Elding


Elding - 28.04.1901, Blaðsíða 1

Elding - 28.04.1901, Blaðsíða 1
Blaðið kemur út á hverjum sunnud. Kost- ar innanl. 3 kr. (75 au. ársfjórð.), erlend. 4 kr. Pörtun á blaðinu er nnanlands bundin við minst einn ársfj., er- endis við árg. Borgun fyrirfram után Hvík. 1901. REYKJAVÍK, SUNNUDAGINN 28. APRÍL. 19-20. tbl. Til minnis. Lcnidsbóhatafn opið hvern virkan dag 12—2. á md., mvd. og ld. 12—3. Landsskjalasafn (i Þinghúsinu) ÞcL, fmtd. og ld. 12-1. Forngripasafn (í Bankahúsinu) mvd. og ld. 11—12. Náttúrusafn (i Doktorshúsinu). sd. 2—3. Landsbanhinn. Opinn hv. virkan dag 11—2 Bankastjórn við 12—1. -öheypis lœhning á spítálanum þd. og fsd 11—1. 'óheypis augnlœhning á spitalanum 1. og 3. þd. hvers mánaðar 11—1. ■Óheypis tannlæhning í húsi Jóns Sveinssonar 1. og 3. md. hvers mánaðar 11—1. Bæjarstjórnarfundir 1. og 3. fmtd. hvers mán- aðar kl. 5 síðd. ■Söfnunarsjóður (í húsi Þorst. Tómassonar) 1. mánud. hvers mánaðar 5—6 síðd. Alþýðuháskólar í Danmörku, IV. Alþýðuháskólarnir í Danmörku liggja venjulega á fögrum og friðsælum stað, stundum nokkuð afskekt, eins og þeir leiti einver- unnar. í kringum sjálfan skól- ann liggja útihúsin og bústaðir tennaranna, og í skjóli þeirra rísa svo aftur smærri byggingar, er tilheyra handiðnamönnum og öðrum, sem að einhverju leyti eru tengdir við skólann og hafa at- vinnu af honum. Stundum sést kirkjuturn gnæfa við himni inni í miðri þyrpingunni. Þegar mað- ur sér þessa húsaþyrpingu álengd- ar, detta manni ósjálfrátt í hug klaustrin á miðöldunum, en þeg- ar nær dregur, verður svipurinn allur annar. Það þarf ekki lang- an tíma til að ganga úr skugga um, að hér sitja engir kúrulegir munkar, því lífið og fjörið eins og streymir móti manni og söng- ur og háreysti kveður við úr kverju horni. Eyrirkomulagið á alþýðuháskól- unum er þannig, að á 5 vetrar- uiánuðunum — nóvember —marz—- er haldinn skóli fyrir karlmenn, og á 3 sumarmánuðunum — maí — ágúst — fyrir kvenfólk. Á As- kovháskóla einum er vetrarkenslan sámeiginleg fyrir karla og konur. Kenslugreinarnar eru að jafn- aði þessar: Mannkynssaga, Dan- merkursaga, biblíusaga, yfirlit yfir danskar og norrænar bókmentir, land- og þjóðlýsing, réttritun, skrift og líkamsæfingar. Við marga af alþýðuháskólunum eru þar á ofan sérstakar deildir fyrir landbúnað, iðnað og sjómensku, og er þá kenslunni að nokkru leyti hagað eftir því og kent t. d. landmæling, garð- og trjárækt, búreikningsfærsla, húsateikning, fiskifræði o. g. frv. Þar á ofan er karlmönnum veitt tilsögn í skólaiðnaði (tréskurði o. fl.), sé þess óskað, og námsmeyjunum í hannyrðum og vefnaði. Skóiagjaldið er að jafnaði 150 kr. (fyrir mat, húsnæði og kenslu) fyrir 5 vetrarmánuðina og jafn hátt að tiltölu fyrir 3 sumarmán- uðina. Það leiðir af sjálfu sér að skólagjaldið gæti ekki verið svo lágt nema því að eins að skólunum væri lagðurjafn ríflegur styrkur úr ríkisjóði og gert er, og skólarnir framleiddu sjálfir flestar þær lífsnauðsynjar, sem þarf til heimilisins. Þar á ofan er fátækum nemendum veittur mjög ríflogur styrkur úr amts- sjóðunum, svo jafnvel hinum fá- tækustu er ekki um megn að ganga á skóla að minsta kosti lítinn tíma. Það er algengt að fátækt vinnufólk spari við sig sem mest það má og streitist við að leggja upp af kaupinu til þess að geta verið sem lengst á skól- anum. Flestir eru nemendurnir um tvítugt, mjög sjaldan yngri en 18 ára. Eg hefi vitað menn milli fertugs og fimtugs ganga á alþýðuháskóla og láta vel yfir. Það er áður tekið fram um kensluna á alþýðuháskólunum, að hún er nær því eingöngu bygð á munulegri frásögn. Allar kenslu- stundir byrja og enda með söng, og er það eitt af einkennisatrið- um alþýðuháskólanna. Söngurinn lífgar og fjörgar og hefur meiri og dýpri þýðingu, en margur held- ur. Kenslan er aðallega bygð á því að vekja lærisveinana til at- hygli og sjálfstæðrar umhugsun- ar, að vekja hjá þeim sjálfstætt persónulegt líf, og um leið að gera það ljóst og skiljanlegt fyr- ir þeiin, sem farið er með. Við land- og þjóðlýsingar er t. d. ekki lögð nein sérleg áherzla á upp- talningu fylkja, fjalla, fljóta og borga eða íbúatölu og þess háttar, heldur á atvinnugreinar og sam- band þeirra við landslagið og loftslagið, á lífskjör þjóðanna og eðli þeirra, á samgöngur og inn- byrðis viðskifti. Til skýringar eru stundum sýndar skuggamynd- ir af landslagi, stórbyggingum og stórvirkjum ýmsra landa. Að því er mannkynssöguna snertir, er að- aláherzlan lögð á að gera grein fyrir tildrögum og afleiðingum viðburðanna, að einkenna tima- bil og persónur og benda á hin- ar dýpri orsakir, sem ætíð liggja á bak við sjálfa viðburðarásina og stýra henni, og að sýna menn- ingargildi þeirra aðalstefna hverrar fyrir sig, sem komið hafa fram í sögunni o. s. frv. Þess skal getið, að lærisvein- arnir eru alveg látnir ráða því sjálfir hvort þeir mæta á fyrir- lestrunum eða ekki, og sömuleið- is geta þeir kosið sér að taka þátt í nokkrum af kennslugrein- unum og öðrum ekki. Yfirheyrzl- ur eiga sér aldrei stað. Það kemur örsjaldan fyrir að læri- sveinarnir slái slöku við, þrátt fyrir þetta sjálfræði þeirra, og skoða þeir það að jafnaði sem ljúfa skyldu að mæta á fyrirlestr- unum, enda hafa margir af kenn- urunum við alþýðuháskólana sér- stakt lag á að gera kenslu- greinarnar laðandi, skemtilegar og aðgengilegar. Það hefur þráfald- lega sýnt sig, að þar sem skóla- fyrirkomulagið er algerlega frjálst og allir eru látnir sjálfráðir, þar er það skoðað sem lúft og þægt verk, sem undir hörðu skólaoki og ströngum aga er skoðuð sem hvimleið og ómild skylda. Það er algengast að lærisvein- arnir bæði matist og sofi á sjálf- um skólanum, svo skólinn verður fyrir þá eins og stórt heimili, eins og fjölskylda útaf fyrir sig,og sambandið á milli lærisveinanna inn- byrðiseins og milli bræðraogsystra. Gleði og sorg, andstreymi og un- aður, alt er þeim sameiginlegt og tengir þá því fastari böndum, sem

x

Elding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Elding
https://timarit.is/publication/231

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.