Alþýðublaðið - 05.01.1964, Síða 2
Oiiotjoritr. liylfi Urönaai taö.) og BeneOlKi Gröndal. — rréttastjórl:
4mi Gunnarsson Ritstjómarfulltrúl: ElOur Guönason. Sisnar
1*900-14903. Auglýslngasíml: 14906. - Aösetur: AH>ýðuhúsl3 vlö
Dverflsgötu, Reykjavík. — Prentsmlðja Alþýöublaðsins. - Áskrlftargjald
kr. 60.00. — t lausasölu kr. 4.00 eintaklð - Útgefandl: Alþýöuflokkurlnn
FJÓRAR LEIÐIR
ENDA Í>ÓTT íslendmgar hafi um áramótin
‘beint huganum að því, sem vel hefur gengið og
orðJð þjóðinni til framfara og blessunar á liðnum
árum, dylst ongum, að framundan er ærinn vandi
í efnahagsmálum. Verðbólgusjúkdóminn hefur
'þjóðin gengið með í rúma tvo áratugi og þekkir vel
■hans ónáttúru. Hins vegar þarf bæði aimennan
yilja og þekkingu til að vinna bug á kvillanum, og
íhefur gengið treglega lækningJn.
Emil Jónsson, formaður Alþýðuflokksins,
ræddi þetta vandamál itarlega x áramótagrein
isinni. Lýsti hann þróun kaupgjalds- og verðlags-
mála á síðasta ári og brá upp þeirril spumingu,
ihvað nú væri hægt að gera. Nefndi hann f jórar leið
ir.
Fyrsta leiðin er sú, að stjórnvöld landsins geri
ekkert, og kynnu þá augu þjóðarinnar að opnast
fyrir hættum verðbólgunnar. Þessari leJð hafnaði
Emil og taldi, „ . . . að sú fræðsla sé of dým verði
'keypt.“
Önnur ieiðin er gengislækkun, en um hana
sagði Emil: „Hún getur bjargað í bili, en aðeins i
bili, og hún hefur þann mikla galla, að hún iveikir
■trú manna á íslenzka gjaldmiðlinum og dregur úr
'eðlilegum sparnaði”. Komið geta tilfelli, þegar
genigislækkun er óumflýjanleg, en með núverandi
gjaldeyrissjóði ætti þjóðin að geta komJzt hjá þess-
ari leið, sagði Emil.
Þriðja leiðin er „að lækka öll laun með lögum
um :sama hundraðshluta. Þessi leið hefur eJnnig áð
ur verið reynd og gefið allgóða raun. En ef hægt
á að vera að ná góðum árangri á þennan hátt, verða
þeir aðilar allir eða allflestir, sem málið snertir, að
vera samþykkir því, að þessi lausn verðii reynd,
annars er hætt við að tilætlaður árangur náist
ekki.“
Fjórði og síðasti möguleikinn, sem Emi.1 nefndi
í grein sJnni, er að freista þess að veita útflutnings
aðilum, sem þess nauðsynlega þurfa, aðstoð til að
jafna metin með því að losa þá við kostnaðarliði.
Er þar fyrst og fremst haft í huga útflutningsgjald
ið, en það mundi auka útgjöld ríkissjóðs og yrði
hann að afla tekna á móti. „Má segja, að þá sé
ivítahrJngnum lokað. Sú launahækkun, sem varð
•umfram greiðslugetu atvinnurekstursins, er
greidd til baka af almenningi gegnum ríkissjóð-
inn.“
Emil Jónsson gat þess, að ýmislegt fleira hefði
komJð til tals í þessum efnum, til dæmis lögbund
in tengsl mOli kaupgjalds og verðlags, sérstaklega
varðandi landbúnaðarafurðir, og mundi það valda
mikíu um þá öfugþróun, sem hefur átt sér stað.
„Virðist nú fyllilega tími til kominn, að verðá-
kvörðun landbúnaðarvara sé tekiin tO gagngerðrar
endurskoðunar.“
HÖFUM OPNAÐ
Höfum opnaö aftur að
Laugavegi 170-172
Jfekla
áður Austursfræti 14
Lítill afli fyrir
vestan í nóvember
Yfirlit yfir sjósókn og afla-
brögð í Vestfirðingafjórðungi í
nóvember 1963_____Tíðarfar var fá
dæma rysjótt í nóvember í Vest-
firffingafjórðungi og gæftir því
stopular. Komust bátarnir mjög
sialdan á djúpmiff, og varff aflinn
því miklu minni nú í nóvember,
en á sama tíma í fyrra. Á þetta
sérstaklega viff verstöffvarnar viff
Djúp, en þar hafa fæstir bálarnir
náff 100 tonna afla í mánuffinum.
Á syðri Vestfjörðunum hefur
aflinn verið miklu betri/ og er
Andri frá Bíldudal aflahæstur með
154,7 lestir í 21 róðri. í nóvember
í fyrra var Pétur Thorsteinsson
frá Bíldudal aflahæstur með ná-
kvæmlega sama afla.
Sjö bátar frá Vestfjörðum stund
uðu síldveiðar við Suðurland, en
lítið fengið.
Aflahæstu bátarnir á haustver-
tíðinni eru:
lestir róðrar
Andri, Bíldudal 306 48
Pétur Thorst. Bíld. 230 39
Sæborg, Patreksf. 220 31
Dofri, Patreksf. 218 31
Guðbj. Kristj. ísaf. 182 24
Víkingur II., ís. 175 29
17 bátar stunduðu rækjuveiðar
í ísafjarðardjúpi í nóvember og
varð heildarafli þeirra 92 lestir.
Er það nokkru minni afli en var
á sama tíma í fyrra, en þá voru
bátarnir 13, sem stunduðu veiðar.
Aflahæstur var mb. Örn með 8,3
lestir.
Frá Bildudal stunduðu 5 bátar
rækjuveiðar, og er heildarafli
þeirra orðinn 60 lestir. Rækjan í
Arnarfirði hefur verið mjög smá
og léleg í haust.
É6 REIKNA
„Ég reikna“ 2. hefti, er komiff
út á vegum Ríkisútgáfu námsbóka
og hafa þeir Jónas B. Jónsson og
Kristján Sigtryggsson gert heftiff.
Gerð bókarinnar er svipuð og
1. heftis- Hún hefst á upprifjun
þess, sem áður var lært í sam-
lagningu og frádrætti, og síðan
er haldið áfram, aðeins byrjað á
margföldun og deilingu og kennt
að geyma í samlagningu.
Það er ætlazt til þess, að börn-
in reikni í bókina nema þar sem
annað er tekið fram, og margar
myndanna má lita. Þótt bókin sé
fyrst og fremst kennslubók til
notkunar í skólum fyrir átta ára
böfn, er hún einnig hentug til
notkunar í heimahúsum. Börnin
geta fikrað sig ófram af sjálfs-
dáðum, því glöggrar leiðbeining-
ar eru með liverri nýrri aðforð,
en auk þess gefur bókin margar
bendingar um leiki, æfingar og
spil, sem alls staðar er liægt að
nota.
Myndirnar gerði Bjarni Jóns-
son, bókin er sett í ísafoldar-
prentsmiðju. Litbrá annaðist prent
un nema kápuna, sem Alþýðu-
prentsmiðjan prentaði.
Freyjugötu 41 — Ásmundarsal — Sími 11990.
Nýtt námskeið er að hefjast í barnadeildum. Innritun
þriðjud. og miðvikud. kl. 8—10 e. h.
Kennsla hefst í fullorðinsdeildum þriðjud. 7. janúar
samkv. stundaskrá.
Skólastjórinn.
Unglingar fjar-
lægöir úr togara
LÖGREGLAN fjarlægði í
morgun fjóra unglinga úr
þýzkum togara, sem hér ligg
ur. Voru þetta tveir piltar
og tvær stúlkur á aldrinum
16-17 ára.
Þegar lögreglan sótti þau,
var klukkan rétt rúmlega 6,
og cr taliff, aff unglingarnir
hafi dvaliff þarna um nótt-
ina.
Leiðrétting
Tvær mjög bagalegar villur
urðu í grein minni um sýningu
Leikfélags Reykjavíkur á Föng-
unum í Altona í blaðinu á gaml-
ársdag. í upphafi greinarinnar er
sagt að Helga Skúlasyni hafi verið
trúandi „fyrir liirtu vandasama
hlutverki Franz von Gerlachs,
böðulsins frá Malarvík." Ég hef
enga hugmynd um hvar Malarvík
muni vera niðurkomin á heims-
kortinu; í handriti mínu stóff
Smolensk. Síðar í greininni, í upp
hafi kaflans sem heitir Ábyrgð
djöfulsins stendgr: ,,Er illvirkinn
böðullnn, óhjákvæmilega frjáls
maður, inniluktur í ófullkomnum:
hugmyndaheimi-“ Þarna á vita-
skuld að standa ófrjáls maffur.
Þá féll niður úr niðurlagi grein-
arinnar stutt umsögn um þýð-
ingu Sigfúsar Daðasonar sem virð-
ist vera einkar vandað verk,
liljómar ljóst og eðlilega af vörum
leikenda. Hefur Sigfús leyst erf-
itt viðfangsefni óvenju haglega og
smekklega áf hendi. — Ó.J.
Löggriltir endurskoffendur
Flókagötu 65, 1. hæð, sími 17903.
ryðvörn
2 5. janúar 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ