BFÖ-blaðið - 01.01.1983, Side 16

BFÖ-blaðið - 01.01.1983, Side 16
16 föínmm BFO BLAÐIÐ Kadettinn er óneitanlega snaggaralegur smábíll ef hann er trimmaður aðeins umfram standard gerðina. Dugnadarþjarkar frá Japan og gæöingar frá V-Þyskalandi Þar sem Isuzu er eitt nýjasta merkið á íslenska bílamarkaðnum, snérum við okkur til umboðsaðilans hér, Véladeild- ar SÍS, og spurðum Bjárna Ólafsson, deildarstjóra um viðtökur víð þessdm bílum, svo og um fjölbreytni fram- leiðslulínunnar og nýjungar. Isuzu bílarnir eru japanskir og hingað hafa einkum veirð fluttir litlir pallbílar, (Pick uþs) eða fisksalabílar, eins og þeir eru oft nefndir, og jeppar með fóksbíla- þægindum. Að sögn Bjarna var Isuzu bílunum strax vel tekið enda er þorri alls tækni- búnaðar bílanna þegar þrautreyndur. Það er t.d. búið að framleiða yfir eina milljón lítilla Isuzu pallbíla svo reynslan ætti að vera nokkur. Pallbíllinn tekur af skarið með farþegafjölda Isuzu pallbíllinn hefur tekið miklum útlistbreytingum upp á síðkastið og er útlit hans óvenju fágað af þessháttar bílum að vera. Gangverkið er hinsvegar hið þrutreyndasta. Meðal athyglisverð- ustu nýjunga í framleiðslulínu þeirra er að þar er nú tekið af skarið með farþega- fjölda þannig að hann er ýmist fáanlegur með tveggja manna húsi eða sex manna húsi, og er ekkert verið að fikta með neitt miílilbil, eins og talsvert hefur borið á hjá öðrum framleiðendum svip- aðra bíla upp á síðkastið. Með stærra húsinu er hann einkar hentugur verk- takabíll, pláss fyrir sex menn og pallur fyrir aftan. Þegar bandarískir framleið- endur hafa verið að framleiða þessa bíla hafa þeir lengt þá verulega umfram venjulega pallbíla, sem rýrir getu þeirra til torfæruaksturs, en það hafa Isuzu- verksmiðjurnar hinsvegar ekki gert. Þennan bíl þarf að vísu enn að sérpanta þar sem hann lendir enn í óhagstæðum tollflokki. Unnt er að fá alla pallbílana ýmist tveggja- eða fjögurrahjóla drifna og völ er á fjórum vélagerðum. Það eru tvær benzínvélar, 80 og 86 hestafla, og tvær dieselvélar af mismunandi afli. Fram- drifslokur í bílnum, sem einungis er framleiddur með fjórhjóladrifi, eru sjálf- virkar þannig að þær kúpla að eða frá eftir því hvort bíllinn er settur í framdrif eða tekinn úr því. Diskahemlar eru að framan og þar er sjálfstæð fjöðrun, en heill öxull og borðabremsur að aftan. Bíllinn er fáanlegur í átta mismunandi útgáfum. Auk þeirra sem áður eru nefndar, er t.d. hægt að fá hann þannig að hægt er að leggja skjólborðin niður og pallrými er þá meira. Stærri en þeir litlu og minni en þeir stóru Isuzu jeppinn, sem hér er á markaði er að mörgu leyti skemmtileg málamiðl- un á þessum hlutfallslegá mesta jeppa- markaði í heimi. Hann er stærri en smájepparnir, en minni en stóru banda- rísku jepparnir, sparneytinn, rúmgóður, þægilegur borgarbíll og um leið duglegur torfærubíll. Þetta eru óneitanlega nokk- uð margir kostir í einum bíl. Annars er Athyglisverð útfærsla á Pick up frá Japan, sex manna hús og skúffa að auki. Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig hin nýstáriega útfærsla afturdyra Isuzu jeppans á eftir að reynast.

x

BFÖ-blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.