Umferð - 01.11.1964, Qupperneq 5
REYNSLUAKSTUR UMFERÐAR
TRABANT 60 1
Við hefjum nú nýjan þátt í Umferð — reynsluakst-
ur — með líku sniði og kollegar okkar í Svíþjóð og Nor-
egi. Og það fer vel á því að byrja á ódýrasta bílnum á
markaðnum, Trabant 601, árgerð 1965.
Trabant er framleiddur af Veb Sachsenring Automo-
bilwerke, Zwickan í Austur-Þýzkalandi. Verksmiðjur
þessar eru með elstu bílaverksmiðjum í Þýzkalandi og
framleiddu þær fyrir stríð Horch bifreiðir, en frá 1951
—1959 framleiddu þær stóran og rándýran vagn, Sach-
senring, sem aðeins grósserar A.-Þýzkalands gátu leyft
sér að aka. En það vantaði ódýran alþýðuvagn í alþýðu-
lýðveldinu og þess vegna hófst undirbúningur að smíði
slíks vagns árið 1957 í Sachsenring verksmiðjunum.
Fyrsti bíllinn, sem hlaut nafnið Trabant 500, kom á
austurþýzkan markað árið 1959 og verulegur útflutn-
ingur hófst árið 1962. Fyrsti Trabantinn kom til ís-
lands í marz 1964 og hafa nú þegar selst um 300 bílar
hérlendis, enda kostaði hann ekki nema 65 þúsund
krónur.
Trabant er byggður úr trefjablasti á stálgrind. Áður
hefur verið flutt inn lítið eitt af Austur-Þýzka plast-
bílnum P-70, sem reyndist fremur illa, en sá bíll var
ekki framleiddur í Sachsenring verksmiðjunum og var
hann byggður úr plötuplasti á trégrind. Trefjaplastið
er mun sterkara og betra að gera við það, enda hefur
það þegar náð allmikilli útbreiðslu í bílaiðnaðinum.
Trabant 601 hefur loftkælda tvígengisvél, tveggja
strokka, orkan er 23 DIN hestöfl. Hægagangurinn er
heldur grófur, sem vænta má af 2ja strokka tvígengis-
vél, en aftur á móti verður gangurinn þýður og mjúk-
ur, þegar ekið er hratt á fjórða gíri. Annars eru kostir
tvígengisvélar margir, t. d. hefur hún enga ventla né
.ýxi'.'
ÍSíSH OV}5^
GLÆSILEG ÍJTLITSBREYTING
SAAB
á r g e r ð
19 6 5
Aukin hestorki - Fullkomnara kælikerfi - Nýjar afturluktir - Endurbætt miðstöðvarkerfi -
Nýtt, hljóðminna úthlásturskerfi - Vökva kúplingskerfi - Ný gerð eidsneytisdælu - Minni
beygju radius - Nýir stuðarar - Nýtt litaval.
Er sænskir blaðamenn kusu SAAB bíl ársims, síðastliðið vor var það ekki sízt með tilliti tii
þess hve tæknifræðingar sænsku flugvélaverksmiðjumiar hafa lagt mikið kapp á öryggi.
Fallegri — T raustari
SVEINN BJÖRNSSON & CO.
UMFERÐ
5