Alþýðublaðið - 12.03.1964, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 12.03.1964, Blaðsíða 6
KONSlANllNS FtÝTT? VERÐUR danska prinse;san Anna María drottning í Grikklandi þeg- ar í ár? Brúðkaup hennar og Kon- stantíns, sem nú fyrir stuttu erfði konungsnafn í Grikklandi að föð- ur sínum látnum, var ákveðið hinn 9. janúar 1965. En andlát Páls konungs hefur gert það að verk- um, að menn eru teknir að velta því fyrir sér, hvort ekki sé rétt að hraða brúðkaupinu. Foreldrar Önnu Maríu hafa verið því mót- falinir, að hún giftist áður en hún nær 18 ára aldri. Einnig ber á það að lna, að ekkert er því til fyrir^töðu í grísku stjórnarskránni að ókvæntur maður setjist þar á konungsstól. Konstantín varð ríkisarfi 6 ára gamall ánð 1947, en þá sór Páll faðir hans eið að stjórnarskránni. Það er nokkur hætta á því, að kórónan verði þung á höfði Kon- stantíns. Það, sem því veldur fyrst og fremst eru óvinsældir móður hans, hinnar síbrosandi Friðriku. Menn gera sér vonir um að hon- um og hinni ungu dönsku unn- ustu hans muni takast að skapa velvilja þjóðarinnar til konungs- fjölskyldunnar. Fari það svo, er það ekki í fyrsta sinn, sem Danmörk á þátt í að bæta samkomulagið mill; grísku þjóðarinnar og konungsfjölsky'd- unnar. Árið 1863 ráku Grikkir hinn hataða konung, Otto af Bayern, úr landi. Eftir að þeir voru búnir að líta í kringum sig eftir nýjum þjóðliöfðingja, ókváðu þeir að bjóða hinum 18 ára gamla Vil- hjálmi, bróður Kristjáns, iríkis- arfa í Danmörku, konungstign. Og þegar um jólaleytið sama ár varð Vilhjálmur grískur kóngur. Hann tók sér nafnið Georgios I. Hann ríkti í 50 ár, en þá var hann drep- inn af launmorðingja. Þá tók við elzti sonur hans og nefndi t Georg ios II. Hann dó 1947 og þá tók Páll við.Hann naut mun meiri vin- sælda en bróðir hans, sem þó hafði Haáur Morthens kann á þeim Khöfn, 10. marz 1964. ÞAÐ ER laugardagskvöld í Kóngsino Kaupmannahöfn. Ég stend einn mín.s liðs á Ráðhús- torginu og les nýjustu fréttir af neonljósunum á Politiken- húsinu. Allt í kringum mig er fó.k, sem er að fara út að skemmta sér. Ég labba á eftir nokkrum ungl.ngum, sem eru að fara á jómfrúarbúrið á Strauinu. — Þegar ég kem inn á Strauið verður mér litið á biðröð af ungu fólki, sem er að reyna að komast inn á næturklúbbinn Exalon, en það er einmitt stað urinn, sem Haukur Morthens og hljómsveit eru ráðnir til að le.ka og syngja á næstu tvo mánuði. Þetta er snyrtilegur og vinalegur næturklúbbur, með s.órt dansgó f, og þarna leika yfirleitt ekki danskar hljómsveitir, heldur fínar hljóm sveitir frá útlöndum. Að_ókn að þessum nætur- klúbb hefur yfirleitt verið góð, en þó hefur hún aukizt mjög jsiðan Haukur Morthens kom. Ég ryðst fram fyrir biðröð- ina, sýni vegabréfið mitt og fer inn. Dansgólfið er fullt af kátu fólki, sem dahsar, syng- ur og k.appar saman lófunum. Auk þess standa nokkur pör utanvið dansgólfið, sem ekki hafa fengið pláss. — Haukur stendur á hljómsveitarpallin- um og syngur af þvílíkri lífs- gleði, að allir verða að dansa. Svo segir hann: „Þakka ykkur fyrir, elskurnar, mange tak“, og syrpan er búin. Þeir, sem hafa beðið eftir að fá að dansa, fá kapnske tækifæri núna, ef þeir eru fljót ir, ég þýt ti. og býð upp einni íslenzkri, sem ég hef komið auga á — það er auðveldasta leiðin tií að komast í gegnum húsið. Svo byrjar hljómsveitin aft- ur. Haukur syngur gullfallegt íslenzkt lag, sem ekki hefur ennþá heyrzt á íslandi (er mér sagt). Það heitir Amorella. — Fólkið raular með. Svo tekur hann upp hárgreiðu, rennir henni einu sinni frá hnakka og fram yfir enni og syngur „Beatles-slagarann“: „I wánt to hold your hand“. Það er vein að í salnum, og þeir, sem ekki hafa náð í pláss á dansgólfinu, fara fram á gang og twista. Þar næst leikur hljómsveitin fallegt jazz'ag og gestirnir byrja að- dansa vangadans, en Haukur lygnir aftur augunum og setur upp hinn mesta sak- leysissvip, eins og hann eigi enga sök á því hvað fólk er orðið kumpánlegt og heimilis legt. Það tíðkast annars ekki í Kaupmannahöfn. Jú, sem sagt, Haukur Morth- ens kann lagið á Dönunum, engú sfður en öðru fólki, enda kunna þeir vel að meta hann. Það sýnir sig á biðröðunum fyrir utan næturklúbbinn — og fjörinu fyrir innan. Þors einn Eggertsson. ekki svo ýkja mikið gildi vegna þess að konungsfjölskyldan var rekin úr landi árið 1923 og landið gert að lýðveldi. Páll eyddi því taisverðum hlu.a af ævi sinni land flótta. Þann tíma var hann gestur Breta. Þegar hann hitti Friðriku fyrst, vann hann í vopnaverksmiðju í Englandi. En hann liafði, þegar þá var komið sögu, góðar vonir um að komast aftur til Grikklands. Friðrika sýndi það fljótt, að hún er viljaföst og dugmikil kona. Hún var þýzk prinsessa, af Hannover ætt. Hún var á uppvaxtarárum sín | um meðlimur í Hitler Jugend, eins : og flestir þýzkir unglingar á þeim tíma. Þegar hún gif ist Páli árið 1938, voru engar raddir uppi, sem neru henni því um nasir. Þegar hún var orðin drottning í Grikk- i landi aflaði hún sér liins vegar mikilla vinsælda meðal þjóðarinn- ' ar mcð því að koma i óundirbúnar heimsóknir á barnaheimili, sjúkra hús og aðrar félagslegar stofnan- ir. Hún bent; á margt, sem aflaga fór í þeim efnum og var faunar mjög framkvæmdasöm á félagsleg I um vettvangi. En samfara þessum vinsældum. sem hún aflaði sér meðal almenn- ings, uxu óvin ældir hennar með- al fólks í áhrifastöðum. Og smám saman fór að falla á glansmynd- ina af henni. I Hún var ekki hagsýn, hún var valdagjörn, hún skip.i sér af stjórn mólum landsins. Iíún var einnig hefnigjörn gagnvart gömlum and- stæðingum. Loks þóttj hún full- framkvæmdasöm v’ð að krækja börnum sínum í skikkanlega maka í kóngahúsum Evrópu. Næstum allt, sem hún hefur tekið sér fyrir hendur síðustu árin, hefur verið rætt og gagnrýnt opinberlega. Á hinn bóginn hefur lítill styrr stað ið um Pál. Hann hefur í rauninni staðið í skugga konu sinnar allan stjórnarferil sinn. Engin ástæða er ti’ að ætla, að hún verði afskip alítil ekkjudrottn ing. í hinni nýju stöðu sinni fær ! Frami > ' o VERÐUR BRÚÐKAU Pl ÚNNU 6 marz 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.