Verkamaðurinn - 01.12.1961, Page 7
Föstudagur 1. desember 1961
VERKAMAÐURINN
7
ðsbjuvÉi F. 1. d. k. sunnodoð
— kvikmynd og skuggomyndir —
Kringsjó
vikunnar
Kirkjan. Messað næstk. sunnudag (1.
sunnudag í aðventu, upphaf kirkjuárs)
kl. 2 e.h. Sálmar: 200 — 201 — 198 —
648 — 675. — Æskulýðsstarf kirkjunn-
ar hefst þennan dag og eru félagar í
Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju hvátt-
ir til að fjölmenna. Einnig eru foreldr-
ar beðnir að taka börnin með til mess-
unnar. — Sóknarprestar.
Slysavarnarfélagskonur ! Jólaf undir
verða í Alþýðuhúsinu fimmtudaginn 7.
des., fyrir yngri deildina kl. 4.30 e.h.,
en hina kl. 8.30 e.h. — A fundinum
mætir Gunnar Friðriksson, forseti
Slysavarnafélagsins. — Mætið vel og
stundvíslega og takið með kaffi. —
Stjórnin.
Athygli fólks skal vakin á því, að
allar verzlanir verða lokaðar klukkan
tólf á hádegi í dag og eins á morgun.
Spilakvöld Léttis verður í Alþýðu-
húsinu sunnudaginn 3. des. nk.
Hjúskapur. 23. þ. m. voru gefin sam-
an í hjónaband ungfrú Marselía Gísla-
dóttir, Fjólugötu 11, og Olafur Jónsson,
landbúnaðarverkam., Reykhúsum, Eyja
firði. — Þann 25. nóv.-voru gefin sam-
an í hjónaband af vígslubiskupi, séra
Sigurði Stefánssyni, Möðruvöllum, ung-
frú Sumarrós Garðarsdóttir, Felli, Gler-
árhverfi, og séra Birgir Snæbjörnsson,
Eyrarlandsvegi 16, Akureyri. -— Heim-
ili þeirra verður að Eyrarlandsvegi 16.
Akureyri. — Þann 26. þ.m. brúðhjónin
ungfrú Bára Ólafsdóttir og Eðvarð P.
Ólafsson, blikksmíðanemi, Lögbergs-
götu 5, Akureyri. — Hinn 27. nóv. voru
gefin saman í hjónaband í Akureyrar-
kirkju ungfrú Jónína Guðbjörg Sigur-
geirsdóttir, fóstra vangefinna, Aðalstr.
13, Akureyri, og Guðmundur Jón Guð-
jónsson, stud. med., Ásvallagötu 65,
Reykjavík. Heimili þeirra verður að
Ásvallagötu 65, Reykjavík.
MFIK Akureyrardeild heldur félags-
fund (jólafund) miðvikudaginn 6. des.
kl. 20.30 í Ásgarði, Hafnarstræti 88. —
Stjórnin.
Afmœli. I dag, 1. desember, er Jón
Jóhannesson, Karlsbraut 17, Dalvík,
sjötugur. — Karl Jakobsson, Narfastöð-
um, Reykjadal, á sextugsafmæli í dag.
— Mánudaginn 4. desember verður
Jónas Sigurgeirsson, Helluvaði, Mý-
vatnssveit, sextugur.
Blaðið árnar þeim allra heilla.
Minningarorð...
Framhald af 5. síSu.
finna blæ ástúðar og vinsemdar
leika um sig og var barnslega
þakklátur fyrir. í vel taminni
skapgerð hans, sem hann hlúði
jafnan að, bar hátt kærleiksrík
umhyggjusemi, þolgæði og
nægjusemi. Þegar öldur erfið-
leika og harma földuðu svo hátt
að eigi varð yfir þær komist,
kunni hann þá list að beygja
sig undir þær þolinmóður og
geðrór. Hann trúði því að hver
þraut, hver harmur væri próf-
raun, sem máttarvöldin — Guð
— legði fyrir mennina til úr-
lausnar. Varðaði þá mestu, fyrir
framhaldslífið, að sú prófraun
væri þannig leyst að til þroska
og göfgunar mætti verða. En
þegar lífið gæddi hann rauðum
rósum yndis og hamingju, tók
hann við þeim með glöðu þakk-
læti og heitri barnslegri blíðu.
Ég sakna þess, vinur, að geta
ekki — að sinni — átt með þér
fleiri samverustundir. En ég
gleðst af því að vita að nú ert þú
fagnandi genginn á Guðs þíns
fund, þar sem þú færð nýja
vaxtarmöguleika á nýju og
bjartara lífssviði.
Hólmgeir Þorsteinsson.
Réttindi
tímakaupsmanna.
(Framhald af 4. síSu.)
Þar sem á vinnustað er unnin
yfirvinna að staðaldri, verður
að líta svo á, að verkamenn
haldi í veikinda- og slysatilfell-
um fullum daglaunum, þar með
talinni yfirvinnu, eins og hún
fellur til.
Fastráðið starfsfólk hjá
frystihúsum og öðrum fisk-
vinnslustöðvum, svo og skipa-
afgreiðslum, enda þótt undan-
þegnar séu greiðsluskyldu vegna
óvissu um stöðug verkefni, held-
ur rétti sínum til uppsagnar-
frests og þá einnig rétti til
greiðslu slysa- og sjúkrabóta frá
vinnuveitanda.
Nú vill verkamaður ekki
halda þessum rétti sínum til upp-
Bœjarfógetaskrifstofan verður
opin fyrst um sinn kl. 4-7 á föstu-
dögum til móttöku þinggjalda.
ÞAÐ VAR einn af hinum áhuga-
sömu ferðafélagsmönnum, Jón
Sigurgeirsson, sem fyrstur sá
reykina frá hinum nýju leirhver-
um við Oskju 9. október, og fjór-
um dögum síðar voru ferðafélags-
menn komnir þangað ásamt dr.
Sigurði Þórarinssyni og blaða-
mönnum til að rannsaka verksum-
merki. Það vitnaðist 26. október,
að Askja væri farin að gjósa
miklu hraungosi. Enn voru það
menn úr F.A., sem urðu fyrstir
manna á staðinn landveginn með
jarðfræðingana. Þorsteinsskáli
F. A. í Herðubreiðarlindum varð
öskjufúsu fólki og þó einkum vís-
indamönnum til mikils hagræðis,
og eins hinir nýju vegir, sem fé-
lagið hefur gengizt fyrir, að rudd-
ir yrðu. Það er því ekki ofmælt að
segja, að F. A. hefur veitt ómetan-
lega fyrirgreiðslu við núverandi
Öskjugos, sem ferðalangar og vís-
indamenn mega vera mjög þakk-
látir fyrir. En nú er komið að
þeim, sem heima sátu, og nú ætlar
Ferðafélagið að færa þeim Oskju-
gosið svo að segja upp í hend-
urnar.
F. A. ætlar nefnilega oð halda
ÖSKJUVÖKU fyrir félagsmenn og
gesti þeirra í Samkomuhúsi bæj-
arins sunnudaginn 3. des. n. k.
kl. 4 e. h., en Askja hefur haldið
vöku fyrir mörgum ferðalang und-
anfarið. Vandað verður til þess-
arar Öskjuvöku: Guðmundur Fri-
monn, skóld, les úr Ódúðahrauni
Ólafs Jónssonar, Ólafur Jónsson,
róðunautur, flytur erindi um Öskju
og sýnir litskugggamyndir fró
Oskjugosinu og Eðvarð Sigurgeirs-
son, Ijósmyndari, frumsýnir lit-
kvikmynd og litskuggamyndir fró
Öskjugosinu.
F. A. hefur lokið sumarstarfinu
sagnar, vegna ónógrar vinnu, og
er hann þá ekki bundinn af hin-
um almennu uppsagnarákvæð-
um laganna, en tilkynna ber
honum vinnuveitanda sínum, ef
hann ætlar að hætta hjá honum
og ráða sig til frambúðar hjá
öðrum.
Framh.
óskar eftir eldri mönnum
og unglingum til að bera
blaðið til kaupenda um
bæinn.
Vinsamlegast hafið samband við
afgreiðsluna í Brekkugötu 5. —
Sími 1516.
fyrir nokkru, en aðalstarfstími fé-
lagsins er yfir sumarið. Farnar
voru 9 skemmtiferðir og þátttaka
145. Ferðir, 20. árg., komu út í
vor og helgaðar að mestu 25 ára
afmæli F. A., en afmælisins var
minnst á afmælisdaginn, 8. apríl
sl. með veglegu hófi.
Unnið var í sumar að lagfær-
ingu vegarins yfir hraunið í
Herðubreiðarlindum innan Þor-
steinsskála og einnig í hrauninu
norðan við skálann, og kom þessi
lagfæring að góðu nú í vetrar-
byrjun. Verkinu stjórnaði Pétur
Jónsson, verkstjóri, í Reynihlíð.
Ennfremur var mikið unnið í hin-
um nýja vegi á Hólafjalli. Báðar
þessar framkvæmdir voru á veg-
um Vegagerðar ríkisins undir yf-
irstjórn Guðmundar Benedikts-
sonar, yfirverkstjóra, og með
styrk úr Fjallvegasjóði. Akureyr-
arbær og Eyjafjarðarsýsla hafa
styrkt vegargerðina á Hólafjalli
með fjárframlagi. Loks liefur F.A.
lagt þessum framkvæmdum lið
eftir getu, og Fram-Eyfirðingar
með Angantý Hjálmarsson í
broddi fylkingar.
Þá var í júlímánuði sl. valin
og merkt ný leið frá Herðubreið-
arlindahrauni innan Þorsteins-
skála að Öskjuopi í Dyngjufjöll-
um, en mikill hluti hennar liggur
nú undir hinu nýja hrauni frá
Öskjugosinu. Fyrirhugað var, að
Sigurjón Rist mældi Öskjuvatn í
haust og átti að koma báti inn á
vatnið, en sökum óvenjumikilla
snjóa í Öskju í sumar varð ekki
af því.
í októberbyrjun sl. var sett ný
utanyfirhurð fyrir Þorsteinsskála,
en hurðina gaf Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, heildsali, Reykjavík. í
sömu ferð var lauslega athugað
brúarstæði á Jökulsá sunnan Upp-
typpinga.
F. A. hefur undanfarna vetur
reynt að halda uppi nokkurri
vetrarstarfsemi með fræðslu- og
skemmtiatriðum, sem einkum er
fólgið í erindaflutningi, upplestri
og skuggamynda- og kvikmynda-
sýningum.
Þessar upplýsingar um starf-
semi F. A. komu fram á blaða-
mannafundi, sem stjórn félagsins
hélt á sunnudaginn var.
NÝ SENDING AF
kápum.
LÆKKAÐ VERÐ
Höfum fjölbreytt úrval af
undirfatnaði og
nóttsloppum.
Verzlunin Heba
Sími 2772.
Kvenveski
komin.
Nýjasta tízka.
Innkaupatöskur
í miklu úrvali.
Verzlunin Heba
Sími 2772.
Fjölbreytt úrval
af
MYNDUM og MÁLVERKUM.
MINJAGRIPIR og olls konor
GJAFAVÖRUR.
VerS við allra hæfi.
Verzlunin Drangey
Brekkugötu 7
NYLON-NET-
S0KKAR
Verð kr. 40.00.
Verzl. Ásbyrgi h.f.
Verkamaðurihn
VIKUBLAÐ. — Útgefendur: Sósíalista-
félag Akureyrar og FulltrúaráS Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandskjördæmi
eystra. Skrifstofa blaðsins er í Brekku-
götu 5, Akureyri, sími 1516. — Ritstjórar: Þorsteinn Jónatansson (áb.), heima-
sími 2654, og Hjalti Kristgeirsson, heimasimi 2158. — Áskriftarverð kr. 80.00 ár-
gangurinn. — Lausasöluverð kr. 2.00 eintakið. — Blaðið kemur að jafnaði út á
föstudögum. — Prentað í Prentsmiðju Bjöms Jónssonar hf., Akureyri.
ATVINNA!
REGLUSAMUR og röskur maður getur fengið vinnu við
innheimtustörf. Upplýsingar á skrifstofunni.
RAFVEITA AKUREYRAR.