Alþýðublaðið - 02.02.1964, Blaðsíða 3
r^m i iii i iii ii ii ii iim ■■■ii .............iiimiiiiiiiiu^
| ,Þetta er erfittog þungt nám' |
I Rættvið nýútskrifaðan tannlækni,Ómar R. Konráðsson I
Klukkan var að byrja a3
ganga sjö, þegar við kvöddum
dyra að Spítalastíg 4. Frú
Edda Eyfeld bauð til stofu, því
að húsbóndinn var enn ekki
kormnn heim. Blómin voru aug
sýnilega farin að berast, og
börnin störðu hugfangin á
stóra og skrautlega köku, sem
beið kvöldsins inni í stofu. Okk
ur var þegar í stað boðið kaffi
og meðan vindillinn reyktist
upp, spjallaði frúin við blaða-
menn.
Þetta er merkisdagur hjá
okkur, sagði hún um leið og
liún setti plötuna á plötuspil-
arann. Maður hefur ekki get-
að hlustað á músík að undan-
förnu fyrir próflestri, en nú er
þeita búið og við ósköp ánægð
eins og gefur að skilja.
í dag lauk sem sagt kandi-
datsprófi í tannlækningum
fyrsti kandidatinn af þeim
stúdentum, sem liófu nám í
tannlækningum við Háskóla
íslands eftir að ný námsreglu-
gerð tók gildi 1957.
Og ekki höfðum við setið
lengi að Spítalastíg 4, þegar
hann snaraðist inn úr dyrun-
um, hress og glaður að loknu
prófi, eins og vera ber. Við
óskuðum honum til hamingju
og ekki að ástæðulausu, því að
fyrir utan • allt annað gekk
honum mjög vel. íiann hlaut
sem sagt mjög góða fyrstu eink
unn eða rétt um ágætiseinkunn
— Jæja, Ómar, livernig líður
þér?
— Ágætlega. Maður hefur
ekki ástæðu til annars en að
vera ánægður.
Ómar Konráðsson er fæddur
í Reykjavík 13. júní 1935 sonur
Konráðs Gíslasonar kaup-
manns í Hellas og Huldu
ÓMAR:
— þau yngstu voru að gera
mig vitlausan.
Bjarnadóttur, ritara á Veður
stofunni. Ómar er kvæntur
Eddu Eyfeld, og eiga þau þrjú
börn, 2, 3 og 7 ára.
— Þau yngstu hafa alveg
verið að gera út af við mig í
próflestrinum að undanförnu,
segir hinn nýbakaði tannlækn
ir og brosir.
— Hvenær laukst þú stú-
dentsprófi, Ómar?
— Ég varð stúdent frá M.R.
1958. Fyrst var ég í skóla í
Reykholti, en tók síðan mennta
skólann utanskóla á tveimur
og hálfu ári. Um haustið 1958
innritaðist ég í Læknadeild
H.í. og tók þaðan upphafspróf
í læknisfræði vorið eftir.
Reglugerðin frá 1957 var þá
komin til framkvæmda, en
henni var ætlað að vera ný sia
og var ég í fyrsta árganginum,
sem hóf nám í læknadeild eft-
ir að hún tók gildi. Með henni
voru prófin stórþyngd, eink-
um í efnafræði og vefjafræði.
Við innrituðumst 25 eða 26
hausdð 1958, ef ég man rétt,
en 5 eða 6 luku báðum próf-
unum um vorið. Haustið 1959
hélt ég svo áfram í læknadeild
inni, en þá fjölgaði í fjölskyld
unni, svo að ég varð að fara
að vinna og vann til næsta
vors. Haustið 1960 byrjaði ég
svo í tannlæknadeild, þó að ég
æt aði mér upphaflega í al-
menna læknisfræði. Eftir ára-
mótin lauk ég fyrsta hluta
prófi í tannlækningum og gekk
vel, fékk 15 og 16. Miðhlutan
um lauk ég hálfu öðru ári síð-
ar eða vorið 1962. Og nú er ég
sem sagt ab koma heim úr síð-
asta munnlega prófinu og
kandidatsprófinu þar með lok
ið.
— Og þú ert sá fyrsti, sem
útskrifast eftir nýju reglugerð
inni og tókst ágætt próf i ofaná
lag? í
— Já, ég er að visu ekki bú-
inn að fá alveg aUar einkunn-
irnar enn þá, en flestar þær,
sem ég veit um, hljóða upp á
14, 15 og 16, svo að ég reikna
með mjög góðri fyrstu eink-
unn.
— Tókstu ekki líka óvenju
mörg skrifleg próf í einu?
— Jú, ég tók 6 skrifleg próf
eða fleiri en nokkru sinni áð-
Fnunh. ð 13. síðu
| Ómar R. Konráðsson ásamt eiginkonu sinni, Eddu Eyfeld og þremur börnum þeirra. (Mynd: J.V.),
C
E
l
5
=
5
=
1
i
E
=
E
E
E
E
=
i
=
5
E
3
=
C
=
=
=
=
-*:'i«iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii»>
TILBOÐ
óskast í leigu á hluta af byggingu mnferða-
miðstöðvarinnar í Reykjavfk til igreilða- og
veitingaisölureksturs. Húsið verður væntan-
lega tekið í notkun á þessu ári. Tilboðum sé
skilað fyrir 25. febrúar n.k., til samgöngumála
ráðuneytisins, sem gefur nánari upplýsingar
um málið.
Samgöngumálaráðuneytið.
Laus staða
Aðstoðarmaður eða stúlka óskast við rannsóknarstörf.
Stúdents menntun eða hliðstæð menntun æskileg. Laun
skv. hinu almenna launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir sendist fyrir 10/2.
Atvinnudeild Háskólans, fiskideild,
Skúlagötu 4.
Keflavík — Suöurnes
Aðalfundur
Skrifstofu- og verzlunarmannafélags Suðurnesja, verður
haldinn í Aðalveri, Keflavík, laugardaginn 8. febrúar
kl. 3 e. h.
Stjórnin.
TUNGUTALSGÁFAM
nefnist erindið sem Svein B.
Johnsen flytur f Aðventkirkj-
unni í dag, sunnudaginn 2.
febrúar kl. 5 s. d. —- Fjolbreýtt 1
ur söngui- undir stjórn Jóns H.
Jónssonar. Allir velkomnir.
vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif-
enda í þessnm hverfum:
★ Miðbænum ★ Tjarnargötu
★ Lindargötu ★ Kleppsholt
★ Rauðarárholti
Afgreiðsla AlþýÖublaÖsins
Sfml 14 900
Auglýsingasími
Alþýðublaðsins
er 14900
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 2. febr. 1964 3