Alþýðublaðið - 10.06.1964, Síða 5
Verðlækkun á jap-
önsku mósaíki hér
Rcykjavík, 5. júní - HP
FALUR hf. í Kópavogi, sem nú
hefur starfað í 7 ár boðaði ,til
blaðamannafundar í dag, en hér-
lendis er nú staddur hr. Kasuge,
stjórnarformaður Binko Sangyo
Company Ltd., Kagoya í Japan,
en Falur hf. liefur umboð liér á
landi fyrir það fyrirtæki. Eftir
að rýmkað var um innflutnings-
höft liefur mjög mikið verið flutt
inn af mósaik frá .Tapan,
Margir kannast eflaust við.,,jap-
anska mósaíkið”, sem þekkt er fyr-
flutningurinn var bundinn. við
vöruskiptalöndin, var verðið kr.
400.00 fermetrinn. Hér er um
mikia verðlækkun að ræða, ca.
30% og raunverulega meiri, því
að gengisbreyting hefur orðið, og
gæði japanska mósaíksins eru
meiri en þess, sem áður fékkst.
Svipaða sögu er að segja um aðr
ar vörur, sem Falur hf. hefur um-
i boð fyrir. Expandet- múrtappar
j eru t. d. miög vinsælir hér á landi,
en fyrirtækið fékk umboð fyrir þá
vöru á síðastliðnu hausti. Lækk-
ir gæði og gott verð. Má í því sam- . aði bá verðið jafnframt um helm-
bandi geta þess, að núverandi smá
söluverð á veggmósaíki er kr.
280.00 (meðalverð), en þegar inn-
ÁLISUNDI
VERKSMIÐJUTOGAUINN
Longva, sem er eini verksmiðju-
togari Norðmanna fær nú ágætan
afla á Grænlandsmiðum. Á einum
mánuði hefur togarinn fiskað og
fullverkað 225 tonn af þoskflök-
um. Verði veiðin áfram sem þessi
mun skipið fulllesta fyrr en búizt
Iiafði verið við. Verð á þorskflök
um er miög vel viðunandi nú. Skip
ið losar afla sinn í Grismby.
ing frá því, sem áður var. Þá má
nefna Ticino-raflagningarefni,
ítalska framleiðslu, sem liér hefur
nú verið notuð í 7 ár. Af helztu
nvjungum, sem Falur hf. hefur
nú á boðstólum, má nefna sænskar
nlötur í loft. mjög auðveldar í upp
setningu, enda eru þær málaðar
og því liægt að setja þær upp síð-
ast. og englr naglar sjást eftir upp-
setningu. Stutt er einnig síðan Fal
ur t.ók að flytja inn sænskar plast-
skúffur og plastgrindur, sem
mikið eru notaðar við innrétting-
ar, t. d. í eldhús, fataskápa o. fl.
Þær eru ódvrari en tréskúffur og
að mörgu leyti hagkvæmari, enda
mikið notaðar á Norðurlöndum.
Róðrasveit frá ísbirninum
sigraði í róðrarkeppni
kvenna, sem fram fór í
Rcykjavíkurhöfn á sjómanna
daginn. Myndin er tekin af
stúlkunum að sigri loknmn.
(Mynd. J. V.)
Leiðbeint um starf^
rækslu elliheimila
Felagsheimilt
við Skipholt
Reykjavík, 8. júní. — KG.
NÚ hefur verið skipulagt leið-
beiningarstarf fyrir þá, sem
hafa áhuga á að kynna sér stofn-
un og rekstur elliheimila. Er þetta
gert að undirlagi Gísla Sigur-
björnssonar forstjóra Ellihehnil-
Isins Grundar. Hefur hann fengið
Eér til aðstooar tvo arkitekta,
byggingarfræðing og tvo lækna.
Þá er nú verið að hefja byggingu
á litlu tveggja íbúða timburhúsi
f Hveragerði á vegum elliheim-
tlisius þar og verður það fyrsta
húsið af átta, sem reisa á. Er að-
eins eftir að fá trésmið til þess
að taka að sér verkið og vonar
Gísli að ekki liði á löngu þar til
hann kemur í leitirnar.
»
Á fundi með fréttamönnum í
dag sagði Gísli, að undanfarin ár
hefði oft og mörgum sinnum verið
leitáð til sln á Grund Vegna stofn-
unar og reksturs á elliheimilum.
og hefði þá að sjálfsögðu verið
reynt að veita leiðbeiningar eftir
föngum. En nú hefði verið horfið
að því ráði að fá nokkra: "sér-
fróða menn til frekai i aðstoðar.
Þeir eru, arkitektarnir Þórir Bald
vinsson og Ragnar Emilsson og Sig
urður Geirsson, byggingarfræð-
ingur, sem munu veita upplýsing-,
ar viðvíkjandi húsaskipan og bygg-
ingar, en þeir hafa allir kynnt
sér erlendis bygglngar fyrir aldrað
fólk. Karl Sigurður Jónsson ,yfir-
læknir og Alfreð Gíslason læknir,
sem báðir hafa' starfað á Gimnd
um langt árabil munu veita upp-
lýsingar um það, sem snýr að
heilsu og heilbrigði og svo mun
Gísli sjálfur veita upplýsingar um
það, sem snertir skipulag, stofn-
un og rekstur. Þá geta þeir, sem
. hug hafa á því að koma upp elli-
heimilum í sínu héraði fengið
tækifæri til þess að kynna sér
starfsemina á Grund og að Ási
í Hveragerði. Ennfremur mun
verða tekið á móti væntanlegu
starfsfólki við slík elliheimili til
þjálfunar og kynningar í störf- j
um ef óskað er.
Öll þessi aðstoð og upplýsingar
verða veittar fyrirspyrjendum að
kostnaðarlausu.
Yonar Gísli að þetta megi verða
til þess að auðvelda þeim, sem
áhuga hafa á vandamálum eldra
fólksins, starf þeirra. Enda sagði
Gisli, að það sem fyrst og fremst
skorti í málum eldra fólksins
væri fólk, sem hefði áhuga og
tíma til þess að sinna þeim mál-
lun. Með þessu væri enn á ný
verið að reyna að fá fólk í svéit-
um og kaupstöðum til þess að
(FranJiald & 10. siða).
Reykjavík, 4. júní. — HP.
Meistarafélag húsasmiða og
fleiri aðilar hafa nú í hyggju að
reisa um 700 fermetra hús í Skip-
holti 70. Ef af því verður, er
gert ráð fyrir, að á efri hæðinni
verði fundarsalur og skrifstofur
fyrir meistarafélagið, sem fengi
þar þá allgóða aðstöðu til félags- i
starfsemi sinnar, en neðri hæðiu
yrði verzlunarhúsnæði, þar sem |
fyrirhugað er að reka nýlendu-
vöru- og mjólkurbúð, brauðgerð,
kjötbúð og fiskbúð.
Á síðasta fundi byggingar-
nefndar var lögð fram fyrirspurn
frá Meistarafélagi húsasmiða o.fl.
um, hvort leyft yrði að hefja bygg
ingarframkvæmdir samkvæmt
meðsendri teikningu á lóðinni nr.
70 við Skipholt, og var bygging-
arfulltrúa^falið að svara erindinu,
sem líklegt má telja að verði
samþykkt. Eins og fyrr segir, er
hér um 700 fermetra byggingu að
ræða, sem Daníel Einarsson,
tæknifræðingur, hefur teiknað.
Byggingin verður á tveimur hæð-
um, en þrír aðilar standa að
byggingu liennar. Það eru Meist-
arafélag húsasmiða, Chr. Christi-
ansen, verzlunarmaður og Jóhann
Hafliðason, fisksali. Auk þeirra
vérzlana, sem gert er ráð fyrir
á neðri hæðinni, verður þar
dreifistöð fyrir Rafmágnsveitu
Reykjavíkur.
Á efri hæðinni verður meist-
arafélagið með starfsemi síná, en
það hefur undanfarin ár haft mik-
inn hug á að útvega sér hentugft
húsnæði fyrir hana, en hún fer
sívaxandi. Einnig gæti komið til
mála að flytja endurskoðunar-
skrifstofu þá í sambandi við upp-
mælingu, sem félagið hefur und-
anfarið rekið í leiguhúsnæði á
Suðurlandsbraut 12, í nýja húsiST
við Skipholt, þegar þar að kemur.
I
VERKFRÆÐIHÁSKÓLINN í Niíf
arósi (Norges Tekniske Höjsko!a»
Trondhcim) mun væntanlega veitsr
fáeinum íslenzkum slúdentunD
skólavist á vetri komanda. Þeir,.
sem kynnu að vilja koma til greins*
sendi Menntamálaráðuneytinu un».
sókn um það fyrir 25. júní n.k„
Umsókn fylgi fæðingarvottorð,
staðfest afrit stúdentsprófsskírteíD
is og meðmæli, og skulu öll gögi>
in vera þýdd 'á norsku, dönsku eö»
sænsku. Umsóknareyðublöð fást I'
menntamálaráðuneytinu, Stjórn-
arráðshúsinu við Lækjartorg. At-
hygli skal vakin á því að einungis
er um skólavist að ræða en ekkí
styrkveitingu.
(Frétt frá Menntamálaráðuneitinu>
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 10. júní 1964 §