Alþýðublaðið - 11.12.1964, Blaðsíða 3
Sjö Nóbelsverblaun
voru afbent í gær
SÍGILDAR SÖGUR Iðunnar
ALÞÝÐUBLAÐIÐ —» 11. des. 1964 3
Osló og Stokkhólmi. 10. des.
(NTB)
SEX Nóbelsverðlaunahafar frá
fjórum löndum tóku í dag við Nó-
bclsverðlaunum sínum úr hendi
Cústafs Adolfs konungg í Konsert-
huset í Stokkhólmi. Skömmu áður
hafði bandaríska blökkumannin-
um dr. Martin Luther King verið
afhcnd friðarverðlaunin í hátíðar
sal háskólans í Osló,
Formaður Nóbelsverðlaunanefnd
ar norska Stórþingsins, Gunnar
Jahn sagði við afhendingu friðar-
verðlaunanna, að barátta Kings
hefði leitt til þess, að hin æva-
gamla, harða og rótgróna kynþátta
deila væri í þann veginn að leys-
ast. Hann varpaði fram þeirri
spurningu, hvort leið Kings og
fylgdarmarina hans gæti vakið von
manna í öðrum hlutum heims um,
að hægt verði að jafna deilur kyn-
þátta, þjóða og þjóðfélagskerfa
með mannkærleika en ekki báli og
brandi.
175 Vietcongliðar
falla í bardögum
SAIGON, 10 desember. (NTB
Reuter). — Að minnsta kosti 175
Vietcong hermenn kommúnista
féllu í tveim meiriháttar bardög
um við hersveitir Suður-Víetnam
stjórnar í gær og í dag, Bar-
dagarnir í Binh Dinh-héraði
héldu áfram í dag fjórða daginn
í röð, en voru'ekki eins harðir og
fyrr, að því er haft er eftir lieim
ildum í Saigon.
Stjórnarhersveitunum tókst í
dag að hrinda meiriháttar sókn
Vietcong gegn bænum Ba Dua
við óshólma Mekong með lijálp
stórskotaliðs. Úrvalshersveit
guldu mikið afhroð. Bandarískur
hernaðarráðunautur féll og annar
Bandaríkjamaður og Ástralíumað
ur særðust. Átta stjórnarhermenn
féllu og 16 særðust.
í Quang Tin var aðalega barizt
um hæðir, sem Vietcongmenn
náðu af stjórnarhermönnum fyrir
nokkrum vikum en urðu að yfir-
gefa þegar stjórnarhermönnum
barst liðsauki. Víetnamískar flug-
vélar og bandarískar herþyrlur
taka þátt í bardögunum.
Bardagarnir í Binh Dinh-héraði
\
Framhald á 13. síðu.
Kofi Tómasar
frænda
Hin ógleymanlega
saga H. Beecher
Stowe, sem lesin er
í barnatímum út-
varpsins. —
Kr. 150,00 ib.
SKYTTURNAR I — III eftir Alexandre Dumas.
Hin dáða og víðkunna skáldsaga um skytturnar fjórar hefur
í meira en heíla öld verið ein vinsælasta og eftirsóttasta
skáldsaga í heimi. Frásagnargleði hins víðfræga höfundar
nýtur sín hér í fyllsta mæli og lesandinn heillast af litríku
lífi sögunnar og ævintýrum og hetjudáðum þeirra félaganna
fjögurra. Þessi nýja útgáfa af Skyttuniun er í þremur bind-
um. — I. bindi kr. 150,00, II. og III. kr. 165,00 hvort bindi.
skæruliða gerði árásina í hefndar
skyni við ósigur sinn í fyrri til-
raun til að ná Ba Dua á sitt vald.
Ba Dua er 75 km. suðvestur af Sai-
gon. 15 skæruliðar féllu í þessum
átökum en særðum var komið und
an.
112 skæruliðar Vieteong féllu í
meiriháttar átökum í dag í hérað
inu Quang Tin, 560 km norðaust-
ur af Saigon. Þeim tókst í fyrstu
að ná einni stöð stjórnarhermanna
#en voru seinna hraktir á flótta og
Játningar í
Mississippi
Meridian, Mississippi, 10. des.
(NTB-Reuter)
FULLTRÚI bandarísku alríkislög-
reglunnar (FBI) sagðj við réttar-
rannsókn í Meredian í Missisippi
í dag, að hann hefði fengið skrif-
lega játningu hins 21 manns sem
iiandtekinn hefur verið í sambandi
við morð þriggja baráttumanna
mannréttindalaganna í Mississippi
í júní sl.
FBI-maðurinn Henry Rasþ sagði,
að liann hefði fengið játninguna í
síðasta mánuði. 19 liinná liand-
teknu eru grunaðir um að hafa ver-
ið víðriðnir morðin, en hiriir tveir
voru haridtéknir þar eð 'þeir vissu
um málið en sögðuukkiTrá því.
Gunnar Jahn sagði, að barátta
Kings fæli í sér boðskap til allra
sem ynnu að friði. Hann væri
fyrsti maðurinn á Vesturlöndum,
sem hefði sýnt, að stríð sé hægt
að heyja án ofbeldis. Hann væri
fyrsti maðurinn sem hefði í bar-
áttu gert boðskap mannkærleikans
að veruleika og flutt þennan boð-
skap öllum mönnum, þjóðum og
kynþáttum.
í þakkarræðu sinni sagði King
að hann tæki við verðlaununum
fyrir hönd allra manna, sem ynnu
friði og bræðralagi manna. Finna
yrði aðferð til að koma í veg fyrir
öll deilumál, aðferð þar sem hefnd
og árásum væri hafnað. Grundvöll-
ur þessarar aðferðar væri kærleik-
urinn.
Við afhendingu Nóbelsverðlaun-
anna I Stokkhólmi vantaði einn
Nóbelsverðlaunahafa, franska rit-
höfundinn Jean-Paul Sartre. Hann
hefur neitað að taka' við verðlaun-
unum, m. a. á þeirri forsendu, að
hann teldi sig skuldbundinn ef
hann veitti þeim viðtöku.
Verðlaununum í eðlisfræði var
skipt milli bandariska vísinda-
mannsins Charles Tovraes, sem
hlaut helminginn, og sovézku vis-
ind.amannanna Nikolai Basov og
Alexander Prokorov. Verðlaunun-
um í læknisfræði var skipt milli
tveggja þýzkættaðra vísinda-
manna, Konrad Blocít frá Banda-
ríkjunum og Feodor Lynen frá
Vestur-Þýzkalandi. Brezka vísinda-
konan Dorothy Crowfoot Hodgkin
hlaut verðlaunin í efnafræði.
Framhald á 4. síðu
Ben Húr
Hin heimsfræga
saga Lewis Wallace.
Aðalsöguhetjan, Ben
Húr, líf hans og ör-
lög, gleymist eng-
um, sem söguna
hefur lesið. —
Kr. 135,00 ib.
ívar hlújám
Ævintýraleg og
spennandi saga eft-
ir Walter Scott, sem
farið hefur óslitna
sigurför um heim-
inn bæði sem bók
og kvikmynd. —
Kr. 150,00 ib.
Wilson setur
EBE 5 skilyrði
OTTAWA, 10. des. (NTB-Reuter).
Forsætisráðherra Breta, Harold
Wilson, fór í dag áleiðis til Lon-
don eftir stutta heimsókn í Ott-
awá þar sem hann ræddi við Lester
Pearson forsætisráðherra. Til Ott
awa kom Wilson frá Washingrton
þar sem hann ræddi viff Johnson
forseta og ráðamenn þar ásamt
lielztu ráffunautum sínum.
Á blaðamannafundi fyrir brott
förina frá Ottawa neitaði Wilson
að skýra frá gagntillögum þeim
sem hann hefði lagt fram um
kjarnorkuflota NATO en kvaðst
mundu gera grein fyrir þeim í
Neðri málstofunni í næstu viku
Á meðan héldu NATO-rikin áfram
umræðum sínum um hinar ýmsu
hliðar kjarnorkuvandamálanna.
Forsætisráðherrann kvaðst vona
að Frakkar tækju þátt í þessum
Umræðum. Hann sagði, 'að bréska
.stjórnin gæfi undirróðri Kínverja
r Afríku nánar gætur, en ítrekaði
stuðning Breta við upptöku Kin-
verska alþýðulýðveldisins í SÞ.
Wilson sagði, aff enginn gerði
ráð fyrir því aff Bretar mundu
fljótlega leita hófanna um affild
að Efnahagsbandalaginu en kvað
Verkamannaflokksstjórnina
mundu gera allt sem í hennar
valdi stæði til að koma í veg fyrir
frekari sundrung í Vestur-Evrópu
á sviði efnahagsmála. Wilson setti
fimm ákveðin skilyrffi fyrir viff-
ræðum milli Breta og EBE.
1. Að samskipti Bretlands viff EF
TA-löndin verffi tryggð.
2. Að b^reskur landbúnaðúr fái
nauðsynlegar tryggingar.
3. Að efnahagsskipulagning lands
ins aff því er varffar auðlindir og
atvinnumál ferigi aff lialda áfram
án utanaðkomandi afskipta.
4. Aff athafnafrelsi landsms í ut-
anríkismálum verði tryggt.
5;- Aff frelsi Bretlands með tilliti
til verzlunarinnar og efnahagsþró
unarinnar innán samveldísins
verði virt.
Börnin í Nýskógum
Ein bezta og skemmtilegasta saga hins
víðfræga höfundar, Frederick Marryat,
Þessi saga hefur ekki áður verið þýdd
á íslenzku. — kr. 165,00 ib.
í bókaflokknum SÍGILDAR SÖGUR
IÐUNNAR birtast einvörðungu úr-
valssögur, sem um áratugaskeið hafa
verið vinsælasta lestrarefni fólks á
öllum aldri og eru alveg sérstaklega
kjörið lestrarefni handa unglingum og
ungu fólki.
I Ð U N N
HOUSTON, Texas: Hertoginn af
Windsor, fymim konungur Eng-
lands, verður lagður á sjúkrahús
í Houston í Texas um helgina.
KENNEDYHÖFÐA: Bandaríski
flugherinn hefur skotið líkani af
gervihnetti frá geimpalli^ sem kom
inn var á braut umhverfis jörðu
Líkaninu var skotið með eldflaug
af gerðinni „Titan 3“ og losnaðt
rúmri klukkustund ©ftir að því
var skotið. Tilraunin heppnaðisi
fullkomlega.
BERLÍN: Forseti dómstóls í
Vestur - Þýzkalandi, Kurt Belij
nke, liefur fyrirfarið sér eftir aí
hafa gert Hermann Höcheri þ
játningu, að hann hafí gerzt se
ur um; ósiðsamlegt-atferli.