Alþýðublaðið - 05.11.1964, Qupperneq 16
Sjávardýrasýning
Reykjavík, 4. nóv. — OÓ.
UM NÆSTU helgi verður opn-
uð í Hafnarfirði fiskasýning á
vegum Hjálparsveitar skáta þar
í bæ. Sýningin verður til húsa
í gömlum fiskaðgerðarhúsum
Bæjarútgerðarinnar við Reykja
víkurveg, gegnt Frost h.f. Á
sýningunni eru 11 ker með mis-
munandi tegundum sjávar- og
vatnafiska. Sýndar eru flestar -
tegundir nytjafiska í sjónum
umhverfis ísland, svo og al-
gengustu vatnafiskar hér á
landi, svo sem lax, silungur og
áB. Þá eru í kerunum margs
konar skelfiskar, krabbar og
sjávargróður. Einnig verða á
sýningunni tveir útselskópar.
Voru þeir veiddir í Þjórsárós-
um og eru þeir nú um mánaðar
gamlir.
Mikil vinna hefur verið við
að koma þessari sjávardýrasýn-
ingu upp, og ótaldir þeir menn
sem þar hafa lagt hönd að
verki. Flestir sjávarfiskanna
hafa verið veiddir af trollbát-
um, sem róa frá Hafnarfirði.
Vatnafiskarnir eru útvegaðir
af Veiðimálastofnuninni og Raf
magnsveitunni. Og ómetanleg
er sú hjálp, sem Fiskideildin
hefur veitt til að koma þessari
sýningu upp. Hafa þar einkum
verið með í ráðum þeir Jón
Jónsson, fiskifræðingur, og
Ingimar Óskarsson, náttúru-
fræðingur.
Emil Jónsson, sjávarútvegs-
málaráðherra, mun opna sýn-
inguna á laugardag. Verður hún
opin um óákveðinn tíma, fer
o'ftir hve aðsókn verður mikil.
Fyrst um sinn verður hún op-
in fyrir skólanema frá kl. 8 til
17 og frá kl. 17 til 22 fyrir al-
menning.
mvtwMmwmvwMvmvmtuvtmutHvw wwvvtvvmvwwvwMvmwvvwvwwvwvvM
FJOLIDJUNNII KÓPAVOGI
ÓHEIMIL NOTKUN NAFNSIN5
Reykjavík, 4. nóv. — GO. i tækið á ísafirði vildi ekki una notk
HÆSTIRÉTTUR dæmdi nýlega í un fyrirtækisins í Kópavogi á nafn
tniáli, sem reis út af samnefni inu og höfðaði mál fyrir Sjó- og
tveggja fyrirtækja, annars á ísa-1 verzlunardómi Kópavogs. Dómur
íirði og liins í Kópavogi. Fyrir- I hans féll á þá leið, að Fjöliðjunni
Skribur kominn á
hyggingamál LR
Reykjavík, 4. nóv. - ÁG
Á FUNDI með fréttamönnum í
Öag, sagði Sveinn Einarsson, leik-
tmsstjóri Leikfélags Reykjavíkur,
að nú væri að komast skriður á
fcyggingamál leikfélagsins. Fram
.feafa farið formlegar viðræður
.fcBÍkhússráðs Leikfélags Reykja-
.vikur og borgaryfirvaldanna um
-síaðsetningu væntanlegs leikhúss
LR.
Helzt hefur verið rætt um lóð
eunnan Miklubrautar, á milli
Kringlumýrarbrautar og Háaleitis
hverfis, en þó engar ákvarðanir
verið teknar. Horfur eru á, að leik
hús þetta rísi innan fimm ára.
Leikfélagið hyggur á nýja sókn í
fjáröflunarskyni um næstu ára-
mót. Nú á félagið í byggingaf-
sjóði 1 millj. krónur.
Ekki hefur verið ákveðið um
stærð væntanlegs leikhúss, en á-
ætlað að það taki 450-500 manns
í sæti — verði hvorki stórt né
íburðarmikið.
li.f. í Kópavogi skydi óheimil notk-
un þessa nafns og var sá dómur
staðfestur í hæstarétti.
Forsagan er á þá leið, að 24.
júní 1961 var auglýst í Lögbirt-
ingarblaði nr. 63 stofnun félags-
ins Fjöliðjan h.f. á ísafirði. Skyldi
félagið einkum framleiða og selja
gluggarúður úr tvöföldu Seeure-
einangrunargleri' og inna af hönd-
um störf í því sambandi. Félagið
var stofnað þann 15. maí 1961 og
aðalstofnandi Marselíus Bernhards
son skipasmiður á ísafirði.
í Lögbirtingarblaði nr. 77 sama
ár var svo auglýst stofnun Fjöl-
iðjunnar li.f. í Kópavogi. Tilgang-
ur þess félags var talinn rekstur
vinnuvéla, iðnaður og iðja, þar
með talinn sandblástur og málm-
húðun, járnsmíði hvers konar,
verzlun með iðnaðarvörur og ann-
ar skyldur atvinnurekstur. Félag-
ið var stofnað þ. 17. júní 1961 og
auglýst 19. ágúst sama ár. Fyrst
taldi átofandinn og framkvæmda-
Framhald á 5. síðu.
Alþýðublaðið kost-
ar aðeins kr. 80.00 á
mánuði. Gerizt á*
skrifendur.
Fimmtudagur 5. óvember 1964
SKÍRSLA UM STÓR-
J
IÐJU VÆNTANLEG
RÍKISST J ÓRNIN mun bráð-
lega gefa opinbera skýrslu um
virkjunar-og stóriðjumál að því er
Jóhann Hafstein iðnaðarmála-
ráðherra skýrði frá á Alþingi í
gær. Hann sagði, að engar ákvarð
anir mundu verða teknar í þessu
þýðingarmikla máli án samþykkis
Alþingis og mundi það ákvarða
stefnuna.
Til umræðu var tillaga fram-
sóknarmanna um að skipa nýja
nefnd til að athuga stóriðjumálin.
Fylgdi Eysteinn Jónsson tillögunni
úr hlaði og ræddi á víð og dreif
um þessi mál. Sló hann úr og í
og var helzt á honum að skilja,
að framsóknarmenn mundu vilja
veita erlendum aðila sérréttindi
til alúminíumframleiðslu, ef þáð
yrði á Norðurlandi, en ekki á
Suðurlandi. Hann ræddi um nauð
syn byggðakjarna.úti um land til
að hindra, >að öll byggð sameinað
ist á suðvesturlandi.
Einar Olgeirsson lýsti hreinni
andstöðu við öli réttindi fyrir
erlent fjármagn og taldi, að það
lægi í eðli auðhringa, iað þeir
yrðu að seilast til pólitískra áhrifa
til að vernda hagsmuni sína og
gæti svo íarið hér.
Góö síldveiði
undan Jökli
Reykjavík, 4. nóv. - GO
SÍLDVEIÐI var góð á miðunum
undan Jökli í nótt sem leiö, en
öllu lakari eystra þar sem veður
var gott, en síldin stóð dýpra en
áður og var veiði því ekki eins
góð og skyldi,
Undir Jökli fengu 25 bátar um
20.000 tunnur, en austur af Dala-
tanga 11 bátar 7.300 mál.
Þessir bátar lönduðu á Aust-
fjarðahöfnum:
Arnarnes 800 málum, Gullberg
700, Ásbjörn 800, Þórður Jónas-
son 150, Björgvin 150, Sólrún 400,
Heimir 1100, Þorbjörn II. 750,
Hafrún 800, Þráinn 500 og Sigurð-
ur Jónsson 1200 mál.
REYKJAVÍK
Ásþór 1500 tunnur, Gnýfari 500,
Jörundur II 600, Ögri 1100, Húni
II. 1300, Arnar 1400, Vigri 1000,
Ársæll Sigurðsson II 900, Hall-
dór Jónsson 400 og Þórsnes 550.
KEFLAVÍK:
Jón Finnsson 1000, Sæhrímnir
700, Ingiber Ólafsson 700, Jón
Gunnlaugs 260, Bergvík 400 og
Þórkatla 600 tunnur.
HAFNARFJÖRÐUR
Fagriklettur 1000, Reykjanes 700
og Sigurjón Arnlaugsson 100 tunn
ur. Eldborg fékk 300 tunnur i
fyrrinótt, en kom ekki til hafnaB
með aflann.
AKRANES:
Iíöfrungur III 1500, Haraldup
1100, Sólfari 1100, Anna 700, Höfr-
ungur II 500 og Sigurður 250
tunnur. j|
Síldin sem barst til Faxaflóa*
hafna veiddist 40 til 60 sjómílur
vestur af Jökli. Hún er ágæt í salt
og frystingu og fer að mestu
leyti í þá vinnslu.
feMMHMHHWMHWHWmW
ASalfundur Al- ||
þýðuf lojkksf éf. i |
Hafnarfjarðar
★ ÁÐALFUNDUR Alþýðu- !;!
flokksfélags Hafnarfjarðar ]!;
verður haldinn í Alþýðuhús- ! >!
inu Hafnarfirði næstkomandi ]!
mánudag kl. 8,30 e. h. Meðal !«:
fundarefnis er kosning full- < ]
trúa á 30. þing Alþýðuflokks ]!'
ins. — Stjórnin. < J
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG Kópavogs liefur félagsvist í félags-
heimilinu, Auöbrekku 50, næstkomandi föstudagskvöld klukk-
an 8,30.