Alþýðublaðið - 09.05.1964, Side 9
veg frá því að láta handtaka hana,
en stakk í þess stað upp á því,
að htin sneri aftur heim til Amst
erdam. Andartak hikaði hún, en
sagði síðan og lagði áherzlu á orð
sín með leikrænni handsveiflu:
„Látið mig fá passa til Spánar.“
Á þeirri stund innsiglaði Mata
Mari örlög sín. Hinn 13. desem-
ber kom hún til Madrid og leit-
aði þá þegar uppi þýzka hermála
fulltrúann, von Kalle, ásamt flota
fulltröanum Walter Wilhelm Can
aris. Canaris átti síðar eftir að
koma aftur við sögu, þar sem
hann var sá sami sem stjórnaði
njósnum Þjóðverja í seinna stríð
inu og (Var tekin af lífi 1944, grun
aður um þátttöku í samsærinu
gegn Hitler.
í ársbyrjun 1917 hélt Mata Hari
aftur til Parísar, en nú var hún
undir svo sterku eftirliti og undir
svo sterkum grun, að einungis var
tímaspurning hvenær hún yrði
handtekin. Öll bréf hennar voru
lesin og verðir hennar slepptu
ekki af henni augunum. í Madrid
hafði Mata Hari komizt í kunn-
ingsskap við franska hermálafull
trúann, Davignies, og dag einn
hélt hún af stað til fundar við
hann. Þegar hún kom til heimil-
ís hans í París, frétti hún, að hann
væri nýfarinn til brautarstöðvar
innar til þess að halda aftur til
Madrid. Við fyrri mót þeirra
hafði fulitrúinn verið mjög við-
mótsþýður við hana, en nú neit-
aði hann að ræða við hana. Þá
rann það upp fyrir henni, að leik
urinn væri tapaður og senn leik
inn til enda. Það var 13. febrúar
1917, sem lögreglan aflaði sér að
0 '
gangs að herbergi Mata Hari í
París og þar komu lögreglumenn
með handtökuskipun meðferðis.
Hún var flutt í Réttvísihöllina og
þar var hún spurð hvers vegna
hún hefði heimsótt von Kalle í
Madrid. Hún svaraði, að þar hefði
verið til þess að útvega upplýs-
ingar fyrir Danvignis hershöfð-
ingja. Skýring hennar var ekki
tekin gild og hálftíma síðar var
hún á leið til St. Lazarefangels-
isins.
Mata Hari var ekki enn ljóst
hvaða sannanir væru til gegn
h.enni. 1. maí var hún aftur færð
til Réttvísihallarinnar. Þar var
komið beint að efninu: Gagnnjósna
kerfið hafði komizt yfir skeyti frá
von Kalle til yfirmanna hans í
Berlín. í því var frá því sagt, að
sendimaður H. 21 að nafni Mata
Hari frá Köln hefði sent skýrslu
tíl hermálafulltrúans um ferðir
franska flotans í Miðjarðarhafi.
Mata Hari reyndi enn einu sinni
að sannfæra menn um sakleysi
sitt, en án árangurs í þetta sinn.
Hún staðhæfði, að hún væri fórn
arlamb öfundar von Kalle gegn
Canaris og því til sönnunnar
nefndi hún, að skeytið hefði ver
ið sent á dulmáli, sem Frakkar
þekktu lykilinn að, og skeytið
hefði verið sent beinlínis til þess,
að hún yrði tekin höndum.
En það var eitt atriði, sem hún
gat með engu móti talað sig frá:
Hún hafði við þrenn tækifæri tek
ið við peningum frá leynilegum
þýzkum sendiboðum. Þrem mánuð
um síðar var Mata Hari dæmd til
dauða.
Á gráum októbermorgni árið
1917 gekk þögul fylking í átt frá
St. Lazarefangelsinu til aftökustað
arins við Vincennes. Það hafði
rignt um nóttina og menn urðu
að stikla veginn til þess að kom
ast þurrum fótum leiðar sinnar.
Á þessum þungbúna morgni
bundu tólf skotliðar endi á líf
konu, sem hafði fengið að kynn-
ast fleiri þáttum mannlegra til-
inninga en almennt er kostur,
sennilega fleiri en hollt er.
ÍBÚÐ EFTIR
EIGIN VALIÁ
NR. 44857
í GÆR var dregið í 1. fl. Happ
drættis DAS um .200 vinninga og
féllu vinningar þannig:
íbúð eftir eigin vali kr. 750.000
kom á miða nr. 44857.
íbúð eftir eigin vali kr. 500 þús.
kom á miða nr. 51477.
Opel Caravan Station bíll á nr.
35881.
Vauxhall Victor Super fólks-
bifreið á nr. 29262.
Bifreið eftir eigin vali kr. 130
þús. á nr. 49380,
Bifreið eftir eigin vali kr. 130
þús. á miða nr. 55766.
Húsbúnað fyrir 25 þús. á nr.
64271. Húsbúnað, kr. 20 þús. á
miða nr. 4540 og 27767. Húsbún-
að fyrir 15 þús. hlutu nr. 550,
16344 og 40711.
Eftirtalin númer hlutu húsbún
að fyrir kr. 10 þús. hvert: 2279
2472 4789 10314 14107 31496
49672 54075 61768.
(Birt án áb.).
ija clansmær og stórnjósnari — hét í raun og vem Mar-
d í Hollandi órið 1876. Hún giftist Hoílendingi og flutt-
Ijónabandið entist þó ekki lengi og árið 1904 rekast
sna dansmey í París. Hún aflar sér sambanda þar og í
danslistarinnar var hún afkastamikill njósnari og vann
f’rakka. Hún lék þannig tveim skjöldum þar til sumar-
fhjúpuð af Frökkum.
r hún. tekin af lífi.
PIERPONT-ÚR
Ný gerð — Safírslípað glas —■
Vatnsvarið — Höggvarið —-
Óbrjótanleg gangfjöður —
17 steina.
Ársábyrgð.
Sendi gegn póstkröfu.
Sigurður Sívertsen,
úrsm.
Vesturgötu 16 — Sími 18711»
BAZAR
STOKKSEYRINGAFÉLAGIÐ heldur bazar í Breiðfirðmga-
búð, uppi, sunnudaginn 10. maí kl. 2 e. h.
Þar verða til sölu margir eigulegir munir, svo sem handa*
vinna, barnafatnaður, prjónles og margt fleira. Allt selt á
gjafverði.
Munum veitt móttaka á sama stað eftír kl. 4 í dag.
Stokkseyringafélagið.
Opinber stofnun
óskar að ráffa karl effa konu til birgffabókhalds nú þegafV
Umsækjandi þarf að vera vanur skrifstofustörfum. StarfiQ
er algjörlega sjálfstætt.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 15. þ. m. merktaí?
„Birgðabókhald".
G irðingasfaurar
Seljum girðingastaura úr
niðursöguðum fisktrönum
ÍSBJÖRNINN H.F.
Sími 24093.
Atvinna
Saumastúlkur, helzt vanar, vantar oss nú
þegar. — (Ákvæðisvinna).
Upplýsingar í verksmiðjunni, Þverholti 17.
Vinnufatagerð íslands h.f.
Hafnarfjörður
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða gæzlukonu á barna-
íeikvöll strax.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður.
BÆJARSTJÖRI.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 9. maí 1964 $
v