Alþýðublaðið - 07.02.1964, Blaðsíða 11
INGIMAR JÓNSSON SKRIFAR
FRÁ INNSBRUCK:
J
LIKOVA
EF VIÐ lítum yfir sögu sumar
og vetrarolympíuleikanna allt
frá upphafi, þá sjáum við að nöfn
nokkurra íþróttamanna eru bund
in vissum leikum órjúfanlegum
böndum. Á þessum lcikum hafa
'einstöku íþróttagai<p?<r gnæft
himinhátt yfir aðra keppendur
og kórónað íþróttaferil sinn með
glæsilegum afrekum, sem saga
íþróttanna mun geyma um ó-
komna framtíð.
Ef við tölum um Olympíuleik-
ana 1912 í Stokkhólmi þá ber
Hér ræðir olympíumeistari frá
1960, Carol' Heiss, viö Sjouke Pij-
kstra olympíumeístara 1964. Sú
fyrrnefnua er fréttamaöur á leik
unum í Innsbruck.
Hannes Kolemænen á góma, og
hver man ekki eftir Jesse Owcns
1936 í Berlín, eða Fanny Blank-
ers-Koen í London 1948, Zatopck
1952 í Helsinki, „Hjallis Ander-
sen í Osló 1952 og Thunberg
1924.
Þessir leikar og þessir íþrótta-
garpar tilheyra liðnum tíma, en
koma munu leikar og koma munu
stjörnur. Kannski fæða Ólympíu
leikarnir í Innsbruck af sér nýja j
stiörnu, sem skína mun yfir leik-
unum langt fram í tímann. Það .
er auövitað nokkuð snemmt að
tala um slíkt þegar Ieikarnir eru
ekki einu sinni hálfnaöir, en
frammistaða Lydiu Skoblikófu
er með slíkum glæsibrag, að það
virðist réttlætanlegt að gera sér
vonir um það.
"Hún hefur þegar hlotið tvö
gullverðlaun og þau á þeim vega
lengdum sem ekki eru hennar
beztu. Það má því segja með
uokkurri vissu, að hún vinni öll
fjögur skautahlaupin, og þar með
eitt eiustæðasta afrek í sögu
Vetrar-ÖIvmpíuIeikana.
Lvdía er 25 ára að aldri, kenn- t
slukona frá Chelabinsk við Úral-
fjöll og þvkir hinn föngulegasti
kvenmaður, ljéshærð með blá
augu og roða í kinnum. Sumir
segia að hún geti einnig unnið
gull i fegurðarsamkeppnum.
Lydía varð heimsmeistari í
skautahlaupi 1963 og vann tvenn
gullverðlaun á Ólvmpíuleikunum
í Squaw VaBey 1960 svo hún á
þá að þessum leikum loknum til
samans sex gullpeninga, ef henni
tekst að vinna 1000 og 3000 m.
skautðhlaupin sem eftir eru, en
á því eru allar Iíkur. Ingimar.
Íshokkí er mjög
skemmtileg íbrótt
'ir Innfæddir hafa auðvitað mest
an áhuga fyrir kepninni í alpa-
greinum, því þar liafa austurrísk
ir íþróttamenn mikla sigurmögu-
leika. Síðan Egon Zimmermann
vann brunið kemst tæplejga ann-
að að hjá blöðunum,. Sumar fyr-
irsagnirnar tala sínu máli ehis og
til dæmis þessar: ,jigön Egori“
eða „Egon þú snjalli drengur!"
og„ Zimmermann glæsilegur sig
urvegari!" Ekki er gott áð gizka
á hvernig fyrirsagnirnar verða,
ef Zimmermann tekst að sigra í
svigi eða slórsvigi, eða jafnvel í
báðum greinunum.
Næst að vinsældum er íshokkí
svo jafnan er skautahöllin troð-
full af áhorfendum, a. m. k. þeg-
ar A-flokks liðin leiða saman
hesta sína. Íshokkí er vafalaust
með skemmtilegri flokkaleikj-
um, leikurinn er mjög hraður og
spennandi og sjaldan „dauður“
nema þegar ójöfn lið eigast við.
Fyrirfram má telja öruggt að
til smá barsmíða komi en á móti
því hafa áhorfendur ekkert. Það
er eins og skapbráðir menn ve'j-
ist í þessa íþrótt, því ekki þarf
nema lítið til, þá eru kylfurnar
komnar á loft og látnar hvína í
liausinn á næsta mótherja. Fyrir
slíkt högg hlýtur sá er heggur
tveggja mínútna dvöl í skammar-
króknum, Oftast eru þessi kylfu-
högg meinlaus því leikmennirnir
bera hjálm á höfði og svo eru
þeir svo vel búnir púðum um all
an líkamann að þeim verður ekk-
ert mein af óhjákvæmilegu
hnaskji sem fylgir þessari þjóð-
aríþrótt Kanadamanna.
Innsbruck, 31.1 1964.
Það fór eins og búast mátti
við, Skoblíkófa vann sín þriðju
verölaun og setti nýtt ólympíu-
met í 1000 metra skautahlaupi.
Harðasti keppinautur Iiennar var
eins og í 500 m„ landa hennar
Jcgorófa. Þær fengu sama milli-
tíma á 500 m„ en Skoblíkófa
hafði meira úthald.
Þegar verðlaunaafhendinginj
fór fram í kvöld í skautahöllinni
kom skýrlega í ljós, hve miklum
vinsældum liin smávaxna finnska
stúlka Mústónen á að fagna, en
hún er sú eina sem veitt hefur
sovézku stúlkunum liarða keppni
og komst meira að segja upp á
milli þeirra í 1500 m.
WMMMWWWMIWMMMmMWMtWMMWMMWMMMWIW
FRAMKVÆMD VETRAR-
LEIKANNA PRÝÐILEG
ÞAÐ ER auðvitað stór-
kostleg vinna fólgin í því,
að undirbúa og halda slíkan
stórfagúiað, sem Ólympíu-
leikar eru og jafnan er ótt
azt allt fram á síðustu
stundu, að þeir, sem falið
hefur verið að sjá um þá
ge i é; vildið því hlutverki
Um leikana í Innsbruck
verður ekki annað sagt, en
að borgarbúar eigi mikinn
heiður skilinn fyrir fram-
kvæmd leikana, hún er í
hvívetna borginni til sóma.
Þátttakendur búa í stórum
íbúðarblokkum í útjaðri
borgarinnar og Iiefur liver
þjóð a. m. k. eina íbúð með
öllum þægindum til um-
ráða. Mjög gott er að kom
ast á alla keppnisstaðina
enda cru þeir svo að segja
við bæjardyrnar og skauta-
höllin og skautasvellið þar
scm hraðskautahlaupið fer
fram, í miðri borginni. Á
keppnisstöðunum er þjón-
ustan við áhorfendur óað-
finnanleg, gríðarstórar töfl
ur birta jafn harðan tíma
og rööina á keppendum svo
áhorfendur geti fylgzt með
keppninni út í yztu æsar.
(Ingimar).
á
kmm.
m ■ Wk ' ■
Mf:
P'. ; v;.r,
émrnmmmmSw
■SiP
Mttlt
■■mi:
uydia Skoblikova í keppninni í Innsbruck.
Christine Goitschell
Marielle Goitschell
pininiiiiiiinnmiiiiMiiMimffiiniiiiiiiiHiiiiBiiiiiniiiiiiiiiiiiniiiiiiiniiiiiiiinipiniiia
| Mikil viðskipti |
leiga sér stað !
| í INNSBRUCK I
★ Ólymþíuleikarnir hafa komið
miklu lífi í verzlunarlífið í Inns~
bruck. Allir hugsanlegir hlutir til
minningar um Innsbruck og leiK
ana eru á boðstólnum, og auð-
vitað skortir ekki frumlegheitin.
til að gera varninginn sem út-
gengilegastan, Eitt bezta bragðiS
til að gera vörurnar sem girnileg
astar þykir jafnan þegar Ólympíu
leikar fara fram, að klína ólym-
píuhringjunum eða ólympíulitun-
um á vöruna. Þannig getur mað'-
ur ef svo ber undir fært konu eða
unnustu sinni t. d. púðurdós eða
skóhorn með ólympíumerkinu á
þegar heim kemur. öngimar).
Þær austurrísku
Framh. af bls. 16.
því, að hafa ekki hlotið nein gull-
verðlaun.
Marielle Goitsenell, sem sigr
aði í stórsviginu og var heims-
meistari í þríkeppni, sagðist hafa
vitað um styrkleika Haas, en hún
kvartaði um ranga smurningu.
Keppnin fór fram í 1 stiga
hita og skafrenningi og það er
almennt álit, að austurrísku
stúlkurnar hafi hitt á rétta ; buríf»
inn.
í dag verður keppt í eftirtöMa
um greinum í Innsbruck: Bote»
sleð'akeppni (síðasta umferð), 3xS
km. ganga kvenna, 10 000 nn,
skautahlaupi karla, undankeppni
í svigi karla, íshokkí.
ALÞÝÐUBLAÐIO — 7. febrúar 1964 ±±