Umferð - 01.02.1958, Page 5
U MFERÐ
5
A5 pína
ágæt aðferð
til þess að skemma hreTÍilinn
Á hinni miklu vélaöld, sem vér nú
liíum á, með t. d. yfir 100 milljónir
bíla I notkun, eru margar milljónir
ökumanna, sem virðast álíta, að um
að gera sé að komast sem fljótast á
hraðagirið eftir að búið er að ræsa
bílinn og lafa svo á því, hvað sem taut-
ar. Þetta væri líka vandalaust og skyn-
samlegt, ef alltaf væri ekið á slétt-
um, láréttum vegum án allrá hindrana.
En allir vita, að bifreiðaakstur er
margbrotnari en það. Við þurfum að
gefa gaum að umferðinni í kringum
okkur, við þurfum. að aka beygjur,
fara upp og niður brekkur, stundum
bæði langar og brattar. Aðstæður og
umhverfi breytist ört og krefst sífellt
viðeigandi viðbragða.
Ef maður ekur t. d. upp brekku á
hraðagíri og finnur svo allt í einu að
bíllinn dregur úr ferð, þrátt fyrir það,
að benzíngjöfin er aukin og einkum
sé þjösnast við og ekki gírað niður,
þá skeður það. sem kallað er „að pína
bílinn". Þrátt fyrir aukna benzíngjöf
dregur úr snúningshraöa hreyfilsins.
Sama skeður og á sléttum vegi, sé mik-
ið dregið úr hraða með hemlun af
einhverjum ástæðum, en hraðinn svo
aukinn aftur án þess að gíra fyrst
niður. Hreyfillinn sogar þá inn á sig
meira benzín en hann getur notað sér,
og við það getur hartn farið að
„banka“. Vegna ónógrar brennslu sót-
Bindindisfélag ökumanna
var endanlega stofnað 29. sept. 1953,
en undirbúningur að stofnun félagsins
var hafinn í júlímánuði sama ár í sam-
bandi við Norræna bindindismálaþing-
ið, sem háð var í Reykjavik um þær
mundir.
Bindindisfélag ökumanna (B.F.Ö.),
en svo nefnist samband allra B.F.Ö.-
deilda á Islandi, er meðlimur Nordisk
Union for Alkoholfri Traffik (N.U.-
A.T.) svo og alþjóðasambands þess-
arra félaga, International Abstaining
Motorists Association (I.A.M.A.).
ar hreyfillinn sig, eins og kallað er,
og sezt sótið einkum á strokklok,
ventla, stimpilhöfuð og kerti.
Billinn bankar ekki aðeins sé hann
píndur, heldur einnig sé kveikjan rang-
stillt og einkum ef notað er benzín
með mjög mismunandi oktantölu.
Allir, sem á annað horö þekkja
nokkuö til bíla, vita, aö ekki er
ráölegt aö ofreyna í þeim hreyfl-
ana. En gera menn sér yfirleitt
grein fyrir þvi, hve oft þeim kann-
ske veröur þetta á og hvers vegna
þaö ekki má? HvaÖ skeöur í hreyfl-
inum, og er fleira í hcettu en hann ?
Hækkar máske benzínreikningur-
inn?
Einkum er lág oktantala slæm, hvað
þetta snertir.
Ýmislegt skeður í hreyflinum sé bíll-
inn píndur. Fyrst og fremst verður
eldsneytishleðslan heitari en vanalega
og brennslan skeður þvi fljótar. Þrýst-
ingurinn eykst og með auknum hita.
Neistinn frá kertunum kveikir í
hleðslunni, og sé allt í lagi skeður
brennslan á nokkrum þúsundustu hlut-
um úr sekúndu, en þó brennur ekki
öll hleðslan á sama augnabliki. Því
meir sem hiti og þrýstingur eykst, því
eldfimari verður hleðslan, og fer hún
þá að brenna með hraða tundurs, þ. e.
brennslutíminn styttist. Nú fer og að
eiga sér stað sjálfkveikja i hleðslunni,
sem leiðir af sér of fljóta kveikju.
Með of fljótri kveikju er átt við það,
er brennsla eldsneytisins hefst of löngu
áður en stimpillinn er kominn i efstu
stöðu. Sé allt í lagi, á stimpillinn að
vera kominn svo til alveg í hástöðu
er brennslan hefst, og brennslan skal
hafa náð hámarki á sama augnabliki
og stimpillinn tekur að hreyfast niður.
Hinn aukni þrýstingur, sem skapast
af of hraðri brennslu, sem getur líkst
tundursprengingum, eins og áður er
sagt, verkar á strokkveggina eins og
sleggjuhögg. Því ofsalegri sem brennsl-
an verður, því betur heyrast þessi
högg.
Mjög er það slæmt fyrir hreyfilinn,
þegar meiri hluti brennslunnar á sér
stað áður en stimpillinn nær efra
„dauðapunkti". Þá getur eldsneytið
ekki þanizt út og þrýstingshöggin
lemjast í gegnum olíuhúðina á strokk-
veggjunum. Þetta veldur því, að hreyf-
illinn smyr sig illa, en fleira skeður
þó. 1 stað þess að rétt brennsla hjálp-
ar stimplinum til að snúa mjúklega
við, með því að byrja rétt áður en
hæstu stöðu er náð og fara svo aðal-
lega fram um leið og stimpillinn byrj-
ar niðurleið, þá skapar of hröð
brennsla einnig mjög mikla áníðslu og
slit á hreyfanlegum hlutum hreyfils-
ins. Stimpilboltar og stimpilstangar-
legur taka við höggunum og olíuhúðin
stenzt stundum ekki ániðsluna. Séu
mikil brögð að, geta stimpilstengurn-
ar jafnvel bognað. Við langvarandi
„píningu" brenna ventlar, enda þótt
svo geti farið af öðrum ástæðum.
Þegar hreyfill er tekinn upp, er oft
auðvelt að sjá, hvað honum hefur
verið boðið, með því að skoða stimp-
ilstangarlegur Sé aðalslitið í efri hluta
þeirra, hefur bíllinn verið píndur. Sé
slitið í neðri hlutanum, sýnir það, að
hreyfillinn hefur verið „þeyttur" að
staðaldri, þ. e. látinn ganga of hratt.
Það er þvi um að gera að láta hreyf-
ilinn ganga með ,,hóflegum“ hraða,
svo að hann skemmist hvorki vegna
„píningar" eða „þeytingar". Á því síð-
arnefnda er þó yfirleitt ekki mjög
mikil hætta, en það fyrrnefnda er al-
gengt. Þetta hefur líka áhrif á benzín-
eyðsluna. Við höfum þegar drepið á
það, að þegar bíll er píndur, sogar
hreyfillinn inn á sig meira benzín en
hann getur notfært sér. Tökum dæmi:
Við ökum bíl upp brekku. Við er-
um á hágíri, en hraðinn eykst ekki
þrátt fyrir það, að „benzinið er i
botni“. Við þetta eyðist meira benzin