Alþýðublaðið - 05.01.1964, Side 3

Alþýðublaðið - 05.01.1964, Side 3
Kenya: Sjálfstæði og vandamál JOMO KENYATTA og ráðherrar hans í Kenya, sem öðlaðist sjálf- stæði hinn 12. desember sl. eiga við mikla erfiðleika að stríða. Ke- nyatta verður að stjórna ríki, sem ekki er undir eins sterkri mið- stjórn og hann telur æskilegt og mun þetta hafa vandamál í för með sér. Nauðsynlegt hefur reynzt, að verða við kröfum stjórnarandstöð- unnar og veita sjö fylkjum lands- ins víðtæk völd. Einnig verður Kenyatta að lialda jafnvægi milli hvítu bænd- anna, sem stjórna landbúnaðinum á „hvíta hálendinu”, og hinna jarð næðislausu, afrísku ættflokka. — Auk þess stendur Kenyatta and- spænis því erfiða vandamáli, að leysa þá deilu hvort Sómaliætt- bálkurinn í norðurhluta landsins skuli búa í Kenya eða Sómalíu. Hér á eftir verða þe'ssi vanda- mál nánar rakin. KANU OG KADU skipt í sjö fylki, sem öll fengu tals vert mikil völd. Það reyndist einkum mikilvægt, að lögregla sambandsstjórnarinn- ar hafði litla sem enga mögulelka til að skerast í leikinn þegar óeirð- ir brutust út í einhverju fylkinu. Einnig var erfitt að breyta þessu ákvæði stjórnarskrárinnar. TiT þess að fá slíkri breytingu fram- gengt þurfti samþykki þriggja af hverjum fjórum þingmönnum í Fulltrúadeildinni og níu af hverj- um tíu í Öldungadeildinni. ERFIÐIR SAMNINGAR í samningayiðræðunum í London um óskorað sjálfstæði komu þessi atriði mikið við sögu. Ýmislegt KASTLJÓS og KADU tókst að róa hina æstu flokksbræður sína og viðræðun- um í London lauk með stjómar- skrárfrumvarpi og ákveðið var að 12. desember yrði dagur „Uhuru”- frelsis. KANU tókst að breyta stjómar- skránni þannig, að mikil völd voru fengin sambandsstjórninni. Brezka : stjórnin kvað þetta nauðsynlegt, þar eð nokkur atvik sýndu, að erf- itt væri að stjóma landinu sam- kvæmt stjórnarskránni frá' 1961. Þó vann KANU yfirburðarsigur í kosningunum í maí I vor og er ó- tvírætt stærsti flokkurinn. KANU fékk 63% atkvæða. Auk þess gekk Paul Ngei, sem hafði stofnað klofningsflokk, aftur í KANU. Það merkir, að KANU hefur 82 þingsæti af 124 í Fulltrúa deildinni og 20 þingsæti af 38 í Öldungadeildinni. KANU hefur 42 þingsæti í Fulltrúadeildinni og 18 í Öldungadeildinni. (Sæti Norð urfylkisins, 5 í Fulltrúadeild og 3 í Öldungadeild, eru auð). KANU (Kenya African National Union) er stærsti stjórnmálaflokk ur landsins. Flokkinn styðja fjórir eða fimm hinna 170 ættflokka Kenya. Stærsti og atkvæðamesti ættflokkurinn kallast Kikuyu. Ke- nyatta, sem er foringi flokksins og forsætisráðherra, er af þeim ætt- flokki. Nánustu samstarfsmenn hans, Tom Mboya og Oginga Od- inga, eru af Luo-ættflokknum. KANU vill sterka miðstjórn, sem stjórna skuli uppbyggingu landsins eftir sameinaðri áætlun. Hinn stóri stjórnmálaflokkur- inn, KADU (Kenya African Demo- cratic Union), óttast, að stóru ætt- flokkarnir fái of mikil völd. KADU vill því, að fylkin fái víðtæk völd. KADU fékk þessu komið til leiðar þegar landið fékk takmarkaða sjálfstjórn 1961. Landinu var sögulegt kom fyrir í þessum við- ræðum eins og venjulegt er. Með- al annars hótuðu fylgismenn KADU að stofna sérstakt lýðveldi og kröfðust aðskilnaðar frá Kenya. í þessu nýja lýðveldi yrðu þau fylki, þar sem KADU réð lögum og lofum, en KADU vildi afstýra því, að fylki þessi misstu liina víð- tæku sjálfstjórn, sem þau höfðu fengið. Þessi hótun var tekin mjög alvarlega og lögreglan var þess al- búin að bæla niður óeirðir. Á hinn bóginn töldu nokkrir á- hrifamiklir foringjar KANU, að samningaviðræðunum miðaði lítt áfram. Þeir hótuðu að segja Kenya úr brezka samveldinu, stofna lýð- veldi og leita aðstoðar „annarra ríkja”. Hinum ábyrgu foringjum KANU LANDBUNAÐURINN Landbúnaðurinn er viðkvæmt mál vegna hvítu bændanna. Annars vegar hefur öll frelsisbarátta ver- ið háð gegn nýlenduherrunum og | til þess að losna undan yfirráðum | hvítra manna. Hins vegar hafa i hvítu landnemarnir komið upp landbúnaði á „hvíta hálendinu”, sem mikla þýðingu hefur fyrir efnahag Kenya. Nokkrir hinna jarðnæðislausu ættflokka halda því fram, að þeir eigi þetta land og krefjast þess, að fá jarðnæði sitt aftur. Hvítu landnemarnir segja, að þeir hafi setzt þar að, friðað ættflokkana, sem áttu í stöðugum deilum inn- byrðis, og komið upp landbúnaði, sem blökkumennirnir hefðu ekki getað stundað einir. 500 Mau Mau menn hafa til skamms tíma verið í felum í skógum Kenya, en foringi þeirra, Mwaaiama „marskálkur“ hefur Iofað að starfa fyrir Jomo Kenyatta forsætisráðlieiTa. Hins vegar hafa borizt frétt ir um, að Mau Mau hafi í hótuniun um að láta til sín taka í landamæradeilunni við grannríkið Sóma líu, en margir liirðingjar af Sómali-ættflokknum b úa á landamærum ríkjanna. Jomo Kenyatta í sjálfstæðisbaráttunni var Kenyatta sakaður um að stjórna Mau-Mau-hreyfingunni, sem reis upp á árunum eftir 1950 og barðist fyrir útrýmingu hvítu landeig- endanna, en nú verður stjórnmála maðurinn Kenyatta að stunda erf- iða jafnvægislist. Oft hafa verið teknar af honum myndir, þar sem hann sést ræða við hvítu bænd- urna, sem hann hefur boðið til sín að ræða vandamálin. Það er greini lega nauðsynlegt fyrir hann að sýna, að hvítu bændunum verði leyft að halda áfram búskap sínum ef þeir hlýði lögum landsins. Hins vegar eiga breytingar sér stað um þessar mundir á hvíta há- lendinu. Afrískir bændur eru farnir að rækta þar land og þeim hafa verið úthlutaðar jarðir. Núna stunda um 5 þús. Afríkumenn land búnað þar og verja á rúmum 3 milljörðum króna (ísl.) til þess að litvega 50 þús. afrískum fjölskyld- um jarðnæði fyrir 1967. Sagt er, að á 18 mánuðum hafi 11 Kikuyu- bændur sýnt frábæran árangur. LANDAMÆRADEILA Kenyatta þarf einnig á miklum samningahæfileikum að halda þegar hann ætlar að komast að samkomulagi við grannríkið Só- malíu og Sómalíættflokkinn, sem býr á svæðunum hjá landamærum ríkjanna. Sómalir í Kenya neyttu ekkl kosningaréttar síns í vor og kröfð- ust sameiningar við Sómalíu. í nóvember voru stöðug átök á landamærunum. Sómalir réðust á landamæralögreglu Kenya og til alvarlegra átaka kom. Utanríki» ráðherra Sómalíu hélt í skyndi til Nairobi í Kenya til þess að ræða landamæradeiluna. Hann mun einnig hafa látið svo um mælt, að Sovétríkin, sem veita Sómalíu ríflega aðstoð, hafi heitið um 1.3 milljarð króna til eflingar her Sómalíu. Með tilstyrk slíkrar hernaðaraðstoðar á landið að geta komið sér upp 20 þúsund manna her. Framh. á 13. siðu ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 5. janúar 1964 3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.