Vínland - 01.05.1906, Blaðsíða 6

Vínland - 01.05.1906, Blaðsíða 6
.22 VÍNLAND. Kristinn Sósíalisti. Saga eftir Gharles M. Sheldon. (Niðurl.), Yi!;u. eftir að presti hafði borist bréf þetta bar ókunnan gest að prestssetrinu. Séra Friðrik Stanton var ekki heima en hinn j velbúni komumaður sagði ráðskonunni að hann myndi blða heimkomu lians. Honum var vísað inn á skrifstofu prestsins og þar sat hann þar til prestur kom heim og yeitti öllu, sem hann þar sá, hina mestu eftirtekt. Komumaður stóð upp og h e i 1 s a ð i presti glaðlega. „Dr. Stanton?“ ,,.Iá“. .. „Aleð öðrum orðum ,Markús Burn?‘“ Séra Friðrik svaraði engu en virti hinn bros- leita gest nákvæmlega fyrir sér. „Þér verðið að fyrirgefa ónæði það,ereg geri yður“, mælti komumaður ög brösti á ný. „Eg ef annar eigandi útgáfuhússins------ í New York ög eg er lrominn hingað til Lennox til að kynnast höfundi hinnar merkilegustu bókar þessarar tíðar. Þér getið eigi íengur dulist undir gerfinafni þessu. Almenningur heimtar að fá að þekkja yður. Yið höfum engan frið á skrifstofunni í New York fyrir áskorunum frá lesendunumum að birta mynd af yðnr og iýsingu, og fyrirlestrafélögum, sem vilja fá yður til að halda ræður. Dagblöðin eru að leita að yður, og það má alt að því kraftaverk kallast, að þér ekki hafið fundist fyr. Við viljum fyrir hvern mun fá mynd af yður og æfisögu yðar til að í nýrri skrautútgáfu af bókinni, og eg er hér kom- birta inn til þess að fá þessu framgengt“. „En ef eg nú neita að verða við þessum til- mælum?“ spurði séra Friðrik alvarlega. „Neita! Minn góði herra, það er ómögulegt! Almennings óskinni verður aö fullnægja. Það verður hvort sem er ómögulegt að dyijast mikið lengur“. , Því ekki það? Mörg ár liðu svo að enginn vissi að George Eliot var höfundur ,Adam Bedes*. í fimm ár vissi enginn að Charles EgbertCraddock vár kona. Dr. Joseph Parker í Lundúnum, léteigi nppskátt að hann væri höfundur bókarinnar ,Ecce Deus‘ fyr en eftir að tíu ár voru liðin frá því bók- in kom út, og um hann hafði hans eigið safnaðar- fólk lengi rætt áður en það komst að því að hann væri höfundurinn“. ,,En minn kæri herra, eg skil ekki í öðru en að þér hljótið að vilja að yðar sé getið. Engin bók, sem gefin hefir verið út i þessu landi, hefir haft aðra eins útbreiðslu og bók yðar. Við höf- um neyðst til að hætta við allar aðrar bækur til þess að geta haft undan að prenta hana. Ekkert dæmi þessu líkt er til i sögu bókaútgerðarinnar“. „Samt sem áður vil eg ekki láta mín getið. Eg hefi heimulegar ástæður fyrir því að viljaekki vera þektur sem höfundur bókarinnar“. Útgefandinn þagði nokkra stund. „Eg efa stórlega að þér getið varðveitt þetta leyndarmál. Ef það er yðar einlægur ásetningur, þá gerum við auðvitað alt, semí voru valdi stendur til að hjálpa yður til þess. Þér megið reiða yður á það“. Svo spurði hann eftir augnabliks hvíld: „Getið þér — viljið þér — það er að se.gja — er það af nokkrum þeim ástæðum, sem þér vilduð leyfa útgefendunum sjálfum að vita um?“ Hægt og séint svaraði séra Friðrik Stanton: „Nei, það get eg ekki. Ástæðuna get eg engúm manni sagt“. Komumaður hneigði' sig, og skötnmu síðar kvaddi bann prest og andm-tók það loförð hátíð- lega að ljósta eigi upp leyndarmáli lians. Þegar gesturinn ,var farinn, beygði prestur höfuð sitt niður á börðið, og þégar hann loks !eit uþp' aftur, voru sorgarrúnirnar á ásjónu lians enn dýpri en áðr ur og svipur hans yar enn þreytulegri nú þegar frægð hans var á hæsta stigi, frægð, sem bann virt- ist vilja forðast. og flýja undan eins ög honum stæði stuggur af henni. Sumarið leið og aftur kom haust og vetur. Þá varð sá viðburður í dómkirkjusöfnuðinum i Lennox, sem seint mun mönnum úr minni líða. Séra Friðrik Stanton, guðfræðisdoktor, var kosinn í biskupsembætti, í stað annars, semúr því göfuga embætti hafði orðið að víkja eökum ellilasleika. Vígsla hans til hins háa embættis átti nú að fara fram í dómkirkjunni, sem hann svo lengi hafði þjónað sem prestur. Söfnuðurinn, sem saman var kominn við þetta tækifæri, var glæsilegur á að horfa, því þar gaf að iíta allan höfðingjalýð borg- arinnar í dýrum klæðum. Æðstu yfirboðarar kirkjunnar og prestar viðsvegar aðkomnir voru þar einnig samankomnir. Þótt sóknarbörnum Dr. Stantons þætti sárt að missa hann sem sálusorgara var þó fögnuður mikill þeirra á meðal yfir hinni háu tign, er honum hafði veizt. liodney dómari, frú Kodney og ungfrú Mildred sátu á sínum venjulega stað rétt framundan kórn- um. Þegar liinn nýkosni biskup kom fram á há- pallinn, þar sem hinir klerkarnir sátu, varð honum ósjálfrátt að líta þangað, sem Kodney fólkið sat. Síðan snéri hann sérað hinum aldurhnigna og göf- uga biskup, sem það hiutverk hafði fengið að leggja fyrir hann hinar venjulegu vígslu spurn- ingar. Hannleit aldrei af biskupnum meðanáat- höfninni stóð og var hátíðleg aivarayfirsvip hans, en andlit hans var að því er ungfrú Mildred virtist óvenjulega fölleitt. Biskupinn: Kæri bróðir! Með því heilög ritning bíður oss að leggja ekki skyndilega hend- ur yfir nokkurn mann til að fela lionum umsjón kirkju Krists, þá eigið þér í ótta drottins að svara þeim spurningum, sem eg nú legg fyrir yður: Eruð þér þess fullviss að þér séuð réttilega til þessa embættis kjörinn og að vilja drottins vors Jesú Krists? Svar: Já, eg er þess fullviss. Biskupinn: Trúið þér því staðfastlega að hei- lög ritning innihaldi luna sáluhjál].legu lærdóma, og viljið þér þá lærdóma kenna þeirri hjörð, er yður verður trúað fyrir, og engan anran lærdóm boða en þann, sem beilög ritning geymir? Svar: Því Iofa eg, n eð guðs hjálp. Biskupinn: Viljið þér vera árvakur í því að útrýma öllum annarlegum ogóheilnæmum lærdóm- um, sem gagnsteðir eru guðs orði og leynt og ljóst hvetja aðra til bins sama? - j Svar: Það vii eg gera, með drottins hjálp. Biskupinn: Viljið þér afneita öllum illum' girndum og veraldlegum tilhneigingum, og lifa grandvöru, réttlátu og heilögu líferni í þessu lífi, svo að þér i öllum hlutum getið gefið öðrum gott eftirdæmi og óvinurinn geti u’m ekkert ásakað yður? Svar: Já, þa^ vil.eg gera, með aðstoð guðs. Biskupinn: Yiljið þér stuðla að því eftir mættl að varðvéita kærleika og frið meðal manna; en- aga og vanda um við óstýriláta, óráðvanda og óguð- lega samkvæmt valdi því er guðs orð gefur yður þar til? Svar: Já, me,ð guðs hjálp. Biskap'inn: Viljið þér með varkárni og sam- vizkusemi annast vígslu og útsending þeirra, er gerast skulu kennimenn kirkjunnar og hafa eftir- lit með embætiisfærslu þeirra og leiðbeina þeim' eftir mætti? Smr: Já, með guðs hjálp. Hinn gamli biskup lét aftur handbókina og til mikillar undrunar öllum lýð tók hann til að ávarpa hinn nýkosna biskup með eigin orðum. Slíkt hafði aldrei komið fyrir við biskups vígslu í manna minnum. „Kæri bróðir, séra Friðrik Stanton! Mér finst það vera heilög skylda mín við þetta tækifæri að bæta nokkrum orðum við það, sem eg nú þegar hefi í uinboði kirkjunnar lagt fyrir yður. Um þessar mundir gera hvarvetna vart við sig trúar- bragðalegar kenningar, sem mjög koma í bága við' sannleikans kenningu og eru sérstaklega skaðleg- ar fyrir kirkju vora. Eg talahér um hinasvoköll- uðu kriitileffujafnrœðis-kennÍDgu, sem nú útbreið- ist óðum. Sérstaklega hefi eg í huga hina háska- legu og afvegaleiðandi skáldsögu, sem ber nafnið Kristinn Sósíalisti. Kenningar þeirrar bókar stofna auðlegð ogupphefðarstöðum manna í voða, ogef þær yrðuað framkvæmdum mundiþetta hafa illar afleiðingar í för með sér fyrir kirkjuna og neyða hana til að breyta öllu núverandi fyrir- komulagi sinu. Sem eldri bróðiryðar finn eg mig til þess kvaddan að skcra á yður mjög alvarlega,. að nota þau áhrif og það vald, sem þér með þessu embætti fáið, til þess með ræðum og ritum að verja með öllum yðar miklu gáfum og hæfileikum þær kenningar, sem vér höfum meðtekið af feðrum vorum, og heyja óaflátanlegt stríð við villulær- dóma þá, er framsettir eru í áminstri bók, og svo- mikið vald hafa fengið yfir hugsunarhætti alþýð- unnar og jafnvel margra í hinum æðri stöðum mannfélagsins. Ofdirfska er það, ef til vill, af mér, þótt eg sé yður mörgum árum eldri, að skora áyð- ur að nota nú yðar miklu andans gáfur og sterka ímyndunarafl til þess að semja bók, sem kollvarp- aði algerlega kenningum þessarar háskalegu bók- ar samtíðar vorrar. Hvað sem því liður, þá skora. eg á yður hátíðlega, að berjastji móti hinni ban- vænu kenningu, sem kölluð er liin kristilega jafn- ræðis-kenning. Viljið þér lofa því frammi fyrir guði?“ Meðan á ræðu þessari stóð sat frú Kodney" höggdofa af undrun og ánægju, og hið sama mátti segja um alla aðra á þeirri fjölmennu samkomu.. í fyrstu hafði frú Kodney að BÖnnu mislikað stór-

x

Vínland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vínland
https://timarit.is/publication/219

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.