Umferð - 01.11.1964, Side 14
JÖRÐINA
Taunus 17M/20M.
Nýr Taunus hefur nú birzt frá
Fordverksmiðjunum í Köln. Er hér
um að ræða nokkuð breyttan vagn
frá hinum nýtízkulega Taunus
17M, sem Ford kynnti 1961 og náð
hefur miklum vinsældum og verið
allmjög ráðandi „lína“ í bílaiðn-
aðinum (samanber Consul Corsair,
Opel Rekord 1964). Hinn nýi vagn
er þó nokkuð breyttur, línurnar
beinni og flatari, vélarhlífin ný og
breiðari, með luktunum innbyggð-
um lengst út í hlífarjaðrana. Stuð-
arar eru þó hinir sömu og fyrr, end-
arnir beygjast upp og enda í park-
ljósum að framan og afturljósum
að aftan. Vagninn hefur einnig
lengst um 13,3 cm og breikkað um
4,5 cm.
Nú hafa allar gerðir af Taunus
fengið V vél, hinn fyrsti var hinn
nýstárlegi framhjóladrifni 12M
Cardinal með V4 vél. 1 nýja 17M
er einnig V4 vél, 1,7 lítri að stærð,
Taunus 17M og 20M fást bæði
2ja og 4 dyra, sem venjulegir fólks-
bílar (sedan) eða stationbílar. Og
eftir myndum að dæma er hér um
virkilega snotran vagn að ræða.
Renault
1500.
Nýr Renault mun vera væntan-
legur á bílamarkaðinn, þó ekki fyrr
en næsta haust, eftir því sem
sænska blaðið Motorföraren herm-
ir. Hinn nýi Renault, sem ber nafn-
ið 1500, verður með vélina að fram-
an og framhjóladrif, sem er býsna
mikil nýjung hjá Renault, því hann
hefur yfirleitt verið með vélina aft-
ur í og drifið á afturhjólunum.
Nýi Renaultinn, sem verður
fjögurra dyra eins og aðrir Ren-
aultar, verður mjög nýstárlegur í
útliti, sameinar í einn vagn bæði
venjulegan fólksbíl og stationbíl,
og farangursrými verður gott, eft-
ir myndum að dæma. Annars hafa
engin tæknileg atriði verið gefin
upp enn og verð óvíst einnig.
78 SAE hestöfl við 4.800 snúninga.
Hægt er að velja milil 3ja og 4 gíra
gírkassa, heils framsætis eða stóla.
Dekkjastærð 640x13.
Taunus 20M er með nýjan V6
hreyfil, 1.998 cm’ að stærð, 95 SAE
hestöfl við 5.300 snúninga. Vagn-
inn er þriggja eða fjögurra gíra,
eftir vali kaupanda, og einnig er
hægt að fá 20M með sjálfskiptingu.
Austin með Rolls Royce vél.
Eins og öllum er kunnugt eru
Rolls Roce vélar þekktar fyrir gæði
og hafa þeir smíðað m.a. hinar vel-
þekktu flugvélahreyfla, sem eru í
Viscount og Canadaair vélunum. Nú
hafa BMC bílaverksmiðjurnar
ensku hafið framleiðslu á lúxus
gerð af Austin, sem ber nafnið
Vanden Plas Princess 4 litre R, og
er þessi nýi vagn með Rolls Royce
vél. Vélarblokkin og lokið (heddið)
eru úr aluminium og vegur vélin
aðeins 200 kg. Vélin er 175 hestöfl
við 4.800 snúninga, með sjö sveifar-
áslegum og vökva undirlyftur sem
sjáffkrafa stilla ventlabilið. Út-
blástursventlar eru úr spesialstáli
og í vélarblokkinni sjálfri, þ.e. eru
hliðarventlar, en innsogsventlar
eru af toppventlagerð, með stóran
diameter og gangur vélarinnar er
mjög mjúkur og hljóður, þrír sér-
stakir hljóðdemparar eru á vagn-
inum, þannig að vélarhljóðið er
mjög lágt, jafnvel þótt ekið sé með
yfir 160 km. hraða, eftir því sem
sagt er. Vagninn er með handunn-
inni lúxusinnréttingu, mælaborð
úr valhnotu, ekta leðurklæðning og
framstólar af hægindastólagerð o.
fl. fínheit.
Allir vagnar eru með sjálfskipt-
an gírkassa, vökvastýri og vökva-
hemla, diskahemla að framan og
borðahemla að aftan, sjálfstillandi.
Um verð á þessum lúxusvagni
vitum við ekki, en það verður án
efa mjög hátt og vafasamt er, hvort
við fáum nokkurntíma að sjá hann
hér á landi.
Nýr Peugeot, — nýr Fiat.
Þá hefur einnig heyrzt, að vænt-
anlegur sé bráðlega á franskan
markað nýr Peugeot smábíll, í
millistærðarflokki þó, sem einnig
ku verða með framhjóladrif og vél-
ina þversum framan í. Ekki er okk-
ur kunnugt um útlit hans eða önn-
ur tæknileg atriði. Og Fiat hefur
Framh. á bls. 18.
14
UMFERÐ