Alþýðublaðið - 12.11.1964, Side 16
Alþýðublaðið kost-
ar aðeins kr. 80.00 á ^
mánuði. Gerizt á-
skrifendur.
Fimmtudagur 12. nóv. 1964
Barnatónleikar
í Háskólabiéi
Reykjavík, 11. nóv. OÓ.
Sinfóníuhljómsveit íslands held
ur barnatónleika í Háskólabíói
n.k. laufifardag kl. 3 eh. Stjórnandi
verður Igor Buketoff og Lárus
Pálsson, leikari, verðu kynnir off
flytur skýringar. Efnisskráin verð
rsws.'. i~*
ur mjög- fjölbreytt og verkin mið
uð við hæfi barnanna. Leikin
verða verk eftir Mosart, Liadov,
Gluck, AVeber, Bizet og Strauss.
Fyrstu barnatónleikar Sinfón-
íuhljómsveitarinnar *voru haldnir
Framhald á 14. síðu
AlþýSuflokksfélag Reykjavíkur
heldur spilakvöld annað kvöld
(föstudag) kl. 8.30 í ISnó- Húsið er
opnað klukkan 8. Sameiginleg kaffi
drykkja og dans á eftir. Félagsmenn
eru hvattir til að mæta vel og stund
víslega.
1
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%*
„Upp í 104 meldingar
á einum sólarhring"
Rætt við Markús Þórðarson á Dalatanga
Reykja\ík, 11. nóv. - GO
ÞAÐ voru fleiri en sjómenn-
irnir, sem höfðu langa útivist
og einangrun á síldveiðitíma-
bilinu í sumar. Sitthvað þurfti
að gera í landi í sambandi við
veiðarnar og þann 8. júní í vor
komu tveir menn á einn af-
skekkta&ta stað landsins og sett
ust þar að sumarlangt. Menn-
irnir voru Jóhannes Halldórs-
son og Markús Þórðarson, en
þeim var skákaö niður í skjól
vitavaröarins á Dalatanga, þar
sem þeir voru svo síldarflotan-
um til halds og trausts meðan
á þurfti að halda. Við hér á Al-
þýðublaðinu þurftum oft að
gera þeim ónæði með hringing
um okkar, en þeir tóku okkur
ævinlega sem sannir séntil-
menn þótt auðvitað kæmi fyrir
að örlítill súrkeimur væri af,
eins og gengur. Sömu sögu er
að segja um starfsbræður
þeirra á Raufarhöfn.
Þeir Markús og Jóhannes eru
báðir gamlir uppgjafaskipstjór
ar. Markús er nú búsettur á
Hellissandi og var formaður
við Breiðafjörð í 30 ár. Hanu
leit inn til okkar í dag, líklega
tll að sjá framan í þessa fugla,
sem voru síhringjandi í sumar
og síspyrjandi misgáfulegra
spurninga.
— Hvernig stóð á því Mark-
íis, að síldarleitin var flutt frá
Seyðisfirði að Dalatanga?
Markús Þórðarson frá Dalatanga.
— Þannig var, að skilyrði eru
miklu betri þar útfrá. Við er-
um nær bátunum og höfum
meiri yfirsýn. Okkur var Iíka
ætlað það hlutverk að fylgjast
með ástandinu í öllum bræðsl-
um sunnan Langaness og gefa
bátunum upplýsingar um hvar
fljótlegast væri fyrir þá að
losna við aflann.
— Urðuð þið þá ekki að fylgj
ast með ástandinu á söltunar-
stöðvunum?
f’ramhald á síðu 4
tMMMMWMMWWWMWWWViWWVMWM VWWWtWWWWMWHWWWWMWWW
Stjórn Alþýðuflokksfélags
Hafnarfjarðar endurkjörin
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG Hafnar
jijarðar hélt aðalfund sinn mánu-
daginn 9. nóv. sl.
Var stjórn félagsins öll endur-
tijörin í einu hljóði, en hana skipa
eftirtaldir menn:
Aðalmenn: Þórður Þórðarson,
fönn,, Stefán Gunnlaugsson, vara
-lorm., Eyjólfur Guðmundsson,
vfitari, Ólafur A. Kristjánsson,
^fjaldkeri og Gunnar Bjarnason,
fjármálaritari.
Varamenn: Sigurður Emilsson,
Jón Guðmundsson og Helgi Jóns-
son.
Þá fór fram á fundinum kosn-
ing fulltrúa á 30. flokksþing Al-
þýðuflokksins, sem háð verður
seint í þessum mánuði. Þessir
hlutu kosningu.
Aðalfulltrúar: Emil Jónsson,
Þórður Þórðarson, Kristinn Gunn
arsson, Stefán Gunnlaugssón,
Yngvi R. Baldvinsson og Gunnar
Bjarnason.
Varafulltrúar: Helgi Jónsson,
Eyjólfur Guðmundsson, Guðlaug-
ur Þorsteinsson, Jón Guðmunds-
son, Sveinn V. Stefánsson og Guð-
laugur Þórarinsson,
(f'ramhald á 5. síSu).
Elliheimilið
Grund stækkað
Reykjavík. 11. nóv. GO.
NÝLEGA var tekin í notkun
viðbót við elliheimilið Grund hér
í Reykjavík. Þar er rúm fyrir
30 vistmenn, aðallega í einstakl
ingsherbergjum, en þó eru þar
2-3 tveggja manna herbergi. Þeg
ar er skipað í 22 rúm, þannig að
8 eru laus ennþá.
Viðbótin er til húsa að Blóm-
vallagötu 12, þar sem áður var
aðsetur starfsfólks, reyndar býr
starfsfólk enn á tveim efstu hæð
unum en ætlunin er að leggja
húsið algerlega undir gamla fólk
ið að lokum og koma starfsfólk-
inu fyrir annarsstaðar. Heimilið
nefnist Minni Grund. Þar eru 50
herbergi, sem skiptast þannig,
að 18 eru notuð fyrir starfsfólkið
28 fyrir vistfólk og 4 herbergi eru
notuð sameigin.Vega, sem setu-
stofa, borðstofa o.s.frv. Þarna
verður eingöngu fólk, sem hefur
ferlivist og getur farið á milli
húsanna í mat. Að vísu er eldhús
á hverri hæð, eu mötuneyti hefur
ekki verið skipt ennþá. Húsið er
fjórar hæðir og kjallari. Gangar
allir, stigar og gólf er teppalagt
allt málað í björtum og
hreinum litum. Húsið í stuttu
Gísli Sigurbjörnsson forstjórl
Grundar sýndi blaðamönnum hús
ið í dag. Hann lét þess getið við
það tækifæri, að hann hefði mik
inn áhuga á að færa enn út kví-
arnar og þá helzt með því að
kaupa hentugt hús í nágrenninu.
Dvalarkostnaður á elliheimil
inu Grund er 130 krónur á dag
þar eru nú 397 vistmenn, ef heim
ilið í Hveragerði er talið með, en
í Reykjavík eru vistmenn 348 tala
ins.
750 TONN FRYSI
í ÓLAFSVÍK
Ólafsvík, 11. nóv. - OÁ-ÁG
FRÁ því 24. október síðast lið
inn hefur verið saltað í 1450 tn.
af síld hjá Frystihúsi Ólafsvíkup
og í 886 tn. hiiá Kirkjusandi. Síð
an síldarmóttaka hófst hér hafa
verið fryst 400 tonn lijá Kirkju-
sandi og 350 tomi hjá Frystihúsi
Ólafsvíkur. Laudlega var hér i
gær, en gott veður í dag og ailip
bátar úti.