Verkamaðurinn - 11.10.1963, Page 8
B þúsund farþegar í mjólhurbrúsum
91. föstudag voru mættir á
flugvellinum á Akureyri nokkrir
áhugasamir og glaðir náungar.
Þeir voru að taka á móti 35 þús.
ársgömlum laxaseiðum úr upp-
eldisstöðinni við Elliðaár, sem
komu með flugvélinni þennan
morgun í mjólkurfötum frá K.E.A.
Súrefnisgjöf var nauðsynleg, en
annars voru þessir ungu farþegar
prýðilega á sig komnir.
Það eru veiðifélögin Straumar
og Flúðir, sem gangast fyrir
ræktun ánna hér nyrðra, að þessu
sinni fóru 20 þús. í Eyjafjarðará,
10 þús. í Hörgá og 5. þús í
Fnjóská. Álíka magni af kviðpoka
seiðum var sleppt í þessar ár á
sl. vori.
Árnar hér í Eyjafirði hafa
fyrst og fremst verið bleikju-ár,
en veiði í þeim hefur farið minnk
andi og ber mönnum ekki saman
um hvað veldur. Nýstárleg leik-
mannskenning er, að bleikjan
kunni ekki að meta vaxandi hita
ánna, sem gæti hafa átt sér stað
við minnkandi jökla og góðæri.
En hvað sem veldur hefur veiði
farið ört minnkandi undanfarin
ár. Þó má geta þess, að sagt var
um Hörgá, að veiðin kæmi, þegar
gránaði í fjöll. Mikil ganga kom
í Hörgá nú um fyrstu göngur, en
síðan bann kom við veiði í ám
eftir 15. sept. hafa menn ekki
fylgzt með haustgöngu, má því
vera, að fiskimagn komi enn
nokkurt í árnar, en sé aðeins
svona gáfað að koma ekki fyrr en
bannað er að veiða þar?
Blaðamenn fengu að fylgjast
með dreifingu seiðanna í árnar.
Veiðifélagsmenn skiptu með sér
verkum, tók hver hópur sinn
„Mjólkurdúnk“ með ca. 2.500
seiðum, og fékk ákveðið svæði
til „sáningar“. Þetta gekk prýði-
lega, seiðin voru spræk og voru
fljót að bora sér niður milli steina,
sum fóru meir að segja að narta
í slý. Þetta voru allt ársgamlir
fiskar, um 4—5 sm á lengd, hljóta
því að standa betur að vígi en
þau, sem náttúran hrekur ósköpuð
út í lífsbaráttuna. En þótt vonir
áhugamanna séu vissulega bjartar
um árangur, er það ekki há krafa,
sem þeir gera um endurheimt
laxa þessara í árnar. 3—4%o þætti
gott. Klak, sem sett var í Eyja-
fjarðará fyrir nokkrum árum, hef-
♦-----------------------------♦
VlSA VIKUNNAR
Sumri töpuð virðast völd,
vetrar sköpuð byrði.
Heyri ég nöpur, nistingsköld
Norðra köpuryrði.
' >----------------:—♦
ur borið allgóðan árangur. Það
er því engin ástæða til að ör-
vænta með þetta. Þó má geta þess,
að þessi tilraun er í mjög smáum
stíl á mælikvarða þeirrar miklu
sóunar, sem náttúran sjálf er völd
að. En slíkt bruðl væri dýrt fyrir
veiðifélög.
Hvað nú gerist á næstu árum
í þessum ám, verður fróðlegt að
vita. Fiskirækt í ám er svipuð
skógrækt, árangurs er ekki að
vænta um leið. En hér er verið að
vinna merkilegt ræktunarstarf fyr-
ir framtíðina og landeigendur
mættu sýna því meiri áhuga.
Þeirra verður gróðinn, og landið
verður allt ríkara.
Það, sem lifa kann af þessum
sunnangestum í eyfirzkum ám,
!—---—-----------------—
SAGT OG
KRATAR í Norðurlandskjördœmi
eystra héldu fund í kjördœmis-
ráði sínu næstliðinn sunnudag,
þökkuðu þeir „ráðherrum flokks-
ins giftudrjúg störf“ og sam-
þykktu í framhaldi af því: „Telur
fundurinn rétt að halda núverandi
stjórnarsamstarfi áfram, meðan
reynslan sýnir, að hœgt er að
þoka þar fram stefnumálum Al-
þýðuflokksins og auka þannig
velmegun þjóðarinnar“.
Er af þessu Ijóst, að kjördœmis-
ráð þetta telur, að stefnumál Al-
þýðuflokksins hafi verið að þok-
ast fram á leið að undanfórnu og
álítur rétt, að ríkisstjórnin haldi
áfram á þeirri hraut, sern gengin
hefur verið.
Eins og áður hefur verið bent
á hér í blaðinu, eru ýmsir flokks-
brœður kratanna syðra ekki jafn-
sannfœrðir og þeir norðlenzku um
ágœti starfa ráðherranna, en eng-
ar óánœgjuraddir munu hafa
heyrzt á þessum fundi þeirra
norðlenzku. Þeir leggja blessun
sína yfir allt.
—0—
DAGBLAÐIÐ Vísir segir frá því
s.l. mánudag, að verksmiðjuverka-
maður í Sovét þurfi að vinna 50
tíma til að geta keypt barnavagn
og 5 tíma til að geta keypt vodka-
flösku. Mun Vísir hafa skýrt frá
þessu til að sýna, hve dýrt vœri
að lifa austur þar.
En hér á Islandi þarf verka-
maður að vinna 100 til 200 tíma
til að geta keypt barnavagn og 9
tíma til að geta keypt þriggja
pela flösku af vodka. Svona er
það hér í viðreisninni.
—0—
/ ALÞÝÐUBLAÐINU fyrir viku
síðan mátti lesa eftirfarandi í
forystugrein:
mun halda sig þar næstu 3 árin.
Þá halda þeir til hafs að sjá sig
um í hinum stóra heimi. En eftir
tveggja til þriggja ára dvöl þar,
koma þeir væntanlega aftur í fóst-
urárnar og vera kann að einhver
þeirra seiða, sem sett voru í árnar
s.l. föstudag, eigi eftir að bíta á
öngul hjá hinum áhugasömu
veiðifélögum, sem að flutningi
þeirra stóðu hingað.
Það skal tekið farm viðvíkjandi
Hörgá, að þar hefur heyrzt getið
um lax og lax á stangli. Staðreynd
er, að Kristinn Þorsteinsson
deildarstjóri hjá K.E.A. dró 6 pd.
hæng í ánni undan Krossastaða-
landi 10. september i sumar. Lax-
inn var nýgenginn og spegilgljá-
andi. Var hann einstakur flökku-
fugl?
-----------“
SKRIFAÐ
-— --------~--
„Hér er verðbólga í verstu
mynd. Hún setur fólk úr jafnvœgi,
skapar ótta, og allir vilja gera
einhverjar ráðstafanir til að verja
sig — eða grœða. Árangurinn
verður, að braskarar græða stór-
fé án nokkurrar fyrirhafnar, en
unga kynslóðin og efnalítið fólk
ber þyngstu byrðarnar. Ástand
eins og þetta hlýtur að vekja hugs-
andi mönnum efa um, að Islend-
ingar séu hœfir til „frjálsra við-
skipta“ á þessu sviði. Það er eitt-
hvað bogið við þjóðfélag, þar sem
formað ur samvinnubyggingafé-
lags talar af einskœru þakklœti og
vinsemd um verðbréfakaup með
30% afföllum!“
Já, það er eitthvað bogið við
þetta þjóðfélag, og þá ekki sízt þá
ríkisstjórn, sem þar fer með œðstu
völd.
- MNG Jl N
Framh. af 1. síðu.
í fjórðungsstjórn auk sam-
bandsstjórnar voru kosin:
Oskar Garibaldason, Siglufirði.
Guðrún Albertsdóttir, Sigluf.
Hulda Sigurbjörnsdóttir, Sauð-
árkróki.
Ásgrímur Gunnarsson, Ólafsf.
Kristján Larsen, Akureyri.
Þorgerður Þórðardóttir, Húsav.
Páll Ólafsson, Akureyri.
Páll Árnason, Raufarhöfn.
Valdimar Sigtryggsson, Dalvík.
Björgvin Jónsson, Skagastr.
Ein Grundar-vísa.
Undir bú er gott á Grund,
Gróttukvörn þar malar.
Ekki þarf að halda hund,
Hæstiréttur smalar. —
r.
Verkamaðurinn
Eöstudagur 11. október 1963
frélldlfféf ,úr HöföoKoupstað
Tíðarfarið í vor var hálfrysjótt
og kalt. Sauðburður gekk vel.
Vorgöngur töfðust um viku sök-
um kulda og þoku. Þær voru hér í
Höfðahreppi þann 20. júlí. Gras-
spretta var fremur lítil og hófst
sláttur með seinna móti, eða ekki
fyrr en í byrjun júlímánaðar.
Þann 21. júlí gerði austan og
norðaustan rok og fauk talsvert af
heyi, svo að menn urðu fyrir
nokkrum skaða af þeim sökum.
Kuldar voru miklir og úrkomur
töluverðar.
Dýpkunarskipið „Grettir“ var
hér við gröft í höfninni í um það
bil hálfan mánuð. Unnið var við
hafnarframkvæmdir í sumar.
Sjórinn braut stórt gat í fremsta !
hluta hafnargarðsins s.l. vetur, en ^
í sumar var unnið við að hlaða
pokasteypu upp í það. Verkinu
Stjórnaði Ingvar Jónsson, Sól-
heimum. Þá vann einnig flokkur
hafnarverkamanna við lagfæringu
á hafnargárðinum á Blönduósi og
einnig smávegis á Hvammstanga.
I sumar hefur verið unnið að
byggingu þriggja íbúðarhúsa og
er smíði þeirra langt komið. Um-
sjón með byggingu þeirra hefur
haft Guðmundur Þórarinn Guð-
laugsson. Þá hefur vinnuflokkur
úr Höfðakaupstað unnið við slát-
urhússbyggingu á Borðeyri, og er
þeirri byggingu að verða lokið.
Verkinu stjórnaði Guðmundur
Lárusson byggingameistari.
I sumar var félagsheimilið múr-
að utan svo og þrjú íbúðarhús,
og vonir standa til, að unnið verði
við að múra félagsheimilið að
innan í vetur. Múrarar eru Sig-
mar Hróbjartsson og Jón Kr.
Jónsson. Búið er nú svo til að
mála félagsheimilið að utan, og
framkvæmdi verkið Sveinbjörn
Blöndal.
Þann 22. júní var jarðsunginn
frá Hólaneskirkju í Höfðakaup-
stað Þórarinn Jónsson, bóndi á
Fossi á Skaga, en hann fórst af
dráttarvél á leið heim til sín frá
PREDIKAR Á BIND-
INDISDAGINN
Hinn almenni bindindisdagur
er á sunnudaginn kemur hinn 13.
október. Áfengisvarnarráð bæjar-
ins og Umdæmisstúka Norður-
lands hafa fengið séra Kristinn
Stefánsson áfengisvarnarráðu-
naut ríkisins hingað norður til að
kynna málefnið. Mun hann pre-
dika við guðsþjónustu í Akur-
eyrarkirkju á sunnudaginn í til-
efni dagsins.
Höfðakaupstað. Þórarinn heitinn
stundaði lengi sjóróðra í Höfða-
kaupstað og var lengst af skip-
stjóri. Hann var ötuli maður og
aflasæll og vel látinn af öllum, er
hann þekktu. Hann lætur eftir sig
konu og fjögur börn. Mikið fjöl-
menni var við útförina, sr. Pétur
Þ. Ingjaldsson jarðsöng, en Karla-
kór Bólstaðarhlíðarhrepps söng
undir stjórn Jóns Tryggvasonar.
Þann 27. júlí var jarðsunginn
frá Höskuldsstaðakirkju í Vind-
hælishreppi bændahöfðinginn og
fræðimaðurinn Magnús Björns-
við útförina. Sóknarpresturinn,
sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, jarðsöng,
en Karlakór Bólstaðarhlíðar-
hrepps söng. Magnús heitinn læt-
ur eftir sig konu og fimm börn.
Þann 14. september var jarð-
sungin frá Höskuldsstaðakirkju
Sigurlaug Guðmundsdóttir, fyrr-
um húsfreyja á Núpi í Laxárdal.
Sigurlaug heitin dvaldist hin síð-
ustu ár á Héraðshælinu á Blöndu-
ósi, og þar andaðist hún. Mann
sinn, Jón Guðmundsson, missti
Sigurlaug fyrir nokkrum árum.
Við búi þeirra tóku sonur þeirra,
Þorvaldur Jónsson og fóstur-
dóttir, Elísabet Hafliðadóttir, og
einnig búa þar fóstursonur þeirra,
Jökull Sigtryggsson, og kona hans,
Valgerður Kristj ánsdóttir, ásamt
börnum sínum. Á Núpi hefur ætíð
verið mikil gestrisni, og öllum, er
þar hafa komið, veittur hinn bezti
beini og umhyggja, er hugsast gat.
Sigurlaug var jarðsungin af
sóknarprestinum, sr. Pétri Þ.
Ingjaldssyni og kirkjukór Hóla-
neskirkju í Höfðakaupstað söng
undir stjórn Páls Jónssonar skóla-
stjóra. Veður var kalt.
Göngur hér í Höfðahreppi fórU
fram mánudaginn 23. september
s.l. Fengu gangnamenn gott veður,
og réttað var sama daginn í Spá-
konufellsrétt. Fátt fé kom úr göng-
unum, enda hret nýafstaðið og
féð komið niður.
Þriðjudaginn 24. s. m. átti að
koma fé úr þessum útréttum1
Hofsrétt, Kleifarrétt, Skrapatungu-
rétt og Bakkarétt. Veður var slæmt
þennan dag, norðan bleytuhríð og
allhvasst, og fengu útréttamenn
því hið versta veður, og komU
ekki heim til sín úr réttunum fyrr
en seint um kvöldið og sumir ekki
fyrr en daginn eftir. Gekk illa að
reka féð, þar sem snjór hlóðst r
það og gerði það seinfært til
rekstrar. Snjór var hér talsverður
og litlir hagar fyrir fé, þar sent
beita verður á túnin.
Guðm. Kr. Guðnason■