Voröld - 18.06.1918, Side 3
Winnipeg, 18. júní, 1918.
VORÖLD
Bls. 3
mn karla og kvenna, og aldrei
verður hann eins sterkur og þeg-
ar barist er fyrir stóru og göfugu
málefni.
Stærsta og þýðingarmesta mál-
efní á dagskrá þjóðanna, er frelsis
framsókn kvenna. Ég get sagt
ykkur strax bversvegna ég álít
það. Ástæðan er sú, að kærleik-
urinn er sagður mestur í lieimi, og
hann er það þrátt fyrir alla bölv-
irn sem oft sýnist draga af honum
tögl og hagldir.—pað er trú mín
að hann frelsi heiminn ef nokkurt
afl er þess megnugt. pað er
hægt að segja að það komi ekki
kvenfrelsi við. En ég svara því
að það komi því meira við en
mokkuð annað, vegna þess að
livergi á kærleikurinn dýpri rætur
en í sálarlífi konunnar. Fyrir því
mætti færa margar ástæður ef
tími leyfði, en ég læt mér nægja
að benda á móðurástina, fegursta
Móm mannlífsins.
Skapmikil móðir sagði einu-
sinni: “pó að ég fengi að fara til
himnaríkis og njóta alsælunnar
þar, en barnið mitt yrði að fara
til helv.... mundi ég skella aftur
hurð nimnaríkis og fara til barns-
ins míns og kveljast með því.”
Svo langt fer móðurástin; eng-
in kemst eins langt.
Sumir halda að komin sé and-
leg afturför í kvenfólkið. Hé-
gómagirnin, tískufýknin og skemt-
anaástríðan taki hugi þeirra og
hæfileika þeim heljartökum, að
alt það bezta sem þær eigi sýkist
©g visni.
Gamall alvöru maður sagði við
mig: “Guð hjálpi ungu stúlkun-
ffin; þær mála sig og þær klæða
aig svo afkáralega að ég held að
guð fari ekki að þekkja sitt eigið
handbragð á þeim.
Ég var eitthvað að malda í
móinn að þetta kæmi af fegurðar
tilfinning. En hann hélt að það
væri eins og með fötin keisarans,
\ sem allir hældu en enginn sá, en
«nginn vildi viðurkenna að hann
sæi ekki, vegna þess að hann var
hræddur um að hann yrði kallað-
ur glámskygn.
Svona hugsa margir. peir hafa
sínar ástæður og það er oft ekki
gott að hrekja þær.
Kristinn heitinn Stefánsson
segir við kvenfrelsis konuna:
“pú verður aldrei að eilífu frjáls
með eldgosum skaps þíns og hita
þíns máls,
eg ekki þó kvenham þinn berir til
báls,
®f brennirðu ei gæfunnar fjanda,
sóttkveikju efnið í anda.”
Sannlega segi ég ykkur. pað
er einmitt vegna þess andlega
sóttkveikjuefnis sem kvenfrelsið
er Iífs nauðsyn.
Konurnar þurfa að komast út,
6t á öll svæði menningar og starf-
semi. pær eru orðnar veikar af
margra alda inni veru í bann-
vænu Iofti ósannrar karlmanna til-
beiðslu—ófrelsis og kúgunar.
Hreint loft og hreifing læknar
betur cn hundrað doktorar. pá
verða konurnar fagrar, því að
ivendygðirnar sem eru óteljandi
koma í staðinn fyrir málliti og
tísku-kjóla. í stuttu máli hjálpar-
meðulin hverfa, því að fegurðin
sjálf þarf engin hjálpar meðöl. pá
bnrt bera konurnar heimsins synd,
—ekki með harmkvælum heldur
með andagift og kærleika. Yor-
gyðjan er komin inn til kvenfólks-
ins. Mörg vor hret eru eftir. En
vorið sigrar og sumarið kemur
með ávextina.
Jónas Stefánsson,
frá Kaldbak.
MIKLEY.
Erindi flutt á fundi lestrarfélags-
ins “Morgnnstjaman” 20.
marz, 1918.
Háttvirtu tilheyrendur!
Séra Mattías Jochumson hefir
®rt kvæði um það þegar Ingólfur
Amarson, fyrsti landnámsmaður
á íslandi, sigldi upp til landsins
©g leit það augum í fyrsta sinn.
Ein vísan er svona.—Ég býst
við að þið kunnið hana öll:
Himinfjöll földuð mjöll
fránu gulli brunnu.
Fram til sjár, silungsár
sungu meðan runnu.
Blóm á grund, glöð í lund
gídl og silki spunnu,
meðan fuglar kváðu alt sem
kunnu.
Glæsileg er þessi lýsing af eyj-
unni okkar mörg þúsund mílur
norðaustur í sænum. Og þó er
kún ekki ýkt. pað getið þér borið
Bjn sem séð haíið hana í allri
smni dýrð. Enda hafa henni
verið kveðin kvæði, og margfalt
mælt fyrir minni hennar—og
stendur það fyllilega jafnfætis
pvi sem sagt hefir verið um nokk-
nrt annað land.
“En víðar er guð en í Görð-
am,r’ segja menn. Fleiri eyjar
eru fagrar á þessari jörðu en Is-
land. ,Ein af þeim er Mikley.
Hún ætti það skilið að henni væri
veitt sérstök eftirtekt af öllum
þeim sem um íslensk mál hugsa,
vegna þess að hún er eina eyjan á
hnettinum, að Islandi undan-
skildu, sem bygð er af eintómum
íslendingum.
pó hafa henni ekki verið kveð-
in nein kvæði og ekki mælt fyrir
minni hennar, það ég veit, og má
slíkt undarlegt heita. Hví er svo
hljótt um íslenzka hagmælsku í
þessu efni? Ilversvegna brýtur
ekki fegurðar tilfinningin lilekk-
inn og sýnir öllum heimi mynd af
Mikley, í skuggsjá andlegrar og
íslenzkrar listar?
Hér er verk til að vinna. pað
er trú mín að maður eða kona
eigi eftir að koma fram einmitt
hér, sem sendi hugsjónir á
vængjum yindanna inn í aldir
f ramtí ð arinnar.
Sú sögn er til, þó að enn hafi
hún ekki verið skráð, og fárra
farið á milli, að Fjallkonunni
hafi verið þyngra fyrir hjarta,
þegar börn hennar fluttu í hund-
raða tali vestur yfir Atlans hafs
ála, en í öllum hörmungunum og
plágunum, sem hún hafði orðið
að þola á umliðnum öldum.
Pó sá enginn henni bregða.
Iláreist og tiguldg gnæfði hún í
útsænum, eins og dóttur norðurs-
ins sæmdi. Ilarðleg og fálát
kvaddi hún börnin sín.—“En
drotningar hjarta er viðkvæmt
og varmt þó varirnar fljóti ekki
í gælum.” pegar börnin snéru
til vegs, kallaði hún á hollvætt
íslenzks þjóðernis, og bað hann
fylgja þeim yfir Atlans. haf, og
finna ef þess væri kostur, eyland
sem minti svo mjög á hana sjálfa,
að nokkur hlutu barna hennar
festi þar yndi og byggi þar einn
saman.
Yætturinn fann Mikley.
pegar fyrstu Islendingar sigldu
inn Winnipeg vatn, minti ferð
þeirra á innsigling Ingólfs Arnar-
sonar fyrir þúsund árum. pó
að ekki rendu þeir víkinga skipi
og sköruðu skjöldu. — Eriginn
hefir sagt mér þá sögu, en ég sé
hana í anda.
pað var há sumar. Vatnið vítt
og bjart eins og eilífar elskandi
þrár. Og land fyrir stafni,
vaxið himin háum skógi, ofnum
þúsund litum.—petta var undar-
íegt land, dýrlegt, dularfult eins
og drauma heimur, og ósnortið,
yndislegt, eins og ung mær.
Og útlagarnir horfðu upp til
nýja landsins, og í fyrsta sinni
hrutu tár af augum þessa þolin-
móða, þrautseiga fólks, því að
þegar takmarki er náð eftir
þunga þraut, þá fyrst þyðnar ís-
inn í manns sálunum,—sem hefir
verið eins og brynja í hættum og
harðræði, þó að kaldur sé.
Margra augu horfðu upp til
Milíleyjar og í sumra huga komu
orð Jónasar:
“Hér vil ég una æfi minnar daga,
alla sem guð mér sendir.”
# # #
Náttúran er mikill kennari.
Hún er meiri kennari en allir
skóla kennarar samtals. Úrlausn-
ar efni hennar eru mörg og örð-
ug. En undan þeim verður ekki
komist, ef takmarkið á að nást.
Náttúran hér á Mikley er engin
undantekning frá reglunni. Á
landi og vatni verður ekld gullið
sótt í greipar hennar nema af
djörfum mönnum og hraustum.
pað er hart að ryðja skóg í
steikjandi sólar hita, og það reyn-
ir á karlmensku að veiða fisk úti
á vatni í 70 stiga frosti, en þetta
gera Mikleyingar, og ég hefi ekki
heyrt að þeir hafi fengið aðsvif
af sólar hita, né blásið í kaun af
kulda.
Örðugleikarnir skapa fjöll í
manns sálunum — — sem andinn
Gifrar upp á. pá opnast útsýn
sem aldrei gleymist, liimin víð og
heilög. Alt bisið og bjástrið og
tískuglingrið hér niðri, verður
því svo hlægilega lítilmótlegt, að
við verðum hissa að það nokkurn
tíma skildi taka hugsanir okkar
og tilfinningar—í stuttu máli alt
líf okkar jafn sterkum tökum og
það gerði.
Heill sé þeim manni, sem hæst
kemst og mest víðsýnis getur not-
ið. pó að það verði ekki fyr en
á deyjandi degi. Fyrir eyrum
hans hljóma orð skáldkonunnar
með unaðsríkum alvöru hreimi:
“Hærra minn guð til þín—hærra
til þín”--------Vonin og gleð-
in bregða upp ljósi og við það les
hann þessi fagnaðar orð: “ pú
ert á réttri leið. pað ljós er
seinasta blikið sem speglast í
auganu, þegar lífsins ljós sloknar.
Ykkur máske finst ég leggja of
mikið uppúr ávöxtum erviðleik-
anna, en það er sannfæring mín
að þeir séu einu traustu og réttu
hornsteinarnir undir ríku, víð-
fleygu og göfugu andlegu lífi.
En til þess að standast örðug-
leikann þarf “táp, fjör og fríska
menn.” Og það hafa menn til
brunns að bera hér í Mikley, þó
að slíkt hafi að líkindum ekki
notið sín eins vel í vetur og und-
anfarandi ár, þar sem herskyld-
an hangir yfir höfðum manna
eins og hárbeitt sverð. Og bú-
ast má við að beri að sama brunni
eins og Steingrímur segir:
“Hve sárt er slitnar Iiönd frá
hönd,
og hafið veglaust skilur lönd.
pað suðar dimt við sendna
strönd,
þið sjáist aldrei framar.”
Eini maðurinn að prestinum
undanskildum, sem heimsótt hef-
ár Mikleyinga í vetur í þeim til-
gangi að færa þeim andlega og
uppbyggilega skemtun gaf Mikl-
ey vitnisburð í opinberu blaði.
Hann var á þessa leið: ‘ ‘ Svo leist
mér á Mikley að hún væri griða-
staður fyrir þreyttar sálir og lú-
in bein.”
Skýr maður hér á eynni sagði
við mig, þegar hann las þetta:
“Eftir þessari umsögn að dæma
er Mikley Betel númer 2, og hann
bætti því við að sér fyndist slíkt
iítill heiður fyrir eyjarbúa, og þó
enn minni sannleikur í orðum
þessa manns. Og mér heyrðist
hann raula fyrir munni sér um
leið og hann fór:
“Fylgj þér einhuga hin aldraða
sveit,
þá ertu á vegi til grafar. ”
Mikleyingar eru ekki á vegi til
grafar. Hér er meira af öðru en
þreyttum sálum og lúnum bein-
um. Mikley er ung. Fólkið hlýtur
að vera ungt, frjálst og hraust og
á framsóknar leið. N
pegar ég horfi á þennan
gjörfulega hóp, sem er saman
kominn hér í húsinu og hugsa um
í hvaða tilgangi hann er hér í
kvöld, sannfærist ég um, áð hér á
æskan ótal spor, og mun þó eiga
þau enn fleiri' í komandi tíð.
Við erum hér undir merki
morgunstjörnunnar. Og þó að
það sé ekki merki Venusar sjálfr-
ar, þá er það merki morgun-
stjömu íslenzkra bókmenta.
peirri stjörnu eiga íslendingar líf
sitt að launa, því þegar alt annað
brást, og hörmungar og hel tóku
höndum saman og viltu hverjum
manni sýn sem ekki tróð hel-
veg að ætlan þeirra, þá skein
þessi stjarna og lýsti þeim sem
eftir lifðu á leiðina til lífsins.
pað er von mín og ósk að ís-
lendingar standi með tímanum
öðrum þjóðum jafnfætis á öllum
svæðum. En það er vissa mín
að á ókomnum öldurn standi þeir
flestum þjóðum framar í Hlið-
skjálf bókmenta og lista. Um
Oðinn fornguð Norðurlanda er
þetta sagt: “pað er einn staður
er Hliðskjálf heitir, og þá er al-
faðir settist þar í hásæti, þá sá
hanri of alla heima og hvers
matíns athæfi og vissi alla hluti
þá er hann sá.
Lengi lifi Mikley!! Lengi lifi
lestrarfélagið Morgunstjarnan.
—-Jónas Stefánsson,
frá Kaldbak.
GLADAR STUNDIR
Föstudaginn 24. maí s. 1. heim-
sóttu 16 giftar konur á. Mikley
ásamt mönnum sínum, og fleira
fólki, sem þær höfðu boðið með í
förina heiðurshjónin húsfreyju
Solveigu Grímólfsdóttur Hoff-
mann, á samt manni hennar. Til-
efni fararinnar var þakklætis og
vináttu viðurkenning fyrir það
að Sólveig var búin að vera yfir-
setu kona á eynni í 19 ár, og
hafði tekið á móti börnum alllra
þeirra kvenna sem nú komu til
hennar.
Gestirnir komu nokkuð á ó-
vænt sökum þess, að konur eins
og Solvéig, sem starfa í nafni
mannúðar og líknar þegar þörf er
mest, hugsa sjaldnast um laun.
Aðkomufólk hafði að nokkru
leyti aðra aðferð en lýst er í
blöðunum á þessum miklu sam-
kvæmistímum.
Hér var ekki um neitt húsrúrn
að ræða sem tekið væri með valdi
Orðaglamur og háreisti, sem ein-
kennir flest tískugildi samtíðar-
innar þótti ekki eiga við.
pagnarmál samúðar og ein-
lægni hlýrra tilfinninga voru svo
ljúfir hraðberar að allar dyr
stóðu aðkomu fólkinu opnar.
Áður en gengið var til stofu, var
þess getið í fáum orðum, að með-
al gestanna væri einn gestur ó-
sýnilegur. Nafn hans væri
Sæmd. Og nú væri það innileg
k, að húsfreyja skifti við hana
stöðu í nokkra klukkutíma, fengi
kvæmd hefðu þær heyrt að 25.
konur þessar ráðgert förina, og
ára hjónabandsamæli heiðurs-
gestanna hefð verið í gær. En
nenni húsforráðin, en yrði sjálf
og maður hennar heiðursgestir á
nu eigin heimili. Var það fús-
lega veitt. Að því loknu bjuggu
allir sig undir að gera líðandi
stund sem ánægjulegasta.
Skýring á erindi þessara
kvenna gaf porbergur Fjeldsted.
Ilann gat þess í upphafi ræðunn-
ar, að fyrir nokkrum tíma hefðu
búið sig undir liana. En fáum
dögum áður en hún var fram-
þá hefði verið orðið of seint að
haga heimsókninni eftir því.—En
þrátt fyrir það vildi hann í nafni
allra viðstaddra færa þeim, í
sambandi við þann mikilsvæga
atburð hugheilar og hjartanlegar
hamingjuóskir. Orðin ein væru
sögð létt á metunum, en ef þeim
fylgdi óskipt samúð allra beztu
tilfinninga óskendanna væri það
trú sín að á bak við tjöld efnis-
heimsins ætti andinn banka þann
sem borgaði út á þau—með því
sem hefði meira gildi en hið
sýnilega gull.
Ræðumaður kvaðst minnast
þess, meðan efni þeirra hjóna
voru lítil og barátta frumbýlings-
áranna hörðust og engin til þess
að gegna verkum húsfreyju þeg-
ar boðin komu til hennar um að
taka á móti nýjum gesti inn í
þennan heim, þá hefði hún þrátt
sagt við mann sinn: “Ilvað verð-
ur nú um þig góði minn?” pá
hefði svarið ætíð verið hið sama
hjá honum: “Við megum ekkert
um það tala. pú verður ao fara,
og ég verð að hjálpa mér sjálf-
ur.” — pannig hefði það verið.
Nú væri þessu breytt og þeirri
breyting fylgdi óblandin ánægja
eins og allri breyting sem hægt og
hægt inni sig upp frá baráttu til
sigurs. Nú væru efnin vaxin og
fimm majinvænleg börn uppkom-
in. Tvær dætur þeirra hjóna
væru hér viðstaddar í dag, báðar
giftar og vel mannaðar. Yngsta
dóttirin væri mentuð og liti út
fyrir að eiga góða og arðberandi
framtíð fyrir höndum. Tveir
synir, efnilegustu menn og hinir
karlmannlegustu. pegar við
þetta bættist almenn hylli mætti
með sanni segja að þau hjón
hefðu sótt þá mestu gæfu í
greipar örlaganna, sem búast má
við í þessu lífi. Og þó á alla gæfu
beri skugga, ekki síst á þessum
alvarlegu tímum, væri sjálfunnri
gæfu altaf þannig varið að hún
væri sjálflýsandi; um hana gæti
aldrei orðið dimt, eltku einu-
sinni í svörtustu sorgarmyrkrum.
Að endingu sagðist hann færa
þeim, fyrir hönd viðstaddra
kvenna tvær litlar gjafir, í við-
urkenningar og þakklætisskyni
fyrir velunnið starf.—Gjafirnar
væru tveir stólar, ruggustóll fyr-
ir konuna og setustóll fyrir
manninn. Hann vonaði að hvíldin
yrði henni hæg í sínum stól, þegar
hún liti yfir örðugleika ljósmóð-
urinnar og liðna gleði hennar,
yfir því að hafa getað hjálpað í
einum af þyngstu þjáningum
mannkynsins.
Einnig óskaði hann að mann-
inum kæmi hans stóll að góðu liði
þegar hann þyrfti að hugsa sín
vandamál og taka fastar ákvarð-
anir.
Næst talaði Páll Jakobson
nokkur vel valin orð til lieiðurs-
gestanna.
pá þökkuðu heiðursgestirnir
sæmdina með viðkvæmum og við-
eigandi orðum.
Svo skemti fólkið sér við veit-
ingar og samtöl.
Að skilnaði gáfu konurnar Sól-
veigu 10 dollara í silfri.
—í holti heyrandi.
HÚS TIL SÖLU
Á Kildonan Avenue rétt hjá
Scotia Str. er til sölu, 9 herbergja
hús, 2% lyft Harðviðargólf stein-
grunnur,full stærð, 80 tunna
vatnsgeymir, hitunarvél og raf-
magnshlóðir, stór matarskápur,
innvíraðar svalir 30 fet, nálgt
ánni, skóla og fegursta skemti-
garði borgarinnar; 100 fet lóð
með fallegum trjám, góðum garði;
míreiðaskáli; fjós og hænsahús.
Verð $7,500; skuld á eigninni
$2,500. Skilmálar: $500 út í
liönd og sanngjam tími á það
sem eftir er. petta hús er vel
bygt og hlýtt. Komið getur til
mála að taka eign upp í nokkurn
hluta af fyrstu borgun, eða skuld-
laust land sem væri í góðu lagi;
með skepnum eða án þeirra, í
skiftum fyrir eignina.
HUGH RENNIE
902 Confeleration Life Building
Winnipeg.
HEYRID GODU FRÉTTIRNAR.
Enginn heyrnarlaus
þarf að örvænta hver-
su margt sem þú hefir
reynt og hversu marg-
ra sem þú hefir leitað
árangurslaust, þá er
enginn ástæða fyrir
þig til írvæntingar.
The Megga-Ear-Phone
hefir oft gert krafta-
verk þegar þeir hafa
átt í hlut sem heym-
arlausir voru og allir
töldu ólæknandi.
Hvemig sem heymarleysi þitt er;
á hvaða aldri sem þú ert og hversu
oft sem lækning hefir mistekist á þér,
þá verður hann þér að liði. Sendu taf-
arlaust eftir bæklingi með myndum.
Umboðssalar i Canada:
ALVIN SALES CO., DEPT. 24
P. O. Box 56, Winnipeg, Man.
Verð i Canada $12.50; póstgjald borg-
að af oas.
VERID SPARSAMIR.
Einkaleyfi í Canada, Bandarikj-
um og Stórbretlandi.
Hermenn vorir og bandamanna
herinn þurfa á öllu því leðurlíki
að halda sem hægt er að fá;
haldið saman öllu leðurlíki og
aflið peninga sjálfum yður til
handa__Látið búa til hjólhringa
sem bæði eru öruggir fyrir sandi
vatni og sprynga ekki, úr tveim-
ur þeirra hjélhringja sem þér
hafið lagt niður.
HID NÝJA HJÓLHRINGA
VERK GAY’S
Vér saumum ekki hjólhringana, í þeim eru engin spor sem raknað
geti; vér setjum þá ekki saman með nöglum sem valdi ryfum er
sandur og vatn komist inn um. STYKKJAPLÖTUR GAY'S (sem
sýndar eru í myndinni) eru örugglega settar ( áframhaldandi hring;
þær verja algerlega skemdun sem orsakast af steinum, djúpum skorn-
ingum eða krókum. Enginn hætta er á skemdun innri slöngunni vegna
þess að hún hitni á sumrinu; með því að hringarnir eru svo þéttir að
enginn núningur á sér stað. Allar upplýsingar í té látnar ef óskað er.
The Manitoba Gay Double
Tread Tire Co., Ltd.
1341/2 HIGGINS AVENUE TALSTMI MAIN 2225
WINNIPEG, MAN.
Oh
r
I
IBÚJÖRD TIL SÖLUj
j 3 1-2 MÍLUR FR\ RIVERT0N, MAN. j
160 ekrur.
Gott hús á landinu; stærð 18-22. Fjós fyrir 20 gripi.
Landið liggur fast að fljótinu. Borgunar skilmálar mjög
vægir — lítil niðurborgun ef óskað er eftir og langur tími
á afgangnum. Umsækendur skrifi eða finni:
Halldor J. Austmann
RIVERTON.
K. Thomsen
SKANDINAVIAN KLÆDASKERARI, 552 PORTAGE AVE,
Kvenna og karla fatnaðir hreinsaðir og slététaðir og lagfærðir
af heimkomnum hermanni. Föt og yfirhafnir búin til eftir máli,
fyrir sanngjarnt verð. Fljót afgreiðsla og ábyrgst að skiftavinir
verði ánwgðir.
verði ánægðir. 20 ára reynsla. öll vinna ábyrgst.
GERT VID LODFÖT OG pAU SNIDIN UPP.
Talsími 4947.
Vtomió fram meö rjett
bífreiöarauga.
Bifreiöarauga opiö aö framan, sem hægt er aö líta inn í
og horfa í gegn um. Eins nærri og mögulegt er aö komast
alveg algengu gleri og jafnframt aö fara nákvæmlega eftir
öllum fyrirmælum laganna. Obrotiö auga sem veitir alt
þaö Ijós sem ljósgjafinn og kúlan geta framleitt en tekur
) burtu ofbirtu og heldur ljósinu fyrir neöan 42.
Skilvíslega afgreiddar póstpantanir
Stærö Verö
8V2 til 9..................$5.00
8 til 814..................$4.00
Parson’s Auto Supplies
291-293 EDMONTON STREET WINNIPEG
Ekkert fyrirtæki
á meðal íslendinga hér vestan hafs hefir átt eins miklum vin-
sældum að fagna og “Voröld” og prentfélagið “Hecla Press,
Ltd.”
Flestir vilja sjá því borgið og treysta á framtíð þess.
HEFIR pú STYRKT FYRIRRTÆKID ?
Tíu dollars, sem borga má í fernu lagi gera þig að hluteig-
anda í félaginu.
Fyll út eyðublaðið sem fylgir—ger það nú þegar—og send
til “Voraldar”
Eg undirritaður óska eftir að gerast meðlimur í félaginu
“HECLA PRESS, LTD.” Eg skuldbind mig til þess að leggja
fram $-------------------fyrirtækinu til styrktar, er borgist
þannig: *
%
$------------------mú þegar $--------------------eftir 3 mán.
$...............eftir 6 mán. $___________________eftir 9 mán.
Dagsett__________________________1918.
Nafn_______
Aritan