Alþýðublaðið - 28.01.1964, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 28.01.1964, Blaðsíða 3
Frakkland viður- kennir Rauða-Kína París, 27. ,}an. (N b-Rt.). Franska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að hún hefði formiega viður- kennt kínversku sovétstjórnina í Peking. Stjómmálafrét aritarar í París stigðu í kvöld að þessi á- kvörðun frönsku stjórnarinnar ætti eftir að hafa mibil og ófyrir- sjáanleg áhrif í Suðaustur-Asíu, innan Atlan sliafsbandalagsins, og innan samtaka Sameinuðu þjóð- anna. — Tilkynningar þær, er Frakkland og Rauða-Kína sendu út um viðurkenninguna, voru mjög samhljóða og fjölluðu m. a. um það, að innan þriggja mánaða myndu ríkin skiptast á ambassa- dorum. Bandaríska utanríkisráðu- ney ið sendi í dag út tilkynningu, þar sem þessi gjörð Frakka er harðlega gagnrýnd og þvx jafn- framt lýst yfir, að Bandarikm muni halda áfram að styðja Form ósustjórn Kínverja. Álvarlegt ástand krefst toppfundar Dar-Es Salaam 27. jan. NTB-RT. FORSETI Tanganyika, Julius Nyerere hvat i til þess í dag að kallaður yrði hið snarasta saman fundur í Stofnun afrískrar ein- ingar og skuli hann ræða hið al- varl'cga ástand sem skapazt liefur vegna óeirða þeirra sem orðið hafa innan þjóðherjanna í Austur-Afr- íku. í annarri '.ilkynningu frá stjórninni í Tanganyika segir, að ekkert bendi til þess að atburðirn- ir í síðustu viku hafi verið af völd um kommúnista. Harmar ríkis- stjórnin að kalda stríðið skuli hafa verið dregið inn í stjórnmál Aust- ur-Afríku með getsökum í þessa átt. í boðskap Nyerere forseta til hinna þjóðhöfðingjanna í hinum sjálfstæðu afrísku ríkjum segir meðal annars, að utanríkis- og landvarnarráð.herrar ríkjanna verði að koma saman í byrjun febr úar til að ræða ástandið í Austur- Tilfærslur á Afríku. Óeirðir þær er orðið hafa í herjunum eru alvarleg ógnun við ailc öryggi Afríku, segir þar. Heimsókn Chou En Iai, forsætis ráðherra Kínverja til Tanganyika, hefur verið slegið á frest og er ekki nein ástæða tilgreind. — For sætisráðherrann í Uganda úl- kynnti í dag, að 500 hermenn í hinum tveim byssusveitum lands- ins hefðu verið leystir úr hernum en þeir reyndu að stofna til upp- reisnar í síðustu viku. — Frá Nair obi í Kenya er tilkynnt að 200 af 500 hermönnum, sem liandteknir voru í síðustu viku vegna atburð- anna þar, hafi nú verið látnir laus- ir, þar sem þeir hafi ekki reynzt vera við þá riðnir. Ekki hafa kínverskar frétta- stofur tilkynnt neitt um atburð- ina í Afríku síðusu daga. Eru kín- verjarnir taldir vera í hinni verstu aðstöðu— þar sem uppreisnartil- raunum hermannanna hefði að öllu venjulegu verið tekið með hinum mesta fögnuði í Peking en Framh. á 4. síðu í hinni opinberu tiikynningu um viðurkenninguna segir, að rík- in tvö muni fyrst í s.að skiptast á sendifulitrúum og mun fyrsti Frakkinn halda austur á bóginu innan skamms. Fulltrúi Formósu- Kína í París lagði í kvöld fram harðorð mótmæli s jómar sinnar vegna viðurkenningar þessarar. Samt sem áður mun Formósa ekki rjúfa stjórnmálasamband sitt við Frakkland, að því er hann sagði. Frakk and er 49. ríkið er viður- kennir Rauða-Kína. Af ríkjum Atl ani^hafsbandalagsins hafa Noreg- ur Danmörk, Bretland og Holland þegar viðurkennt Rauðu-Kína. Hið sama höfðu Svissland, Sviþjóð og Finnland einnig gert. Önnur lönd, er þegar hafa viðurkennt ríkið, eru járntjaldslöndin og nokkur lönd í Asíu og Afríku. í Ameríku er Kúba eina landið sem hefur viðurkennt ríkið. í Bonn sagði talsmaður vestur- þýzku stjórnarinnar að æskilegt hefði verið að Frakkar hefðu rætt viðurkenninguna við bandamenn sína áður en af henni varð. Væri það von Þjóðverja að skref Frakka myndi ekki skaða aðstöðu hms frjálsa heims. í aðalstöðvum Sam- einuðu þjóðanna í New York er sagt, að viðurkenningin muni varla verða til þess að Rauða-Kína nái tilskyldu atkvæðamagnj svo að það verði kjörið sem eitt af aðild- arríkjum Sameinuðu þjóðanna. Hins vegar kunni að vera meiri möguleikar á því árið 1965 eftir bandarísku forsetakosningarnar. Be/ð bana Framh- af 1. sfðu eyri 1957. Hann er sonur hjón- anna Mat hildar Stefánsdóttur og Jakobs Gislasonar, skipasmiðs á Akureyri. Jakob var mikil íþrótta- inaður og lét mikið að sér kveða í knattspyrnu. Þess má geta, að fjórir bekkja- bræður Jakobs frá Menntaskólan- um á Akureyri, fórust f flugslysi á Öxnadalsheiði árið 1958. Læknar ákærðir fyrir morð mönnum hjá F.í. Reykjavík, 27. jan. — GG. MIKLAR tilfærslur á mönnum standa fyrir dyrmn hjá Flugfé- lagi íslands. Ákveðið mun vera, að Birgir Þorgilsson, stöðvarstjóri félagsins í Kaupmannahöfn, komi heirn og taki við starfi deildar- stjóra millilandaflugs. Við starfi Birgis í Kaupmannahöfn mun á- kveðið, að Vilhjálmur Guðmunds son stöðvarstjóri í Osló, taki, en til Osló fer hins vegar Skarp- héðinn Árnason, sem áður var stöðvarstjóri í Hamborg. Loks mun ákveðið, að Einar Helgason, stöðvarstjóri í Glasgow, komi heim og taki við starfi stöðvar- stjóra í Reykjavík. Hins vegar mun enn ckki vera endanlega á- kveðið hver taki við starfi Einars í Glasgow. Frankfurt, 27. jan. NTB-DPA. Skeifilegar frásagnir af lífinu í Auschwitz-fangabúðunum í Pól- landi á stríðsárunum voru í dag lagðar fram í réttarhöldunum hér í rnáli læknanna tveggja, dr. Vic- tor Capesius og dr. Franz Bern- hard Lucas. Eru þeir ákærðir um að eiga þátt í að fjöldi fanga týndi lífinu í gasklefum í fanga- búðunum og einnig fyrir að hafa stundað ýmsar þær aðgerðir, er leiddu fangana síðar til dauða. — Báðir hafa þeir visað ákærunum á bug. Þeir standa nú fyrir rétti ásamt 20 öðruin fangavörðum og SS-læknum er störfuðu í Ausch- witz. Læknarnir tveir eru meða! annars ákærðir fyrir að eiga þátt í því að 1200 börn voru send í gasklefana. Ákærurnar á hendur dr. Cape- sius ganga m.a. út á það, að hann hafi drepið fanga með því að gefa þeim stóra skammta af morfín og öðru eitri. Síðan striðinu lauk hefur dr. Lucas starfað sem kvenalæknir og kveðst alltaf hafa lagt áherzlu á það, að hlut- verk læknis væri að hjálpa og ekki að drepa. Yfirvöldin segja samt sem áður, að hann hafi sjálfur tekið þátt í því að myrða fanga með eiturgasinu Zyklon B. Ákærður hefur neitað þessu, en játað að hafa gert sér ljóst, að óvinnufærir fangar voru sendir beina leið í gasklefana. Læknir þessi starfaði einnig í Mautliaus- en-fangabúðunum, sem munu hafa verið með þeim skelfilegustu. — Þar gelti haim fanga, að því er hann segir vegna þess, að liann sá enga leið til þess að óhlýðn- ast. MIKIÐ UM SLYS 06 ÁREKSTRA: MMMMMMMMWMMtMWtMtMMWMMMMMMMMMMMMMV Pranavananda Sarasvati yoga, i dag, lagði hann á- herzlu á, að yoga væru ekki trúarbrögð heldur heim- spekikerfi, sém fyrst og fremst væri til þess ætlað að halda líkama og sál í jafnvægi. Á hinu fjögurra mánaða ferðalagi, sem Sa- rasvati er nú um það bil að ljúka, dvaldi hann m. a. I nokkrum kommúnistaríkj- um og sýndu margir þeirra sem þar hlýddu á hann mik inn áhuga og á einum fyr- irlestri hans í Moskva voru m.a. 250 prófessorar. Sarasvati sagði, að til- gangur yoga væri bæði að viðhalda andlegri og líkam- legri heilsu. Vitnaði hann meðal annars í bandaríska sálfræðinginn William Ja- mes, sem hélt því fram, að greindur maður notaði ekki nema 20% af þeim mögu- leikum, sem heilinn gæfi, en það væri einmitt einn til- gangur yoga að koma þeim 80%, sem eftir væru, í gagnið. Líkamlega er yoga fyrst og fremst til þess að auka heilbrigði og mót- stöðuafl gegn sjúkdómum. Það væri ekki til þess að auka vöðvana og gera menn kraftalega, því að mörg vöðvabúnt hefðu sálræn vandamál við að stríða, þv£ að þeir hugsuðu ekki um sálræna þjálfun samhliða hinni. Yoga hefur líka þann kost, að ekki er neinn kostn aður við að stunda það. — YOGIÁ FERÐ Reykjavík, 27. jan. - KG. Hér á landi er nú stadd- ur í tveggja daga heimsókn indverskur læknir og yogi og mun hann halda fyrir- lestur og sýningu á yoga-æf- ingum í Guðspekifélagshús- inu annað kvöld, þriðju- dagskvöld, kl. 8. Þangað eru allir velkomnir og er að- gangseyrir enginn. í stuttu viðtali við Swani Fullorðinn maður slasaðist mikið Reykjavík, 27. jan. — ÁG. Á sunnudagskvöld um klukkan 23.45 varð harður árekstur við hornið á Nóatúni og Skipholti. — Stórri amerískri bifreið var ekið upp Nóatún og aftan á kyrrstæðan bil, sem stóð hægra megin (vest- an) á götunni. Þeyttist sá á ann- an, sem var fyrir framan og sá lenti á hinum þriðja. Var höggið mikið, en þó skildi bifreiðin eftir sig 20 metra löng hemlaför. Þrír bílar skemmdust talsvert, en sá fjórði minna. Ökumaðurinn var ungur piltur. Á laugardaginn um klukkan 21.45 varð fullorðinn maður (fædd- ur 1907), Baldur Steingrímsson, Baldursgötu 9, fyrir bifreið á móts við Nóatún 24. Bifreiðin var á leið norður og niður Nóatúnið er mað- urinn varð fyrir henni. Lenti hann upp á vélarhlíf bílsins, barst með honum nokkurn spöl, en kastað- ist síðan fram af honum er heml- að var. Var Baldur fluttur á Slysa varðstofuna, en síðan á Landa- kotsspítalann. Hann hefur lengst af verið meðvitundarlaus. Það var kvenmaður, sem ók bílnum og kvaðst liún hafa ekið á löglegum hraða. Snemma í morgun, eða um liálf níu varð harður árekstur á Reykjanesbraut, móts við Foss- vogsveg.. Þar skullu saman tvær amerískar bifreiðar og skemmdust báðar töluvert. Ökumenn þeirra skárust eitthvað í andliti. Piltur, sem ók bílnum, er var að koma úr bænum, kvaðst liafa orðið að víkja til hægri vegna bíls, sem hefði farið fyrir sig af Fossvogsvegi inn á Reykjanesbraut. Hefði hann ætlað að komast á milli hans, og þess er á móti kom, en það tókst ekki. Lögreglan vill nú gjaman hafa tal af bílstjóra þeim, er ók inn á Reykjanesbrautina í veg fyr- ir bílinn fyrrnefnda. ^MMWMMWMMMMMMMM Fyrs'.a spilakvöld Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur á nýju ári verður í Iðnó n. k. föstudagskvöld kl. 8.30 e. li. Spiluð verður félagsvist að venju og ágæt kvöldverölaun veitt. Ávarp flytur Unnar S'efánsson viðskiptafræðing ur. Síðan verður dansað til kl. 1 e. m. Hljómsveit Einars Jónssonar leikur fyrir dans- inum. Fjöhnennum á ódýr- asta og skemmtilegasta spila kvöldið. — Nefndin. MHMMMMMMMMMMHMMV ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 28. jan. 1964 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.