Alþýðublaðið - 05.11.1964, Page 11
Þegar KS tók v/ð
Norðurlandsbikarnum
Eins og komið hefur fram í frétt
um, urðu Siglfirðingar Norður-
landsmeistarar í knattspyrnu 1964
Úrslitaleikur keppninnar fór
fram á Akureyri fyrir nokkru og
vann KS. þá Þór með þrcm mörk
um gegn einu. Tryggðu Siglfirð
ingarnir sér þar með sigurinn.
1 hófi, sem haldið var nýlega
á Siglufirði, til heiðurs Norður
landsmeisturunum, var þeim. af-
hentur bikar keppninnar.
Tómas Hallgrímsson formaður
KS. bauð gesti velkomna, og þá
sérstaklega nokkra velunnara KS.
sem gýnt hefðu félaginu einstaka
velvild og hjálpsemi, hvenær, sem
til þeirra hafi verið leitað. Þeir
hefðu lagt á sig bæði vinnu og
erfiði endurgjaldslaust og styrkt
félagið og starfsemi þess á ýmsan
hátt.
Síðan snéri Tómas máli sínu
meistara. Kvað hann það öllum
Siglfirðingum mikið gleðiefni, að
KS. hafi borið sigur af hólmi í
keppninni um Norðurlandsmeist
aratitilinn. Sagði Tómas, að hin
góða frammistaða strákanna hefði
lífgað upp á deyfð sumarsins á
Siglufirði, og sagðist hann vona
að þeir létu hér ekki staðar num
ið, heldur héldu áfram á þessari
braut. Kvað Tómas hina ungu og
efnilegu KSinga eiga miklar þakk
ir skyldar fyrir glæsilega frammi
stöðu.
Til að undirstrika orð sín um
það hve almenna ánægju það hefði
vakið, að KS. vann Norðurlands-
meistaratitilinn, las Tómas upp
nokkur skeyti, sem félaginu höfðu
borizt af þessu tilefni. Voru þau
frá ýmsum aðilum bæði til sjós
og lands, m.a. frá skipstjóra og
skipshöfn bv. Hafliða og knatt-
spyrnufélaginu Leiftri, Ólafsfirði.
til hinna nýbökuðu Norðurlands Þegar Tómas Hallgrímsson hafði
Aage Schiöth, formaður ÍBS afhendir Frey Sigurðssyni, fyrirliða
lokið máli sínu tók til máls Aage
Schiöth formaður íþróttabanda-
lags Siglufjarðar. Greindi hann
fyrst frá störfum þings Í.S.Í. sem
hann hafði þá nýlega setið, og
kvaðst þess fullviss eftir það, að
aldrei hefði verið meiri gróska í
íþróttamálum þjóðarinnar en í dag
Sagði hann síðan, að sér hefði
verið falið að afhenda Knattspyrnu
félagi Siglufjarðar bikarinn fyrir
Framhald á síðu 13.
Þrír harðir karlar, sigurvegarar í 400 m. grindahlaupi I Tokyo, talíð
frá vinstri: Morale, Ítalíu, Cawley, USA, og Cooper, Englandi.
Guðmundur Þórðarson skrifar frá Svíþjóð:
Slappur árangur Norður
landabúa í frjálsíþróttum
Nörrköping, 23. okt. 1964.
ÞAÐ ER HÉR eins og annarsstað-
ar, eitt aðalumræðuefni meðal
íþróttafréttaritara, er geta eða
réttara sagt getuleysi íþrótta-
manna Iandsins og verða þá frjáls
íþróttamenn einna verst úti. Ég
hef haft mjög góða möguleika til
að sjá Olympíuleikana í sjónvarp-
inu, oft allt að 2 klukkutíma á
dag. Það sem maður hefur séð þar,
heyrt í útvarpinu og lesið í blöð-
unum, hefur haft áhrif og langar
mig nú til að setja niður á pappír
nokkur sjónarmið og hugleiðingar.
Allir geta verið sammála um
það, að Norðurlandaþjóðirnar
hafa staðið sig mun Iakar en búizt j
var við fyrir leikana, og þjóðirnar
hafa orðið fyrir miklum vonbrigð-
um. Að vísu hafa nokkrir komið á
Lið Knattspymufélags Siglufjarðar, sem vann Norðurlandsmeistaratitilinn í knattspyrnu 1964. Ó. R
óvart eins og Nevala í spjótkast-1
ínu. Sárafá landsmet hafa verið
sett en flestir frjálsíþróttamenn
og konur Norðurlanda hafa brugð- ;
ist vonum manna. Því er það, að i
fólk spyr sig sjálft um orsakir
þess og eitt er víst, að framtíðin
mun sýna minnkandi aðsókn að
frjálsíþróttamótum, sem nú er í
minnsta Iagi, mun minnka næsta
ár. Fólk mun ekki koma til þess
að horfa á afrek olympíufaranna
vegna afreka þeira í Japan.
Af hverju hefur árangurinn ekki
orðið betri? Svörin eru auðvitað
mörg, og þau munu verða fleiri, en
ein augljósasta ástæðan er þó án
efa Iiin mikla útþensla, sem
frjálsíþróttirnar eru í nú (eins og
reyndar flestar aðrar íþróttir).
Fjöldi Afríkuríkja hafa komið
fram á sjónarsviðið nú með mjög
góða menn, sem ekkert var vitað
Um áður. og svo virðast Banda-
ríkjamenn verða betri og betri. Og
löndin austan járntjalds sækja
fram á öllum sviðum, enda nota
ríkisstjórnir þeirra landa keppni
eins og Olympíuleika mjög mikið
í áróðursskyni fyrir land og stjórn
arkerfi. Rússum hefur að vísu ekk-
ert farið fram í frjálsiþróttum
nema síður sé. íþróttakappar
þeirra eru flestir þeir sömu og
fyrir 8-12 árum og virðast vera á
niöurleið, vel mettir á sigrum og
framgangi. Rússneska kvenfólkið,
sem hingað til hefur staðið mun
framar en frjálsíþróttakonur ann-
ara þjóða, virðast ekki lengur
neinar ofurmanneskjur. Þær tapa
alveg éins og karlmennirnir. Það
hefðu einhverntíma þótt fréttir,
að rússneskur 10 km. hlaupari
væri einum og hálfum hring á eft-
ir sigurvegáranum og það sjálfur
olympíumeistarinn frá Róm, Bo-
lotnikov.
En það er ekki aðeins keppnis-
mótstaðan, sem er orsök hins lé»
lega árangurs Norðurlandabúa-
Flestir frjálsíþróttamanna Norð-
urlanda komust ekki nálægt sínu
bezta fyrr á keppnisárinu. Eina
af þeim fáu var Svíinn Lars Erik
Gustavsson, sem í undanrásinnt
hljóp á nýju Norðurlandameti og
Framhald á síðu 13.
Hðndbolti
Hér eru lírslít í leikjum yngrí
flokkanna á Meistaramóti Reykja-
víkur í handknattleik.
!
2. flokkur karla:
Ármann—Fram 6:7
KR—Valur 6:14 j
Víkingur—ÍR 10:13
Fram—Valur 8:7
Ármann—KR (A. gaf)
Keppt er í tveim riðlum i 2L
flokki, í a-riðli eru Fram, Árinann,
KR og Valur, en í b-riðli leika ÍR,
Þróttur og Víkingur.
3. flokkur karla:
ÍR—Víkingur 4:6
Valur—Fram 5:3
ÍR—KR 5:8
Víkingur—Valur 1:9.
1. flokkur karla:
KR-Ármann 7:4
Valur—Þróttur 6:7 I
ÍR—Víkingur 6:12,
Fram—KR 6:9. 1
í 1. flokki er keppt í riðlum, i a-
riðli eru Valur, Þróttur, ÍR, og
Vikingur, en í b-riðli eru Fram*
Ármann og KR.
2. flokkur kvenna:
KR—Fram 2:7
Valur—Víkingur 4:2,
KR—Ármann 2:5
Fram—Valur 3:0.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 5. nóv. 1964