Alþýðublaðið - 29.04.1964, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 29.04.1964, Blaðsíða 9
MuiiiiitiriiiimiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiimiiiiimiiiiuisiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiimiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifuiiiiiiiftmiiiiiifiitifiiifntiiiimmmiiniiiiuiifiiiic rr, ! KÚBUDEILAN HARÐNAR ‘ÐeUa Bandaríkjanna og I Kúbu er kalt stríð, sem verður | sennilega ekki „heitt“ í fyrir- f sjáanlegri framtíð, sagði í for I ystugrein í „New Yoirk Times“ | nýlega. í>ó var tilefni þessara I. ummæla blaðsins versnandi i sambúð stjórnanna í Havana i og Washington. Það er nefni- |: lega athyglisvert í sambandi I við ástand það, sem nú hefúr l skapazt, að hin aukna spenna | stafar af bættri sambúð Banda- | ríkjanna og Sovétríkjanna. I Á undanförnum mánuðum k hafa Rússar haldið áfram brott |- flutningi hermanna sinna frá I Kúbu í samræmi við samkomu I lag það, sem tókst með Krúst- | jov og Kennedy haustið 1962. | Samkvæmt upplýsingum, sem | fyrir liggja, verða í næsta mán- | uði aðeins eftir 800 af um það | bil 20 þúsund Rússum, sem | voru á Kúbu er deilan stóð | sem hæst. Nú er það spurn- I ingin mikla hvort þessi „hér- | málanefnd“ eigi að hafa það | verkefni að hafa eftirlit með | þeim 24 loftvarnareldflaugum, | sem komið hefur verið fyrir § á Kúbu. £§ | Ef sú verður raunin mun | bandaríska stjórnin varpa önd | inni léttar, því hingað til hefur | eldflaugum þessum ekki verið | beitt gegn bandarískum könn- | unarflugvélum, sem jafnan | fljúga yfir Kúbu til að ganga | úr skugga um, hvort nokkur | árásarviðbúnaður eigi sér stað. Þessar könnunarferðir hafa | verið farnar með þegjandi sam | þykki Rússa, enda höfðu Krúst | jov og Kennedy orðið ásáttir | um, að eftirlit skyldi haft með | brottflutningi eldf lauganna | og niðurrifi skotpallanna. En | nú, þegar brottflutningi sov- | ézku hermannanna er senn að i ljúka, gefur það tilefni til boil | alégginga, hvort hið þegjandi | samkomulag um flug Banda- | ríkjamanna yfir Kúbu gildi á- | fram. | Þótt það hafi ekki komið 1 skýrt fram, hvort Kúbumenn I fái í hendur stjómina á eld- | flaugunum, hefur Castró sjálf- | ur tekið skýrt fram, að ,hann hafi í hyggju að binda enda á flug Bandaríkjamanna yfir Kúbu. Á því getur ekki leikið nokkur vafi, að þessar könn- unarferðir eru brot á þjóðar- rétti og að með þeim er troð- ið á fullveldi Kúbu. En bandaríska stjórnin tel- úr, að Kúba hafi sjálf með stefnu sinni sett sig utan.við gildandi reglur, og að jafn- framt geri pólitískar ástæður og öryggisástæður, sem vegi þungt á metunum, Bandaríkja- mönnum nauðsynlegt að halda könnunarferðunum áfram. m Auðsætt er, að síðan Kúbu- deilan hjaðnaði hafa Rússar hvatt Castro til hófsemi gagn vart Bandaríkjamönnum, og þessi ráðlegging hefur að sumu leyti haft áhrif. Kúba er svo háð aðstoð Rússa og annarra Austur-Evrópuþjóða, að hún gæti alls ekki þolað vinslit, þótt hún hafi aldrei verið eins óánægð með stefnu þá sem fylgt er og nú. Samt er greinilegt, að Cast- ro er staðráðinn í að viðhalda ems miklu athafnafrelsi og honum er framast unnt. TTaun hefur ekki gerzt aðilí að samn ingnum um takmarkað tilrauna bann og ekki tekið undir hinar almennu fordæmingar á stefnu Peking-stjórnina. Yfirleitt eru fyrir hendi möguleikar á nánari samskiptum Kúbu og Kína, og eftir öllu að dæma óttast Rússar þetta. Þeir verða að taka þetta til greina í stefnu sinni gagnvart stjórninni í Hav ana. Þetta er augljóslega tilefni ummælanna í stjórnmálamál- gagninu „Izvestia“, sem hefur tekið eindregna afstöðu gegn könnunarflugferðum Banda- ríkjanna og staðhæfir, að Kúba hafa rétt til að binda enda á þær. Sem fyrr var á það lögð áherzla, að Rússar mundu ekki halda að sér hönd- um yrði Kúba fyrir árás. Frá - sjónarhóli Castrós sjálfs væri það spurning með tilliti til eigin álits, hve lengi hann geti látið könnunarferð- irnar viðgangast án þess að aðhafast nokkuð. Þess vegna getur hæglega skapast nýtt hættuástand, ef brottflutning- ur Rússa felur í sér, að kú- banska sfjómín íjú frjálþan umráðarétt yfir loftvarnareld flaugunum. Þótt slíkt ástand skapaðist væri það íhugunarefni fyrir Castró hvort hann hefði nokk- urn hag af því, að sambúðin við Bandaríkin versnaði alvar- lega. En stefna Bandaríkjanna kann einnig að komast í alvar ,lega þolraun á næstunni, því að stefna Castrós á undanförn- um mánuðum hefur bent til þess, að hann hafi áhuga á að samskiptin við Bandaríkin kom ist í eðlilegt horf. Enn er óvíst hvort stjóm- endur bandarískra utanríkis- stefnu séu undir það búnir að endurskoða stefnuna gagnvart Kúbu, en ef forðast á nýtt og alvarlegt. hættuástand gefst tækifærið ef til vill eftir for- setakosningamar í haust. (Ar beiderbladet: Torstein Sandö). ^ ■uiiiMiiúiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiitiiiiiiiiMinuiiiiiiinniiiiiiimiiiiiii*i*iiii*iiiiii“ili*,,'imtit«i»*iiiiimtmmM«iii»iiii»Muiii«iiuii»iimHiuiiii»»iiiiiiiiiiimiiiiiiuiiiiuiiniiiiii»'f' FÖR FÁKS AÐ HLÉGARÐI Mosfellssveit, 20. apríl. — ÓG. SÍÐASTLIÐINN sunnudag var hin árlega för Hestamannafélagsins Eáks að Hlégarði í Mosfellssveit. Veður var hið ákjósanlegasta, sól og bliða. Þarna munu hafa verið á ferð á fjórða hundrað hesta- menn og sumir hverjir með tvo til reiðar. Það er tignarleg sjón að sjá svo fríðan hóp sem þennan, fara 'á kostum um byggðir lands- íns og fagurt minningartákn um þarfasta þjóninn, hestinn. Meðal hestamaiina voru ekki síður kon- ur en karlar og á þar við visu- helmingur Kolbeins í Kollafirði: svo verða allar fínustu frúrnar í hnakk QS framtíðarhestamenn íslendinga. Að Hlégarði hafði. Kvenfélag Lágafellssóknar veitingar fyrir Fáksfélaga, en það tilheyrir hinni árlegu ferð. Undir borðum að Hlé- garði skemmtu nokkrir skóladreng ir með hornablæstri undir stjórn eins af barnakennuram sveitar- innar. Hljómsveitin er reyndar enn á byrjunarstigi, en á væntan- lega eftir að þroskast óg dafna og verða sómi sveitar sinnar. Félagar úr Hestamannafélaginu Herði í Kjalarnésþingi fóru til móts við þá Fáksfélaga og fylgdu þeim einnig úr hlaði að lokinni kaffidrykkju í Hlégarði. För þessi fór hið skipulegasta fram og var þeim til sóma, sem að henni stóðu og verður ferðum þessum væntanlega framhaldið á komapdi árum. ÁRBÓK FERÐA- FÉLA6SINS 1964 Reykjavík, 27. apríi - KG ÁRBÓK Ferðafélagsins fyrir árið 1964 er komin út. Fjallar hún að þessu sinni um Austur-Húnavatns- sýslu og hefur Jón Eyþórsson skrifað bókina. Áður hefur verið fjallað um Vestur-Húnavatnssýslu og er sú frásögn, í árbókinni 1958. Bókin er að þessu sinni 224 biaðsíður og eru í henni 58 ljós- myndir og fjórar litmyndir. Seljum á morgun og næstu daga meðan birgð- ir endast nokkurt magn af karlmannaskóm úr leðri með leður- og gúmmísóía. Vandaðaí gerðir fyrir krónur 292,00 og krónur 299,00. Ennfremur HVÍTBOTNAÐA GÚMMÍSKÓ drengja. Verð krónur 72,00 og krónur 83,00. Skóbúð Ausfurbæjar Laugaveg 100 Bamavinafélagið Sumargjöf Á morgun fimmtudag kl. 3 verður kvikmyndasýning í Háskóiabíói fyrir börn, sen* seldu bækur, fána og merki á sumardaginn fyrsta. Sölunúmer gilda sem aðgöngumiði. Konur óskast Konur vantar í eldhús Kópavogshælis. Hálfs dags vinna kemur til greina. Upplýsingar gefur matráðskonan í síma 41502. Reykjavík, 27. april 1964. Skrifstofa ríkisspítalanna. Smjör brauöiÓÍ _ \nnr Osta og smjörsalan s.f. j i ir ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 29. apríl 1964 Q.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.