Verkamaðurinn - 26.06.1959, Blaðsíða 1
vERKHmflmn
XLII. árg.
Akureyri, föstudaginn 26. júní 1959
23. tbl.
Á sunnudaginn kemur er valdið í höndum kjósenda
Um það verður kosið, hvort íhaldið á aS ráða stjórnar-
stetnunni eSa hvort alþýSan sjáli á aS ráSa úrslitum á
Alþingi Islendinga
Alþýða Akureyrar leggur sitt lóð á vogarskálina
með því aSkj ósa Björn Jónsson
Það er alvörustund fyrir hvern kjósanda, þegar hann geng-
ur að kjörborðinu til að velja þá menn, sem annast skuli
æðstu stjórn landsins. Það er margt, sem kjósandinn verður
að taka tillit til, vega og meta út frá sínu viðhorfi til al-
mennra mála. En fyrst og fremst verður hver og einn að gera
sér grein fyrir því, iiver hann vill, að sé lieildarstefnan um
stjórn landsins.
í þeim efnum togast einkum á tvö öfl, annars vegar auð-
valdið í landinu, braskara- og stórgróðalýðurinn, afæturnar,
sem lifa á striti annarra. Þessum afætulýð hefur teki/t að tæla
til iylgis við sig ótrúlega marga hrekklausa kjósendur, svo
marga að við undanfarandi kosningar hefur flokkur braskar-
anna, Sjálfstæðisflokkurinn, verið stærsti flokkurinn. Sá
flokkur hefur nú gert annan flokk, Alþýðuflokkinn, að band-
ingja sínum, svo að hann gerir nú ekkert án leyfis Sjálfstæð-
flokksins.
Hins vegar er flokkur al-
þýðunnar, Alþýðubandalagið,
sem berst fyrir alliliða upp-
byggingu atvinnulífsins, til
iiagsbóta öllum landsmönn-
um og tryggingar því að at-
vinnuleysi verði óþekkt fyrir-
bæri í þessu landi. Það berst
einnig fyrir því, að allur er-
lendur her hverfi burtu úr
landinu og öllu hermangi
verði aflétt. Alþýðubandalag-
ið hefur einnig haft forystu
um útfærslu landhelginnar og
fjölmörgum framfaramálum
fékk það komið í framkvæmd
á nreðan það átti aðild að rík-
isstjórn.
Enn ber að telja Framsókn-
arflokkinn. Hann hefur fyrir þessar kosningar neitað að geíu
uppi nokkra stefnu í nokkru máli crðru en kjördæmamálinu,
og hefui' logið því að þjóðinni, að nú væri kosið um það eitt.
Ihn framtíð hans er mjög á huldu. Þar togast á hægri menn,
sem raunverulega ættu heima í Sjálfstæðisflokknum og svo
vinstri sinnaðir menn, sem óska samstarfs við Alþýðubanda-
lagið að alhliða framförum. Um sinn hafa þeir framfarasinn-
uðu orðið að lúta í lægra haldi og íhaldsöflin ráðið í flokkn
um. En erfitt er að spá um það, hvernig flokkurinn þróast
á næstunni.
Hér á Akureyri þurfa kjósendur fyrst og fremst að gera
upp á milli tveggja flokka, Alþýðubandalagsins og Sjálfstæð-
isfloksins. Atkvæði Framsóknarflokksins hér falla engum til
gagns, þeim er kastað í tóma tunnu, frambjóðandi þeirra er
vonlaus um kosningu og vonlaus um uppbótarsæti. Alþýðu-
flokkurinn er á falianda fæti og lítt þörf um hann að ræða.
Þá er það, hvort kjósendur vilja fremur styðja flokk al-
þýðunnar eða flokk braskaranna.
Því miður verður að viðurkenna það, að ciruggt er, að
frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, braskaralýðsins, verður
kosinn hér. Svo mikið var fvlgi hans síðast. En Akureyringar
eiga þess kost að senda fleiri á þing. Alþýða Akureyrar á þess
kost, að fá einnig sinn fulltrúa kjörinn á Alþingi.
Björn Jónsson hefur undanfarið kjörtímabil átt sæti á
Jjingi seni landskjörinn Jjingmaður. Með Jjví að bæta við
hann nokkru atkvæðamagni er hægt að tryggja, að svo verði
áfram.
Björn hefur á þingi sem annars staðar reynzt skeleggur og
farsæll baráttumaður fyrir málstað alþýðustéttanna, cjg áunn-
íð sér virðingu og traust þeirra, senr við hann hafa átt skipti.
Þess vegna verður alþýða Akureyrar að leggja í það metnað
sinn að eiga hann áfram sem sinn fulltrúa á þingi. Það er ekki
aðeins gagnlegt fyrir okkur Akureyringa, heldur einnig fyrir
allan verkalýð Jressa lands. Verkalýðurinn þarf að eiga sem
flesta menn á borð við Björn innan veggja þingsins. Þá verð-
ur síður á hlut hans gengið.
Og verði Alþýðubandalagið sterkara á þingi nú en áður,
þá mun það miklu ráða um stefnu næstu ríkisstjómar. Á Jjví,
hvcjrt Alþýðubandalagið vinnur á eða tapar, veltur það,
hvort sú ríkisstjórn, sem í sumar tekur við af núverandi kjara-
skerðingarstjórn, verður vinstri sinnuð umbótastjórn eða
hægii sinnuð afturhalds- og kyrrstöðustjórn.
Á sunnudaginn leggja kjósendur sitt lóð á vog-
arskál til að ákvarða það, hvort verður.
Allir þeir Akureyringar, sem vilja efla málstað
alþýðunnar og efla framfarir og atvinnulíf bæjar-
ins, kjósa frambjóðanda Alþýðubandalagsins, þann
eina frambjóðanda hér, sem alþýðan getur treyst
til að spyrna gegn því, að á lienni verði troðið af
valdhöfunum. — Þess vegna kjósum við á sunnu-
daginn
X BJÖRN JÓNSSON
BJÖRN JÓNSSON
alþingismaður.
í Eyjafjarðarsýslu kjósa allir vinstri menn
X G-LISTINN
Frambjóðendur Alþýðubandalagsins í Eyjafjarð
arsýslu eru traustir og vinsælir menn, og einu fram
bjóðendurnir, sem vinstri menn geta veitt stuðn
ing sinn. Tryggvi Helgason, Ingólfur í Fornhaga,
Hartmann x Ólafsfirði og Daníel læknir á Dalvík
eru allir vel þekktir í héraðinu og öruggir fulltrú
ar alþýðunnar til sjávar og sveita. Allir þeir, sem
vilja herinn burtu úr landinu, að staðið verði við
útfærslu landhelginnar, að tryggð verði næg at
vinna og innflutnixigur nýrra atvinnixtækja og
komið í veg fyrir gengislækkun, þeir kjósa þessa
menn, kjósa G listanxi, lista Alþýðubandalagsins.
Tryggvi Helgason.
Ingólfur Guðmundsson.
Á sunnudaginn kem
ur gefst kjósendum Suð
ur Þingeyjarsýslu tæki
fa*ri til að tryggja Páli
Kristjánssyni sæti á AI
þingi.
Ef Alþýðubandalagið
heldur velli í kosningun-
um, og um það efast eng-
inn, jafnvel ekki svæsn
ustu andstæðingar þess,
og dálítil aukning á at-
kvæðamagni verður í
Suður-Þingeyjarsýslu, þá
ex kosning Páls tryggð.
Með því að senda Pál
Kristjánsson á þing eign-
ast alþýðan á Húsavík og
í sveitum Þingeyjarsýslu
verðugan fulltrúa í söl
um Alþingis, og í þing
ílokk Alþýðubandalags-
ins bætist góður liðsmað
ur. — Þess vegna:
X Páll Kristjánsson
Ein AIKVÆOI
getur ráðið úrslitum
um það hvort fram-
bjóðandi Alþýðu-
bandalagsins, Björn
Jónsson, nær kosningu
sem landkjörinn þixig-
maður og Akureyri fái
þannig 2 þingmenn
en ekki einn, eða hann
nái ekki kosningu og
Akureyri verði þannig
svift öðrum þing
manni sínum.
Vinstri sinxiaðir Fram
sóknarmenn og þeir
sem til þessa hafa fylgt
Alþýðuflokknum ættu
að hafa þetta í huga
og láta blindan áróður
ekki hindra sig í því
að tryggja hagsmuni
Akureyrar fremur en
að kasta atkvæðum
sínum á vonlausa
frambjóðendur.