Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 06.09.1968, Side 3

Verkamaðurinn - 06.09.1968, Side 3
************************ ***** *+-K+*++*+-K-M*+**+*++++-k**+*+++****-tc+-k+-M<**++-k-fc*++-*<-*c-M *-*+****++*-*'++*+++++++++-***++*+**-><*+-><*++++ ★ * Dómurinn er íallinn Dómur í máli Kristjáns Ásgeirssonar og fleiri gegn Fiskiðju- samlagi Húsavíkur var kveðinn upp í síðasta mánuði. Dóms- niðurstaða varð sú, að Fiskiðjusamlagið var sýknað af kröfu stefnenda, en málskostnaður, annar en laun sækjanda og verjanda, var látinn niður falla. Vegna fjölda áskorana birtir Húsavíkursíðan nú dóminn í heilu lagi samkvæmt frumriti. ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ■'ár tfc' ♦ ****************i UUSAVIK DÓMUR í sjó- og verzlunaxdómsmálinu, nr. 1/1968: Kristján Asgeirs- son o./l. gegn Fiskiðjusamlagi Húsavíkur h.f. Ar 1968, miðvikudaginn 31. júlí var sjó- og verzlunardómur Akureyrar settur í dómsal emb- ættisins og haldinn af Ofeigi Eiríkssyni, bæjarfógeta, ásamt meðdómsmönnunum Bjarna Jó ihannessyni, skipstjóra og Tóm- asi Steingrímssyni, forstjóra. Fyrir var tekið: Sjó- og verzlunardómsmál- ið nr. 1/1968 Kristján Asgeirsson o.fl. íegn Fiskiðjusamlagi Húsavík- ur h.f. ®g var í málinu kveðinn upp svohljóðandi DÓMUR: Mál þetta , sem dómtekið var 4. þ.m. hafa Kristján Ásgeirs- son, útgerðarmaður, Álfhóls- vegi 1, Húsav., Ásgeir Kristjáns son, sjómaður, Mararbraut 17, Húsavík, og Þormóður Kristj- ánsson, sjómaður, Túngötu 6, Húsavík, höfðað fyrir sjó- og verzlunardómi Akureyrar með stefnu útgefinni 2. janúar 1967 gegn stjórn Fiskiðjusamlags Húsavíkur h.f., Húsavík f.h. fé- Iagsins til greiðslu verðupp- hóta á fisk, er stefnendur lögðu inn í fiskiðjuver stefnda á ár- inu 1964 að upph. kr. 101.450, 00 með 6% ársvöxtum frá 1. janúar 1965 til 31. desember s. á., en 7% ársvöxtum frá þeim degi til greiðsludags og máls- kostnaðar að skaðlausu. Við skriflegan flutning máls- ins breyttu stefnendur kröfum sínum þannig, að þeir krefj- ast nú, að stefndi greiði þeim kr. 79.700,00 með 6% ársvöxt- um frá 1. janúar 1965 til 31. desember s.á. en 7% ársvöxtum frá þeim degi til greiðsludags. Til vara er þess nú krafizt, að dómurinn veiti viðurkenningu um aðalkröfu stefnenda ef fulln ustuskylda telst enn eigi komin sbr. 69. gr. Iaga nr. 85, 1936, 2. mgr. i.f. í þáðum tilfellum er krafizt málskostnaðar. Mál þetta var upphaflegá höfðað fyrir bæjarþingi Akur- eyrar, en síðar, eða 12. marz sl. hafið, en samdægurs þingfest í sjó og verzlunardómi Akureyr- ar. Stefndi gerir þær kröfur, að hann verði sýknaður af öllum kröfum stefnenda, og honum til dæmdur málskostnaður eftir mati réttarins. Með samningi dags. 19. júlí 1947 stofnuðu nokkrir aðilar á Húsavík félag um byggingu og rekstur hraðfrystihúss og var það nefnt Fiskiðjusamlag Húsa- víkur. Samlagið skyldi fyrst og fremst vinna og verka sjávarafla samlagsféJaga, en því var heim ilt að taka til vinnslu og kaupa afia af öðrum. I 1. gr. sam- þykkta FiskiðjuSamlags Húsa- víkur segir, að það sé félag, sem starfi á samvinnugrund- velli. Tekjuafgangi af viðskipt- um samlagsfélaga skyldi skipt milli þeirra í réttu hlutfalli við viðskiptamagn hvers og eins það ár, sem um ræðir, en áður en skipting kæmi til, skyldi fara fram hæfileg afskrift eigna sam- lagsins. Ennfremur skyldi greiða: 1. í varasjóð 1% af sölu- verði framleiðsluvara. 2. Vexti af stofnfjárframlög- um, allt að 5%. 3. í stofnsjóð handa hverjum samlagsfélaga til sj álfseignar 1% af innleggsandvirði hans. Samvinnufélag þetta starfaði fram til ársins 1958 en var þá lagt niður og samnefnt hluta- félag tók við rekstri þess, eign- um og skuldum. í stofnsamn- ingi hlutafélagsins segir, að til- gangur þess sé að annast vinnslu, verkun og sölu sjávar- afurða eða annarra afurða eftir því, sem stjórn félagsins eða hluthafafundur ákveður. Hvergi er í stofnsamningi minnzt á uppbætur til fiskinnleggjenda. Samkvæmt 3. gr. samþykkta þess skal það strax við móttöku hráefnis greiða innleggjendum venjulegt gangverð fyrir afurð- irnar, en síðar einnig uppbætur „ef fjárhagur félagsins leyfir“ og er vísað til 26. gr. samþykkt- anna, en þar segir: „Hreinum arði eftir ársreikn ingum, að frádreginni þeirri upphæð, sem stjórnin ákveður til fyrningar af bókuðu eigna- verði félagsins, skal skipt þann- ig: a) Aðalfundur ákveður, hversu mikið skuli leggja í end urnýjunar og varasjóð. b) Aðalfundur ákveður, hversu miklu fé skuli útbýtt til hluthafa. Uthlutaður arður má þó ekki fara fram úr -8%. c) Því, sem eftir verður, skal úthluta til þeirra, sem lagt hafa inn hráefni hjá félaginu á reikn ingsárinu í réttu hlutfalli við magn og tegund innleggsins. Heimilt er þó stjórn félagsins að ákveða, að slíkar uppbætur skuli standa inni hjá félaginu í allt að 5 ár, á vöxtum, jafn- háum þeim, sem Landsbanki Is lands greiðir á hverjum tíma af almennum sparisjóðsinnstæð um. Arð af hlutafé skal greiða, þegar er hann hefur verið ákveð inn á aðalfundi. Stjórnin skal leggja fyrir aðalfund tillögur um skiptingu ársarðsins.“ Á aðalfundi hlutafélagsins fyrir árið 1964 var eftirfarandi ályktun samþykkt: „A. Aðalfundur Fiskiðjusam lags Húsavíkur h.f samþykkir að leggja af tekjum ársins 1964 kr. 444.769.21 í varasjóð. B. Samþykkir að greiða fyrir árið 1964 hluthöfum 8% arð af hlutafé. C. Samþykkir Isamkv. c-Iið 26. greinar félagssamþykktanna að greiða innleggjanda fisks á árinu 1964 sem búsettur er á Húsavík og lagt hefir inn fyrir kr. 1.000,00 og meira uppbót 8% af innleggi, alls kr. 1.031. 239,33. Jafnframt leggur fund- urinn til, að helmingur uppbót anna verði greiddur í desem- ber 1965 og hinn síðari eftir á- kvörðun stjórnarinnar svo sem c-liður 26. greinar kveður á um. Þá samþykkir fundurinn að greiða vexti af uppbótum frá og með 1. janúar 1965.“ Þegar þessi upphææð, kr. 1.031.239,33 hefur á ársreikn- ingi 1964, verið færð til skulda við fiskinnleggjendur, er hagn aður á árinu talinn kr. 737.611, 95. Þegar bætt hefur verið við hagnaði af sölu fiskreita, er fé- lagið átti og ennfremur skuld, sem hafði greiðzt, en hafði áð- ur verið afskrifuð sem töpuð og loks dregið frá tap á árinu 1963 og reyndist þá tekjuaf- gangur kr. 444.769,21, og var sú upphæð lögð í vara- og end- urnýjunarsjóð. Samkvæmt reikn ingum ársins 1964 eru birgðir afurða í árslok 1963 bókfærðar á kr. 5.781.224,61, en sam- kvæmt reikningum félagsins fyrir árið 1965 reyndist sölu- k verð þeirra kr. 6.979.756,30. Meðal þeirra, sem á árinu 1964 lögðu upp fisk í fiskiðju- ver stefnda voru stefnendur, en þeir áttu og ráku sameiginlega vélbátinn Grím ÞH 25. Fengu þeir greiddan hluta af ofan- nefndum fiskuppbótum eða kr. 87.110,53 samkvæmt yfirlýs- ingu stefnenda, en telja, að þeir hafi ekki fengið allar þær uppbætur, sem þeim hafi borið. Stefnendur segja, að þegar sam vinnufélagið var lagt niður og hlutafélagið stofnað, hafi þess verið krafizt af fiskinnleggjend um, að ákvæðin úr lögum sam- vinnfélagsins um uppbætur á innlagðan fisk yrðu látin gilda áfram, þótt breytt væri um fé- lagsform. Hafi verið fallizt á þetta af aðaleigendum hlutafjár í hlutafélaginu og telja þéir upp bótarákvæði 26. gr. samþykkt- anna fela í sér loforð tii inn- leggjenda um uppbætur á inn- lagðan fisk. Þeir telja og fundar samþykkt þá, er að framan oreinir, ekki í samræmi við á- kvæði 26. gr. samþykkta félags ins og ekki bindandi gagnvart innleggjendum. I greinargerð sinni segja þeir, að frá hagnaði ársins 1964 eigi aðeins að draga varasjóðsframlagið kr. 444.769,21 og arð til hluthafa, kr. 35.424,00 og sé því óráð- stafað kr. 257.418,74, sem beri samkvæmt samþykktum félags- ins að skipta milli fiskinnleggj- enda. Síðar, eða við skriflegan flutning málsins, var því lýst yfir af hálfu stefnenda, að þeir féllu frá hlutdeild í þessari upp- hæð og byggist lækkun stefnu- kröfunnar úr kr. 101.450,00 í kr. 79.700,00 á því. Birgðir afurða í árslok 1964 voru bókfærðar á kr. 5.781.224, 61, en seldust síðar á kr. 6.979. 756,30 eða á kr. 1.198.531,69 umfram matsverð. Telja stefn- endur þessa upphæð að frá- dregnum sérkostnaði við þessar birgðir kr. 90.612,40, stafa bein línis af fiski innlögðum á árinu 1964, og eigi þessar duldu tekj ur, kr. 1.107.919,29 samkvæmt lögum félagsins að skiptast milli innleggjenda. Samhliða því að krefja þennan tekjuaf- gang segja stefnendur sig núi (við skriflegan flutning máls- ins) hafna þeim tekjum ársins 1964, sem stafi af umframverði birgða 1963, en þetta nemi kr. 690.369,51, til frádráttar sé sér kostnaður kr. 190.050,73. Þann ig færist kr. 500.345,78 yfir á árið 1963 sem tekjur og sé ekki. ■ lengur raunhæft að tala um tap á því ári, heldur hagnað kr. 164, 338,80, en samkvæmt ársreikn- ingi 1964 var tap á árinu 1963 taíið kr. 336.006,98. Standa því. eftir sem óráðstafaður tekjuaf- gangur kr. 1.107.919,29 164. 338.80 eða kr. 943.580,49. AI: úthlutuðum uppbótum 1964 kr.. 1.031.239,33 hafi þeir fengið f. sinn hlut kr. 87.110,53 og beri þeim að fá af hinum óráðstaf- aða tekjuafgangi kr. 79.700,00 miðað við sama skiptahlutfalL Stefnendur benda á, að sam- kvæmt ákvæðum samþykkta fé- lagsins hljóti að eiga að gera hvert ár upp gagnvart innleggj- endum miðað við endanlegi; verð afurða þess árs og þótt ekki liggi fyrir í árslok nákværri! ar upplýsingar um afurðaverð., beri að færa umframverð birgða sem ógreiddar uppbætur á næsta árs reikningum. Ennfremur, ac.' stefndi hafi ekki keypt afurð- irnar af þeim á tilteknu verði, heldur unnið þær og selt fyrir þá. Telja stefnendur þessa starl semi stefnda nánast umboðs- mennsku. Varakröfu sína styðja stefn- endur þeim rökum, að sam- kvæmt 26. gr. samþykkta félagg ins hafi það rétt til að halda upp bótum innleggjenda í allt að 5 ár. Sé því umdeilanlegt, hvorfi fullnægjuskylda teljist komim fyrr en 5 árum eftir að uppbæt- ur eru ákveðnar eða 5 árum eft ir lok starfsársins 1964. Hins vegar sé nauðsynlegt að fá við- Frh. á 5. síðvto „Sölumaður lifir” / / Bæjarins eignum er Bjössi að flíka, og bæta vill með því fjárhaginn. Bráðum selur hann bæinn líka, bæði kofana og mannskapinn. Allt verður metið frá innstu klæðum, — efni skoðað í hverri flík. Þvilíkt „séní“ í sölufræðum, — setti heimsmet í Reykjavík. Glettingur. Föstudagur 6. sept. 1968 Verkamaðurinn (S

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.