Alþýðublaðið - 23.06.1964, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 23.06.1964, Blaðsíða 5
UNTGMENNASAMBAND A,- Húnvetninga liefur um margra ára skeið rekið menningarstarf semi hór f sýslunni. — Vildi ég vekja athygli á því að starf þess er fjölþættara, en marg ur gerir sér grein fyrir. Saga þess var skrifuð í „Skinfaxa" á síðastliðnu ári, en þá var sambandið — eða U.S.A.H. eins og það er venjulega kall- að — 50 ára. Sögu þess skrif- aði Steingrímur Davíðsson fyrr verandi skólastjóri, sem- um margra ára skeið, stóð framar- lega í þeim félagsskap. U.S.A.H. hefir árlega geng- izt fyrir íþróttamótum 17. júní. Það hefur kostáð íþrótta- kennara, sem farið hefur milli sambandsfélaganna á hverju vori, nú í mörg ár. Kostnaður við íþróttastarf þetta, hefur verið árlega frá kl. 20—50 þús und. En það má segja að árang urinn hafi orðið góður, því sam bandið hefur átt allmarga á- gæta íþróttamcnn. Þó hefur U.S.AcH. starf- rækt skemmtiviku, á hverjum vetri, nú í nær 20 ár. Skemmti vika þessi hefur lilotið riafnið „Húnavaka". Oítast hafa skemmtikraftar Húnavökunnar verið hér úr sýslunni, — sjón leikir, Kórsöngur, ýmsir skemmtiþættir, og svo auðvitað dans. Hafa þessar skemmtanir átt við þröngan og erfiðan húsakost. að búa, þangað til á síðastliðnum vetri, að hið á- gæta Félagsheimili tók til starfa hér á Blönduósi. Að- sókn hefur alltaf verið góð. Á síðustu Húnavöku voru seldir, um 3000 heilmiðar á skemmtiatriði, auk þess mikið af barnamiðum. Dansleiki sóttu um 1900 gestin. U.S.A.H. er eignaraðili 'í nýja Félags- heimilinu á Blönduósi. Er hlut ur þess 15% af kostnaðarverði. Upp í þann hlut, er nú búið að greiða kr. 200.000.00. Þá styrkti það félagsheimilið. „Húnaver“ á sínum tíma, með kr. 50.Ó00. 00. Ennfremur er ráðgert, að það styrki félagsheimili á Skagaströnd, sem nú er í smíð um. Þá styrkti það byggingú Héraðsliælisins á Blönduósi á sínum tíma og sundlaug að Reykjum á Reykjabraut rak það um árabil. Nú í 4 ár hefur U.S.A.H. gef ið út rit, sem nefnist „Húna- vaka“. Tvö fyrstu árin var það fjölritað, en 2 síðari árin prent að. Flytur það fréttir úr Húna- þingi, og margskonar efni, til skemmtunar pg fróðleiks, og er mjög eigulegt rit. Ritstjór- ar eru Þorsteinn Matthíasson skólastjóri og Stefán A. Jóns- son kennari. Veit ég að þeim væri þökk á, ef Húnvetningar heima og heiman, sendu þeim efni til birtingar í ritinu. Einn ið hefur U.S.A.H. gengizt fyrir skákmótum hér á vetrum. Skákþing Norðiendinga, var að nokkru leyti á vegum þess síð astliðinn vetur, og er nú einn ágætur ungmennasambandsfé- lagi Jónas Halldórsson skák- meistari Norðurlands. Stjórn U.S.A.H skipa nú: Kristófer Kristjánsson form., Ari Einarsson varaform., Pétur Sigurðsson gjaldkeri, Stefán A. Jónsson ritari og Ingvar Jóns- son meðstjórnandi. Eins og sjá má af framanrit- uðu, hefur U.S.A.H. í mörg horn að líta, og mikið og óeigin- gjarnt starf unnið af þeim mönnum, sem stjórna þessum málum á hverjum tíma. Guðmann Hjálmarsson. HÚN ÞEKKIR LEYNDARMÁLIÐ. Hún veit að LOXENE Medicated Shampoo með hinni heil- brigðu nærandi sápu tryggir henni fagurt, heilbrigt og flösuíaust hár. LOXENE ER FEGRANDI KAUPIÐ shampoo STRAX í DAG. Heildsölubirgðir: KRISTJÁN Ó. SHAGFJÖRÐ H.F., Reykjavík. Reykijavík, 20. júní — HP I IIINNI nýju vegaáætlun Alþing- is fyrir árið 1964 eru yfir 60 millj- ónir króna ætlaðar til nýbygging- ar þjóðvega, scm í s’órmri dráttum er skipt í þrennt, hraðbrautir, þjóð' brautir og landsbrautir. Til lirað- brauta verður varið ?0 milljónum til þjóðbrauta 24.7 og landsbrauta 27.2 á þessu ári. Ekki verður þó unnið að beinum framkvæmdum fyrir all þetta fé í sumar, þar eð smnt af því rennur til að greiða vexti og afborganir al' lánum til verkefna, sem þegar er lokið eða vel á veg komin. Fénu til hraðbrautanna verður í ár varið til vegagerðar á Reykja nesbraut eða Keflavíkurvegi og Þrengslavegi, 6,8 millj. verður varið til Keflavíkurvegarins og fer það fé að mestu í afborganir af lánum, en talsvert verður unnið í Þrengslaveginum fyrir samtals 3.2 milljónir. Þá er komið að þjóðbrautunum, og verður unnið að breytingum á veginum hjá Þyrli í Hvalfirði fyr- ir 1.9 miiljónir. Eijinig verður unnið að vegagerð í Gilsfirði og Grundarfirði, og á Vestfjarðavegi verður byrjað á veginum framhjá Þingmannaheiði — „með fjörð- um“ — og unnið þar fyrir um 800 þús. kr. Fyrir 300 þús. kr. verður einnig unnið á Breiðadalsheiði á Vestfjarðarvegi, og 500 þús. kr. verður varið í strandveg og öðrum 500 þús. kr. í Barðastrandarveg. Á Norðuriandsvegi verður unn- ið hingað og þangað fyrir alls 750 þús. kr. Af framkvæmdum þar má nefna vegagerð og vegabætur í Langadal og austan við Blönduós í Reykjadal, vá Mývatnsheiði og kringum Mývatn. í Strákavegin- um verður unnið fyrir samtals 5 milljónir króna, mest lánsfé, en í Sig'ufjarðarvegi verður sam- kvæmt áætlun varið kr. 1.5 millj- ónum. Á veginum úr Fljótum um Ólafsfjörð til Akureyrar verður unnið fyrir 1,4 millj, einkum á kaflanum fyrir Múlann. Þá verð- ur 2.2 mi'ljónum varið til vega- gerðar á leiðinni frá Húsavík um Tjörnes, Kelduhverfi og Kópasker til Þórshafnar og unnið þar á ýms um stöðum. Til þjóðbrauta á Austurlands- vegi frá Jökulsá á Fjöllum að Höfn í Hornafirði renna 3.6 millj- ónir, og verður á þeirri leið unnið á 68 stöðum. Á Hellislieiði milli Vopnafjarðar og Héraðs er áætlað að vinna fyrir 600,000 kr., en á Norðfjarðarvegi fyrir 1.1 miilj- ón, einkum á Fagradal og kring- um Eskifjörð, Fyrir 750.00 kr. verð ur unnið að vegagerð á Suðurfjarð arvegi frá Fáskrúðsfirði til Breið dals um Stöðvarfjörð. Á Suðurlandsvegi frá Vík í Mýr dal til Selfoss á að vinna fyrir 1.4 millj. í sumar og á Þingvallavegi fyrir 600.00, en sú upphæð fer að mestu til greiðsiu skulda . Á mörgum stöðum verður unn- ið fyrir þær 27,2 milljónir, sem ætlaðar eru til landsbrauta, en fjárveitingin til þeirra er samtals i 85 liðum. Mesíu framkvæmdirn ar í sambandi við landsbrautir verða á Vestfjörðum frá Bildudal á Vestfjarðarveg um Trostans- Framh. á bls. 13 Síldarstúlkur vantar okkur til Siglufjarðar — Raufarhafnar — Vopna- fjarðar. — Fríar ferðir og kauptrygging. Stúlkurnar verða fluttar til milli staða eftir því scm síldm verður. Upplýsingar í síma 34580. Gunnar Halldórsson h.f. __________ Laugardagsfrí orðiti algeng Reykjavík, 2Ó. júní. — GG. ÞAÐ er mikil hreyfing í þá átt hjá fyrirtækjum, sem við semjtun við, að Ieyfa skrif- stofufólki að vinna af sér laug- ardagana, sagði Magnús L. Sveinsson, framkvæmdastjóri Verzlunarmannafélags Reykja víkur, er við ræddum við hann í dag. Þetta fyrirkomulag hef- ur þegar komizt á. fyrir all- löngu hjá mörgum fyrirtækj- um og á vafalaust cftir að brciðast út, og höfum við ekk- ert nema gott um það að segja. Auk þess má svo benda á, að það hefur þegar í mörg ár vcrið geysilega útbreitt meðal verkamanna og iðnaðarmanna, að þeir ynnu af sér laugardag- ana. Hefur það verið gert þann ig, að vinna hefst kl. 7,20 og einn dag vikunnar er unnið klnkkutímá lengur. Af þessu sést, að fimm daga vinnuvika flestra starfshópa nálgast stöðugt. Fyrstir fengu verkamenn hana,'síðan hafa, mörg einstök kaupsýslufyrir- tæki farið inn á svipaða braut og leyft starfsfólki sínu að vinna af sér laugardagana, og nú síðast hafa ríki og borg gert slíkt hið sama. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. júní 1964 $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.