BFÖ-blaðið - 01.01.1983, Page 4
4
BFÖBLAÐÍfr
r
• •
Olvun við akstur
Getur þú ímyndað þér þær hugsanir
sem fljúga í gegn um höfuðið, þegar
setið er undir stýri á bíl, sem hefur verið
stöðvaður og lögreglumaðurinn er á leið
til þín. Þú veizt að þú ert búinn að fá þér
of mörg glös og skelfingin við tilhugsun-
ina er slík, að lögreglumaðurinn þarf
ekki nema líta einu sinni á þig, áður en
hann biður þig að koma yfir í lögreglu-
bifreiðina. Þú fylgir honum yfir, án þess
að skilja hvernig fæturnir geta haldið þér
uppi. Þú setzt í aftursætið hjá þeim og
þú ert spurður nokkurra spurninga, en
hefur ekki hugmynd um hverju þú
svaraðir.
Áður en þú veizt af ert þú kominn á
lögreglustöð, þar sem þú gengur inn,
milli þessara tveggja sem tóku þig. Á
leiðinni inn sérðu tugi andlita, sem horfa
á þig og þú efast ekki um að allir koma
til með að muna eftir þér og líta þig með
meðaumkunarsvip í hvert skipti sem
þú átt eftir að verða á vegi þeirra.
Allt í einu situr þú í stól á móti manni
í hvítri skyrtu, sem horfir í gegn um þig
og þér finnst hann sjá allt sem leynist í
huga þér. Hann talar í síma, milíi þess
sem hann gefur öðrum skipanir og þú ert
viss um að allir sem eru á vakt hafa
komið inn í herbergið, ekki til að fá
fyrirmæli, heldur til að virða þig fyrir sér
aftur. Loks snýr maðurinn í hvítu skyrt-
unni sér að þér aftur og spyr þig
nokkurra spurninga, sem rugla þig enn
meira, en áður hafðir þú verið látinn
blása í plastpoka og þér sýnt að einhver
litur í glerröri hafði breytzt. Spurning-
arnar voru mjög ruglandi og ef þú skildir
þær ekki eða vissir ekki hverju þú ættir
að svara varð svipurinn á manninum í
hvítu skyrtunni eins og hann héldi að þú
værir að leyna hann einhverju.
Skyndilega ert þú svo á leiðinni inn á
slysadeildina með nokkrum lögreglu-
mönnum og þú þakkar guði fyrir hve fáir
eru á ferli þarna. Siðan ert þú settur í
stól í litlu herbergi og þar nær skelfingin
hámarki, þú tekur ekki einu sinni eftir
því þegar læknakandidatinn tekur úr þér
blóðið og svo ert þú allt í einu sestur inn
í lögreglubifreið og skilur loks þegar hún
er komin hálfa leið niður í bæ að
lögreglumennirnir eru alltaf að reyna að
spyrja þig hvert þeir geti ekið þér. Þú
segir að það sé ágætt hérna, þar sem þið
eruð staddir núna og ímyndar þér að
martröðinni hljóti að ljúka þegar þú ert
kominn út úr bílnum, en það reynist
rangt, þú manst ekki einu sinni hvernig
þú komst heim til þín eða hvenær þú
sofnaðir.
Þegar þú vaknar lýst atburðunum eins
og eldingu í höfuðið á þér og þú vonar
að þetta hafi allt saman verið draumur,
en um leið og þú þreifar á handleggnum
og finnur farið eftir nálina veist þú að
þetta átti sér allt saman stað. Þú gengur
um í leiðslu allan daginn, en að lokum
hefur þér tekizt að safna nægum kjarki
til að fara og sækja bílinn. Þegar þú
kemur inn á stöðina finnst þér að allir
sem þú mætir þekki aftur þennan sem
var tekinn í gær. Þegar þér hefur tekizt
að stynja upp erindinu og fá lyklana,
hefur þú ekki einu sinni kjark til að
spyrja hvenær þú fáir að vita eitthvað.
Þegar farið er að líða á vikuna ert þú
búinn að telja sjálfum þér trú um að
þetta hafi verið svo lítið sem þú drakkst
að þú eigir góða möguleika með að
sleppa. Svo þú herðir upp hugann og
ferð aftur á lögreglustöðina, til að leita
upplýsinga. Þú átt mjög erfitt með að
segja eftir hverju þú ert að leita, en tekst
svo að koma því frá þér, eins og þú sért
að gera þetta fyrir kunningja þinn sem
lenti í þessu, en að lokum tókst að fá
skýringar.
Ef áfengismagn í blóði er 0,59% til
0,99% færð þú þriggja mánaða ökuleyf-
issviptingu og allf að 4200 kr. sekt. Ef
magnið er 1,00% til 1,19% er sviptingin
fjórir mánuðir og 4800 kr. sekt. Ef
magnið er 1,20% til 1,31% er sex
mánaða svipting og 4800 kr. sekt. Þegar
áfengismagnið er meira en 1,31% er
svipt í eitt ár og sektin er 6000 kr. Ef um
ítrekun er að ræða, það er að seja að
maður er tekinn fyrir ölvun við akstur og
ekki eru liðin fimm ár frá því að
viðkomandi lenti í sams konar máli er
ævilöng svipting og 9000 kr. sekt. Svipt-
ingin er ævilöng, en það er hægt að sækja
um náðun eftir þrjú ár, en þá má ekkert
NEYTIR ÞÚ Ví NS - OG AKIR SÍÐAN
ÁTTU MARGT Á HÆTTU
hafa komið fyrir viðkomandi á tímabil-
inu, sem viðkemur áfengi, ekki einu
sinni ölvun á almannafæri. En hvað ef
þú ert tekinn í akstri eftir að þér hefur
verið birt sviptingin, þá færð þú minnst
6000 kr. setk, en sviptingatíminn breytist
ekki.
Rúmum tveim vikum eftir að þetta
átti sér stað ert þú boðaður til rannsókn-
ardeildar, eða beint fyrir dómara. Þú
mætir á staðinn og vonar að loks gangi
þér eitthvað í haginn og þú sleppir vel.
En þú ert varla búinnn að koma þér fyrir
í sætinu, þegar þú færð að vita að þú
hafir farið langt fram yfir 1,31% og nú
fer fram svipting ökuleyfis. Við þetta
dofnar heilinn aftur og þú manst ekkert
hvað fór fram þarna, eða hvað stóð á
plagginu sem þú settir nafnið þitt undir
um leið og þú afhentir ökurskírteinið.
Þú ráfar út í leiðslu og ert að hugsa um
hvernig átt þú að segja fólkinu þínu frá
þessu og hvað á að segja við vinnuveit-
andann, því nú mátt þú ekki lengur aka
og missir örugglega vinnuna eða verður
settur í eitthvað annað sem er mun
leiðinlegra og ver borgað. Þú ert farinn
að hugsa um að fara á sjó, annað hvort
togara eða fragtara, láta þig hverfa
meðan árið er að líða.
Núna þegar nokkur ár eru liðin og þú
hugsar til baka er erfitt rifja þetta upp.
Þú ert búinn að einbeita þér að því að
gleyma þessu og það er næstum eins og
þetta hafi ekki átt sér stað, en lærðir þú
eitthvað af þessu. Þú ert ekki viss iim
hvað það var, en samt ert þú viss um að
þú mundir frekar vilja deyja en lenda í
þessú aftur. Þú verður líka stundum
bitur þegar þú hugsar til þess að það var
ekki bara ökuréttindin sem þú misstir,
þetta hafði áhrif á vinnuna, þú lækkaðir
í launum og þurftir í raun að vinna þig
upp frá byrjun aftur.
Það getur enginn ímyndað sér hvað
svona augnabliks kæruleysi getur
kostað, nema lenda í því sjálfur. Gerðu
því allt sem þú getur til að komast ekki
í þessa aðstöðu, því þetta er allt of dýr
reynsla.
FGG
Almennar bílaviðgerðir
réttingar
DVERGSHOFDl
UL
Z1
]T
{castroi Castrol smurþjónusta
BILABCRG SF.
HVRJARHÖFÐA 6 — SÍMI 86913 REYKJAVÍK - NAFNNR. 1108-9763
VESTURLANDSVEGUR
Bíllinn er í góðum höndum hjá Níels
önnumst allar almennar bílaviðgerðir Ljóaastillingar
Einnig viðgerðaþjónusta á rafkerfum bifreiðarinnar
BIFREIÐAVERKSTÆÐI N.K. SVANE Skeifan 5 - Sími 34362