BFÖ-blaðið - 01.02.1981, Síða 1
Nr. 2 Félagsrit Bindindisfélags Ökumanna
Útgefandi: Bindindisfélag Ökumanna, Lágmúla 5
Ábyrgðarm.: Sveinn H. Skúlason.
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar BFÖ
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar BFÖ var haldinn í
Templarahöllinni 30. apríl s.l. Fundarstjóri var Haukur
ísfeld og fundarritari Andrés Bjarnason. Formaður flutti
skýrslu stjórnar þar sem kom fram það helsta í störfum
hennar s.l. ár. Langstærsta verkefnið sem deildin stóð
fyrir var góðakstur með gamla laginu. Hann krafðist
mikils mannafla svo og varð kostnaður við auglýsingar
o.fl nokkuð mikill.
Deildin tók þátt í útgáfu jóladagatals og almanaks
og greiddi kostnað að hálfu á móti Sambandsstjórn. I
tengslum við ökuleikni aðstoðaði deildin t.d. við
úrslitakeppnina hér í Reykjavík. Bauð deildin keppend-
um;og tstarfsliði itill kaffisamsætis í Templarahöllinni,
þar sem verðlaunaafhending fór fram. Munu um 40
manns hafa mætt þar.
I sambandi við góðaksturinn s.l. haust var haldið
kaffikvöld þar sem verðlaunum var úthlutað og nokkuð
sagt frá uppbyggingu góðakstranna og einnig voru
sýndar myndir varðandi akstur og áfengi. Ijanúar s.l. var
haldinn almennur fundur þar sem Brynjar Valdimars-
son flutti mjög fróðlegt og athyglisvert erindi varðandi
umferðarmálin og sýndi skyggnur með til fróðleiks. Þá
sagði Gunnar Þorláksson forseti BFÖ frá væntanlegum
störfum á komandi sumri, t.d. varðandi ökuleikni,
vélhjólakeppnunum, félagafjölgun og happdrætti í sam-
bandi við hana. Á eftir var sýnd kvikmynd um öryggis-
belti.
I skýrslu gjaldkera kom fram að heildartekjur
deildarinnar sem saman standa af félagsgjöldum og
vaxtatekjum voru rúmlega 477.000.-gkr. en gjöldin
urðu 425.000.-gkr. þannig að eftir voru um 52.000.-
gkr. Það er því Ijóst að ef ráðist verður í stórverkefni með
haustinu t.d. góðakstur, verður að afla fjár með
einvherjum ráðum t.d. með auglýsingum frá
fyrirtækjum á bifreiðar eða að eitthvert bifreiðaumboð
kostaði að einhverju leiti aksturinn þá væntanlega með
auglýsingum.
Fjörugar umræður urðu um væntanleg lög um bílbelti,
svo og þá nýbreytni að láta Ijós blikka á nóttunni á mestu
umferðargötum. Að lokum voru eftirfarandi tillögur
samþykktar:.
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar BFÖ haldinn 30. apríl
1981 telur mjög misráðna þá framkvæmd gatnamála-
stjóra, að láta umferðarljós blikka með gulu Ijósi á
fjölförnustu gatnamótum Reykjavíkur um helgar og á
nóttunni, án þess að veita nauðsynlega fræðslu áður en
framkvæmdin hófst. Þau mörgu umferðarslys, bæði stór
og smá, sem orðið hafa við slíkar aðstæður nú að
undanförnu sýna, að margir ökumenn kunna ekki þær
umferðarreglur, sem gilda er gul umferðarljós blikka.
Að framansögðu leyfir fundurinn sér að leggja til:
1. Að hætt verði að láta gult Ijós blikka á stærstu og
fjölförnustu gatnamótunum að sinni.
Sjá framhald á næstu síðu.
Frá vélhjólakeppnunum í sumar. Þær eru byggðar upp á svipaðan hátt og Ökuleiknin.
Þær eru haldnar ísamvinnu við Umferðarráðog Æskulýðsráð ríkisins. Fyrsta keppnin var
haldin við Lækjarskóla í Hafnarfirði 13. júní s.l.
Úrslitakeppnin mun fara fram í haust og verða tveir bestu keppendur hennar sendir í
alþjóðlega vélhjólakeppni, sem fara mun fram í Hollandi næsta vor.