Alþýðublaðið - 10.06.1964, Page 14
Það er hárrétt, sem heim-
spekingurinn segir, að mað-
á að skilja lífið afturábak.
En þá gleymist önnur setn-
ing, sem segir okkur, að mað
ur verði að lifa lífinu á-
fram . . .
K
Bræðslusíld
CFramhald af X. siSu).
íögðu má svo ekki líta á þessa
upptalningu sem heildarafla flot-
ans, því mörg skipanna hafa lagt
íöluvert magn upp annars staðar
í.vo sem í Krossanesi, Eskifirði og
víðar.
Er blaðið ræddi við síldarleit-
ina á Raufarhöfn um tíuleytið í
kvöld, var veður goti á miðunum.
Bátarnir höfðu verið að kasta í
allan dag, en ekki voru margir
á landleið. Á Raufarhöfn eru nú
ailar þrær að verða fullar og verk
smiðjan átti að byrja að bræða í
nótt. Síldaríeitin á Siglufirði átti
að taka til starfa í kvöld eða nótt.
Útvarpstæki
(Framhald af 1G. síðu).
á orði að ekki væri mikill
gróði að því að kaupa útvarps
tæki á tíu krónur, sem ef til
vill reyndist svo gjörónýtt, en
komast um leið á notendaskrá
og þurfa þar eftir að greiða
iðgjald á ári hverju.
Uppboðið var fjörugt enda
margt um manninn. Ýmsir voru
grunaðir um að vera þarna að
endurheimta fyrrverandi eign-
ir sínar, því ósleitilega var
boðið í sum tækin, sem satt
að segja virtust ekki mikils
virði við fyrstu sýn.
Auk útvarpstækjanna var
þarna boðin upp ein forláta
stofuklukka. Uppboðshaldarinn
var beðinn að lyfta henni
liærra svo fleiri mættu sjá
gripinn. Um leið og hann hóf
klukkuna á loft hringlaði mjög
í klukkukassanum og sagði þá
einhver, — að þar heyrðist í
gangverkinu. Klukkan var sleg
in á tvö liundruð og sextíu
krónur.
8.409 tonn
(Framhald af 16, stSu).
Mb. Jón Jónsson net 79 róðrar
1.076,920.
Mb. Valafell, lína og net 91 róð
ur 928,415.
Mb. Jökull, net 71 róður 788,090
Mb. Sveinbjörn Jakobsson net
52 róðrar 762,830.
Mb. Hrönn, iína og net, 86 róðr
ar 716,375.
Mb. Freyr, net 52 róðrar 463,-
380
Mb. Bárður Snæfellsás, lína og
net 66 róðrar 432.855.
Mb. Víkingur net 52 róðrar
248.720.
Mb. Þórður Ólafsson, net 20
róðrar 118,980.
Ýmsir aðrir bátar 752,470.
Hraðfrys Jhús Ólafsvíkur hf. og
Kirkjusandur hf. keyptu afla bát
anna og var hann verkaður í salt,
skreið og frystur.
Formaður á Stapafelli var Guð
mundur Kristjónsson. Hann er
ungur maður. f. 11. 8. 1933. Hann
hefur verið formaður frá 1958,
fyrst á Víkingi og síðan á Stapa
felli. Hann hefur al a tíð verið í
röð fengsælustu fiskimanna okk-
ar.
8 bá ar búast nú til síldveiða
og munu þeir fara norður upp úr
helginni.
MALBIKUN
Frh. af 16 síðu.
hvort af framkvæmdum verður
þar.
Ætlunin er að hin nýja malbik-
unarstöð borgarinnar, sem- stað-
sett er inn við Ártúnshöfða fari
í gang núna næstu daga, en í
vetur hefur verið unnið að ýms-
um endurbótum á henni. Þessi
stöð var keypt frá Danmörku í
fyrra og hefur reynzt mjög vel, en
hún var í gangi um tíma síðsum-
ars í fyrra. Hámarksafköst henn-
ar eru 60 tonn af malbiki á
klukkustund. Þessi stöð mun vera
undirstaða hinna miklu malbik-
unarframkvæmda sem áætlaðar
eru nú.
3
Miðvikudagur 10. júní
7.00
Morgunútvarp (Veðurfregnir — Tónleikar —
7.30 Fréttir — Tónleikar — 7.50 Morgunleik-
fimi — 8.00 Bæn — Tónleikar — 8.30 Frétt-
ir — Veðurfregnir — Tónleikar — 9.44 Út-
dráttur úr forustugreinum dagblaðanna —
Tónleikar — 9.30 Húsmæðraieikfimi — Tón-
leikar — 10.05 Fréttir — 10.10 Veðurfregnir).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar — 12.25 Fréttir —
Tilkynningar).
„Við vinnuna": Tónleikar.
Síðdegisútvarp (Fréttir — Tilkynningar —
Tónieikar — 16.30 Veðurfregnir — Tónleik-
ar — 17.00 Fréttir. — Tónleikar).
Lög úr söngleikjum.
Tilkynningar.
Veðurfregnir.
Fréttir.
Ljóðlestur útvarpsins á listahátíð:
13.00
15.00
Jóhannes úr Kötlum les kvæði eftir Bjama
Thorarensen.
20.20 Einsöngur: Engel Lund syngur íslenzk þjóð-
lög.
20.35 Trúræn skynjun; síðara erindi.
Séra Jakob Jónsson flytur.
21.00 „Bergmál frá ítalíu“: George Feyer leikur
á píanó.
21.20 Þegar ég var 17 ára: Flýtur á meðan ekki
sekkur. Steindór Hjörleifsson flytur frásögu
eftir Norðling.
21.45 Frímerkjaþáttur. -
Slgurður Þorsteinsson flytur.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kvöldsagan: „Örlagadagar fyrir hálfri öld“
eftir Barböru Tuchman; VIII.
Hersteinn Pálsson les.
22.30 Lög unga fólksins.
Bergur Guðnason kynnir.
23.20 Dagskrárlok.
Ýmsir fárast yfir því,
— affrir standa og gapa —
aS landsliðsboltaleiknum í
Ii9 vort skyldi tapa.
Öllu betra er íslenzkt kyn,
— andinn hár og digur —.
í hlutfalli við höfúðin
höfum vér alltaf sigur.
Kankvís.
* Langholtssöfnuður. Er til við-
tals i safnaðarheimili Langholts-
prestakalls aUa virka þriðjudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl. 5-7,
svo og klukkustund eftir þær guðs
þjónustur, er ég annast. — Simi
35750. Heima: Safamýri 52. Sími
38011. — Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson.
Frá Sjálfsbdörg.
Skrifstofa Sjálfsbjargar er einn
ig opin frá kL 5—7.
Kvenfélag Laugarnessóknar
fer í Heiðmörk í kvöld. Farið
verður frá Laugarneskirkju kl.
7,30. Félagskonur fjölmennið og
bjóðið eiginmönnunum með.
ATHYGLI skal vakin á tilkynn-
ingu frá Flugfélagi íslands þess
efnis, að eftirleiðis verður ekki
hringt í fárþega í innanlandsflugi
nemá áætlun breytist. Flugvélar
fara yfirleitt samkvæmt áætlun og
er svo til ætlazt, að menn, sem
fljúga ætla innanlands, mæti á
flugvelli hálftíma fyrir áætlaðan
brottfarartíma vélarinnar.
LÆKNAR
Nætur- og helgidagavarzla 1984
Kvöld- og næturvörður LR f dag.
Kvöldvakt kl. 17.00—0,30. Nætur-
vakt: Haukur Jónsson. — Á næt-
urvakt: Andrés Ásmundsson.
Neýðarvakt LR miðvikudaginn
10 júní er Björn Önundarson.
& VECI R B C1
Veðurhorfur: Hægviðri, léttskýjað með köfl- um. í gær var austan gola eða kaldi og víðast þurrt veður þó voru nokkrar skúraleiðingar vest-
an andvari og 9 stiga hiti.
Maður veit aldrei hvað
maður á marga vini fyrr
en karl og kerling fara í
sumarfrí og maður er
einn í lókalinu.
14 10. júní 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ