Alþýðublaðið - 12.12.1964, Page 7

Alþýðublaðið - 12.12.1964, Page 7
BHM vill samningsrétt III jafns við BSRB AÐALFUNDTJR Bandalags Há- Bkólamanna (BHM) fyrir árið (1964 var haldinn 24. nóv. sl., og sátu fundinn fulltrúar frá öllum aðild- arfélögum. Formaður Bandalagsins, Sveinn Björnsson, verlcfr., flutti skýrslu fstjó^rjarinnar fyr-ir sl. starAnr. Kom fram í henni, aff affildarfé- lög bandalagsins), voru viff lok starfsársins 11 aff tölu meff um 1.220 félagsmönnum. Á liðnu starfsári hefur starf BIIM einkum mótazt af undirbún- ingi að öflun samningsréttar til handa háskólamenntuðum mönn- um í þjónustu hins opinbera, svo og endurskipulagningu Bandaiags ins. Á þessu hausti fór BHM þess formlega á leit við ríkisstjórnina, að hún beitti sér fyrir því, aff lög um um samningsrétt opinberra starfsmanna ýrði breytt á þann veg, að BHM fengi samningsrétt til jafns við BSRB. Mun ríkis- stjórnin væntanlega svara þessari málaleitun innan skamms. Af öðrum málum, sem Banda lagið lét til sín taka á árinu, má nefna, að á vegum þess var starf andi nefnd til að kanna, hvað BH M gæti gert til að styðja fram- haldsnám kandídata, svo og nefnd vegna endurskoðunar á lögum og reglugerðum um menntaskóla. Bandalagið er fulltrúi íslenzkra háskólamanna gagnvart hliðstæð- um samtökum erlendis og átti á árinu töluverð og mjög gagnleg samskipti við systurfélög sín á Norðurlöndum. Bandalagið gaf út handbók á árinu, sem einkum er ætluð fyrir futltrúaráð þess og stjórnir aðildarfélaganna. í hand- bókinni er að finna upplýsingar um flestöll samtök háskólamanna á íslandi og fleira. Ákveðið er, að Bandalagið liefji í vetur útgáfu fréttabréfs, sem komi út nokkr- um sinnum árlega. Fréttabréfið verður sent öllum háskólamönn- um innan vébanda BHM. Fyrir aðalfundinum lá inntöku beiðni frá Félagi háskólamenntra kennara, sem nýlega var stofn- að. Var samþykkt einróma að veita félaginu aðild, og eru þá að- ildarfélög BHM 12 að tölu. Úr stjórn gengu þeir Árni Böðv- arsson, cand. mag., og Stefán Að- alsteinsson, búfjárfr. Þakkaði for maður þeim ánægjulegt samstarf og alúð í störfum fyrir Bandalag- ið. X stað þeirra voru kosnir Bjarni Bragi Jónsson, hagfr. og dr. Mattli ías Jónarson, Sveinn Björnsson, verkfr., var endurkjörinn formað ur Bandalagsins, en aðrir í stjórn eru Arinbjörn Kolbeinsson, lækn ir og Ölafur W, Stefánsson, lög- fr. Framhald á 10. síðu Takmarkað gagn af aurhlífum? Reykjavík, 10. des. ÓTJ. Fyrir nokkru var lögboðiff aff hafa iaurhtífar á bifreiðum, og verffur gengiff svo hart eftir því IWMWmWWMWWWW Höfn, Hornafirði, 28. nóv. LEIKFÉI.AG Hafnarkaup- túns frumsýndi leikritið „Þrir skálkar“ eftir Carl Gandrup laugardaginn 28. nóvember. Var leikurinn sýndur fyrir fullu húsi og mjög góffum undirtektum. Er þetta stærsta vifffangs- efni, sem Ieikfélagiff liefur fengizt viff til þessa, enda er þaff ungt að árum. Áffur hef- ur félagiff sýnt Ævintýri á gönguför, Klerkar í klípu og Saklausi svallarinn. Fyrir- hugaff er aff sýna Skálkana á Eskifirði lielgina 5____6. des. Leikstjóri er Höskuldur Skagf jörff og undirleikari Sig jón Bjarnason. Á meðfylgj- andi mynd má sjá Núrí, spá- kerlingu (Sigrún Eiriksdótt- ir) og Kurt, söngvara (Júlíus Valdimarsson. aff því.verffi hlýtt, aff bifreiðarnar fá ekki skoffun, ef. þær vantar. Nokkrar undantekningar hafa þó veriff gerffar fyrir þá sem ekki hafa getaff orffiff sér úti uni hlífar ennþá. En viff næstu skoðun verff ur engin miskunn sýnd. Þetta hefur mörgum gramist, og hundruð þúsunda ökumanna í öðrum löndum, sem eru undir það sama seldir, halda því fram að aurhlífarnar geri ekkert gagn. Nú virðist þetta vera sannað. Til raunir hafa verið gerðar með hlíf arnar í nokkrum löndum m.a. i Danmörku. Og niðurstaðan er aUs staðar sú sama. Gagnsemi hlíf- anna er mjög vafasömt svo að ekki verði meir sagt, og alls engin þeg ar bifreiðin hefur náð um 70 km. hraða. Þess ber að geta að 70 km. hraði og þar yfir mun mjög algengur á íslenzkum þjóðvegum. Tilraunirnar í Danmörku voru gerðar á sérstökum brautum. Þar voru notaðar margar tegundir bif eiða, stórra og smárra. Og allstað- ar var það sama sagan. Vafasamt Framhald á 10 síðu Umfangsmiklar breyting ar á verzlunum KEA á Akureyri í DAG. þriðjudaginn 8. desem- ber, má telja að lokið sé um- fangsmiklum breytingum á verzlunum Kaupfélags Eyfirð- inga, í Hafnarstræti 91 og 93. Þá opnaði Herradeildin á fyrstu hæð í Hafnarstræti 93, og Vefnaðarvörudeildin tók alla aðra hæð fyrir sínar vörur. Auk þess er teppasala í kjall- ara hússins, svo að nú er vcrzl- að á þrem hæðum þess í björt- um og mjög rúmgóðum húsa- kynnuni. Verzlunarplássið i kjallara er um 80 fermetrar, á fyrstu hæð um 250 ferm. og á annarri hæð um 270 fermetrar. Flest öllum varningi deild- anna er fyrir komið á lausum borðum eða „eyjum” þannig að viðskiptavinirnir eiga mjög auðvelt með að skoða hann. Teikningar af breytingunum annaðist Teiknistofa S.Í.S en verkstjórn Stefán Halldórsson, byggingameistari, Sameinuðu verkstæðin Marz og Vélsmiðj- an Oddi, sáu um hitalagnir, en Raflagnadeild KEA um raf- lagnir. Jón A. Jónsson, málara- meistari, og menn hans önnuð- ust málningu, en Húsgagna- vinnustofa Ólafs Ágústssonar sá um smíði og uppsetningu verzlunarinnréttingar. Til algerrar nýjungar í út- búnaði verzlunar hér í bær, er hinn svonefndi hverfistigi, sem er hinn fyrsti, sem settur er upp hér á landi utan Reykja- víkur. Stiginn er smíðaður hjá OTIS-ELEVATOR Company í Þýzkalandi sem er eitt elzta og reyndasta fyrirtæki heims í smíði hverfistiga og lyftna. Stig inn er af sömu gerð og er í mörgum stærstu verzlunarhús- um meginlandsins. Hann er með fullkomnum öryggisútbún- aði svo aðengin slysahætta er talin stafa af honum. Uppsetn- ingu stigans annaðist Mr. W. J. Davis frá Otis-fyrirtækinu í Englandi, en hann hefur farið víða um heim í slíkum erindum. Hverfistiginn flytur við- skiptavinina úr Herradeildinni upp í Vefnaðarvörudeildina, og er staðsettur nálægt miðju þess ara deilda, en að sjálfsögðu er einnig venjulegur stigi milli þeii'ra, sem nota verður við út- göngu úr Vefnaðarvörudeild. Deildarstjóri Herradeildar er Björn Baldursson, en Vefnaðar- vörudeildar Kári Johansen. MWWWWWWWWWWWWMVMiilWVUWWWWW Hjartavemd gef- ur út timarit Hjarta- og æðasjúkdómavarna- félag .Reykjavíkur tilkynnir, að nýlega sé kömið út blað þess, Hjartavernd. Er það til sölu í bókabúðum borgarjnnar og kost- ar kr. 25. í því er grein eftir Snorra P. Snorrason lækni um einkenni kransæðasjúkdóma, tvær greinar eftir Sigurð Samúelsson önrtur um hjarta- og æðasjúk- dóma, Jiin um markmið landssam ! bands Hjartaverndar. Þá er greiri \ eftir‘,» Ölaf Ólafsson lækni, um ::t*Vf$sWð hjarta- og æðavéf’n'd unarfélaga, auk {>ess eru þar káifa þykkt lög landssambandsihs. Hjarta- og æðasjúkdómavarnafé- lag Reykjavíkur minnir á, að allir bankar og sparisjóðir i borginni veita viðtöku iðgjöldum til félags ins. Nýir félagar geta einnig ,skrá sett sig þar. Minningarkort fé- lagsins eru afgreidd í Bókabúð Lárusar Blöndal og Bókavcrzlun ísafoldar Austurstræti. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 12. des. 1964 J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.