Alþýðublaðið - 12.11.1964, Side 9
óra Olympiuskáksveitarinnar
og 15 um nætur. Regntíminn get
uf fariS að hefjast hér hvað úr
hverju og myndi gróðurinn þakka
fyrir hann, svo og t.d. appelsínu
bændur. En nóvember er á hvörf
um sumars og komu vetrar og
er því ærið oft einhver þægileg
asti mánuður ársins á þessum
slóðum, að sögn.Það eigum við
skákmenn eftir að reyna.
Við skruppum til Jerúsalem-
bargar í blíffviðrinu í fyrradag
og þáðum þar síðdegisboð forseta
landsins, Shazars, sem er maður
hinn -virðulegasti og einkar geð-
þekkur. Hiann flutti skákmönnum
fögur orð í ræðu og lét sig ekki
muna um að hefja mál sitt og
enda meff tfrumotrt/a ljéjði, því
aff hann kvað vera skáldmæltur
veL Forseti alþjóðaskáksambands
ins, Folke Rogard lögmaður í
Stokkhólmi, þakkaði með annari
ágætri ræðu.
Mjög þótti okkur íslendingum
til þess koma, er við ókum inn í
hina fornhelgu borg fyrsta sinni,
að þar skyldu blakta hundruð
íslenzkra fána við hún meðfram
mörgum helztu götum. Var höfuð
borg Ísraelsríkis þannig skreytt
til heiðurs íslandi vegna forsætis
ráðherrahjónanna er komu í opin
bera heimsókn kvöldið áður, og
hafði reyndar krossfáninn íslenzki
heilsað okkur á flugstöðinni í Tel
Avív kvöldið áður, en þangað
komu heiðursgestirnir aðeins tæp
ri stund á undan skákmannaflug
vélinni frá Norðurlöndum, Boeing
þotu frá E1 Al, aðalflugfélaginu
hór.
Eina byggingu komum við í
aðra en forsetabústaðinn í Jerús
alem. Það er mannvirki reist til
minningar milljónum Gyðinga,
er létu lífið fyrir hryllingaræði
nazismans. Komum við fyrst inn
í stóran sal, þar sem var að ljúka
daglegri helgistund við flöktandi
lýsingu frá opnum eldi. Þar eru
í gólfið grópaðar hellur meff nöfn
um u.þ.b. 20 útrýmingarbúða
stríðsáranna, og er áletrunin með
hebresku og latnesku letri. í öðr
um salarkynnum gefur svo að
líta myndir og minjar um þær
yfirgengilegu hörmungar, sem
fólkið varð að þola. Meðfram veg
inum til Jerúsalem er 6 milljón
trjáa greniskógur, sem er ekki
jöngu risinn þarna til að' minnast
einnig þessa fólks, hinna 6 millj.
Gyðinga gasstöðva og eyðingar
búða, opnast þá enn betur augu
manns fyrir því hvílíkur aragrúi
þetta hefur verið, þegar hvert
tré í þéttum og stórum skógi
svarar til eins mannslífs.
Svo aftur sé snúið að skákmál
um er þess næst að geta, að aldrei
hefur fyrr verið haldið líkt því
svo fjölmennt Ólympíuskákmót
og sýnir það með öðru, hvilíkt
aðdráttarafl landið helga hefur
fyrir menn úr öllum heimshlutum.
Hér eiga allar álfur sína fulltrúa,
'að vísu er aðeins ein sveit frá
Afríku og Ástralíu, en þær eru
sjö frá Asíulöndum, 15 frá Amer
íku og 26 frá Evrópu. Held ég að
ekki vanti aðrar Evrópuþjóðir í
safnið en ítali, Albani og Möltu
búa, og eiga þeir þó ekki um lang
an vegað sækja. Mið- og Suður-
Ameríkuþjóðir hafa aldrei verið
svo fjölmennar sem nú. Vantar
þó stærsta ríkið Brazilíu. Mexíkó
kemur nú fram með skáksveit í
fyrsta skipti, og er foringi hennar
virðulegur ofursti úr hernum
sem klæðist jöfnum höndúm græn
um einkennisbúningi sínum og
almennum fatnaði. Annar mikill
persónuleiki, er eftirtekt vekur
er frá Frakklandi, hár maður og
óhemjulega umfangsmikill, al-
skeggjaður með ósköp tilkomu-
lítil gleraugu, og tautar hann
löngum eitthvað fyrir munni sér
við skákborðið.
Sovétmenn eru auðvitað fræg
astir skákmanna nú sem endra
nær. Þar er heimsmeistarinn Petr
osjan i broddi fylkingar, og honum
næstir tveir fyrrverandi tignar
menn slíkir, Botvinnik og Smysl
off, en þótt þeir hafi yfir fjórða
heimsmeistaranum að ráða er
hann ekki með í för að þessu
sinni, þ.e Tal. ’Mun það stafa af
því að hann veiktist á síðasta
áskorendamóti og tók svo ekki
þátt í síðasta Rússlandsmóti.
Keres, Stein og Spassky fylla hin
þrjú sæti sovétsveitarinnar, og
ætti bikarnum góða, sem kennd
ur er við Hamilton-Russell að vera
borgið í höndum slíkra sexmenn
inga. (Ég get látið þess getið
innan sviga, að ég sá þá báða í
Moskvu á dögunum, vin minn
Mikhail Tal og Hamilton-Russel
bikarinn). Eitthvað er hér fleira
af frægum rússneskum skákmönn
um, t.d. Geller og Kotov, sem
er fyrirliði sveitarinnar. Tveir
erlendir kunningjar okkar frá
Reykjavíkurmótinu í vetur eru
hér, þeir Gligoric og Svein Jo-
hannessen. Þeir fóru báðir hægt
Frh. á 13. síðu.
iiillliiiliilliiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiMii
i ti iii ii llllllllllll•llllllllllllllllllll•lllllll|||||||||■ll■|||| iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiuiiiiiiiiin i ii 11 iiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiuriiiir
mri
Geraldine Page fer með hlut-
i verk Ölmu, leikur hennar er vel
• Upp byggður og sannfærandi og
. ég rek þau augnablik hiklaust til
leikstjórans, þar sem brotalamir
• verða á. Lawrence Harvey leikur
i John Buchanan, margt tekst hon-
um vel, en þó svo, að hann fellur
í skugga Geraldine Page. Einnig
þar þykist ég þá sjá áhrif leik-
stjórans.
Ógleymanlegur verður leikur
Unu Merkel í hlutverki frú Wine-
r
miller.
i
Hér er ekki um að ræða mynd,
i sem mun falla öllum í geð. Til
þess eru mörk Williams of auð-
i sæ á henni, hans orð og vanga-
, veltur of stór þáttur, en aðdá-
- endum hans mun vissulega ó-
■ hætt að fara og sjá þessa mynd.
Eg leyfi mér og að mæla méð
l henni, ekki vegna þess, að hún sé
: eitthvert þrekvirki frá leikstjór-
i ans hendi, en lmn er trú sjálfri
sér og Tennessee Williams. H.E.
' ■■■ ' ■
DÖMUR
FYRIR PRESSUBALLIÐ
Ný sending:
ýV SÍÐIR SAMKVÆMISKJÓLAR
☆ STUTTIR KVÖLDKJÓLAR
☆ KVÖLDTÖSKUR — HERÐASJÖL
ýV HANZKAR, háir og lágir.
i? SKARTGRIPIR
>- r
HJA BARU Austurstræti 14.
NÁMSKEIÐ í HJÁLP
í VIÐLÖGUM
hefst þriðjudaginn 17. þ.m. fyrir almenning.
Áherzla verður lögð á að kenna lífgun með blásturs*
aðferð
Kennslan fer fram kl. 5 til 6,30 eða 8,30 til 10, annan,
hvern dag.
Þátttaka tilkynnist strax í skrifstofu R.K.L, Öldugötu 4.
Sími: 14658.
Kennsla ókeypis.
Reykjavíkurdeild Rauffa kross íslands.
AFGREIÐSLUFÓLK
Duglegt aígreiðslufólk óskast til starfa í eina
kjötverzlun okkar.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Sláturfélag SuSurlands.
Verksmiöjuvinna
Starfsfólk, konur og karlar óskast til verk-
smiðjuvinnu nú þegar.
Yfirvinna, ekki unnið á laugardögum.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
HAMPIÐJAN H.F.
Stakkholti 4.
NÆLONSKYRTUR
Ódýru vestur-þýzku prjónanælon skyrt
urnar komnar aftur í dökku litunum.
VERÐ KR. 235,00
Lækjargötu 4. — Miklatorgi.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
iiii"***‘miuu .111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 iiiiiiiiiiiminimiiimimiiiimiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiim’**
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 12. nóv. 1964 9