Alþýðublaðið - 28.01.1964, Qupperneq 11
Heppnir Framarar
unnu Víking 23:22
FltAMARAR voru sannarlega
heppnir a3 naela í baeði stigin í
lciknum gegn Yíking á sunnudags-
kvöld, eu þeir sigruðu Víking með
einu marki, 23 gegn 22. Framlið-
ið virðist eitthvað vankað eftir ó-
sigurinn gegn KR.
Bræðurnir Pétur og Björn
Bjarnasynir skora fyrstu mörkin í
leiknum fyrir Víking, en Fram-
arar jafna fljótlega, Liðin hafá yf-
irhöndina í mörkum á víxl.
Sigurður Einarsson vaf fajög
markheppinn fyrstu mínúturnár,
Ensk knattspyrna
Framh. af 10. 'ð”
þeim tókst að jafna, því öll þrjú
mörkin voru skissur hjá vörn-
inni, Kaye skoraði mark nr. 2
fyrir WBA og miðframvörðurinn
Jones jafnaði 16 mín. fyrir leiks-
í 2. umferð skozku bikarkeppn-
innar urðu úrslit þessi:
Aberdeen 1 - Q. Park 1
Albion R. 4 - Abroath 3
Brechin 2 - Dundee 9
Alloa 1 - Airdrie 4
Dunfermline 7 - Fraserb. 0
Buckie Th. 1 - Ayr. 3
Falkirk 2 - Berwick 2
Clyde 2 - Forfar
Hamilton 1 - Kilmarnock 3
E. Fife 0 - E. Stirl. 1
Morton 1 - Celtic 3
Motherwell 4 - Dumbarton 1
Partick 2 - St. Johnstone Ö
Q. of South 0 - Hearts 3
Rangers 9 - Duns 0
St. Mirren 2 - Stranraer 0
urnar, skoraði fimm af sex mörk-
um Fram og sýndi mjög skemmti-
leg tilþrif. Fyrri hálfleik lauk með
eins marks sigri Fram, 14 gegn 13.
★ ÆSISPENNANDI
SÍÐARI IIÁLFLEIKUR.
Framarar byrja síðari hálfleik
mjög ákjósanlega og komast í 17:
13. En Víkingar gefast ekki upp,
og þegar 18 mínútur eru til leiks-
loka hafa þeir jafnað, 18:18!
. .Þessar 18 mínútur, sem eftir eru,
voru mjög taugaæsandi, Víkingur
háði að visu aldrei yfirhöndinni,
en tekst þrívegis að jafna, 19:19,
20:20 og 21:21. Það hefur e. t. v.
ráðið úrslitum í leiknum, að
Pétri Bjarnasyni er vísað af leik-
velli í 2 mínútur, þegar nokkrar
mínútur voru til leiksloka, var það
býsna strangur dómur, margir sem
sýnt höfðu grófan leik fengu vart
áminningu.
Fram tekst að ná yfirhöndinni í
leiknum meðan Pétur er utan
vallar og sigruðu með einu marki,
eins og fyrr segir, 23 gegn 22.
★ LIÐIN
Það er eins og Fram sé ekki enn
búið að ná sér eftir hinn fræga
ósigur gegn KR. Ingólfur var eitt-
hvað miður sín allan leikinn og
snilið var hvorki lifandi né öruggt.
Eða eru hin liðin farin að kunna
betur á leikaðferðir Fram? Guð-
jón og Sigurður voru áberandi
beztu.menn liðsins og markmenn-
irnir vörðu þokkalega.
Víkingar áttu allgóðan leik, lið-
ið er jafnt, en aðalskipuleggjar-
inn og traustasti maðurinn er Pét-
ur Bjarnason. Hannes er vaxandi
leikmaður. Víkingar voru ó-
heppnir að hljóta ekki annað stig
ið í leiknum.
Valur Benediktsson dæmdi leik-
inn og tókst vel, nema við getum
ekki sætt okkur við útafrekstur
Péturs.
Innsbruck, 27. jan. (NTB).
★ Rússnesku keppendurnir á Vetr
arleikjunum verða áreiðanlega
þeir bez! klæddu við opnunina í
sínum fögru selskinnsfrökkum.
Þeir hafa svo sannarlega vakið at-
hygli í Olympíuþorpinu undan-
farna daga. Sérfræðingar hafa
lauslega reiknað út, að hver
frakki kosti ca. 43 þúsund ísl. kr.
Yfirhafnir rússnesku þátttakend-
anna 74 munu því kosta sam'.als
rúmar 3 milljónir.
★ Finnsku þátttakendurnir eru í
sjöunda himni í Innsbruck. Or-
sökin er sú, að Austurríkismenn
hafa flutt fullkomna finnska gufu-
baðs ofu til Olympíuþorpsins. —
Þetta er dáfítið annað en í Squaw
Valley, segir finnski göngumaður-
inn Matti Talsi.
★ Veikko Hakulinen verður fána-
beri finnska otympíuliðsins við
setninguna á miðvikudag og það
er ekkert undarleg', þegar litið er
á feril hans sem olympíukepp-
anda: Sigurvcgari í 50 km. göngu
í Osl'ó 1952, s=gurvegari í 30 km.
og silfur í 50 km. og boðgöngu í
Cortina 1958 og loks gull í boð-
i göngu í Squaw Valley 1960. Að
þessu sinni tekur Hakulinen þátt
| í skíðaskotgöngu. Þet'a er óþekkt
j grein hér á landi, keppendur
þurfa að taka þátt í skotfimi með-
| an á göngunni stendur.
J ★ Fjórir nýir meðlimir voru sam-
þykk ir í alþjóða-olympíunefndina
■ í dag þ. e. Alsír, Nígería, Brazza-
viíle og Sterre. Löndin í IOC eru
j því orðin 114 alls.
Hér skorar Þórður glæsilega fyrir ÍR í leiknum gegn KR.
Mörg verkefni KSÍ:
Tveir landsleikir
og Færeyjaíör
Síðasta atriði í leik Víkings og Fram. Ingólfur tekur fríkast, en allt
lið Víldngs er til varnar. Boltinn fór í gegnum vörnina, en fór fram
hjá markinu. — Ljósm. Bj. Bj.).
5. umferð ensku
bikarkeppninnar
London, 27. jan. (NTB-RT).
Eftirtalin lið leika saman í 5.
umferð ensku bikarkeppninnar:
Swindon gegn Leyton eða West
Ham, Oxford gegn Brentford eða
Blackburn, Bolton gegn Preston
eða Carfisle, Wsc' Bromwich eða
Arsenal gegn Liverpool eða Port
1 Vals, Barnsley gegn Manchester
Utd, Burnley eða Huddersfield
| gegn Ipswich eða Stoke, Sunder-
I land gegn Leeds eða Everton.
STJÓRN KSÍ ræddi við íþrótta-
blaðamenn á laugardag og skýrði
þeim "frá því helzta, sem er á
döfinni hjá stjórninni.
— Þetta er nú eiginlega ekki
tími knattspyrnunnar, sagði Björg-
vin Schram, formaður KSÍ, en
samt er ýmislegt, sem -við höf-
um á prjónunum og viljum gjarn-
an skýra frá.
Fyrst skal nefna svokallaða
þjálfunarmiðstöð, en það er stórt
mál og þýðingarmikið og algjört
nýmæli hjá stjórn KSÍ. Það er |
Tækninefnd KSÍ ásamt stjorninni !
sem hefur þetta mál með höndum.
í stjórn Tækninefndar eru Karl
Guðmundsson, Reynir Karlsson og
Árni Njálsson. Þjálfunarmiðstöð-
in efnir til æfinga tvisvar í viku
í íþróttasal Austurbæjarbarna-
skólans, á þriðjudögum og fimmtu
dögum, en öllum I. deildarliðun-
um hefur verið boðin þátttaka.
Þjálfararnir Karl og Reynir fara
og til nærliggjandi bæja og leggja
á ráðin um þjálfunina, sérstak-
lega úthaldsþjálfun.
— Stjórn KSÍ álítur, að þetta
sé fjárfesting, sem borgar sig,
sagði Björgvin Schram, en auð-
vitað kostar þetta mikið fé. Ekki
virðist vanta áhugann, því að æf-
ingar hafa verið vel sóttar. Ann-
ars er alvarlegt ástand hjá þrem
af stærstu félögunum í Reykja-
vík, KR, Val og Fram. Þau hafa
ekki ennþá fengið þjálfara fyrir
meistaraflokka sína.
Stjórn KSÍ og Tækninefndin
hafa einn'g æfingar einu sinni
í viku á miðvikudögum fyrir ungl-
ingaflokk, þ. e. drengi, sem verða
18 ára á árinu og þær eru mjög
vel sóttar. Stjórnin stefnir að því
að koma á Unglingalandsleik, en
ekkert er þó ákveðið í þeim efn-
um.
\ Tveir landsleikir hafa verið á-
' kveðnir hér heima næsta sumar,
gegn Bermuda 10. ágúst og hugs-
anlegjt er, að tveir aukaleiki^
verði’ gegn þeim. Einnig verðuj?
leikið gegn Finnum 13. ágúst.
íþróttasamband Færeyja liefuv-
boðið KSÍ að senda landslið tLl
Færeyja og þreyta leik við Fær-
eyinga 19. júlí. KSÍ hefur að sjálí?
sögðu þegið þetta myndarboð, eu
ekki er ákveðið hvaða lið fer,
þ.e.a.s. hvort A-lið, ab-lið eða
unglingalandslið fer. Færeyingar
greiða ferðir og uppihald.
Loks var skýrt frá því, að KS
í hefði keypt kvikmynd frá leik
Englands og úrvalsliðs annarrá
landa. Myndin er stórglæsileg og
vcrður sýnd almenningi og cr
fyrsta sýningin í Tjarnarbæ nk.
fimmtudag.
Jakob Jakobs-
son lézt í
bílsiysi
Þau sorgartíðindi bárust
hingað til fands í gær, að
hinn kunni knattspyrnumað-
ur, Jakob Jakobsson frá Ak-
ureyri hefði látiz í bilslysi,
í Þýzkalandi, en hann stund-
aði þar nám í tannlækning-
um. Jakob lék með knatt-
spyrnu'iði Akureyrar í nokk
ur ár og var af mörgum tal-
inn bezti kna tspyrnumaður
Akureyringa. Jakob lék í
landsliði íslands gegn Eng-
lendingum árið 1961.
íþrót asíðan vottar aðstcnd
endum inn’lega samúð.
ALÞÝÐUBLADIÐ — 28. jan. 1964