Alþýðublaðið - 07.05.1964, Page 5

Alþýðublaðið - 07.05.1964, Page 5
 Glófaxi Flugfélags íslands á flugvellinum við Húsavíh. fK®ja 'fS Jr. Sumaráætlun innanlandsflug FÍ: SUMAKÁÆTLUN innanlandsflugs Flugfélags íslands gekk í gildi 1. maí. Flugferðum innanlands mun verða hagað með svipuðu sniði og s.I. sumar, en nokkrar breyt- ingar hafa verið gerðar, t. d. eru ferðir milli Egilsstaða og Iíorna- fjarðar nú á miðvikudögum í stað laugardaga þá. Alls verða flognar 48 ferðir á viku frá Reykjavík til annarra staða á landinu. Til Akureyrar verða morgun- ferðir og kvöldferðir alla daga og miðdagsferðir á mónudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum. Samtals 18 ferðir á viku. Til Vestinannaeyja verða tvær ferðir á dag alla virka daga, en ein-ferð á sunnudgum. Til ísafjarðar verða ferðir alla daga vikunnar. Til Egilsstaða verður flogið alla daga og þangað verða tvær ferðir á miðvikudögum. Til Hafnar í Hornafirði verður flogið á mánudögUm, miðvikudög- um og föstudögum. Til Fagurhólsmýrar í Öræfum á mánudögum og föstudögum, til Þórshafnar og Kópaskers á mánu- dögúm og fimmtudögum, til Sauð- árkróks á þriðjudögum og föstu- dögum, og til Húsavíkur sömu daga. Milli Akureyrar og Egilsstaða eru ferðir á þriðjudögum, föstu- dögum og sunnudögum, en á mið- vikudögum eru ferðir til Egils- staða með viðkomu á Hornafirði. Beinar ferðir milli Reykjavíkur og Egilsstaða verða á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og laugardögum. Milii Vestmannaeyja og Hellu verða ferðir á miðvikudögum og milli Vestmannaeyja og Skóga- sands á laugardögum. Sérstök athygli skal vakin á hringferðum kringum landið, sem Flugfélagið byrjaði á í fyrrasum- ar og urðu strax mjög vinsælar. Þessir staðir eru í hringferðinni: Reykjavík, ísafjörður, Akureyri, Egilsstaðir, Höfn í Hornafirði og Fagurhólsmýri í Öræfum. Þessar ferðir hefjast 1. júní. Hægt er að hefja hríngferðina á hverjum framangreindra staða og stanza á'hverjum viðkomustað, ert ferðinni verður að Ijúka innan mánaðar frá því Iagt er af stað. Flugfélag íslands hefur nú, til viðbótar litprentaðri áætlun á ensku, gefið út litprentaða sumar áætlun á íslenzku. Til innanlandsflugs í sumar hef- ur Flugfélag íslands þrjár flug- vélar af gerðinni DC-3 og ennfrem ur Skymasterflugvél, sem tékin var á leigu í Bretlandi. Þessi flug- vél, sem hefur sæti fyrir 64 far- þega, mun fljúga á leiðunum fteykjavík, Akureyri, EgilsStaðir. Hún mun hefja flug á innanlands- Ritari óskast Landspítalinn vill ráða nú þegar duglegan og helzt æfðan ritara. Laun samkvæmt reglum um laun opinberra starfs manna. Umsækjendur þurfa að hafa góða kunnáttu í vél- ritun, íslenzku, ensku og Norðurlandamálum. Umsóknir með upplýsingum um aldur, námsferil og fyrri störf ósk- ast sendar til Skrifstofu ríkisspítalanna, Klappársstíg 29, Reykjavík, fyrir 25. maí n.k. Reykjavík, 4. maí 1964. I SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA. Tilkynning Athygli innflytjenda skal hér með vakin á því, að sam- kvæmt auglýsingu viðskiptamálaráðuneytisins í 1. tölu- blaði Lögbirtingablaðsins 1964, fer önnur úthlutun gjald- eyris- og/eða innflutningsleyfa árið 1964 fyrir þeim inh- flutningskvótum, sem taldir eru í I. kafla auglýsingarinnar, fram í júní 1964. Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa borizt Landsbanka íslands eða Útvegsbanka íslands fyrir 1. júní næstkomandi. * landsbanki íslands Útvegsbanki íslands. Tímarit Máls og menningar 1. hefti 1964 Ný smásaga eftir HaHdór Laxness: DÚFNAVEIZLAN ÍMeða'l annars efnis: Persónulegar minnisgreinar um skáldsögur og leikrit eftir Halldór Laxness Grein um Davíð Stefánsson eftir Kristin E. Andrésson Bandarísk bylting eftir James Boggs Bænarskráin eftir Sverri Kristjánsson Umsagnir um bækur eftir Hermann Pálsson, Jó- 'hannes úr Kötlum, Jón frá Páhnholti, Friðrik Þórðarson, Loft Guttormsson, Björn Þorsteinsson, Jakob Benediktsson. I og menning í Reykjavík Þar eð 10. maí ber upp á sunnudag, hefst út- borgun effilífeyris í Reykjavík að þessu sinni föstudaginn 8. þ. m. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS. Bæjarstjóm Kópavogskaupstaðar heitir á alla Kópavogs- • búa, að taka höndum saman um fegrun og snyrtingu bæj- • arins. Sérstaklega er skorað á eigendur fyrirtækja að taka . sér til fyrirmyndar hornlóð Nýbýlavegar og Reykjanes- ; brautar. Hreinsum lóðirnar, málum húsin og girðinganiar. Til þess að auðvelda yður starfið verða vöruþifreiðir bæj- ; arins í ferðum næstu helgar. Vinsamlegast hafið samband við heilbrigðisfulltrúann i . síma 41570 frá kl. 9.30 — 10.30 daglega og óskið eftir akstrl • á úrgangi. ’ : Þá hefur báéjarstjórn gengist fyrir því, að utanhúsmálning : verður seld með afslætti í málningarverzlunum í Kópa- vogi. Fegnxm bæinn okkar, gerum hann að fyrirmynd fyrir 17, ■ júní. Kópavogi í maí 19G4 BæjarStjórinn. tlugleiðum í dag. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 7. maí 1964 $ ,A ,,V.W A/AAAA.AA Á. A A >

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.