Umferð - 01.11.1964, Blaðsíða 17
Árlegir góðakstrar á sem flestum
stöðum, með breytingum frá ári til
árs, eru sú starfsemi deildanna,
sem einna heillavænlegust myndi
verða er litið er fram. Ef sex til sjö
stærstu deildirnar héldu góðakstra
árlega, myndi það þegar hafa nokk-
ur og sívaxandi áhrif á umferðar-
menningu okkar til bóta. Tökum
t. d. Noreg. Þar hafa nú undanfarin
þrjú ár verið haldnir 100 góðakst-
urskeppnir árlega. Keppendur og
starfsmenn eru í öllum keppnunum
hvert árið um tíu þúsund. Áhorf-
endur miklu fleiri, og svo kynning-
in í blöðunum. Þetta hefur áhrif,
enda fer það ekki milli mála þar í
landi að svo sé. Við verðum auð-
vitað aldrei svona stórir í sniðun-
um. en það gæti orðið að tiltölu.
En hvernig stendur á því, að við
erum svo tregir til með góðakstr-
ana, sem raun er á. Því veldur
þrennt: mikil fyrirhöfn, sem oftast
lendir að miklu leyti á einum eða
tveim mönnum, mikill kostnaður,
ennfremur hið alkunna, nýtízku-
lega, íslenzka tímaleysi, sem alla
félagsstarfsemi er að drepa niður.
Það er þetta en ekki fyrst og fremst
skortur á áhuga, sem veldur.
Þessu verður að breyta. Það er
að vísu ekki hægt að þvinga menn
eða deildir til að stofna til góðakst-
urskeppni, en það verður að skipu-
leggja hlutina á annan hátt, þann-
ig að menn geti sér að skaðlausu
gefið sér segjum vikutíma eða svo
til að vinna að þessum málum.
Öðruvísi gengur þetta aldrei svo
að gagni sé. Það sem félagið þarfn-
ast nú fyrst og fremst eru meiri
tekjur, meira fé úr að spila. Það er
ekkert hægt að gera án þess. Það er
einu sinni varla hægt að halda líf-
inum í svo útbreiddum félagsskap,
sem Bindindisfélag ökumanna er
orðið, sé efnahagur þess mjög bág-
borinn. Því útbreiddara, sem félag-
ið er, því fleiri fram réttar hendur,
því meiri kröfur. Það er mjög
slæmt að geta ekki orðið við þeim
nema mjög takmarkað. Það er nauð.
synlegt að hækka hið hlægilega
lága 100 króna ársgjald félagsins
um a.m.k. helming, í 200 krónur. En
það þarf meira til. Máske væri hægt
að vekja þann skilning hjá hinu op-
inbera, að starfsemi Bindindisfé-
lags ökumanna sé, eða gæti orðið
þjóðhagslega einhvers virði, þannig
að þessi aðili sæi sér fært að styrkja
félagið meira en verið hefur hér til.
Skal þó sízt vanþakkað það, sem
gert hefur verið á því sviði, enda í
mörg horn að líta. En mér virðist
allt stefna í þá átt, að það fari m.a.
að verða höfuðnauðsyn að efla
starfsemi félagsskapar eins og
BFÖ, koma því svo vel á laggirnar,
að það gæti síðar meir orðið mikið
til sjálfbjarga efnahagslega.
(^UD^)
Tvöfalt CUDO-gler reynist betur
Tvöfalt C.UDO-gler lækkar liitakostnaðinn
Tvöfalt CUDO-gler eyknr verðmæti hússins
Tvöfalt CUDO-gler er með 5 ára ábyrgð
CUDOGLER H.F.
Skúlagötu 26 — Símar: 12056 og 20456
UMFERÐ
17