heil-
ögu Önnu, þriðju gráðu. Sú hend-
ing, að mér hefur verið haldið inni
með byltingarsinnunum, sannar
ekkert, ungi maður.“
Ungi maðurinn horfði á rnann-
inn frá 1905 með skrítnu augna-
ráði og hélt varlega burt.
„Þetta er mjög óþægilegt,"
muldraði eintakið, „að menn skuli
á miðri götu ávarpa mig sem „fé-
laga“. Ef yfirmaður minn kæmist
að þessu, get eg átt von á hverju
sem er. Eg verð rekinn. Eg verð að
sjá um, að annað eins og þetta end-
urtaki sig ekki. .. . “
Hann stakk höndunum dýpra
niður í buxnavasana og tók til að
syngja „Guð blessi Zarinn.“
„Hæ, blaðadrengur. Láttu mig
hafa tvö eintök af „Vegi Rúss-
lands“.“
„Af hverju?"
,,„Vegi Rússlands“ segi eg. Láttu
mig hafa tvö eintök, nei, segjum
heldur þrjú.“
„Eg hef ekki aþð blað.“
„Hefurðu það ekki! Láttu mig
þá hafa „Nýja tímann“.“
„Það blað hef eg ekki heldur."
„Nú, hvað hefurðu þá?“
,„,Pravda“, „Rauðu stjörnuna“,
„V erkal ýðsblaðið“. ‘ ‘
,,Ó, þú ósvífni þorpari, bíddu
svolítið, stattu kyrr, þú verzlar með
ólögleg blöð? Eg skal fara með þig
á lögreglustöðina, drengur minn!“
„Til þess hafið þér ekki rétt. Eg
greiði minn skatt.“
„Bíddu bara svolítið, — ég skal
sjá svo um, að þú fáir ríflegan
skatt!“
Síðan skrifaði hann númer
drengsins vandlega upp og hélt síð-
an áfram á brakandi skóhlífunum
sínum.
Á framhlið geysistórs húss las
hann áletrunina: „Moskva-deild
Kommúnistaflokks Rússlands“.
„Þeir eru svei mét góðir. . . . og
slíkt og þvílíkt er skrifað, þar sem
hver og einn getur séð það! Þetta
verð eg að skrifa hjá mér. Og gatan.
Og húsnúmerið, þetta verður allt
að skrifa niður!“
Síðan skrifaði hann þetta í vasa-
bókina sína og hélt svo áfram.
„Félagi, getið þér gefið mér eld í
sígarettuna?“ spurði feitur maður,
sem klæddur var í loðfeld úr bjór-
skinnum.
„Hí, hí. . . . Þér megið ekki mis-
skilja. Það hefur ekkert komið fyrir.
Eg hef engin sambönd við bannað-
an félagsskap, byltingarsinna eða
pólitískar klíkur. Eg hef ekkert sam-
an við slíkt að sælda og mun ekki
skipta mér af hinum svokölluðu
„félögum“. Orsök þess, yðar há-
göfgi, að eg gisti eina nótt á lög-
reglustöðinni eru mjög leiðinleg
mistök, óheppileg Jröð tilviljana.
Yðar. . . . “
Borgarinn í loðfeldinum flýtti
sér burt sýnilega lafhræddur.
Þegar safnvörðurinn hafði leitað
um alla Moskvu og var nær því
genginn frá vitinu, tókst honum
loks, seint um kvöldið, sér til mik-
illar gleði, að finna hið glataða ein-
tak.
Eintakið lá á hnjánum á miðju
leikhústorginu og sagði grátandi:
„Sem heiðarlegur maður lýsi eg
yfir. . . . óheppileg mistök. . . . em-
bættismaður af tólftu gráðu. . . . eg
hef ekki haft samband við neinn. . .
Ef eg hef dvalið heila nótt á lög-
reglustöðinni, kalla eg guð til vitnis
um, að það er sökum misskiln-
ings.... Guð blessi Zarinn! En
hvað snetrir ökumann nr. 9214 og
blaðadreng nr. 12 fljóshærður, 14
ára, bláeygur, án sérstakra ein-
kenna), þá veit eg með vissu að þeir
taka þátt í þeirri hreyfingu, sér-
staklega blaðadrengurinn, sem sel-
ur ólögleg blöð. . . . eg get látið yð-
ur hafa heimilisfan? Moskva-nefnd-
ar Kommúnistaflokksins.... og ef