Alþýðublaðið - 21.03.1964, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 21.03.1964, Blaðsíða 1
45. árg. — Laugardagur 21. marz — 1964 — 68- tbl SÍÍííiS sv, X S^r ' ' - i* mMm < 0 * . Illllililii! Siilllfcil :., /: ' , ; illiílilíilí æví.Ssv; ISIIÍÍIÉ x^x-:- -xl-:': :■:! Vopnahlé eftir harða bardaga á Vestur-Kýpur Nikosia, 20. marz (NTB Reuter) - í DAG var allt meff tiltölulega kyrrum kjörum á Kýpur. Lokiff er hiutun hörðu bardögum á vestur- hluta eyjarinnar, þar sem aff minnsta kosti átta manns létu líf- iff. Grískir og tyrkneskir Kýpur- búar náffu samkomulagi um var- anlegt vopnahlé í bænum Ghazi- veran, og viffræffur fara fram um svipaffan samning í þorpinu Ka- lokhorio, þar sem einnig hefur komiff til harffra átaka. Vopnahléssamkomulagið gerir ráð fyrir því að brezkir hermenn séu á verði í Ghaziveran til að tryggja umferð á þjóðveginum, sem liggur gegnum þorpið. Þorps- búar hafa rifið niður alla vega- tálma. Utanríkisráðherra Kýpur, Sp;'r- os Kyprianou, hélt flugleiðis til Aþenu í dag en þar verður hann til laugardags þegar hann heldur ferð sinni áfram til New York að ræða Kýpurdeiluna við U Thant aðalframkvæmdastjóra. í Aþenu ræðir hann við helztu ráðherra. Ismet Iönu, forsætisráðherra Tyrklands, sagði á blaðamanna- fundi í Ankara, að hann litj mjög alvarlegum augum á atburðina. í Ghaziveran. BANASLYS Á FREYJUGÖTU Reykjavík, 20. marz. - GG ÞAÐ sorglega slys varff í morg- un í húsinu nr. 34 viff Freyjugötu, aff kona á áttræðisaldri, frú Jó- hanna Þorgrímsdóttir frá Orma lóni á Sléttu, ekkja Páls Lárus- sonar, hómópata, Lárussorar og móffir leikaranna Lárusar Pálsson ar og Hólmfríffar Pálsdót ur, féll ofan af svölum á þriffju hæff og lét lrfiff. Frh. á 4. síðu. Stefán Jónsson ræffir viff Margréti Benediktsdóttur um Saura-undrin. Stóllinn, sem brotnaffi viff fyrirburff í baffstofunni. Reykjavík, 20. marz - GO FltFTTAMADUR Alþýffublaðsins, Stefán Jónsson frá útvarpinu og Guff mundur Kjartansson jarðfræffingur flugu noröur í Húnavatnssýslu í dag og brugffu ser fram að Saurum á Skaga, þar sem fyrirburffir hafa gcrzt um ljósan dag, jafnt sem á myrkri nóttu. Á Saurum býr Guff- muudur Einarsson meff konu sinni Margréti Benediktsdóttur og Sigur- horgu dóttur sinni. Einnig er nú í heimili hjá þeim Björgvin sonur þeirra, sem annars býr á Skagaströnd. Hann hefur verið hjá þeim síðan undrin hófust. Bærinn að Saurum á Skaga stendur á sjávarkambi rétt norðan við Kálfshamarsvík. Bærinn er fornlegur nókkuð en húsakynni öll hreinleg. Fyrirburðirnir hófust aðfaranótt miðvikudags með því að sporöskju lagað borð í baðstofu fór á stjá fram eftir gólfinu. Síðan liafr svipuð fyrirbrigði gerzt með nokk- uð misjöfnu millibili. Stóll í bað- stofu mun hafa tekizt á loft 0£ farið yfir borðið, því þegar að vai komið lá hann hinumegin og vai brotinn og ónýtur. Leirtau hefur sópazt af eldhús- borði og niður á gólf, þar seir það lá molað mélinu smærra. — Skömmu áður en við Stefán Jóns- son og Guðmundur Kjartanssor komum að Saurum hafði skápur i eldhúsi fallið fram yfir sig og lá á gólfinu þégar að var komið Sigurborg dóttir Guðmundai bónda var þá í eldhúsinu. Húr varð vör við að þilið bak við skáp- inn var farið að titra og skápurinn sjálfur að ramba. Hún gat með naumindum bjargað ferðaútvarps- tæki sem stóð á honum áður en hann féll. Margrét húsfreyja Benedikts- dóttir, segir að óhugur sé nú ! minni í lieimafólkinu, en fyrst eftir að undrin hófust. Hún hefur búið á Saurum í 19 ár og aldrei orðið neins vör og sama er að segja um annað heimafólk. Þegar við komum í Kálfsham- arsvik, voru Guðmundur bóndi og Björgvin sonur hans að leggja af stað til að vitja um hrognkelsa net. Guðmundur kvaðst enga grein geta gert sér fyrir þvi hvað væri á seiði á bænum. Ólætin væru mest í kringum kvenfólkið, en hann hefur einu sinni vaknað við að borðið í baðstofunni var farið af stað. Hann greip þá í það og fékk haldið því, en það iðaði í Framhald á 3. síðu. Bæjarhúsin aff Saoruin, en þ var gestkvæmt í dagr. (Myndlr: Grétar Oddsson).

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.