Umferð - 01.02.1958, Page 11

Umferð - 01.02.1958, Page 11
UMFERÐ 11 þreifttir ckutnehh — ÖKUBYTTUR „Þjóðvegir vorir krefjast fleiri mannslífa, á aldrsskeiðinu 1—35 ára, en nokkur einstakur sjúkdómur." Um- ferðarslys hafa mörg sömu einkenni og meiriháttar drepsóttir. Þeir McFar- land og Moor, við Harvard School of Public Health, hafa við athugun á niðurstöðum rannsóknarnefndar, sem m. a. var skipuð sálfræðingum, mann- frasðingum, vega- og bifreiðaverkfræð- ingum, látið í ljósi að læknar geti átt drjúgan þátt í að sporna við þess- um slysum. Menn eru misjafnlega miklir slysa- rokkar, en undirrót þess, að einum er slysagjarnara en öðrum, er fjarri því að vera augljós. Hún er þó sýnilega ekki af líkarnlegum eiginleikum sprottin, svo sem stirðleika, sem auð- velt er að meta......... Sennilegri þykir sú kenning, ,,að maður aki eins og hann lifir lífi sínu“, að rösulum manni í persónulegu og félagslegu hátterni sínu sé gjarnt að valda ítrekuðu misferli í akstri sínum. Sú kenning hefur verið reynd, með því að skip.a í flokka þeim, sem vald- ið hafa ítrekuðum slysum og þeim, sem engum slysum hafa valdið. Síð- an hafa verið athugaðar æfiferils- skýrslur manna í báðum þessum flokk- um, þ. á m. hegningarskýrslur, skýrsl- ur sjúkrahúsa og heilsuverndarstöðva, svo sem varnarstöðva gegn kynsjúk- dómum, tryggingarstofnana og vá- tryggingarfélaga o. s. frv. Það hefur þá komið í ljós, að 66% af hinum fyrr- nefndu voru kunnir úr skýrslum einn- ar eða fleiri hinna ofangreindu stofn- ana, en aðeins 9% af hinum síðar- nefndu. Rannsókn á iðnaðarstöðvum hefur leitt í ljós, að ,,starfsþreyta“ er undra algeng meðal „fagmanna“ og á það engu síður við um bifreiðarstjóra. Hjá bifreiðarstjórum kemur hún fyrst fram þannig, að viðbragðshæfni þeirra slævist örlítið, svo lítið að þeir verða þess ekki varir, en á eftir fylgir sí- vaxandi sljóvgun þeirra skynstöðva, er ráða yfir viðbragðshæfni manna og athyglisgáfu. Við næturakstur verð- ur manni á að stanza við krossgötur, þar sem engin umferðarljós eru, og bíða eftir græna ljósinu. Siðan rífur hann sig upp og geisist áfram í þeirri fullvissu, að engin hindrun sé á leið hans, og gerir sér enga grein fyrir þeirri hættu, er stafar af ljósum, er nálgast á hlið. ,,Starfsþreyta“ þarf engan veginn að hafa í för með sér líkamlega þreytu, og henni verður ekki varnað með fækkun vinnustunda. Mc Farland og Moscley komust að raun um, að 60% af umferðarslysum (í vöruflutningum á þjóðvegum) urðu á 3 fyrstu klst. ferðarinnar. Áfengi er illræmt, og það að verð- leikum, og er það sennilega annar mesti skaðvaldurinn, næst „starfs- Bindindisfélags ökumanna var háð í Reykjavík 24. júní 1957. Fulltrúar voru mættir frá Reykjavíkur- og Hafnar- fjaðardeild, Akranesdeild, Skagafjarð- ardeild, Húsavíkurdeild og Gerðadeild. Frá þrem deildum, Akureyri, Stykk- ishólmi og Hveragerði, gátu fulltrúar ekki mætt í tæka tíð, en náið sam- band var haft við stjórnir þessara deilda fyrir þingið og gerðust þær allar meðlimir sambandsins. Hin gamla stjórn B.F.Ö. hafði til- búin lagafrumvörp að sambandslögum og deildalögum. Voru frumvörp þessi lögð fyrir þingið og samþykkt með lítilsháttar breytingum. í sambandsstjórn voru kjörnir þess- ir menn: Forseti Sigurgeir Albertsson, og skal forseti kjörinn sérstaklega á hverju þingi. Aðrir í sambandsstjórn voru kjörnir þessir: Benedikt Bjark- lind, Ásbjörn Stefánsson, Jens Hólm- geirsson, Helgi Hannesson, Pétur Sig- urðsson, Guðmundur Jensson, allir úr Reykjavík og nágrenni. Enn fremur þreytunni", þeirra er hafa 1 för með sér rénandi ökuhæfni. 1 Svíþjóð hafa staðfestar rannsóknir leitt í ljós, að mjög lítið magn af áfengi eykur veru- lega ökumisferli, jafnvel hjá mjög leiknum ökumönnum. Sannleikurinn er sá, að mikil ökuleikni og reynsla samfara litlu áfengismagni, er e.t.v. hin skaðvænlegasta samsetning, er hugsazt getur. Það er einnig rétt að hafa það í huga, að þótt áfengi svífi fljótt á menn, eyðist það hægt úr líkamanum, og að það getur hald- izt, í tiltölulega rikum mæli, í heila- vökva og heilavef mörgum klukku- stundum eftir að áfengismagn blóðs- ins er komið í eðlilegt horf. (Flest flugfélög krefjast þess af flugmönn- um sínum, að þeir neyti ekki áfengis í minnst 18 klst. áður en þeir eiga að fljúga). Ekkert af hinum algengu húsráðum (líkamsæfingar, köld böð, sterkt, svart kaffi) hafa hin minnstu áhrif til örvunar á hinn slævða við- bragðsflýti, slævða dómgreind og skilningsskort ökubyttunnar. (Lauslega þýtt og endursagt, stytt, úr hinu víðkunna brezka læknatímariti „The Lancet", sept. 1957. — B.S.B.). voru kjörnir í sambandsstjórn þeir Óð- inn S. Geirdal, Akranesi, og séra Björn Björnsson, Hólum. Samkvæmt sam- bandslögum skulu ætíð tveir stjórnar- meðlimir vera úr öðrum landsfjórð- ungum. Endurskoðendur sambandsins voru kjörnir: Gunnar Árnason og Jón Gunn- laugsson, varamenn: Jón B. Helgason og Bjarni Halldórsson. Forseti I.A.M.A. og N.U.A.T., hr. landshöfðingi Ruben Wagnsson, Svi- þjóð, hafði ákveðið að mæta á þing- inu og stofna formlega landssamband- ið. Hann forfallaðist þó á síðustu stundu vegna veikinda og kom því ekki til landsins. í hans stað stofnaði sambandið einn af stofnendum B.F.Ö., heiðursfélagi þess, Brynleifur Tobías- son, áfengisvarnaráðunautur og þá- verandi stórtemplar. 1 beinu framhaldi af stofnþingi landssambandsins var haldinn fyrsti fundur sambandsstjórnar til þess að skipta með sér verkum. Kjörnir; vara- FYRSTA SAMBANDSMNG

x

Umferð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Umferð
https://timarit.is/publication/232

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.