Alþýðublaðið - 18.11.1964, Blaðsíða 16
Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarffar heldur spilakvöld næstkomandi
fimmtudagskvöld. Félagsvist. ávarp, sameiginleg kaffidrykkja og skemmti
atriði. Öllum heimill aðgangur.
É6 DÁIST AD ÞVIHVE
VB. YKKUR MIDAR ÁFRAM
Reykjavík 17. nóv. EG.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ hitti Kon
rad Norahl, forseta norska AI
þýðusambandsins, aS máli sem
snög-grvast vestur í KR-húsi í
dag, en hann situr ASÍ þingið,
sem gestur og fulltrúi norska
sambandsins.
Þetta er ekki í fyrsta skipti,
sem Nordahl kemur til ís-
lands, því hann kom hér árið
1954 og sat þá einnig ASÍ þing.
Fyrst kom hann hingað á striðs
árunum, nánar tiltekið árið
1943. Konrad Nordahl hefur
verið forseti LO, norska Al-
þýðusambandsins síðan árið
1939, áður var hann varafor-
maður þess í fjögur ár, en þar
áður hafði hann um nokkurra
ára skeið verið formaður málm
iðnaðarmannasambands Nor-
egs, sem jafnframt er stærsta
stéttarfélagasambandið innan
LOf Landsorganisationen.
— Hversu oft eru þing LO
haldin?
— Þau éru haldin á fjög-
urra ára fresti og þá er stjórn
sambandsins kosin, en hana
skiþa fimmtán menn.
•— Eru einstök stéttarfélög
í LO, eða aðeins stéttarfélaga
sambönd?
— í Landsorganisationen
eru eingöngu stéttarféiagasam
bönd, um 40 talsins, og þeir
fimmtán menn, sem valdir eru
í stjórn samtakanna eru venju
lega formenn stærstu samband
anna.
— Hefur komið til nokkurra
alvarlegra verkfalla í Noregi
það sem af er árinu?
— Ne|, það hefur ekkert
Framh. á bls 4.
Hannlbal Valdimarsson for-
seti ASÍ og Konrad Nordahl,
forseti norska Alþýðusambands
ins. Mynd: JV.
i. ÁFANGA ÁLFTA-
MÝRARSKÓLA lokið
Reykjavík, 17. nóv. — GO.
í DAG var fréttamönnum og
lleiri'gestum boðið að skoða hinn
nýja barnaskóla við Áiftamýri. —
Lokið er byggingu I. áfanga skól-
ank og tók hann til starfa i sept-
emberbyrjun. Jónas B. Jónsson
Iræðslustjóri lýsti húsinu fyrir
Cestum.
Skólinn er teiknaður í Teikni-
etofunni Tómasarhaga 31, en verk-
takar við fyrsta áfanga voru þeir
Magnús K. Jónsson og Magnús
Árnason byggingameistarar. Vinna
hófst við skólann í marzmánuði
1963 og var lokið í byrjun septem-
ber eins og fyrr segir.
í skólanum eru ýmsar nýjung-
ar, t. d. eru salerni innan veggja
kennslustofanna og einnig fata-
hengi. Þetta fyrirkomulag skapar
meiri ró .í stofunum og kemur í
veg fyrir sífellt gangaráp. Þá þarf
enga gangavörzlu, aðra en þá, sem
nemendur sjá um sjálfir. Inni í
stofunum er svo lítill paliur, sem
festur er upp við vegg og er hægt
j.að felia liann á gólf, þannig að
Alþýðublaðið kost*
ar aðeins kr. 80.00 á ^
tnánuði. Gerizt á*
skrifendur.
aOIPM
Miffvikudagur 18. nóv. 1964
Skort hefur nýjan
fisk
Reykjavík, 17. nóv. - GO
HÚSMÆÐUR í Reykjavik og ná-
grenni hafa kvartað sáran undan
skorti á nýjnm fiski að undan-
förnu, en hann hefur ekki sést í
búðum lengi, þangað tll í morgun
•að lítilsháttar barst að, sem seld
ist upp löngru fyrir hádegi.
Við hringdum í Fiskmiðstöðina
í Örfirisey, sem er stærsti fisk-
dreifandi hér og spurðum þá
frétta af fiski og fiskleysi. Að
sögn verkstjórans þar vésturfrá
hefur ekki verið róið á aðra viku
íslenzkt barna-
leikrit sýnt í
Kaupmannahöfn
Reykjavík, 17. nóv. — ÁG.
BLAÐIÐ hefur haft spurnir af
| því, að barnaleikrit Ingibjargar
Jónsdóttur, Ferðin til Limbo, sem
Þjóðleikhúslð mun taka til sýn-
ingar eftir áramót, verði einnig
teklð tll sýningar í Kaupmanna-
höfn á næsta ári. Leikhús í
Kaupmannahöfn mun hafa keypt
sýningarréttinn.
eins konar sena komi fram, þar
sem nemendur geta haldið skemmt
anir sínar. Þá hafa verið keypt
alls konar kennsluáhöld til skól-
ans og í stofunum er dálítil aðstaða
j til föndurs.
í þeim hluta skólans, §em full- |
gerður er, eru 8 almennar kennslu
stofur, hver um sig 75,5 fermetrar I
að gólffleti, en grunnflötur skólans
er 577,4 fermetrar. Auk þess eru |
3 sérgreinastofur í kjallara.
I Nú eru í skólanum rúmlega 500
Framhald á siðu 4
fyrrr en i gærmorgun. Tíðin hefur
verið mjög stirð og lítið fenglsl í
gæftum, 3-4 tonn á bát. Þá yildi
Frh. á 14. síðu. .
VALT AF
LYFTUGRIND
Reykjavík, 17. nóv. — GO.
í DAG varð það óhapp í smur-
stöð Esso í Hafnarstræti, að bíll,
sem vcrið var að smyrja datt &
hliðina, þannig, að vinstra fram-
horn hans nam viö gólf, en aftur-
endi gnæfði við loft í stöðinni, —.
Þetta var stór amerískur bfll. Ó-
happið mun hafa orðið með þcim
hætti, að kjálki á smurgrindinni
vinstra megin brotnaði undan
þunga bílsins. Ekki urðu slys á
mönnum við óhapp þetta og um
skemmdir á bílnum er biaðinu
ekki kunnugt.
Ajax - Valur
27 gegn 27
í GÆRKVÖLDI léku dönsku
meistararnir Ajax, og mættu nú
gestgjöfum sínum, Val, að Há- j
logalandi. Leiknum. lauk með jafn
tefli 27 mörk gegn 27.
Dönum gekk betur í fyrri háK,
leik og um tíma stóðu leikar 10
gegn 5, Dönum í hag. Fyrir leik
hlé tókst Valsmönnum að rétta
nokkuð hlut sinn, en þá munaði |
aðeins tveim mörkum, 13 gegn 11. |
í síðari hálfleik sóttu Vals-
menn sig mjög, og náðu yfirtökun
um um tima, en Dönum tókst á
síðustu stundu að rétta hlut sinn,
og lauk leiknum með jafntefíi.
sem fyrr segir.
Nánar um leikinn á íþróttasíðu
á morgun.
MWMMMMMMMWWMWMMM
Alþýðuflokks-
fundur í
Reykjavík
Alþýðuflokksfélag Reykja-
víkur efnir til félagsfundar
í Iðnó næstk. föstudag 20.
nóvember kl. 8,30 e. h. —
Fundurinn hefst stundvís-
lega með sýningu íslands-
myndar, sem sýnd hefur ver-
ið víða um heim og vakið
mikla athýgli. Því næst mun
formaður félagsins, Erlend-
ur Vilhjálmsson, segja frá
úrslitum fulltrúakjörs til
flokksþings og öðrum fé-.
lagsmálum. Þá verður kosin
uppstillingancfnd vegna
stjórnarkjörsins í febrúar.
Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra verður frum-.
mælandi kvöldsins og talar
um stjórnmálaútlitið við lok
Alþýðusambandsþings og
upphaf Alþýðuflokksþfngs.
Kaffiveitingar að venju. —-
Stjórnin.
WMMtMMMMHMMMMMMW