Alþýðublaðið - 12.12.1964, Page 14
íslendingrar eru bráðsnjall-
ir í að rekja ættir sinar aftur
á bak. Það er mun 'auðveld-
ara en rekja þaér áfram. . .
X
2
Y firmannaskipti
Stofnfundur að ungmennafélagi
í Reykjavík verður lialdinn í Odd-
fellowhúsinu uppi sunnud. 13. des.
1964 og hefst kl. 3.30 s.d.
Undirbúningsnefndin.
I
Kvenfélag Bústaðarsóknar. Jóla
fundur kvenfélagsins er í Réttar-
tioltsskóla mánudaginn 14. des.
•g hefst kl. 8.30 s.d.
Fjölbreytt fundarefni!
Stjórnin.
Gjöf til Sjálfsbjargur.
Nýlega gaf „Verkamaður" kr.
3.000.00 í byggingarsjóð Sjálfs-
bjargar, landssambands fatlaðra,
en eins og kunnugt er verður
þeirn sjóði varið til byggingar
Vinnu- og Dvalarheimilis fyrir
fatlað fólk.
Sjálfsbjörg færir gefanda beztu
þakkir.
Kvenrét'tindafélag íslands held-
ur jólafund þriðjudaginn 15._des.
kl. 20.30 að Hverfisgötu 21.
fundarefni:
Sagt frá norræna fundinum og
alþjóðafundinum. Skemmtiatriði.
Framhald af 16. síðu.
toga þar til í janúar 1943, er
hann var gerður að flugliðsfor-
ingja í sprengjuflugsveit. Þá
var hann sæmdur Navy Cross
orðunni fyrir framúrskarandi
vasklega framgöngu í viðureign
við öflugustu deildir japanska
flotans í fyrstu orustunni á
Filipseyjaliafi. Auk Navy
Cross var hann sæmdur Dist-
inguished Flying Cross fimm
sinnum og Air Medal þrisvar,
svo og Presidential Unit Cita-
tion og Navy Unit Citation.
Weymouth, flotaforingi, starf
aði sem yfirmaður þjálfunar-
deildar sjóhersins frá 1944 til
1946 og síðar stundað'i hann
nám við framhaldsskóla flotans.
Hann hélt áfram námi við Mas-
sacliusetts Intitute of Techno-
logy og þaðan lauk hann meist-
araprófi (Master of Science)
í flugvélaverkfræði í septemb-
er 1949.
Árin 1949 og 1950 hafði
hann á hendi yfirstjórn loft-
siglingadeildarinnar á flugvéla-
móðurskipinu USS Kearsarge,
tók síðan við stjórn orustusveit
ar, og þar á eftir tók hann við
yfirstjórn flugsveita á flugvéla-
móðurskipinu USS PhiIIippine
Sea, sem tók þátt í Kóreu-styrj-
öldinni. Hann starfaði síðan í
sex mánuði með foringjaráði
yfirmanns flugliðs flotans á
Kyrrahafi 1951. Því næst stund-
aði hann nám í Armed Forces
Staff College í Norfolk, Va.
Áður en hann var skipaður í
yfirstjórn Kyrrahafsflotans ár-
ið 1954 var hann yfirmaður í
vopnabúnaðardeild flugliðsins
og því næst yfirmaður flug-
deildar flotaskólans í Anna-
polis, Md. þar til í júní 1959.
Næstu tvö árin hafði hann á
hendi yfirstjórn á flugvéla-
skipunum USS Duxbury Bay og
USS Lake Champlain, en frá
því í júlímánuði 1961 og þar
til í júní 1962 stundaði hann
nám við National War College
í Washington, D. C.
Eftir að hann útskrifaðist
þaðan gegndi hann störfum í
varnarmálaráðuneytinu í Was-
hington, D. C. og í febrúar 1964
voru honum falin þau störf, er
hann nú hefur með höndum.
Weymounth flotaforingi er
kvæntur Laure Bouchage frá
Port Blanc í Frakklandi og
eiga þau átta börn.
Vetrarhjálpin
Framhald af 16. síðu
Stefánsson, Þórður Þórðarson,
framfærslufulltrúi, Gestur Gamal-
íelsson, kirkjugarðsvörður og Gísli
Sigurgeirsson, heilbrigðisfulltrúi.
Telur stjórnin, að nú sé ekki
síður þörf en á uhdanförnum ár-
um, að veita mörgum hjálp og
styrk fyrir jólin.
7.00
12.15
13.00
14.30
16.00
16.30
17.00
17.05
18.00
18.20
18.50
Laugardagur 12. desember
Morgunútvarp — Veðurfregnir — 7.30
Fréttir — 7.50 Morgunleikfimi 8.00 Bæn. —.
9.00 Útdráttur úr forustugreinum dagblað-
anna.
Hádegisútvarp.
Óskalög "sjúklinga (Kristín Anna Þórarins-
dóttir).
í vikulokin (Jónas Jónasson).
Skammdegistónar: Andrés Indriðason kynn-
ir fjörug lög.
Danskennsla. Heiðar Ástvaidsson.
Fréttir.
Þetta vil ég heyra: Guðmundur Sigurjóns-
son bankaritari velur sér hljómplötur.
Lesið úr nýjum barnabókum:
„Prinsinn og rósin“ og „Jólaeyjan.“
Veðurfregnir. — Tónleikar.
Tilkynningar. — 19.30 Fréttir.
20.00 „Tunglið, tunglið taktu mig“ —. og önnur
músik um mánann.
20.20 Leikrit: „Karlinn í tunglinu“ eftir Leck
Fischer.
Þýðandi: Ingibjörg Einarsdóttir.
Persónur og leikendur:
Stöðvarstjórinn ........... Valur Gíslason
Carl Frederik, sonur lians Baldvin Halld.
Nancy, dóttir hans .... Helga Valtýsdóttir
‘Niels, sonur hans...... Erlingur Gíslason
Lydia, kona Carls .... Bryndís Pétursdóttir
Dalmose, stöðvarþjónn Haraldur Björnsson
Maja, ung stúlka ........ Kristbjörg Kjeld
Aðrir leikendur: Guðrún Stephensen, Hildur
Kalman, Jón Aðils, Gísli Alfreðsson og Pét-
ur Einarsson.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
Jólagleði.
Ljómandi er gaman að lifa,
er líður að jólunum.
Þá halda sig allir heima
fram á hádegi, i bólunum.
Og þá er nú hægt að hafa
við hendina bókamennt.
— Um jólin er aldeilis ósköp
út á markaðinn sent.
Þá birta oss blessuð skáldin
bráðfalfeg listaverk,
sem öll eru hreint og beint einstæð,
og orðsnilli geysisterk.
En dæmendur orðsins eru
með alls konar hrellingar.
Og SAM er að abbast upp á
„átta kellingar".
Kankvis.
MUNH) jólasöfnun mæðrastyrks
nefndar, munið sjúka, munið gaml
ar konur, munið einstæðar mæð
ur með börn.
Mæðrastyrksnefnd
Jólabazar Guðspekifólagsins
verður haldinn sunnudaginn 13.
desember kh 4 s.d. í Guðspeki-
félagshúsinu Ingólfstræti 22. Þar
verður á boðstólum jólaskraut,
leikföng, kökur og áyextir, fiatn-
aður á börn og fullorðna og ýms-
ir fallegir munir hentugir til jóla-
gjafa:
Minningarspjöld úr Minningar-
sjóði Maríu Jónsdóttur flugfreyju
fást í Öculus, Austurstræti 7,
Snyrtistofunni Valhöll, Laugaveg
25 og Lýsing h.f., Hverfisgötu 64.
pc
Austan og síðan suðaustan stinningskaldi, lít-
ilsháttar snjókoma. í gær var hvöss norðaustan
átt víðast hvar hér á landi. í Reykjavík var aust
an kaldi, eins stigs frost, alskýjað.
OíCUÝM
Kellingin sprengir alla
brandara kallsins f" loft
upp - jafnvel þótt ekk-
ért púður sé í þeim . .. .
512. des- 1964 - ALÞÝÖUBLAÐIO
; ; i f
- w