Umferð - 01.11.1964, Blaðsíða 11
1
Frá afmælishófi félagsins að Hótel Sögu. Pétur Sigurðsson, ritstjóri flytur aðalræðu kvöldsins.
efndi BFÖ hér á landi til veglegs afmælishófs, er hald-
ið var að Hótel Sögu. Hófið var fjölsótt af félagsmönn-
um BFÖ og fulltrúum aðalþingsins. Meðal gesta í hóf-
inu voru borgarstjórahjónin, Geir Hallgrímsson og
frú. Veizlustjóri var Sveinbjörn Jónsson, forstjóri. I
hófinu sýndi Björn Pálsson flugmaður fagrar lit-
skuggamyndir frá ýmsum stöðum á landinu þar á
meðal af Öskjugosi og Surtsgosi.
Margar ræður voru fluttar en aðalræðuna flutti einn
aðalhvatamaður að stofnun BFÖ hér á landi, ræðu-
snillingurinn Pétur Sigurðsson, ritstjóri.
Um kvöldið sæmdi stjórn Norðurlandasambands
bindindisfélaga ökumanna þá Sigurgeir Albertsson
form. BFÖ og Ásbjörn Stefánsson, framkvæmdastjóra
BFÖ, gullmerki sambandsins.
Erlendu fulltrúarnir, sem hingað komu ferðuðust
talsvert um nágrenni Reykjavíkur svo sem til Hafnar-
fjarðar, Borgarfjarðar og austur um sveitir, m.a. til
Þingvalla, að Gullfossi og Geysi, til Selfoss, Hveragerð-
is o.fl. staða.
í fylgd með þeim voru íslenzkir hugsjónabræður,
og höfðu þátttakendur mikla ánægju af þessum ferða-
lögum.
Einn daginn bauð borgarstjórinn í Reykjavík og frú
hans, þingfulltrúum til kaffidrykkju í húsakynnum
borgarráðs að Skúlatúni 2.
Þá bauð Sveinbjörn Jónsson, forstjóri Ofnasmiðj-
unnar, hinum erlendu fulltrúum ásamt nokkrum ísl.
félagsmönnum til hádegisverðar að Hótel Borg, en að
hádegisverði loknum bauð hann hópnum til Hafnar-
fjarðar sérstaklega til að skoða hinn sérstæða sælu-
reit Hafnfirðinga — Hellisgerði.
Sama dag var skoðuð m.a. hitaveitustöðin að Reykj-
um í Mosfellssveit.
ILAKJfí
SELUR BILA
Rauðará, Skúlagötu 55, sími 15812
UMFERÐ
11