Alþýðublaðið - 09.05.1964, Qupperneq 13
(Framhald af 5. síðu).
stofnkostnaöur íslenzks sjónvarps,
sem næði til allra landsmanna,
mundi verða 171 millj. kr. Þótt
ekki sé gert ráð fyrir því, að ís-
lenzt sjónvarp þyrfti að eign-
ast tæki til þess að kvikmynda
sjónvarpsdagskrá utanhúss né
myndsegulband þegar í upphafi,
myndi það þurfa að vera mjög
fljótlega, en slík tæki eru talin
kosta 9 millj. kr.. Hefur því heild
arstofnkostnaður íslenzks sjón-
varps, sem tæki til alls landsins,
verið áætlaður 180 millj kr.
^ Tvær framkvæmda-
áætlanir.
Nú má að sjólfsögðu hugsa sér
röð framjtvæmda við byggingu
endurvarpskerfisins með ýmsum
liætti. í skýrslu sjónvarpsnefndar-
innar eru gerðar ivær fram-
kvæmdaáætlanir. Báðar eru við
það miðaðar, að öilum undirbún-
ingi verði lokið 1966 og geti fram
kváemdir hafizt það ár. Fyrri á-
ætlunin er miðuð við að ljúka
byggingu sjónvarpskerfis fyrir
allt landið á fimm árum eða árun
um 1966-1970. Siðari áætlunin er
við það miðuð að ljúka fram-
kvæmdunum á sjö árum eða á
árunum 1966-1972. Ég sé ekki á-
stæðu til þess að rekja þessar
framkvæmdaáætlanir í einstökum
atriðum. Þó má geta þess, að
í fimm ára áætluninni er gert ráð
fyrir því að koma upp á árunum
1966-1968 nauðsynlegrx aðstöðu í
Reykjavík, byggja aðalsendistöðv
ar á Skálafelli, Vaðlaheiði, Stykkis
hólmi og Fjarðarheiði og endur-
várpsstöðvar á Blönduósi, Vest-
mannaeyjum og Patreksfirði, fram
kvæma nauðsynlegar útbreiðslu-
mælingar og kaupa myndsegul-
barid. Mundi kostnaður við þenn:
an-fyrsta áfanga verða 74,5 millj-
ónrr króna. Kostnaður á árinu
1969 er 1 þessari áæ:lun áætlaður
53,5 millj. kr. og er þá gert ráð
fyrir að byggja fimmta aðajsendir
inn á Hjörleifshöfða, en auk þess
endurvarpsstöðvar á Narfastaða-
felli, Melgraseyri, Arnarnesi,
Tunguhálsi, Siglufirði, Þórshöfn,
Eskifirði og Þingeyri, auk nokk-
urra smástöðva og strengjalagn-
ingar. Á árinu 1970 er gert ráð
fyrir stöðvabyggingum á Horna-
firði, Hrafnseyri, Skágaströnd,
Kelduhverfi, Raufarhöfn, Vopna-
firði, Arnarstapa, Sandi, A.-Horni
og Papey, auk margra smástöðva
og strengjalagninga, og er þetta
áætlað að mundi kosta 52 millj.
kr.
í sjö ára áætluninni er gert ráð
fyrir sömu röð á framkvæmdum,
en*þeim dreift á tveggja ára lengri
tíma.
•fe Reksírar-
kosínaðnv.
Varðandi rekstrarkos-.nað ís-
lenzks sjónvarps er það aS segja,
að hann skiptist í þrjá liði: byrj-
unarkostnað, fastakostnað og dag
skrárkostnað. í skýrslu sjónvarps
nefndarinnar er gert ráð fyrir því,
að samið verði við erlenda aðila
um margvíslega tækn'aðstoð í sam
bandi við undirbúning íslenzks
sjónvarps. Ef endanleg ákvörðun
er tekin nú á næs.unni um að
koma - á fót íslenzku sjónvarpi,
mundi vera hægt að hefja ís-
lenzkar sjónvarpssendingar 1986.
Telur nefndin slíkan byrjunar-
kostnað munu verða Vz milljón kr.
nú á þessu ári, 2,5 millj. á næsta
ári, 1 millj. árið 1966 og síðan V2
milljón árlega. Þegar sjónvarps-
sendingar hefjast er talið, að þörf
sé á 30 föstum starfsmönnum.
Laun þeirra, ásamt rekstri endur-
varpss.öðva, viðhaldi véla og öðr
um rekstrarkostnaði talinn munu
verða 9 millj. kr. á fyrsta starfs-
ári sjónvarpsins eða 1966 og gerir
nefndin síðan ráð fyrir 1,5 millj.
kr. aukningu kostnaðar á ári. Tal-
ið er, að meira en helmingur fasta
kostnaðarins stafi beinlínis af
undirbúningi dagskrár, sem krefj
ist mun meiri þátttöku fastra
starfsmanna í sjónvarpi en hljóð
varpi. Við þennan fastakostnað .
mun síðan bætast annar nauð-
synlegur kostnaður við öflun og
GYLFI Þ. GISLASON
flutning dagskrárefnis. Gert er
ráð fyrir því, að verja 10 millj.
kr. fyrsta s.arfsárið til öflunar
sjónvarpsefnis og fari sá kostnað-
ur vaxandi um 2 millj. kr. á ári,
á næstu árum. Gert er ráð fyrir
því að leigja erlent sjónvarpsefni
á kvikmyndum og kaupa frétta-
myndir erlend.s frá. Jafnframt er
nauðsynlegt að verja verulegu fé
til þess að gera og kaupa ísienzkar
kvikmyndir. S-jónvarpsnefndin hef
ur gert sýnishom af fjögurra
vikna sjónvarpsdagskrá, þar sem
gert er ráð fyrir tveggja stunda
daglegri dagskrá auk síðdegis-
sendinga á laugardögum og sunnu
dögum. Er áætlunin um þ.0 millj.
kr. dagskrárkostnað 1. árið mið-
aður við þessar dagskráráætlanir.
Áætlanir um rekstrarkostnað eru
þannig, að í undirbúningskostnaö
er nauðsynlegc að verja 13,5 millj.
kr. í ár og næstu ár. Síðan er
heildarrekstrarkostnaðurinn tal-
inn munu verða 20 millj. kr.
fyrsta starfsárið en u. þ. b. tvö-
faldast á fyrstu sjö árunum.
Tekiiiöflun.
Tillögur sjónvarpsnefndarinnar
um tekjuöflun til að standa
straum af greiðslu stofnkostnaðar
og rekstrarkostnaðar íslenzks
sjónvarps eru í stuttu máli þess-
ar:
Nú munu vera um 2,500 sjón-
varpstæki í eigu íslendinga. Nefnd
in gerir ráð fyrir því, að kaup
sjónvarpstækja munu- vaxa mjög
ört á næstu árum og mun tala
þeirra 1972 vera kominn upp í 27
þúsund. Nefndin gerir ráð fyrir
því, að vegna hins mikla stofn-
kostnaðar við dreifingarkerfi
sjónvarps á íslandi sé eðlilegt að
leggja sérstakt stofngjald á sjón
varpsno.endur. Yrði það 1000,00
kr. á hvert viðtæki og innheimt
einu sinni með fyrsta afnotagjaldi. .
Á sjö ára tímabilinu, 1966—1972,
gerir nefndin ráð fyrir því, að
27,0 millj. kr. fáist með þessum
hætti. Þá gerir nefndin ráð fyrir
a. m. k. 1500,00 kr. árlegu afnota-
gjaldi. Yrðu tekjur af því fyrsta
starfsárið eða 1966 12 mi’lj. kr., en
yrðu orðnar 40,5 millj. kr. á ár-
inu 1972. • Þá gerir nefndin ráð
fyrir tekjum af auglýsingum, 4,5
millj. kr. fyrsta árið eða 1966, en
13,5 millj. kr. árið 1972. Þá legg-
ur nefndin til, að a. m. k. fyrsta
áratuginn séu íslenzku sjónvarpi
fengnar -tekju/r af innflutnirþi
sjónvarpstækja eða framleiðs’u
þeirra í landinu, enda hafi Ríkisút
varpið á sínum tíma verið byggt
upp með þeim hætti. Gerir nefnd
in ráð fyrir því, að sjónvarpið fái
á einn eða annan hátt sem svarar
80% aðflutningsgjalda af sjón-
varpstækjum eða um 4.400.OO kr.
á tæki. Gerir hún ráð fyrir frá 8,8
J17,6 mUlj. kr. árlégum tekjum af
þessu, eða samtals 116,6 millj. kr.
tekjum árlega af þessu, eða sam
tals 116,6 miílj. kr. tekjum handa
sjónvarpinu á árunum 1964-1972.
Miðað við þessa tekjuöflun væri
hægt að greiða þann árlega rekstr
kostnað, sem ég gat um áðan,
fyrsíu sjö starfsárin og allan stofn
stonfkostnaðinn samkvæmt sjö
ára framkvæmdaáætluninni án
nokkurrar lánsfjáröflunar. Ef
framkvæmdirnar yrðu hafðar
hraðari og þeim hagað eftir fimm
ára framkvæmdaáætluninni yrði
um nokkra lánsfjárþörf að ræða á
árunum 1969-1971, mest 28,0 millj.
kr. árið 1970.
■fc Hugsanleg
dagskrá.
Mér þykir rétt að fara nokkrum
fleiri orðum um það, sem segir í
| skýrslunni um hugsanlega dag-
í skrá íslenzks sjónvarps. Lögð er
' áherzla á, að nauðsynlegt sé að
dagskrá sé þegar í upphafi nægi-
lega löng og góð til að hvetja
almenning til tækjakaupa. Þess
vegna er ekki talið hægt að byrja
t. d. á 30 mínútna efni á dag og
auka það smám saman. Er því
gert ráð fyrir að býrja á 2 klst.
daglegri sjónvarpsdagskrá, en gera
ekki ráð fyrir stöðugri lengingu,
heldur tveggja' til þriggja stunda
sjónvarpi fyrstu 5-10 árin. Að
sjálfsögðu yrði ekkert því til fyr-
irstöðu að sjónvarpa mun lengur
einstaka daga þegar sérstakt til-
efni gefst. Er gert ráð fyrir því
I að byrja dagskrá ávallt kl. 20.00
en senda endurtekið efni síðdegis
á laugardögum og sunnudögum.
Gert er ráð fyrir 15. mínútum í
fréttir og >15 mín. í auglýsingar,
k1. 20.30 til 21. í dagskrársýnis-
hórnum er frumflutt íslenzkt efni
40-50.% af heildartíma dagskrár-
innar. Við þetta bætast síðan
| fréttamyndir og fræðslukvikmynd
ir, þar sem íslenzkt tal yrði flutt
með myndunum og stærri kvik-
myndir, þar sem íslenzkir textar
yrðu með. Sem dæmi um sjón-
varpsefni má nefna samtals- og
spurningaþætti ýmiss konar,
barnaþætti, einfalda tónlistar-
viðburði, einföld leikrit, þar sem
ekki er krafizt umfangsmikillar
sviðsgerðar, ýmsa atburði, sem ger
ast á takmörkuðum bletti, erindi,
sem skýrð eru með ýmis konar
myndum og íslenzkar kvikmyndir.
Erlent efni yrði fyrst í stað allt
á kvikmyndum, en síðar koma ef-
laust scgu’bönd til skjalanna. Afla
mundi verða langra kvikmynda,
sem upphaflega eru gerðar fyrir
kvikmyndahús, og textar þá ýmist
verða skriflegir neðanmáls eða
lesnar öðru hvoru efn'=skýringar.
í kvikmyndir eða leikrit, sem sér-
staklega eru tekin fvrir siónvarp,
en í þessum flokki eru flestir vin
sælustu sjónvarosbætti veraldar,
yrði einnig að setia neðanmá’s-
texta, en láta tón frummyndarinn-
ar halda sér. Með erlendum
fræðslumyndum vrði ávallt að
flytia islenzkt 'al. Eru s’fkar mynd
ir oft tengdar stórviðburðum sam
tíðarinnar, og bá eiarnan samfeUt.
yfir’it, sem gert er úr beztu frétta
myndum. Gert er ráð fvrir bvf, að
gera fasta samninga við eit' eða
fleiri albióðiee fvrirfæki um kaun
fréttakvikmvnda. sem þá myndu
berast hingað með svo til hverri’
flugvél. V'ð slfkt efni vrði ís-
lenzkur texti. Við eriendar tón-
listarmvndir er og auðvelt að gera
íslenzkt tal.
sV SWlos'énvorn,
Þá hefur sérstök athugun verið
gerð á skilyrðum bess að taka unn
íslenzkt skó1a=iónvart>. en með
því er átt við dagskrá, sem beint
væri inn í skólana og nemendur
tiltekinna bekkia horfðu á í
kennslustundum í skólanum. Sér-
stök ásæða er. t'l be=r nð benda á
bvðingu sión'ifyrtr
dreifbýli, þar sem erfitt er að
nióta starfs sérmenntaðra kenn-
ara í cinstökum greinum og dvr
kennslutæki eru ekki til ráðstöf-
unar.
'fo Evrópnkerfi.
Svo sem kunnugt er, eru mis
munandi kerfi notuð við sjónvarp
og eru þau auðkennd með línu-
íjölda 1 mynd hvers og eins.
Helztu kerfin eru brezka kerfið,
sem hefur 405 línur, ameríska
kerfið, sem hefur 525 línur og
evrópska kerfið, sem hefur 625 lín
ur. Allir, sem til hefur verið leit
að, eru sammála um, að hér á
landi eigi að taka evrópukerfið
625 línur. Það hentar þeim raf-
straumi, sem hér er notaður, og
er talið betra en hin kerfin að
ýmsu leyti. Sjónvarpsstöð varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli not-
ar ameríska kerfið. Af þeim sök-
um eru öll móttökutæki, sem flutt
1 hafa verið til landsins ýmist fram
leidd til að taka á móti sendingu
þess kerfis eða þeim hefur verið
breytt í það horf. Hins vegar er
talið auðvelt að breyta tækjum
þannig, að þau geti tekið við send
ingum samkvæmt evrópska kerf-
inu.
ýíf Skipulavsinál.
Um skipulagsmál íslenzlcs sjón
varps er það að segja, að sjón-
varpsnefndin telur tvímælalaust
hagkvæmt og skynsamlegt, að
sjónvarp verði deild í Ríkisútvarp
inu við h ið hljóðvarps. Við það
sparast verulegt fé, þ. e. ekki þurfi
þá sérstakt skrifstofuhald til að
stjórna sjónvarpinu og margvís-
legur annar kostur geti verið sam
eiginlegur. Segir í skýrslunni, að
í nágrannalöndum, sem fregnir
fari af, liafi sjónvarp vaxið upp
undir handarjaðri hljóðvarps, og
eigi þetia jafnt við u>n ríkisstofn
anir í Evrópu sem einkafyrirtæki
í Ameríku. Hins vegar telur nefnd
in rétt, að þegar tveggja til þriggja
ára reynsla hafi hlotizc af ís’enzku
sjónvarpi, þá sé tímabært að taka
heildarlöggjöfina um útvarp til
endurskoðunat, enda sé hún í
meginatriðum orðin 30 ára gömul.
■fe. Ákvörðun innan
skamms.
Þessi eru þá aðalatriði skýrslu
sjónvarpsnefndarinnar, sem starf
að hefur undanfarna mánuði og
hefur nú nýlokið störfum. Ég tel
nefndina hafa unnið hið ágætasta
starf og mjög ánægjulegt, að hún
skuli hafa orðið sammála um nið-
urstöður sínar. Ég tel aihuganir
nefndarinnar hafa leitt i ljós, að
stofnun íslenzks sjónvarps er vel
framkvæmanleg frá fjárhagslegu
sjónarmiði og tel því engan vafa
á að í slíkt verði ráðist. Takmark
ið hlýtur og að vera það, að all-
ir íslendingar eigi þess kost að
^njóta sjónvarps, svo mikilvægt
menningartæki, sem það getur
verið. Spurningin er sú, hversu
langan tíma eigi að ætla til þess
að byggja dreifingarkerfi fýrir
landið allt, og hvernig eigi að afla
fjár til framkvæmdanna og til
þess að standa undir rekstrar-
kostnaði sjónvarpsins. Það mál
þarf að sjálfsögðu rækilegrar at-
hugunar. En, eins og ég gat um áð
an, eru ekki nema nokkrar vikur
síðan ríkisstjórnin fékk hina ítar
legu skýrslu sjónvarpsnefndarinn-
ar í hendur. Þessar vikur hafa
verið annatími, svo sem háttvirt-
um þingmönnum er manna bezt
kunnugt, og mun því varla nokk-
ur sanngjarn maður ætlast til
þess, að ríkisstjórnin hafi þegar
tekið endanlegar ákvarðanir í svo
mikilvægu máli. Hins vegar muih
ríkisstjómin hraða umræðum sfn
um og athugunum ef ir fön |im,
og er það von mín, að ákvarðanir
í þessu mikilvæga máli verði tekn
ar innan mjög skamms tíma.
'OlRj
.FLUGFERÐIR
Flugáætlun Loftieiða
Laugardagur: Flugvél Loftleiða er
væntanleg frá NY kl. 7.30. Fer til
Luxemborgar kl. 09,00. Kemur til
baka frá Luxemborg kl. 23.00. Vél
er væntanleg frá K.höfn og Gauta
borg kl. 23.00. Fer til NY kl. 00.30
Vél væntanleg frá Stafangri og
Osló kl. 23.00. Fer til NY kl. 00.30
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 9. maf 1964 13