Verkamaðurinn - 06.09.1968, Side 1
Allar innfluttar vörur hækka í verði. —
Fyrsti hluti efnahagsaðgerða
ríkisstjórnarinnar
Síðastliðinn þriðjudag voru sett bráða-
birgðalög um 20% innflutningsgjald á
allar innfluttar vörur til viðbótar þeim
innflutningsgjöldum og tollum, sem fyr-
ir eru. Ennfremur verður tekið 20%
gjald af útgjöldum vegna ferðalaga er-
lendis.
Samkvæmt yfirlýsingum ráðherra eru
þetta bráðabirgðaaðgerðir, en frekari og
enn harkalegri ráðstöfunum í efnahags-
málum má búast við eftir að lýkur þeim
viðræðum fulltrúa allra stjórnmálaflokk-
anna, sem nii standa yfir um efnahagsmál
þjóðarinnar og hugsanlegar aðgerðír í
þeim.
Þetta nýja innflutningsgjald verður,
sem áður segir, lagt á allan innflutning,
en heimildarákvæði er um að endurgreiða
megi gjaldið í einhverri mynd vegna hækk
ana á brennsluolíu og umbúðum sjávar-
útvegsins, veiðarfærum, sem ekki eru
framleidd innanlands, svo og fóðurvör-
um landbúnaðarins.
Þá er í lögunum ákvæði um, að Verð-
lagsnefnd skuli beimila verzlunarálagn-
ingu á sem næst 30% þeirrar hækkunar,
sem af innflutningsgjaldinu leiðir.
Það má öllum ljóst vera, að af þessum
ráðstöfunum ríkistjórnarinnar leiðir mikl
ar vei'ðhækkanir, ný verðbólgualda ríður
nú yfir, og hafa þær þó nógu margar ver-
ið á valdatíma þessai'ar stjórnar, sem
boðaði það við fæðingu, að hún myndi
koma á stöðugu verðlagi í landinu. Það
hefur farið á annan veg, og verðbólgu-
aldan, sem nú kemur, er aðeins sú fyrsta,
sem hrint verður af stað á næstu vikum og
mánuðum, því að allt efnahagskerfið er
að hrynja. Þegar aflatregða og söluerfið-
leikar bætist við óstjórn liðinna ára, þá
þarf enginn að búast við góðu.
LANDSFUNDUR
BoSaS hefur veriS, að lands-
fundur Alþýðubandalagsins verði
haldinn í Reykjavik dagana 1. til
3. nóvember næstkomandi. Með
störfum þessa fundar verður ón
efa fylgzt af óhuga um land allt,
þar sem fullvíst er, að þar verður
tekin endanleg ókvörðun um það,
hvort Alþýðubandalagið verður
byggt upp sem óhóður lýðræðis-
sinnaSur stjórnmólaflokkur eða
hvort klíku harðlínumanna í Sós-
iolistafélagi Reykjavíkur tekst enn
að komo i veg fyrir, að svo verði,
eins og þeim hefur tekizt i óratug.
En nú er þróun móla loks svo
longt komið, oð lengur verður
ekki beðið með oð hrökkva eða
stökkva. Verði sú stefna róðandi ó
landsfundinum að halda Alþýðu-
bandaloginu i sömu mynd og þoð
hefur verið, eins konar hólfskap-
aður flokkur, þar sem meðlimir
Sósialistafélags Reykjavikur fari
með æðstu völd, þó eiga lýðræðis-
sinnaðir sósíalistar og stuðnings-
menn Alþýðubondalagsins ekki ann
ars völ en oð stofna nýjan flokk
fyrir sig og lofa klíkunni i Sósial-
istafélagi Reykjavíkur oð róa einni
ó bóti og þó undir hvaða nafni,
sem hún helzt kysi, en heppilegur
formaður klikunnar væri Þorvald-
ur Þórarinsson, lögfræðingur.
Allavega er Ijóst, að innan Sós-
ialistafélags Reykjavíkur er tals-
verður hópur fólks, sem ekki ó
heima i þeim lýðræðislega og sós-
íalíska fjöldaflokki, sem alþýða
landsins óskar eftir og biður eftir.
Alþýðubandalagið ó ekki að hirða
eftirlegukindurnar i Sósíalistafélagi
Reykjavikur, og Sósialistafélag
Reykjavikur ó ekki að fó stjórn
Alþýðubandalagsins í sinar hend-
ur. Þarna verða og hljóta að koma
glögg skil í milli, og niðurstaðan
fæst eigi siðar en ó landsfundi Al-
þýðubandalagsins fyrstu dagana í
nóvember.
Hýjd drdttarbriuitin ð Akureyri
í sumar hefur verið unnið af
kappi við nýju dráttarbrautina
á Akureyri, og er framkvæmd-
um nú svo langt komið, að á
þriðjudagskvöldið var togarinn
Kaldbakur tekinn upp í brautina
til botnhreinsunar, en hann er
langstærsta skip, sem tekið hef
ur verið upp í dráttarbraut hér
á Akureyri. Hingað til hafa tog-
ararnir jafnan þurft til Reykja-
ur eða til útlanda, þegar þurft
hefur að taka þá upp til eftir-
lits ða aðgerða. Hér eftir verð-
ur hægt að vinna þau verk hér
heima, og er það að sjálfsögðu
mikils virði.
Annars var Snæfellið fyrsta
skipið, sem tekið var upp í hina
nýju dráttarbraut, og síðan var
Stígandi frá Olafsfirði einnig
tekinn upp í sleðann, meðan
Snæfellið var þar en eftir er að
koma fyrir hliðarfærslum. Þá er
einnig eftir að grafa mikið út
og lengja sporin, en fullgerð á
dráttarbrautin að geta tekið upp
2000 tonna skip. — Er vafa-
laust, að hún verður veruleg
lyftistöng fyrir atvinnulíf í
bænum.
;■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Guðmundur Frímaim,
y
skáld. heiðraður
ÞAR ER GOTT AÐ VERA
Akureyrarbær á myndarlegan
sjóð, sem kenndur er við menn
ingu. Hann hefur verið notaður
til listaverkakaupa, sem er lofs
vert, og Helgi Valtýsson, rithöf-
undur hefur notið hans fyrir
nokkrum árum, sem er líka lofs
vert. Nú á síðasta afmæli bæjar-
ins voru Guðmundi Frímann,
skáldi, veittar 50 þús. krónur í
heiðurs- og þakkarskyni fyrir
skáldskap hans.
Þettá er vissulega þakkarvert
og hefði mörgum þótt, áð fyrr
mætti vera. Guðmundur Frí-
mann hefur verið búsettur hér
lengi, reynzt hinn ágætasti borg
ari, nýtur kennari og á sér vini
marga og aðdáendur. Hitt er
þó mest um vert, að Guðmund-
ur er í hópi hinna allra beztu
skálda með þjóð vorri og stend
ur alveg sér. Ljóð Guðmundar
verða aldrei talin geta verið eftir
annan en hann, þennan ljúfa
söngvara Langadals.
Eftir Guðmund hafa komið
10 bækur, frumsamin ljóð, þýð
ingar og smásögur.
Guðmundi er óskað mikillar
hámingju og langra daga til rit-
starfa og stjórn Menningarsjóðs
Akureyrar þakkað framtakið.
k.
Um mánaðamótin júní og
júlí í sumar voru 10 orlofshús
í orlofshúsahverfinu að Illuga-
stöðum í Fnjóskadal tilbúin til
notkunar, og fluttu fyrstu or-
lofsgestirnir þá í nokkur þeirra.
en ekki var fullskipað fyrstu vik
una. En fréttir bárust skjótt af
því, að þarna væri gott að vera,
og síðan hafa húsin jafnn verið
í notkun. Hafa dvalizt þarna um
50 til 60 manns hverja viku og
mun samhljóða álit allra, sem
reynt hafa, að á Illugastöðum
sé gott að vera, húsin mjög
skemmtileg og útbúnaður allur
góður. í stuttu máli sagt, heppi
legur, friðsæll og góður hvíldar
staður.
Þá hefur umsjónarmaðurinn
eystra, Róáberg G. Snædal, tjáð
blaðinu, að umgengni gesta
hafi verið með ágætum og sam
búðin gengið ágætlega í þessu
yngsta þorpi Norðurlands, sem
yfirleitt skiptir um íbúa viku-
lega. Enn er fullskipað eystra,
þótt tekið sé að halla sumri, en
þetta mun þó síðasta vikan, sem
fullpantað er, og sennilegt, að
staðnum verði ekki haldið opn-
um öllu lengur á þessu sumri en
næstu viku.
Að vori verða fimm hús til
viðbótar tilbúin til notkunar.
Þá verða og lóðir og umhverfi
komið í skemmtilegra horf, en
í sr.mar hefur verið unnið að
ýmsum framkvæmdum og lag-
færingum úti við. Má búast við
að næsta sumar verði íbúar að
lllugastöðum yfirleitt um 80
talsins, og ekki þarf að efa að-
sóknina eftir þá reynslu, sem
fengizt hefur í sumar.