Verkamaðurinn - 03.04.1964, Page 6
Til illri velinnara „Verkamannsíns
Allt frá því blaðið okkar, Verkamaðurinn, hóf göngu sína fyrir 45 árum hefur
fjárhagurinn verið þröngur, og svo er enn. Allan þennan tíma hefur samt tekizt að
halda útgáfunni áfram, enda þótt stundum hafi orðið að draga seglin saman í bili
og spara kostnað við blaðið meira en æskilegt hejði verið. Þetta hefur tekizt fyrir
fórnfúst starf og ótalin fjárframlög fjölmargra styrktarmanna á hverjum tíma.
Við vonum og vitum, að enn á blaðið sér marga vini og stuðningsmenn. Kannski
eru þeir einmitt fleiri nú en oft áður. Til þess bendir slöðugt aukin útbreiðsla.
En þótt áskrifendafjöldi hafi aukizt verulega, nœgir það ekki til að halda blaðinu
á réttum kili fjárhagslega. Svo mjög vex nú allur útgáfukostnaður.
Við verðum því enn að leita til áskrifenda með ósk um, að þeir, allir, sem ráð
hafa á, veiti blaðinu meiri stuðning en aðeins þann að greiða áskrœiftargjaldið, sem
enn er aðeins 100 krónur. Við förum þess á leit, að sem allra flestir gerist styrktar-
menn blaðsins með því að greiða það með hærri upphœð en 100 krónum og jafn-
framt viljum við taka frarn, að gott væri, að greiðslan fœri fram sem fyrst.
Á síðasta ári greiddu mjög margir blaðið með 200 krónum, allmargir með 500
krónum og nokkrir með 1000 krónum. Ollum þeim mönnum kunnum við miklar
þakkir. — Þessar greiðslur urðu þó ekki nœgilegar til að jafna rekstrarhallann og við)
urðum að grípa til happdrœttis til frekari fjáröflunar, enda þótt við hefðum viljað
komast hjá því.
Við höfum ákveðið, að á þessu ári verði ekki efnt til happdrœttis til styrktar
Vérkamanninum, heldur treyst á, að styrktarmenn blaðsins verði nógu margir og
láti það mikið af höndum, að það nœgi til að við getum haldið útgáfunni Sfram í
svipuðu sniði og nú er, og helzt gert blaðið betur úr garði.
Við vitum, að fjölmargir skilja þörfina og vilja styrkja útgáfu blaðsins eftir beztu
getu. Það er að sjálfsögðu misjafnt, hvað hver og einn getur af mörkum lagt, en ef
allir, sem viljann hafa leggjast á eitt, þá er málinu horgið.
Við biðjum ykkur, vini blaðsins, að taka þetta til athugunar og gera sem fyrst
það, sem þið getið, hvert og eitt, til styrktar blaðinu, svo að við getum haldið áfmm\
útgáfu þess með sóma.
TJTGEFENDUR.
— Hver er sinnar . . .
Framhald af 1. síðu.
3—4% af stofnkostnaðinum, þ.
e. a. s. 40 millj. kr. Bankastjór-
inn taldi því eðlilegt, að hinir
erlendu eigendur hefðu áhuga
á að byggja verksmiðjuna þar,
sem ekki þyrfti að hreinsa reyk-
inn nema að litlu leyti. Og hann
taldi, að búast mætti við, að
hinir erlendu aðilar vildu að Is-
lendingar bæru hluta af þeim
aukakostnaði, sem það hefði í
för með sér að byggja verk-
smiðjuna hér við Eyjafjörð. Sá
aukakostnaður væri áætlaður
um 250—300 millj. kr. Hve stór-
an hluta Islendingar áttu að
bera, hefur bankastj órinn ekki
getað frætt fundarmenn um, því
að hann hefur sjálfsagt ekki vit-
að það. En líklega er þessi auð-
hringur ekkert góðgerðarfélag,
og því réttast fyrir okkur, að
reikna með því að þessi fúlga
yrði greidd af okkur að öllu
leyti.
Steingrímur Hermannsson, for
maður Rannsóknarráðs ríkisins,
' ------------------- i
VÍSA VIKUNNAR
Undon halla æfin fer,
engu meir að treysta.
Hefi ég í huga mér
Hallgrímskirkju reista.
x.
kvartaði undan því hér á fundi
á Akureyri, að ýmsum upplýs-
ingum, sem viðkoma þessu máli,
væri haldið leyndu fyrir sér. En
samt hvatti hann okkur Akur-
eyringa til að krefjast þess, að
þessi umtalaða verksmiðja yrði
staðsett hér í bænum eða í næsta
nágrenni hans. Ekki hafði Rann-
sóknarráðið fjallað um eitrun-
aráhrif frá slíkri verksmiðju,
því að um þau hafði hann ekki
heyrt talað. Margir tóku þessi
orð Steingríms, sem rothögg á
þau varnaðarorð, sem sett hafa
verið fram hér í blaðinu, gegn
þeirri hættu sem stafar af fluor-
gasi, sem myndast við rafgrein-
ingu í slíkri verksmiðju. Ekki
hafði Steingrímur heldur látið
rannsaka hvaða áhrif bygging
slíkrar verksmiðju hefði á
byggð héraðsins og fjórðungs-
ins í heild. Framsóknarmenn sjá
ef til vill möguleika á að bæta
atvinnuástandið á Þórshöfn með
því að byggð sé aluminiumverk-
smiðja á Akureyri, á svipaðan
hátt og Bragi Sigurjónsson taldi
að slík verksmiðja yrði til að
bæta atvinnuástandið á Skaga-
strönd og Hofsósi.
í Tímanum, sem kom út á
skírdag, er viðtal við tvo unga
menn, sem unnið hafa í alum-
iniumverksmiðj u í Kanada, þá
Kristján Mikaelsson flugmann
og Braga Melax kennara. Margt
fróðlegt kemur fram í viðtali
þessu. T. d. segir Kristján á ein-
um stað: „Vinnuskilyrðin eða
búsetuskilyrðin þurfa að vera
sérstaklega góð, og verksmiðjan
þarf að greiða hátt kaup, hærra
en nokkur annar sambærilegur
aðili, því verksmiðjunni er lífs-
nauðsyn að halda í sitt fólk.
Heilbrigðisástand verkafólksins
þarf að vera mjög gott, og þarf
að fara fram reglubundin lækn-
isskoðun, því starfið við
bræðslupottana er ekki á hvers
manns færi. Sumir þola það ekki
til lemgdar....Auk þess vil ég
benda á, að gasefnið frá slíkri
verksmiðj u hefur áhrif á loftslag
og gróður. Þótt hægt sé að
stemma stigu við slíkum áhrif-
um að einhverju leyti, má ekki
gleyma þessu. Gasefnið frá verk-
smiðjunni mundi verða illa lið-
ið í nærliggjandi borg, og verk-
smiðjuþorp yrði að reisa í nokk-
urri fjarlægð.“ Blaðamaðurinn
spyr Braga á einum stað, hvað
svona fyrirtæki megi vera lítið
til að skila arði, og Bragi svar-
ar: „Hér er talað um verksmiðju
með 250 manna starfsliði. Ég
hef alltaf haldið, að slík verk-
smiðja mætti ekki vera minni en
svo, að hún þyrfti 1000—1500
manna lið.“ Þá spyr blaðamað-
urinn Braga hvað slík verk-
smiðja irieð 250 manns hafi að
þýða að hans dómi. Svar Braga
er: „Ekkert annað en það, að
byrjað yrði að reisa aðra jafn-
stóra verksmiðju, þegar hin
væri komin upp.“
í síðasta bréfinu, sem Dagur
birti, úr Noregsferð Hjartar á
Tekjjur og: grjöld
Aliiiiimialr^ggiiia
Samkvæmt ársreikningum Tryggingaumboðs Akureyrar og Eyja-
fjarðarsýslu urðu tilfallnar tekjur og útborgaðar bætur almanna-
trygginga Tryggingastofnunar ríkisins um hendur þeirra sem hér
segir:
AKUREYRI:
Tekjur:
Iðgjöld hinna tryggðu...................... Kr. 6.337.530.00
Iðgjöld atvinnurekenda ...................... — 3.003.003.00
Iðgjöld bifreiðastjóra ...................... — 529.368.00
Iðgjöld sjómanna............................. — 476.510.00
Framlag Akureyrarkaupstaðar................... — 3.675.000.00
Framlag Akureyrarkaupst. til lífeyrishækkana — 571.134.00
Samtals kr. 14.592.545.00
Tekið skal fram, að iðgjöld bifreiðastjóra í bæ og sýslu eru tekin
í einni upphæð hér að framan.
Bœtur:
Ellilífeyrir ................................ Kr. 14.519.223.00
Örorkulífeyrir .............................. — 3.937.923.00
Örorkustyrkir ............................... — 548.488.00
Barnalífeyrir ................................. — 1.287.817.00
Fjölskyldubætur ............................. — 9.271.881.00
Ekkjubætur og ekkjulífeyrir ................. — 329.432.00
Makabætur ................................... — 26.398.00
Mæðralaun ................................... — 822.445.00
Fæðingarstyrkir ................................ — 695.304.00
10% bætur (bær og sýsla) .................... -—- 146.784.00
Samtals Kr. 31.585.695.00
EYJ AFJ ARDARSÝSLA:
Tekjur:
Iðgjöld hinna tryggðu................... Kr. 2.913.442.00
Iðgjöld atvinnurekenda .................. — 790.905.00
(Framh. á bls. 2.)
Tjörn, segir Hjörtur frá heim-
sókn í landbúnaðarhérað, sem
hafði aluminiumverksmiðju sem
nágranna, og að sjálfsögðu
spurði hann um reynslu bænd-
anna af eitrunaráhrifum, og
hann fékk þau svör, að tilkoma
verksmiðjunnnar hefði fríað þá
frá kúm og fjósverkum. En hinir
norsku lifðu samt góðu lífi, því
þeir fengu bættan skaðann í
peningum.
Ég vona að þessar tilvitnanir
hér að framan opni augu ein-
hverra fyrir því, að í raun og
veru getur það ekki hafa verið
í alvöru sagt, að til mála kæmi
að reisa aluminiumverksmiðju
hér í bænum eða í næsta ná-
grenni hans.
Ingólfur Árnason.
Minjasofnið verður opið næstk.
sunnudag milli kl. 2-5 e. h. Eftir
það verður lokað í óákveðinn tíma
vegna breytinga. - Safnvörður.
EINSTAKT
TÆKIFÆRI!
VOLKSWAGEN-bifreið
árgerð 1958, í mjög góðu
lagi til sölu nú þegar. —
Semja ber við
Bílasala Höskuldar
Sími 1909
DÖMU-PI LS
Höfum fengið
nokkur pils fró hinni
þekkfu
GOR-RAY
verksmiðju.
Aðeins eitt af tegund.
Verzl. Ásbyrgi h.f.
[ PERUTZ
litfilmur
Gullsmiðir
Sigtryggur og Pétur
Brekkugötu 5 — Sími 1524