Alþýðublaðið - 18.11.1964, Síða 5

Alþýðublaðið - 18.11.1964, Síða 5
ERKIR ISLENDINGAR Út er komið nýtt veglegt bindi af ritinu MERKIR ÍSLENDINGAR BOKFELLSUTGáFAN í bókinni eru ævisögur tólf kunnra íslendinga, sem allir komu mjög við sögu landsíns hver á sínu sviði. í ævisögum þess- um birtast kaflar, sem bregða upp myndum úr lífi þjóðarinnar um sjö alda skeið. Þetta mikla rit hefur því að geyma í senn fjölbreytilegan fróðleik og margar skemmilegar frásagnir, sem gefa því varanlegt gildi auk þess sem allir sem meta þjóðleg fræði, munu Lesa sér það til ánægju. Efnisskrá: Magnús Gissuararson, biskup eftir Björn Þórðarson. Ari Magnús- son, Ögri, eftir Jón Þorkelsson. Páll Björnsson í Selárdal. eftir Hannes Þorsteinsson. Gunnlaugur Guðbrandsson Briem sýslumað- maður, eftir Jón Jónsson. Jón Þorsteinsson, prestur, eftir Svein Níelsson. Hallgrímur Scheving. yfirkennari, eftir Jón Þorkelsson. Konráð Gíslason, prófessor, eftir Björn M. Ólsen. Sigurður Vigfús- son, fornfræðingur,. eftir Valdimar Ásmundsson. Eiríkur Briem, prófessor, eftir Guðmund G. Bárðarson. Klemens Jónsson, ráðherra, eftir Hallgrím Hallgrímsson. Bjarni Sæmundsson, fiski-fræðingur, eftir Árna Friðriksson. Páll Eggert Ólason, prófessor, eftir Jón Guðnason. Barnablaðið Æskan 65 ára Reykjavík, 17. nóv. — OO. BARNABLAÐIÐ ÆSKAN er 65 fira um þessar mundir. í því til- efni hefur verið gefið út myndar- legt afmælisblað. Er það að vanda fjölbreytt að efni við barna hæfi. í afmælisblaðinu segir: „Æskan er fyrsta barnablaðið, gem gefið var út hér á landi og ruddi þannig brautina fyrir önn- ur barnablöð, sem síðan hafa kom- ið út, og í raun og réttu má segja, að hún hafi opnað augu almenn- ings fyrir því, að börnin þurftu líka að fá eitthvað að lesa sér til gagns og gamans, sem væri við þeirra hæfi. Æskunni liefur farn- ast vel. Hún er eina barnablað þessa lands og það eina, sem allt af hefur komið út. Stundum hefur hún verið eina barnablaðið, sem íslenzk börn hafa átt völ á, og nú skipar hún það heiðurssæti að vera með allra elztu blöðum sem út koma á íslandi í dag. Það sýn- ir hvort tveggja, að hlutverk henn ar er gott og göfugt og að tekizt hefur þannig um efnisval og flutn ing þess, að lesendur hafa tekið vel á móti blaðinu og staðið vörð um heill þess og framfarir. Engu i blaði vegnar vel, nema vel takizt ; um samvinnu lesenda og útgef- enda.” Framhald á 13. síðu. FJÖLSKYLDUÁÆTLANIR OG SIÐFRÆÐI KYNLÍFS Ný bók Félagsstofnunarinnar í tilefni 65 ára afmælis Æskunnar verður opnuð í dag sýning á norskum bókum og málverkaeftir- prentunum í Lækjargötu 10. Á myndinni eru þeir Grímur Engilberts, ritstjóri Æskunnar og Kjartan Cuðraundsson, framkvæmdastjóri Bókaútgáfu Æskunnar. Reykjavík, 17. nóv. — ÓTJ. Fimmta bókin í bókasafni Fé- lagsmálastofnunarinnar kom út í dag. Nefnist hún „Fjölskylduáæti- anir og siðfræði kynlífs” og er eftir Hannes Jónssoii félagsfræð'- ing. Bókin er 80 bls., prýdd fjölda skýringarmynda. Hún er í þremur aðalköflum. Sá fyrsti er kafli um fjölskylduáætl- anir, þar sem gerð er grein fyrir félagslegu efnahagslegu og heilsu farslegu ástæðunum sem liggja til grundvallar fjölskylduáætlana. Annar kaflinn er um frjóvgun- arvarnir. Segir höfundur að hann sé í raun og veru endursögn á ýmsum ritum sem út hafa komið á síðari árum, þar sem þetta vandamál er rætt. Kafli þessi var yfirfarinn af dr. —Fétri Jakobs- syni forstöðumanni fæðingardeild •ar Landsspítalans, og læknis- fræðideildar Ráðleggingarstöðvar- innar um fjölskylduáætlanir. — Þriðji kaflinn, sem að sumu leyti er einnig hinn eftirtektar- verðasti nefnist siðfræði kynlífs. Þar tekur höfundur sér fyrir lii3 athyglisverða starf að ræða sið- fræði kynlífsins, þ. e. rétta og' ranga kynlífshegðun — í ljósi vís- indalegrar þekkingar um mann- inn og mannfélagið. Bók þessi ei* í' alla staði hin athyglisvcrðasta, og á erindi inn á hvert hcimili. Kópavogur Útsölumaður Alþýðublaðs- ins í Kópavogi er HELGA JÓIIANNSDÓTTIR, Ásbraut 19, sími 40319. mrnrn Lesið Alþýðublaðið Áskriffasíminn er 14900 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 18. nóv. 1964 $ 3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.