Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 02.06.1967, Page 3

Verkamaðurinn - 02.06.1967, Page 3
BLAÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA SKRIFSTOFA í BREKKUGÖTU 5 • SÍMI 11516 RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM. ÞORSTEINN JÓNATANSSON AUGLÝSINGASTJ. OG AFGR.M. RÖGNV. RÖGNVALDSSON PRENTAÐ í PRENTSMIÐJU BJÖRNS JÓNSSONAR H.F. Verlulýðsfclögm urðu dl bcíta sontÉniKctti sinuui Við gerð kaupgjaldssamninga 7. júní 1965 gerðu verkalýðssamtökin á Norðurlandi undir # forustu Björns Jónssonar samning við ríkisstjórnina um ráð til að bæta úr alvarlegu atvinnuástandi á Norðurlandi. Er samkomulagið m. a. um eftirgreindar ráðstafanir: 1. Gert verði út á yfirstandandi síldarvertíð að minnsta kosti eitt síldarflutningaskip á vegum ríkisins til þess að gera tilraunir með flutning söltunarsíldar til þeirra staða þar sem skortur er atvinnu og aðstaða góð til síldarsöltunar. Veittur verði sérstakur stuðningur veiðiskipum sem flytja langleiðis söltunarsíld til atvinnulítilla staða. 2. Leitað verði tiltækra ráða til þess að tryggja hrá- efni til vinnslu í frystihúsum og öðrum fiskvinnslu stöðvum á Norðurlandi og Strandasýslu næstu tvo vetur ef atvinnuþörf krefur og verði jöfnum höndum athugað hagkvæmni flutninga á bolfiski af fjarlægari miðum, stuðningur við heimaútgerð og aðstoð við útgerð stærri fiskiskipa sem flutt gætu eigin afla langleiðis. Að áliti allra, sem til þekkja, hefur árangur þessa samnings orðið mjög góður, og fullyrða má, að ef þessi samningur hefði ekki komið til, hefði útgerð togskipa frá Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík lagzt niður, og í kjölfarið hefði siglt minnkandi atvinna og jafnvel at- vinnuleysi. Einnig hefur útgerð línu- og netabáta verið studd með því að verðbæta afla, sem lagður er upp í ver- stöðvum hér Norðanlands. Styrkur til flutnings síldar til söltunar hér Norðan- lands hefur komið í veg fyrir að þessi norðlenzka at- vinnugrein legðist alveg niður. Þau tvö ár, sem þetta samkomulag hefur gilt, hefur stuðningurinn við norðlenzkan sjávarútveg og fiskiðn- að numið um 24 millj. kr. og fullyrða má, að sjaldan hefur peningum verið betur varið. Þetta samkomulag átti að gilda í tvö ár, en hefur verið framlengt til haustsins. Norðlenzkir verkamenn, sjómenn og útvegsmenn munu í komandi kosningum styðja að kjöri Björns Jónssonar og vera þess minnugir, að kosningar eru kjarabarátta. — I. Núverandi ríkisstjórn hóf fer- il sinn með því að lsekka kaup- gjald launafólks stórlega og rýra síðan lífskjör þess enn frekar með gengisfellingu og með því að afnema verðlagsbætur á laun með hækkandi verðlagi. Alla stjórnartíð sína hefur hún síðan átt í stöðugum útistöðum við al- þýðusamtökin og reynt í þeim viðskiptum flestar leiðir, allt frá beinum og óbeinum kauplækkun- um með bráðabirgðalögum og lögþvingunum til beinnar þátt- töku við hlið atvinnurekenda í verkföllum og vinnudeilum, þrátt fyrir sérstaka og viðurkennda hófsemi verkalýðshreyfingarinn- ar í kröfugerð sinni og kaup- gjaldsbaráttu. Nú standa mál þannig, að öll verkalýðsfélög í landinu eru með lausa kjarasamninga frá sl. hausti, en hafa ekki talið rétt né skynsamlegt að láta til skarar skríða eða festa samninga sína, eins og sakir standa og meðan fullkomin óviss ríkir uöi alla meðferð efnahagsmála eftir kosn ingar. Björn Jónsson þá ættu líf sitt og lífsafkomu laun þeganna í landinu að verja, ekki síður en í byrjun þess kjörtíma- bils, sem nú er senn á enda, þeg- ar hæst var reitt til höggs gegn verkalýðshreyfingunni með þrælalögunum, sem samtökin stöðvuðu þá á elleftu stundu, í nóvember 1963, með frábærri samstöðu sinni. Aðrar aðgerðir koma ekki til lega batnandi lífskjör. Þetta vilj um við m. a. gera með því, að létta þungbærum gjöldum af út- flutningsatvinnuvegunum, svo sem útflutningsgjöldum og skött- um til fjárfestingarsjóða, með því að lækka eða fella niður tolla af innflutningi þessarra atvinnu- greina, með vaxtalækkun, og sð- ast en ekki sízt með því að firra þá ráni milliliðanna, sem nú mergsj úga þessar atvinnugrein- ar. Við viljum endurbyggja tog- araflota landsmanna, sem „við- reisnin“ er að leggja í rústir, og jafnframt þann bátaflota, sem mest og bezt hráefni leggur til vinnslustöðvanna, og er undir- staða og lífæð sjávarbyggðanna um meginihluta landsins. Við viljum efla fiskiðnaðinn í landinu með öllum tiltækum ráð um og auka þannig afrakstur fisk veiðanna, þótt hráefnismagn auk ist ekki í stórum stíl, eins og verið hefur. Við viljum margfalda vísinda starfsemi í þágu útvegs og fisk- iðnaðar, sem og annarra atvinnu Kjaramál-framfaramál Stefna Alþýðnbandalag;§in§ Hin svokölluðu verðstöðvunar lög falla sjálfkrafa úr gildi 31. okt. nk., og uppbótakerfið, sem nemur 1500—1700 milljónum króna miðað við eitt ár, fær ekki staðizt nema með stórfelldum hallarekstri ríkissjóðs og eyðslu gjaldeyrisvarasjóðs, sem mynd- aður hefur verið með samsvar- andi aukningu erlendra skulda, en þær hafa vaxið úr 2685 millj. kr. 1959 í 4460 millj. um síðustu áramót. Allir skynibornir menn vita og sjá, að slíkar ráðstafanir, sem enginn efnalegur grundvöllur er til fyrir, leysa engan þann vanda, sem fyrir hendi er, en stjórnar- fiokkarnir þora hvorki né vilja gefa neinar vísbendingar um það, hvaða ráð skuli upp tekin eftir kosningar. Þar hylja þeir allt þoku og mistri. Og ástæðurnar til þess eru deginum ljósari: Þær, að allar hugsanlegar aðgerðir í „viðreisn ar“anda myndu örugglega kol- fella ríkisstjórnarflokkana í kosningunum nú, ef kunngerð- ar yrðu áður en þjóðin gengur að kjörborðinu. En af reynslunni má þó ráða með sterkri vissu, hvaða „þjóð- ráð“ yrðu reynd, og yrði þar ekki nema tvennt, sem til greina kæmi. Annars vegar gengisfell- ing ásamt kaupbindingu — hins vegar enn stórfelld aukning upp- bótakerfisins með nýjum þung- bærum sköttum af almenningi og í báðum tilfellum harðvítugt stríð við alþýðusamtökin, sem greina, eiris og komið er, undir „viðreisnarstj órn,“ og því er það nú mál málanna fyrir verkalýðs- hreyfinguna og allt launafólk í landinu, að fella þessa stjórn frá völdum, og liggja þó til þeirrar nauðsynjar margar og ríkari á- stæður aðrar en þær, sem tengd- ar eru hinum beinu kjaramálum. Þar vil ég fyrst nefna atvinnu- málin. í þeim málum hefur ver- ið fylgt þeirri stefnu að láta ó- beizlað fjármagn og gróðasjón- arið þess ráða framkvæmdum og staðsetningu atvinnutækja. í því hefur athafnafrelsið verið fólgið. Árangur hefur orðið sá, sem allir vita, að fjármagn og vinnuafl hefur streymt til óarð- bærra þj ónustugreina og alger- lega handahófskenndrar fjárfest- ingar meðan undirstaðan hefur verið að grotna niður og þrengt hefur verið að henni með marg- víslegum 'hætti. Slíka háskastefnu viljum við Alþýðubandalagsmenn stöðva með því að láta mannlegt hyggj u vit taka ráðin af blindri heimsku fjármagnsins og stundargróðans, sem kölluð er „athafnafrelsi,“ en er í raun stjórnleysi eitt. Yið viljum taka upp heildar- stjórn á þjóðarbúskapnum með almannahagsmuni fyrir augum. Við viljum vinna bráðan bug að því að stórbæta stöðu höfuð- atvinnuveganna í þeim tilgangi, að þeir verði færir um að endur- byggja sig samkvæmt nýjustu tækni og geti jafnframt skapað þeim, sem við þá vinna örugg- greina, og stórauka leit að nýj- um og hagstæðum mörkuðum fyrir fullunnar afurðir. Við viljum stóreflingu ís- lenzks iðnaðar og þá alveg sér- staklega þess, sem byggt getur á innlendum hráefnum og er ná- tengdur höfuðatvinnuvegunum. Vegna hins takmarkaða innlenda markaðar teljum við, að ýtrustu gát verði að viðhafa varðandi ó- beizlaða samkeppni erlends iðn- varnings, sem nú er í ýmsum greinum fengin hrein forréttindi umfram innlenda framleiðslu. Síðast, en ekki sízt, viljum við styrkja og efla íslenzka atvinnu- vegi og tryggja öryggi bærilegra og batnandi lífskjara með því að hafa fullt taumhald á verð- lagi og verðbólgu. í þeim efnum vildi ég nefna sem grundvallar- skilyrði: 1. Stórfellda lækkun húsnæð- iskostnaðar með gerbyltingu lánakerfis og lágum vöxtum til íbúðabygginga. 2. Breytingar á skattakerfinu, sem léttu með öllu sköttum og út svörum af lágtekjum og þeim at vinnurekstri, sem nú er verst sett ur. 3. Komið verði á virku verð- lagseftirliti og spamaðar gætt í ríkisrekstri. 4. Að gjöldum og tollum verði létt af landbúnaðarframleiðslu. 5. Að fj árfestingarfj ármagni verði, a. m. k. um sinn, alveg sérstaklega beint að endurskipu- lagningu atvinnufyrirtækja með Framh. á bls. 5. Verkamaðurinn (3 Föstudagur 2. júní 1967.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.