Eimreiðin - 01.01.1906, Qupperneq 7
Kína-lífs-elixír.
Heilbrigði er bezta hnossið.
Fyrirsögn lína þessara er alkunn. Hver er sá, sem þekkir ekki
þennan óviðjafnanlega bitter? Heilan mannsaldur hefir elixírinn verið
óbætanlegt heimilismeðal, sem mörg heimili hafa leitað til. Frá fyrsta
degi tilveru sinnar ávann hann sér þann orðstír að vera bezta lyfið, sem
til er, til að styrkja og laga meltinguna og vekja matarlystina. fessu
áliti hefir elixírinn ávalt haldið og gagnleg áhrif hans á heilbrigðina
hafa alstaðar vakið mætur á honum.
Læknislist vor stendur nú í fylsta blóma. Það er því fróðlegt að
taka eftir því, að ýmist þessi eða hinn frægur læknir leitar til þessa
eða hins heimilislyfs. Orsökin til þess er sú, að þekking læknisins hefir
mörgum sinnum ekki gert nokkurn gagn, en á hinn bóginn hefir þá
heimilislyfið, sem svo er nefnt, veitt fróun og bata. Læknirinn er of
greindur til þess að fara í kringum staðreyndina og virða hana að
vettugi, heldur fléttar hann hana inn í lækningar (praksis) sínar. Það
er sönnun þess, að gömul og góð ráð, gefin af vitsmunum og hygg-
indum, skuli eigi fyrirlitin.
Vísindamenn og leikmenn hafa látið upp skoðun sína um Kína-
lífs-elixír. Dr. med. I. C. Luciani skrifar 3/a 1905 frá Caracas
(Venezuela): Ég hefi notað Kína-lífs-elixír við sjúklinga mína og í
ýmsu tilliti orðið var við læknandi áhrif hans. Með þvf að ég þekki
samsetning hans, get ég lýst yfir því, að iurtaefnin í honum eru for-
takslaust gagnleg fyrir heilsuna.
Kommandör M. Gigli skrifar frá Neapel 10/12 1904: Ég
þekki ekkert lyf, sem læknar svo vel ákaft kvef og brjóstslímssöfnun
eins og Kína-lífs-elixír.
I. Eibye, Barde pr. Herning skrifar ls/9 — 1904: Konan
mín hafði í hálft ár verið þungt haldin af taugaveiklun, magnleysi o.
þ. h. Hún hefir nú notað 2 flöskur af Kína-lífs-elixfr og hefir þegar
fengið talsverðan bata. Og ég vona, að hún nái aftur fullri heilsu
með því að nota elixfrinn stöðugt.
Frá Lambakoti við Eyrarbakka skrifar Jóhanna Sveinsdóttir
17/5 — 1905:
I 14 ár hefi ég verið þungl haldin af nýrnatæringu og kvillum
þeim, sem henni fylgja. Ég hefi oft legið rúmföst. En þegar ég hefi
verið á fótum, hefi ég neytt Kína-lífs-elixírs, sem mér hefir fundist styrkja
mig. Og síðustu árin hefi ég getað bugað sjúknaðinn með því að
neyta bitters þessa reglulega, svo það er von mín, að ég muni fá fullan
bata, er stundir líða.
Kína-lífs-elixir
er því að eins ekta, að á einkunnarmiðanum standi vörumerkið:
Kínverji með glas í hendi og neðanundir honum nafn verksmiðju-
eigandans: Waldemar Petersen, Frederikshavn — Koben-
havn, og sömuleiðis innsiglið L- p- í grænu lakki á flöskustútnum.
Varið yður á eftirlikingum,