Alþýðublaðið - 05.11.1964, Síða 9
agsins Framsóknar
JÓNÍNA JÓNATANSDÓTTIR
fyrsti formaður félagsins.
JÓHANNA EGILSDÓTTIR
formaður félagsins í áraraðir.
JÓNA M. GUÐJÓNSDÓTTIR
núverandi formaður félagsins.
Hér er ekki mögulegt að lýsa
baráttu verkakvenna í einstökum
kaupdeilum, en sú saga er þó
merkileg og viðburðarík eins og
raunar annarra verklýðsfélaga frá
frumbýlingsárunum. Verkakon-
urnar háðu margar orrustur og
stóðu oft í verkföllum og fór kaup
ýmist hækkandi eða lækkandi og
aðbúð við vinnu ^eranandi og
batnandi. Þetta fór ekki aðeins
eftir samheldni verkakvenna
sjálfrá heldur og eftir því hvern
ig aflabrögð voru og verð á fiski
á hverjum tíma. Það var þá ekki
hægt að leita sér vinnu annars-
staðar meðan á deilunni stóð.
í raun og veru vann verka-
kvennafélagið ekki fullnaðarsigur
í átökunum við atvinnurekendut
fyrr en um og upp úr 1930, er
verklýðshreyfingunni óx mjög
fiskur um hrygg um land allt.
En smátt og smátt og á hverju
sem gekk í kaupgjaldsbaráttunni,
óx afl og félagssambeldni í Fram
sókn. Félagið fór hins vegar ekki
varhluta af átökunum innan verk
lýðshreyfingarinnar upp úr 1926
og síðan svo að áratugum skiptir,
en sundrungadjöfullinn náði aldrei
tökum á félaginu og kommúnist-
um tókst aldrei að veiða það í sín
svikanet. Það fór fyrir því eins
og Sjómannafélagi Reykjavíkur,
enda sýna verkin merkin. Verka-
kvennafélagið stóð alltaf á verði
gegn suúdrunaröflunum fyrst und .
ir forystu' Jónínu Jónatansdóttur,
sem var formaður þess til 1934,
siðan undlr forystu Jóhönnu Eg-
ilsdóttur, sem var formaður í 27
ár og nú hin síðari ár undir for-
ystu Jónu Guðjónsdóttur.
Frá upphafi stefndi Framsókn
að því, að konur fengju sömu laun
og karlmenn fyrir sömu vinnu.
Það var lítið talað um það mál á
fyrstu árunum, enda þótti það
,,fásinna“, en hert var á eftir að
félaginu og verklýðshreyfingunni
yfirleitt óx ásmegin og Alþýðu-
flokksmenn ræddu um málið á
Ég |p#f
Wmmm.
stjórnmálafundum, í Alþýðublað-
inu og á Alþingi.
Félagið gerði sér það ljóst, að
hér var í raun og veru um stærsta
hagsmuna og réttindamál kvenna
að ræða, og stjórn þess og samn-
inganéfnd drápu á það við samn
ingsborðin næstum því árlega. Fé
laginu var ljósí, að þetta mál var
svo umfangsmikið, að það þyrfti
að plægja og sá árum saman þar
til hægt væri að vonast eftir upp
sjæru. Loks á árinu 1953 tókst að
fá atvinnurekendur til þess að
ganga inn á að greitt skyldi kon
um sama kaup og karlmönnum,
þegar um erfitt st.arf væri að
ræða. En fullnaðarsigur vannst
ekki fyrr en Alþýðuflokknum tókst
með stjórnmálabaráttu sinni að
fá samþykkt á alþingi frumvarpið
um launajafnrétti kvenna í áföng
um. Nú hafa konurnar náð 91.1
af hundraði vinnunnar undir
þessi lagafyrirmæli, en sam-
kvæmt lögum skal greiða öllum
konum fyrir alla vinnu sama kaup
og karlmönnum árið 1967 og þá
er launajafnréttið komið á.
Þetta er tvimælalaust stórkost-
legasti' sigurinn, sem verkakonur
hafa unnið síðan þær risu upp
og stofnuðu félag sitt.
Það væri .l^istandii að geta
margra góðra kvenna, sem unnið
hafa fyrir Framsókn á liðinni
hálfri öld. Að sjálfsögðu ber hæst
Jónínu Jónatansdóttur, sem átti
upptökin, gaf félaginu nafn og
stjórnaði því í 20 ár. Jóhanna Eg
ilsdóttir vann eins mikið starf
og Jónina eftir að hún kom í
stjórn félagsins — og oft mæddi
mest á henni og félagssystrum
hennar ' stjórninni: Sigriði Ólafs
dóttur, Jóhönnu Blöndal, Stein-
unni Þórarinsdóttur, svo að aðeins
.fáar séu nefndar úr baráttunni
þegar erfiðast var og andstaðan
hörðust. En hér skal láta staðar
numið með að telja nöfn. Sann-
leikurinn er sá, að mikill fjöldi
Framhald á 10 síðu
47 ára afmæli
Sovétríkjanna
minnst í Austurbæjarbíói föstudaginn 6.
nóvember kl. 9 s. d.
Avarp: Sendiherra Sovétríkjanna.
Ræða: Sverrir Kristjánsson.
Listdans þriggja nemenda úr balletskóla
Þjóðleikhússins undir stjórn Fay Werner.
Einsöngur: Kristinn Hallsson.
Cellóleikur: Daníiel Safran.
M. í. R.
SKRIFSTOFA I.N.S.Í.
er opin á mánudögum og fimmtudögum
kl. 7,30 til 8,30. Sími: 14410.
Iðnnemasamband íslands.
M iðstöðvarketi 11
Notaður miðstöðvarketill (spiral) óskast.
1 — 1% rúmm.
Upplýsingar í síma 37010. i
Meö einu símtali í dag
getiö þér tryggt framtíö yðar -
á morgun getur það veriö of
seínt. Hringiö í síma 17700
og ræöið viö „Almennar” um
tryggingar.
^ ALMENNAR
w TRYGGINGARf
PÓSTHÚSSTRÆTI 9
StMI 17700
—111II—11!!■ IIII—IIIIMIIIIllllill I III IIII llll■lllllll■llllll■l■llll ■IIIHI—
ALÞY0UBLAÐIÐ.
5. nóv. 1964